Dagur - 08.08.1991, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 8. ágúst 1991 - DAGUR - 5
Lesendahornið
Hestamenn og ökumenn:
Ekki eingöngu hestamenn
sem bera ábyrgð
Kona hafði samband vegna
skrifa um umferðarmál og
hestamennsku:
Sundlaugin á Pelamörk:
Ráðaþarfbót
á óþrifnaði
Þriggja barna móðir kom að máli
við blaðið og kvaðst ekki geta
orða bundist vegna óþrifnaðar
við sundlaugina á Laugalandi á
Þelamök. Hún kvaðst nokkrum
sinnum hafa farið með börnin í
sund á Þelamörk og í hvert skipti
orðið var við óþarfa óþrifnað.
Búningsklefar hefðu verið blautir
og mold og gras, sem borist hafi
inn með fólki á gólfunum. Nauð-
synlega þurfi að þrífa gólfin
reglulega og skafa burt óhrein-
indi sem safnist fyrir. Vegna þess
hversu búningsklefarnir séu litlir
sé nauðsynlegt að huga meira að
hreinlæti og umsjónarmenn laug-
arinnar verði stöðugt að hafa
vakandi augu með umgengni og
sjá til þess að búningsaðstöðunni
sé haldið eins hreinlegri og kost-
ur er. „Sundlaugin á Laugalandi
er vinsæl bæði af ferðafólki og
heimamönnum og því nauðsyn-
legt að viðhafa Snyrtimennsku.
Hún kostar ekki mikla fyrirhöfn
en leiðir af sér ánægða sund-
laugargesti," sagði þessi þriggja
barna móðir að lokum.
Er Akureyri
fyrir fólk?
Akureyringur hringdi
Vegna lesendabréfa í Degi mið-
vikudaginn 31. júlí sl. vil ég
leggja orð í belg.
A tímum erfiðs atvinnuástands
horfa menn til nýrra möguleika í
atvinnu og þar vil ég staðnæmast
við ferðamannaþjónustu, sem ég
er alveg sannfærður um að er
einn helsti vaxtarbroddurinn.
Fyrsta skilyrði til þess er að gera
Akureyri aðlaðandi fyrir fólk. í
því sambandi nefni ég útiveit-
ingaaðstöðu, eins og við
Uppann, og frágang Strandgöt-
unnar og Torfunefssvæðisins.
Menn verða að taka upp
„glasnost“ eða nútímaviðhorf
gagnvart veitingum eins og við
Uppann. Þá tel ég að mönnum
eigi ekki að líðast að láta hálf-
byggð hús standa í miðbænum
árum saman. Sem dæmi um þetta
er Hofsbótin. Einnig vil ég nefna
að löggæslan í miðbæ Akureyrar
verður að vera það öflug að hún
nái að halda niðri skrílslátum og
hreinum sóðaskap.
Mér finnst garðræktin vera það
eina í bæjarkerfinu sem er á réttri
leið og ég vil færa henni miklar
og góðar þakkir fyrir það sem
hún er að gera.“
„Ég vil beina því til ökumanna að
þeir mega heldur ekki bjóða
hættunni heim. Ég er bæði hesta-
maður og ökumaður. Ég lendi í
því eins og aðrir hestamenn, að
stundum þarf að ríða eftir þjóð-
vegunum. Það eru ekki alls stað-
ar reiðvegir fyrir okkur, og við
þurfum að fara yfir þjóðvegina til
að komast á reiðvegi. Ég lenti í
því að ökumaður stöðvaði fyrir
mér og ætlaði að hleypa mér yfir
þjóðveg, þegar ég var með tvo
hesta. Þegar ég var lögð af stað
kom annar ökumaður og ók
framúr, og það munaði ekki
miklu að hann keyrði mig niður.
Það var ekki honum að þakka að
það gerðist ekki. Það er því ýmis-
legt í þessu máli, það eru ekki
eingöngu hestamenn sem bera
sökina. Fólk ætti almennt að taka
tillit til annarra í umferðinni.“
Hlutabréfakaup
og skattafsláttur
Gengi hlutabréfa 8. ágúst 1991
Kaupgengi
Hlutafélag
★ Auðlindhf.
Hf. Eimskipafélag (slands
★ Flugleiðir hf.
Grandi hf.
★ Hlutabréfasjóðurinn hf.
íslandsbanki hf.
Olíufélagið hf.
★ Olíuverslun (slands hf.
★ Skagstrendingur hf.
Skeljungur hf.
★ Sæplasthf.
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
1,03
5,76
2,45
2,69
1,63
1,66
5,71
2,15
4,95
6,10
7,30
4,58
Sölugengi
1,08
2,56
1,72
2,25
5,10
7,62
* Hlutabréf í þessum fyrirtækjum eru til sölu hjá okkur núna.
Veitum allar upplýsingar um hvernig kaup á hlutabréfum
geta lækkað skattana.
KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700
4 liða úrslit í Mjólkurbikarkeppni KSI
Þór - Valur
á Akureyrarvelli fimmtudaginn 8. ágúst kl. 19.00
Stubningsmenn, mœtum í Humar fyrír og eftir leik
(I Hamri eru veitingar og Poolborðið á sínum stað)
Stórglæsilegt Bikarhappdrætti Þórs
Dregib verður í leikhléi
Vinningur er Suzuki Swift
að verðmæti kr. 746.000
Útgefnir miðar eru
aðeins 1500
Verð miða kr. 1000
Nr. 1157
Bikarhappdrætti
Þórs
Verð kr. 1000,-
Dregið i bikarleik 1. vinningur Suzuki Swift Útgefnír miðar 1500.
Pór - Valur 8. ágúst 1991 að verðmæti 746.000,- Upplýsíngar í síma 22381.
Ert þú búinn ab tryggja þér miba?
Miðar eru seldir í Hamri, JMJ, Sportvöruverslununum Allir sem 1 og Sporthúsinu