Dagur - 14.08.1991, Side 4

Dagur - 14.08.1991, Side 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 14. ágúst 1991 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 100 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: INGIBJÓRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Útflutningsvara en ekki tombóluvarningur í byrjun vikunnar boðuðu íslenska álviðræðunefnd- in og forsvarsmenn Atlantsál-samsteypunnar til blaðamannafundar. Tilefnið var að tilkynna að efn- islegt samkomulag hefði tekist um öll meginatriði samninganna um álver á Keilisnesi. Eins og venjan er á slíkum fundum lýstu fundarmenn mikilli ánægju með að samkomulag lægi fyrir og lofuðu árangur viðræðnanna í hástert. Þó hefur það vænt- anlega ekki farið fram hjá mörgum að helstu tals- menn íslenskra stjórnvalda á fundinum, Jóhannes Norðdal, formaður íslensku álviðræðunefndarinnar og Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, voru ekki margorðir um hversu mikill efnahagslegur ávinn- ingur fælist í samningunum, íslandi til handa. Fálæti þeirra hvað þetta atriði varðar kemur ekki á óvart, því ef fram fer sem horfir eru íslensk stjórn- völd að semja af sér svo um munar. Á fundinum kom fram að það raforkuverð sem rætt er um að gildi á svokölluðum „ afsláttartíma samningsins" sé eitthvað í kringum 10 mills, miðað við álverð í dag. Það er mun lægra orkuverð en álverið í Straumsvík greiðir og miklu lægra verð en þyrfti að fást til að standa undir fjármagnskostnaði af virkjanaframkvæmdum vegna álversins annars vegar og fá eitthvað nálægt kostnaðarverði fyrir raf- orkuna hins vegar. Eins og margoft hefur komið fram í fréttum er raforkuverðið kyrfilega bundið heimsmarkaðsverði á áli í samningsdrögunum. Heimsmarkaðsverð á áli er með allra lægsta móti nú og fátt sem bendir til að það muni hækka á næst- unni. íslensk stjórnvöld eru því að taka mjög mikla áhættu með því að samþykkja að orkuverðið sé ríg- bundið heimsmarkaðsverði álsins. Enginn veit hvað íslendingar koma til með að fá greitt fyrir raforkuna til álversins á Keilisnesi á samningstímanum annað en það að verðið er hneykslanlega lágt í upphafi. Það gæti hins vegar hækkað - ef guð lofar! Samningurinn við Atlantsál er í raun ekkert annað en dýrasti happdrættismiði íslandssögunnar; happdrættismiði sem kostar tugi milljarða króna og gæti fært þjóðinni vinning ef heppnin er með. Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV, fjallaði líttillega um raforkusölu til nýja álversins, í forystugrein blaðs síns í síðustu viku. Þar sagði hann m.a.: „Að selja orku til Keilisness á fjármagnskostnað- arverði er álíka heimskulegt og að veita togurum frá ríkjum Evrópubandalagsins aðgang að fiskimið- um okkar. Viðskipti af slíku tagi eru verri en engin viðskipti, því að okkur ber skylda til að ná gróða af aulindum okkar. “ Undir þessi orð skal tekið. Raforkuverð upp á 10 mills er alls óviðunandi. Þar er um að ræða gjöf en ekki gjald og verr af stað farið en heima setið. íslensk orka er fyrirtaks útflutningsvara en ekki útsöluvara eða tombóluvarningur. BB. Létt og laggott? - iðnaðarvörur unnar úr landbúnaðarhráefni Utanríkisráðuneytið hefur legið undir ámæli fyrir að hafa leynt og sagt ósatt uni framgang samn- ingaviðræðna EES um landbún- aðarmál og iðnaðarvörur unnar úr landbúnaðarhráefni. Var einhverju ieynt? Drög að lista yfir iðnaðarvörur unnar úr landbúnaðarhráefni sem leggja átti til