Dagur - 31.08.1991, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 31. ágúst 1991
Fréttir
Kaldbakur EA 301 til veiða á ný eftir gagngerar endurbætur:
„Hægt að segja að togaiinn sé fyrst nú fn]]smíðaður“
- segir Sveinn Hjálmarsson, skipstjóri
Aflaskipið Kaldbakur EA 301,
togari Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf., hefur verið í Slipp-
stöðinni á Akureyri frá byrjun
júní. Unnið hefur verið að
breytingum og lagfæringum á
togaranum, en hann hann var
keyptur til Útgerðarfélagsins
frá Spáni 1974 ásamt systur-
skipinu Harðbak. „Togarinn
heldur til veiða um miðja
næstu viku. Kostnaðurinn er
um 90 milljónir. í upphafi var
gert ráð fyrir að kostnaðurinn
yrði um 70 milljónir, en eftir
að verksamningur var gerður
var ákveðið að breyta fleiru.
Kostnaðarhliðin er samkvæmt
áætlun. I dag erum við með
svotil nýtt skip sem vonandi á
eftir að þjóna okkur dyggilega
næsta áratuginn,“ segir Gunn-
ar Ragnars, forstjóri Útgerðar-
félags Akureyringa hf.
Kaldbakur EA kom til landsins
árið 1974 sem fyrr segir. Allt frá
upphafi hefur togarinn verið hið
mesta happaskip. Sverrir Valdi-
marsson, skipstjóri, sótti skipið
til Spánar. Porsteinn Vilhelms-
son, nú skipstjóri á Akureyrinni
EA, tók við skipinu er Sverrir lét
af störfum. Fyrir átta árum tók
Sveinn Hjálmarsson, skipstjóri,
við skipinu og stendur enn í
brúnni. Sveinn var í áhöfn Kald-
baks er hann var sóttur til Spánar
ásamt Birgi Valdimarssyni, vél-
stjóra.
„Mannabreytingar hafa orðið
hér sem annars staðar. í dag erum
við Sveinn, skipstjóri, tveir eftir
þeirra er voru í fyrstu áhöfn.
Trúlega förum við með togaran-
um þegar hann verður settur í
brotajárn, hvenær sem það
verður," sagði vélstjórinn.
„Já, endurbæturnar eru
miklar. Skrúfuhringur er kominn
á skipið og slingvubretti. Allt
járn í aðaldekki er nýtt alveg nið-
Bændur!
Nú er haughúsavandamálið úr sögunni.
Norska mykjudælan JETT 2000 sér fyrir því.
Hún er afkastamikil - þægilegt aö koma henni viö og
brunnur er óþarfur!
Haldin verdur sýning á dælunni 4. september
kl. 13.00-17.00 hjá Jóni Jónssyni, Stekkjarflötum,
Eyjafjarðarsveit.
Nánari uþplýsingar veitir Hannes Sigurösson í síma
91-654774 eða Guömundur í síma 95-24556 á
kvöldin.
Kaldbakur EA 301 er glæsilegur togari sem hefur þjónað
Útgerðarfélagi Akureyringa hf. dyggilega í nær tvo áratugi. Á
innfelldu niyndinni er Svcinn Hjálmarsson, skipstjóri, við
nýju vinnslulínuna á millidekki. Mynd: Goiii
ur í sjó. Lunningar voru hækkað-
ar þannig að öll vinnuaðstaða á
dekki er stórbætt. Hægt er að
segja að nú fyrst sé skipið full-
smíðað. Stór og öflugur krani er
kominn um borð, sem einnig
breytir miklu. Allt var hreinsað
út af millidekki og ný vinnslulína
er komin um borð. Hér er um
mikla byltingu að ræða, sem færir
okkur fram um tvo áratugi. Eng-
ar endurbætur voru gerðar í lest
enda er öll vinnuaðstaða góð og
vel fer unr aflann.
Allt var rifið innan úr brúnni. I
dag er „hóllinn" samkvæmt kröf-
um tímans og hinn vistlegasti.
Aðstaða okkar skipstjórnar-
manna er sent best verður á
kosið. Við leggjum í hann unt
miðja næstu viku og nú er að sjá
hvernig hlutirnir reynast," sagði
Sveinn Hjálmarsson, skipstjóri.
ój
Fjórðungsþing Norðlendinga hófst á Húsavík í gær:
Tímabært að stokka Fjórðungssambandið upp
- sagði Ingunn St. Svavarsdóttir, formaður Fjórðungssambands Norðlendinga
Akureyri:
Keyrt á óþekkta bifreið
eins og loðnubrestur, verðfall á
rækju og samdráttur aflaheimilda
kæmu með miklum þunga á
landsbyggðina. Þá sagði ltann að
niðurskurður ríkisútgjalda myndi
bitna sérstaklega á landsbyggð-
inni. „Gleggst dæmi um þetta er
niðurskurður vegafjár, sem nálg-
ast 50% niðurskurð frá því marki
sem Alþingi ályktaði um á sínum
tíma. Það er mál glöggra manna,
að það taki 25 ár að framkvæma
núverandi langtímaáætlun vega-
mála, sem er aðeins til 12 ára,“
sagði Áskell.
Hann kvaðst telja að stefnan í
kvótamálum myndi leiða til
byggðaeyðingar. Ef einhverjir
eigi siðferðilegan rétt til auðlinda
Á flmmtudagskvöld var keyrt
á rauða Subaru-bifreið á Akur-
eyri. Að sögn lögreglu náði
ökumaðurinn hvorki tali af
þeim ökumanni sem keyrt var
á né númeri bifreiðarinnar
áður en bifreiðin, Subaru
Justy, var á brott. Tilkynnt var
um þennan léttvæga árekstur
kl 22:50.
