Dagur - 31.08.1991, Blaðsíða 5

Dagur - 31.08.1991, Blaðsíða 5
Laugardagur 31. ágúst 1991 - DAGUR - 5 Mannfjöldinn í Kreml á laugardagsmorgni. Lára Margrét og Jóhannes Geir í Vilnius. Þegar myndin var tekin var nýbúiö að fjarlægja stóra styttu af Lenín af stallinum sem sést vinstra megin á myndinni. „Fólkið er mjög meðvitað um þátt íslands í sjálfstæðisbaráttuimi“ - spjallað við Jóhannes Geir Sigurgeirsson en hann var staddur í Lettlandi og Litháen þá örlagaríku daga þegar valdaránið í Sovétríkjunum fór út um þúfur Jóhanncs Geir Sigurgeirsson, alþingismaður, er nýkominn úr ferð til tveggja Eystrasalts- ríkja, Lettlands og Litháen, en þangað fór hann á alþjóðlega þingmannaráðstefnu. Tveir íslenskir þingmenn sóttu þessa ráðstefnu, auk Jóhannesar Geirs sótti Lára Margrét Ragnarsdóttir hana. Uppruna- lega ferðaáætlunin var á þá leið að haldið skyldi utan á þriðjudegi, en vegna óvæntrar þróunar heimsmála, þ.e. til- raunarinnar til valdaráns í Sovétríkjunum, var ferð þing- mannanna frestað. Jóhannes Geir kom til Riga, höfuðborg- ar Lettlands, á miðvikudags- kvöldi, en daginn eftir rann valdaránið fræga út um þúfur og varð hann því vitni að atburðum sem telja má einna sögulegasta í Evrópu um ára- tugaskeið. „Þegar við komum til Stokk- hólms var ákveðið að bíða átekta um stund eftir þróun mála. Þegar ljóst varð að flótti var brostinn á innan raða valdaránsmanna var ákveðið að halda áfram til Riga. Við fórum með sovéska ríkis- flugfélaginu Aeroflot, og var það ákveðin lífsreynsla útaf fyrir sig. Klukkan var 18.00 að staðartíma þegar við komum til Riga, en þar var tekið á móti okkur af starfs- mönnum lettneska þingsins. Þeir fóru með okkur á Hótel Riga þar sem við gistum eina nótt,“ segir Jóhannes Geir. Næsta dag fóru gestirnir á hina alþjóðlegu þingmannaráðstefnu, þ.e. þann hluta sem haldinn var í Riga. Frá hádegi til kl. 17.00 var dvalið í höfuðborg Lettlands, en þaðan var ferðinni heitið til Litháen, þar sem gestirnir dvöldu tvo sólarhringa í Vilnius. Á laug- ardegi var l'logið til Moskvu, og þaðan héldu íslendingarnir til Frankfurt að kvöldi sama dags. Eystrasaltsþjóðunum svipar um margt til norrænna þjóða - Er þekking íslendinga á Eystrasaltsþjóðunum ekki tölu- vert takmörkuð, almennt talað? „Jú, og ég viðurkenni að ég vissi ekki mikið um þær. Ég kynnti mér ýmsa þætti í sögu þeirra eftir föngum áður en ég fór og eins fengum við þingmennirn- ir ýmis gögn í hendur aður en lagt var af stað. Þessar þjóðir eiga langa sögu og fjölbreytta menningu. Eftir að hafa dvalið þarna finnst mér þeim svipa um margt til Norður- landaþjóðanna. Talið er að mikil samskipti hafi verið á fyrri öldum milli norrænna þjóða og íbúa Eystrasaltslandanna. Nægir að minna á gamlar sagnir af ferðum víkinga til Miklagarðs, en flestir álíta að leiðir þeirra hafi legið yfir Eystrasalt, upp ána Dnjepr gegnum Lettland og þaðan niður fljótin sunnan við til Mikla- garðs,“ segir hann. Sovétríkin unnu markvisst að því að brjóta sjálfstæði þessara þjóða niður eftir innlimun þeirra í Sovétríkin. Jóhannes Geir segir að íbúar ríkjanna hafi verið flutt- ir hundruðum þúsunda saman til annarra og fjarlægra landsvæða í Sovétríkjunum. Rússar, asíuætt- að fólk og fleiri þjóðflokkar voru síðan fluttir til ríkjanna í staðinn. í dag eru t.d. 40% íbúa Lettlands Rússar. Þetta hlutfall er lægra í hinum löndunum, og í Litháen eru innlendir menn um 80% af íbúafjöldanum. Svarthúfusveitirnar unnu mörg óhæfuverk „Þegar við komum til Riga urð- um við vör við að þeir sem tóku á móti okkur voru spenntir vegna ástandsins eftir valdaránið. Við fréttum það að þetta sama kvöld hefði sovéski herinn lofað að draga sig til baka frá borginni, og við sáum aðeins einn skriðdreka frá þeim í borginni sjálfri. Þrátt fyrir þetta loforð var sovéskur skriðdreki við þinghúsið ásamt tveimur bifreiðum frá svonefnd- um svarthúfusveitum. Lettar voru aftur á móti með tugi vopn- aðra manna í þinghúsinu og næsta nágrenni til að verja þingið fyrir mögulegri árás. Þessu tauga- stríði lauk með brotthvarfi leifa sovéska hersins. Lettarnir voru greinilega mjög smeykir við svarthúfusveitirnar, en það eru sérsveitir sem mér skilst að stjórnað hafi verið af sovéska innanríkisráðuneytinu. Enginn virtist þó vita hver stjórnaði þess- um sveitum. Yfirmaður sovéska heraflans í Lettlandi kvaðst ekk- ert hafa yfir þeim að segja. Ekki varð betur sé en þessum sérsveit- unt hafi beinlínis verið sleppt lausum. Liðsmenn þeirra þekkj- ast ekki frá öðrunt hermönnum, þeir