grundvallar í viðræðum við EB voru rædd á sérfræðingafundi EFTA 17. janúar 1991. Listanuni var dreift 25. janúar 1991. Á lista EFTA sérfræðinganna voru vörur er falla undir tollflokk 21.05 og 21.06 sem m.a. eru rjómi og mjólkurís. Smjörvi og létt og laggott. Listi þessi var sendur í fyrstu útgáfu til landbúnaðar- ráðuneytisins 1. febrúar, önnur útgáfa 22. febrúar, þriðja var lögð fram á fundi í landbúnaðar- ráðuneytinu 21. maí, fjórða útgáfan var send 20. júní, sjötta 11. júlí og sú sjöunda 23. júlí 1991. Landbúnaðarráðuneytinu bárust því drög að þeim lista sem hér um ræðir í hvert skipti sem ný útgáfa var gefin út eða í allt 7 sinnum. Hið umdeilda viðbit og rjómaísinn voru frá upphafi á listanum. Það hefur því engu ver- ið leynt. Var sagt ósatt? Viðræður um landbúnaðar- afurðir hafa verið ræddar á þrem- ur vígstöðvum í samningavið- ræðunum. í fyrsta lagi varðandi samræmingu reglugerða um heil- brigðiseftirlit með dýrum og jurt- um og afnám viðskiptahindrana á heilbrigðisforsendum. í öðru lagi um gagnkvæmar tilslakanir í við- skiptum með hefðbundnar land- búnaðarafurðir. ísland hefur algjörlega staðið utan við þá samningsgerð. í þriðja lagi sótti EB um ein- hliða tollívilnanir fyrir 72 tiltekn- ar suður-evrópskar landbúnaðar- afurðir. ísland gaf til kynna að fengist frjáls aðgangur að EB Jón Baldvin Hannibalsson. mörkuðum fyrir fiskinnn, yrði gjöldum aflétt af 65 afurðum á listanum (hrísgrjón, vanilla, ávextir o.fl.) en árstíðarbundinn innflutningur yrði heimill á sjö vöruflokkum (agúrku, tómötum o.fl.) líkt og verið hefur til þessa. Að sjálfsögðu er þetta í fullu samræmi við áður gefnar upplýs- ingar. Það hefur því engu verið logið. Var óheimilt að flytja inn viðbit og ís? Reglugerð um innflutnings- og gjaldeyrisleyfi nr. 132/1988 kveð- ur á um þær vörutegundir, sem eru háðar innflutningsleyfi við- skiptaráðuneytisins. Innflutning- ur annarra vara en þeirra, sem tilgreindar eru í reglugerðinni, er frjáls nema önnur lög banni eða takmarki innflutninginn. Meðal þeirra vörutegunda sem taldar eru upp í reglugerðinni er að finna smjörlíki og rjómaís og er innflutningur þeirra því háður leyfum. Vörutegundir á borð við Smjörva og Létt og laggott eru hins vegar ekki taldar upp í reglugerðinni. í lögunum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum nr. 46/1985, er fram- leiðsluráði veittur réttur til að stöðva innflutning þeirra land- búnaðarvara, sem bannað er að flytja inn samkvæmt öðrum lögum, ef staðfest er að innlend framleiðsla fullnægi ekki neyslu- þörfinni. Smjörvi og Létt og lag- gott eru ekki háð innflutnings- leyfi og þurfa því ekki leyfi fram- leiðsluráðs. ís er hins vegar á list- anum og þarf því leyfi viðskipta- ráðuneytisins til innflutnings á honum. Leyfi framleiðsluráðs þarf hins vegar ef ís telst til land- búnaðarvara. Benda má á að smjörlíki telst ekki landbúnaðar- vara, og er á forræði viðskipta- ráðuneytis, sbr. úrskurð ríkislög- manns um það efni dags. 27. apríl 1989. í fríverslunarsamningi íslands við EB er ís með kakó á þeim lista sem einungis má leggja á verðjöfnunargjald. Það væri því samningsbrot ef viðskiptaráðu- neytið neitaði innflutningi á súkkulaðiís frá EB ríkjunum. Hefur ísland samþykkt fríverslunarlista yfír iðnaðarvörur unnar úr landbúnaðarhráefni? Þegar samræmdur listi EFTA ríkjanna yfir iðnaðarvörur unnar úr landbúnaðarhráefni var afhentur EB var skýrt tekið fram að