Þrír ungir drengir voru hand-
teknir á fimmtudagskvöld eftir að
eigandi bifreiðar stóð þá að verki
við bifreið sína. Við yfirheyrslur
játaði einn þeirra að hafa rispað
bifreiðina með steini og lauk þar
með afskiptum lögreglunnar af
málinu.
Á fimmtudagskvöld var annar
árekstur en engin meiðsl á fólki
að sögn lögreglu. Einnig var
keyrt á ljósastaur. Rúður voru
brotnar í Iþróttahúsinu við Laug-
argötu og í húsi við Víðilund 14
en þau mál eru óupplýst enn að
sögn lögreglu. GT
„Ég tel tíma kominn til að
stokka Fjórðungssambandið
upp. Mér virðist sambandið of
víðfeðmt eins og það er í dag
og of fjarlægt hinum almenna
sveitarstjórnarmanni og ég tel
að ef okkur tekst með upp-
stokkun sambandsins að glæða
áhuga sveitarstjórnarmanna á
samvinnu undir nýjum for-
merkjum og gera menn þannig
virkari og meira vakandi fyrir
eigin málum, þá sé það fylli-
lega þess virði að reyna það.
Kjördæmasamtök tel ég heppi-
lega stærð. Héraðsnefndir geta
að mínu viti ekki leyst Fjórð-
ungssambandið af hólmi, þær
eru einfaldlega of litlar eining-
ar til að mark sé tekið á þeim
sem málsvara gagnvart ríkis-
valdinu.“
Þetta sagði Ingunn St. Svavars-
dóttir, formaður Fjórðungssam-
bands Norðlendinga, við upphaf
fjórðungsþings á Húsavík í gær.
Fyrir þinginu liggja hugmyndir
um grundvallarbreytingar um
starfsemi Fjórðungssambandsins,
sem lúta að því að skipta því upp
og hefur í því sambandi verið
rætt um tvö kjördæmasamtök,
eins og Ingunn lýsti sig fylgjandi í
sinni ræðu í gær.
Áskell Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bandsins, sagði í skýrslu sinni
ekki leggja dóm á hentuga stærð
landshlutasamtaka á Norður-
landi. „Þetta er hjóm hjá því,
hvort landshlutasamtökin eru
nægileg brjóstvörn fyrir lands-
byggðina á nýjum tíma,“ sagði
Áskell.
í skýrslu sinni dró Áskell upp
dökka mynd af stöðu lands-
byggðarinnar gagnvart höfuð-
borgarsvæðinu og sagði að
„viðurkenndar vinnuaðferðir í
byggðamálum" hafi runnið sitt
skeið. Áskell óttaðist að áföll
hafsins, þá sé það fólkið víðsveg-
ar um strendur landsins, þar sem
sjávarútvegur sé eina lífsbjörgin.
Sú spurning hlyti að vakna fyrst
landsbyggðin væri að verða fyrst
og fremst frumvinnslusvæði, en
Suðvesturland þróunarsvæði,
hvort sú leið væri ekki athugandi
að landsbyggðin sæti ein að fisk-
veiðunum umhverfis landið og
suðvesturhornið myndi áfram
helga sig þjóðfélagsbákninu,
stóriðjunni og nyti hagræðis af
varnarliðinu.
Aðalmál þingsins í dag er
byggðamál undir liðnum „nýjar
leiðir í byggðamálum“. Fram-
sögu hafa Sigfús Jónsson, for-
maður sameiningarnefndar félags-
málaráðuneytisins, Ingunn St.
Svavarsdóttir, formaður Fjórð-
ungssambands Norðlendinga,
Stefán Guðmundsson, formaður
nefndar um nýjar ieiðir í byggða-
málum og Vilhjálmur Egilsson,
alþingismaður. óþh
Rækjuvinnslurnar Dögun og Særún:
Uppsagnir ekki til framkvæmda
Fkki er útlit fyrir aö uppsagnir
þær sem koma eiga til fram-
kvæmda 1. október nk. hjá
rækjuvinnslunum, Dögun á
Sauðárkróki og Særúnu á
Blönduósi, verði að veruleika
samkvæmt þeim forsendum
sem yflrmenn fyrirtækjanna
gefa sér í dag.
í sumar var öllu starfsfólki hjá
Dögun hf. á Sauðárkróki og Sæ-
rúnu hf. á Blönduósi sagt upp
með þriggja mánaða fyrirvara.
Mánuður er þangað til uppsagn-
irnar eiga að koma til fram-
kvæmda, en að sögn þeirra Tóm-
asar Ástvaldssonar hjá Dögun og
Kára Snorrasonar hjá Særúnu
standa málin þannig í dag, að
ekki er útlit fyrir að af upp-
sögnunum verði.
Undanfarið hefur verið unnið
tólf tíma á sólarhring hjá báðurn
verksmiðjunum og nóg hráefni
til. Að sögn Kára er eftirspurnin
einnig það mikil að engar birgðir
safnast upp og kveðst hann hálf-
undrandi á að verð á rækju skuli
ekki þokast upp á við þar sem
eftirspurnin er svona mikil.
Hjá Dögun vinna nú um 15
manns í landi, en hjá Særúnu um
25 manns. SBG