Dagur


Dagur - 14.08.1991, Qupperneq 7

Dagur - 14.08.1991, Qupperneq 7
Miðvikudagur 14. ágúst 1991 - DAGUR - 7 Hundavandamál: tíl úrbóta verður að koma frá fólkrnu Oft er talað um hunda sem vandamál. Þeir valda sambúð- arvandamálum og þeir eignast andstæðinga, suint fólk er hrætt við þá, aðrir verða fyrir ónæði frá þeim að næturlagi og enn koma hreinlætisvandamál- in þar sem fólk óttast smitun frá þeim af sjúkdóinum og sníkjudýrum. Og margir hafa viðbjóð af því, að þeir mígi og skíti út um allt á almannafæri. I Stóru hundabókinni er fjallað um þessi mál: „Hundavandamálin stafa af van- þekkingu og vanrækslu sakir þess að viðhorf til hundanna eru enn á lágu stigi. Við þurfum að bæta úr þessu og besta ráðið til þess er að hækka hag hundaræktarinnar og að því vinnur einkum einn félags- skapur hér á landi, sem er Hundaræktarfélagið. Vandamálin stafa mest af því að hér eru rfkjandi blendings- hundar, senr fólk velur sér af kæruleysi og vanþekkingu, það vanrækir þessa hunda og kynnir sér ekki einu sinni grundvallar- atriði í hundahaldi, eins og hvernig á að snyrta hundana, fóðra þá, þjálfa og temja. Það er mjög nrikilvægt að hundavinir taki. sig á í öllum þess- um efnum. Hundaræktarfélagið hefur á sfnum snærum menn ineð þekkingu og þjálfun, reiðubúna til að gefa fólki margvíslegar leið- beiningar og ráð. Það er t.d. mjög mikilvægt fyrir fólk að sækja hvolpanámskeið þess, þar sem hverskyns ráð eru gefin um hundahald, og í þjálfunarnám- skeiðum er kennt, hvernig hægt er að hafa fullkomna stjórn á hundi sínum. Það er ein forsenda lausnar á hundavandamálinu, að menn kynni sér þetta betur. En undirstaðan er, að menn læri að virða hundinn, hætti að líta á hann sem fyrirlitlegan flæking, sem megi valsa laus. Virðing okkar á hundinum á að byrja á því, að við séum í fyrstu vandfýsin um val á hvolpi okkar. Við eigum ekki að taka hvaða hvolpi sem er. Það er sannreynt, að viðurkenndir ræktunarhundar eru þegar á heildina er litið ntiklu skemmtilegri og auðveldari í meðferð og skapa minni vanda- mál en blendingshundarnir. Og við megum allra síst víkjast und- an að greiða hundinn einhverju verði. Það er upphaf vanvirðing- ar okkar á hundinum, þegar við þykjumst heppin að fá hann fyrir ekki neitt. Þar nreð byrja vanda- málin, eigandi vill engu fórna, telur hann einskisvirði og hirðir lítt um hann. Hundaræktarfélagið gefur líka ráð um val á hvolpi. Það hefur milligöngu um sölu á ræktunar- hundum og hjálpar fólki til að meta eiginleika hvolpsins og þar kemur ættbók félagsins að góðu gagni. Það beitir sér einnig fyrir læknisskoðun og vottorði um heilsufar hundsins. Því meiri natni sem menn sýna við val hundsins, því betra og því minni eru líkurnar fyrir að hund- urinn verði vandamál. En sá er gallinn að hér á landi er enn úr alltof fáu að velja. Sérstaklega er skortur á smáhundum, sem þægi- legir eru fyrir borgarbyggð. Erlendis byrjar valið á hvolpi með því að menn íhuga, hvaða ræktunarkyn sé heppilegast fyrir þeirra aðstæður. Jafnframt fara þeir að skyggnast um eftir góðu hundabúi og leita sér strax upp- lýsinga hjá kunnáttumönnum. sem nóg er af. Svo hringja þeir í hundabúið, sem þeir hafa auga- stað á, biðja um ákveðinn við- talstíma og mæta þar jafnvel með einhverjum kunningja sínum, sem vit hefur á. Á hundabúinu standa þeim oft til boða mörg ólík ræktunarkyn. Oft kemur fyr- ir að allir hvolpar af vissu kyni eru uppseldir og jafnvel eru bið- listar fyrir hendi. Þá þarf að bíða þar til góður hvolpur er orðinn 8 vikna. Hér er ekki flanað að neinu, svo að hinn væntanlegi kaupandi er reiðubúinn að bíða í von um góðan hvolp. Hann fær allt að vita um ætterni og heilsufar for- eldranna og getur þá fylgst með og valið úr hvolpunum. Hann fær vottorð um ætterni hundsins og skoðunarvottorð læknis auk mat- seðils um það fóður sem hvolpur- inn hefur fengið til þess að geta haldið því áfram og forðast melt- ingarkvilla. Hvolparnir eru að sjálfsögðu bólusettir og þannig varðir gegn sjúkdómum. Hinn nýi hundaeigandi innritar sig í hundaræktarklúbb og þar standa honum til boða margvís- leg fræðsla og ráðleggingar. Þar þykir alveg sjálfsagt að fara á hvolpanámskeið til að læra allt sem hundum við kemur og þar er mikil aðsókn að hlýðninámskeið- um, sem stuðla mjög að því að gera hundana meðfærilegri og koma þannig í veg fyrir slys og vandamál. Þegar talað er um vandamál hundaskíts á götum stórborga, má benda á að hundaræktarfélög berjast einmitt gegn því. Fólk sem skortir þekkingu og aðgát, einmitt fólk sem er með blend- ingshundana, fer með hundana út á götu til að láta þá skíta. Lögmál hundaræktarmanna er, að það má aldrei gera. Það á að láta hundana hægja sér heima, en gönguferðin á eingöngu að vera til skemmtunar. Stundum hefur bryddað á hug- myndum erlendis, að besta ráðið til að sigrast á öllum hunda- vandamálum væri að banna blendingshunda og setja það skil- yrði fyrir leyfi, að allir hundar væru í hundaræktarfélagi. En það er á móti hugsjón félagsins að styrkja sig ekki með einokunar- höftum. Vilji til úrbóta verður að koma frá fólkinu sjálfu. Það þarf að gera sér grein fyrir hlutverki og þýðingu hundaræktarfélag- anna til að auka virðingu og álit hundsins og koma til starfa í þeim af fúsum vilja. Hitt þykir svo alveg sjálfsagt, að heilbrigð- isyfirvöld styðji við bakið á hundaræktarfélögum, því þau eru vafalaust besti regluvörður- inn á þessu sviði.“ Hér að ofan er vitnað í Stóru hundabókina. Bókin er hafsjór af fróðleik um hunda. í henni er að finna lýsingu í rnáli og myndum á 200 mismunandi hundakynum, leiðbeiningar um hundahald, uppeldi og þjálfun hundsins svo hann verði góður félagi og vinur. Á Islandi fer hundaeign vax- andi og frumskilyrði þess að hundahald fari ekki úr bönduni er að hundaeigendur fari að lögum og séu rétt upplýstir. Stóra hundabókin er ákjósanlegt lestrarefni öllum þeim er vilja virða lög um hundahald og jafn- framt halda glaðan og agaðan hund. ój

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.