Finnland, Noregur, Svíþjóð, Sviss og Liechtenstein stæðu á bak við hann, en Austurríki og ísland væru ekki tilbúin til við- ræðna um þennan lista. fsland hefur því aldrei samþykkt neinn lista. Af því sem hér hefur verið sagt má Ijóst vera að svikabrigsl og áburður um leynd og ósannindi er tilefnislaus með öllu. Ekki sak- aði að þeir sem staðið hafa fyrir þessum tilefnislausa óhróðri bæð- ust afsökunar. Jón Baldvin Hannibalsson. Höfundur er utanríkisráðherra. Samband ungra framsóknarmanna: Boðar tfl ráðstefiiu á Sauðárkróki 31. ágúst - „góð blanda af fræðslu og skemmtun,“ segir Siv Friðleifsdóttir, formaður SUF Vetrarstarf SUF, Sambands ungra framsóknarmanna, hefst með stórri fræðsluráðstefnu sem haldin verður á Sauðár- króki laugardaginn 31. ágúst næstkomandi. Ráðstefnan er skipulögð að hluta til sem mót- vægi við Sambandsþing SUF, sem haldin eru annað hvert ár. í tengslum við ráðstefnuna, þ.e. síðari hluta föstudags og fyrri hluta sunnudags, verður síðan haldinn miðstjórnar- fundur Sambands ungra fram- sóknarmanna. Ráðstefnan, sem hlotið hefur nafnið STEFNA ’91, er opin ung- um framsóknarmönnum alls staðar af landinu. Kl. 10.00 árdegis á laugardag mun Siv Friðleifsdóttir, formaður SUF, setja ráðstefnuna. Síðan flytur Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, fyrir- lestur sem hann nefnir: „Tæki- færi ungs fólks í breyttri Evrópu". Um kl. 11.00 flytur Jón Þórðarson, deildarstjóri sjávar- útvegsdeildar Háskólans á Akur- eyri, fyrirlestur um tækifæri ungs fólks á landsbyggðinni. Á eftir fyrirlestrunum fara fram umræð- ur. Að loknu hádegisverðarhléi fjallar Halldór Ásgrímsson, varaformaður Framsóknar- flokksins, um hugmyndir að jöfn- un atkvæðisréttar. Meðal annarra dagskrárliða á ráðstefnunni má nefna að Stein- grímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, svo og þingmenn flokksins í Norður- landskjördæmi vestra, þeir Páll Pétursson og Stefán Guðmunds- son, munu ávarpa ráðstefnuna. Einnig fer fram á ráðstefnunni nýstárleg keppni milli formanns og varaformanns Framsóknar- flokksins og er sú keppni kennd við hina þjóðfrægu sjónvarps- stjörnu, Ragnar Reykás... Ráð- stefnustjóri er Guðrún Benný Finnbogadóttir, formaður FUF við Djúp. Laust fyrir kvöldmat ráðstefnu- daginn er stefnt að því að halda formannafund með þátttöku framkvæmdastjórnar SUF og formanna FUF-félaga. Eftir kvöldmat mun STEFNU ’91 ljúka með þátttöku SUF-ara í Héraðsmóti framsóknarmanna í Skagafirði, sem haldið verður í Miðgarði. Þar dunar dansinn til klukkan þrjú um nóttina við undirspil Geirmundar Valtýsson- ar og félaga. Siv Friðleifsdóttir, formaður Sambands ungra framsóknar- manna, sagði að ráðstefnan væri skipulögð með það fyrir auguni að bjóða upp á góða blöndu af fræðslu og skenimtun. „Allir fyrirlestrarnir á ráðstefnunni eiga t.d. mjög brýnt erindi við ungt fólk og við væntum þess að þátt- takan verði góð,“ sagði Siv. SUF-arar eru hvattir til að skrá sig sem fyrst á skrifstofu Fram- sóknarflokksins, Hafnarstræti 20, Reykjavík, sími 91-624480, eða hafa samband við formann FUF- félags á sínu svæði. Þátttökugjald er fimm þúsund krónur og er innifalið í því matur, gisting á heimavist Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki og aðgöngumiði að skemmtuninni á laugardags- kvöldið. Nú þegar eru fjölmargir búnir að skrá sig og eru þátttak- endur úr öllum kjördæmum landsins.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.