eru klæddir eins og ferðast um á lögreglubílum sem skera sig ekki heldur á neinn hátt frá öðr- um venjulegum lögreglubílum. Það er engin leið að þekkja þá eða nálgast þá, sögðu Lettar, sem nefndu þessa menn aldrei annað en glæpamenn og morðingja. Tal- ið er víst að þessar sérsveitir nafi drepið landamæraverði í Lithá- en, einnig var talið að þær hefðu drepið rútubílstjóra og tækni- mann sjónvarpsins fyrir nokkrum dögum." Óvissuástand Jóhannes Geir segir að óvissu- ástands hafi mjög gætt í Riga á fimmtudagsmorgun bæði á ráð- stefnunni og í heimsókn þing- manna í lettneska þingið. Menn hefðu orðað það svo að þeir ættu þó von. Þeim var mjög í mun að tryggja öryggi hinna erlendu þingmanna á allan hátt. Þeg- ar þeir heimsóttu þingið stóð þar yfir fundur forsetans og yfir- manns heraflans í Lettlandi, en sá síðarnefndi kvaðst þá hvorki geta ábyrgst öryggi né friðhelgi þingsins. Það skipti engum tog- unt að farið var með þingmenn- ina á hálfgerðum hlaupum gegnum þinghúsið og ekkert stoppað, því menn vildu ekki tefla í neina tvísýnu. „Sem dæmi um þær aðstæður sem þessir menn hafa búið við þá sagði lettneskur þingmaður, for- maður mannréttindanefndar, að þingmenn hefðu sent fjölskyldur sínar út í sveit og svæfu sjálfir aldrei tvær nætur á sama stað. Þá væri síður hægt að finna þá,“ sagði Jóhannes Geir. En hvaða viðbrögð fengu ís- lendingarnir frá Lettum og Litháum? Jóhannes Geir segir mótttökurnar allar hafa verið hinar bestu, ekki síst í Litháen þar sem bæði Alþingi og ríkis- stjórn íslands hafa brotið ísinn með því að viðurkenna sjálfstæði þjóðanna. Menn minnast þess t.d. þegar Steingrímur Her- mannsson bauð Landsbergis for- sætisráðherra til íslands í fyrra þegar sovéski herinn réðist inn í landið og hertók mikilvægar byggingar. Upp frá því að ákveð- ið að taka upp stjórnmálasam- band milli ríkjanna, sem var staðfest formlega í þesSari viku. „Fólk sem við hittum, bæði opin- berir embættismenn og almennir borgarar, var mjög meðvitað um þátt íslands í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Því til staðfestingar hefur gata í Vilnius verið nefnd íslandsgata og í Kórnas, sem er næststærsta borg Litháens, er búið að setja upp sérstakan íslandskross. Við þinghúsið í Vilnius er íslandskross meðal minnismerkja um fólk sem fallið hefur í árásum svarthúfusveita undanfarið. ísland hefur skapað sér varanlegan sess í sjálfstæðis- baráttu Litháa. Um nóttina, þeg- ar við kvöddunt Litháen á leið til Moskvu, kvaddi þarlendur þing- maður okkur. Hann var mjög hrærður og kvað þjóðina aldrei gleyma því sem ísland hefði gert fyrir hana í þessunt málum. Ég tel að góður grundvöllur sé fyrir auknuni samskiptum þjóð- anna í framtíðinni og lel mikil- vægt að í því máli verði unnið. Við eigum margt sameiginlegt. Útifundurinn í Vilnius Mér er það minnisstætt þegar stóri útifundurinn í Vilnius var haldinn, en þar voru ekki innan við eitt hundrað þúsund manns. Ég hafði farið í gönguferð ásamt túlkum í gamla bæjarhlutann í Vilnius til að skoða hann. Við komum á fundarsvæðið stundar- fjórðungi áður en fundurinn hófst, og komumst því aldrei nærri ræðumönnunum. Ég hafði á tilfinningunni að þetta fólk hefði ég alveg eins getað hitt á förnum vegi í hvaða bæ eða sveit á íslandi. Fólkið hefur í raun ekki mjög sterk þjóðareinkenni, það er eins og íslendingar hvað snertir fjölbreytni í háralit, and- litsfalli og öðru útliti,“ segir hann. Fréttir af viðburðunum í Moskvu og annars staðar voru stöðugt að berast til íslending- anna meðan á þriggja daga dvöl þeirra í Eystrasaltsríkjunum stóð. Morguninn eftir komuna til Rigu var þingmönnunum greint frá því að æðsti maður komrnún- istaflokksins í Lettlandi og yfir- maður KGB þar hefðu verið að fyrirfara sér. Um fjögurleytið á föstudag flúðu starfsmenn KGB aðalstöðvar sínar í Vilnius, og boð barst til þingmannanna um að koma á aðaltorg borgarinnar klukkan 18.00 þar sem rífa átti niður styttu Leníns. Á útifundin- um stóra, 23. ágúst, var þess minnst að 52 ár voru liðin frá inn- limun landsins í Sovétríkin. Um kl. 22.00 urn kvöldið bárust frétt- ir af því að sovéski herinn hefði umkringt aðalstöðvar svarthúfu- sveitanna í Vilnius og héldi liðs- mönnum þeirra innilokuðum þar. „Þannig gerðist allt svo hratt að atburðirnir sem verið var að segja okkur frá að morgni voru orðnir saga að kvöldi,“ segir hann. - En hver voru viðbrögð fólks við fréttum af falli valdaráns- manna og frelsisbylgju um lýð- veldi Sovétríkjanna? Jóhannes Geir segir að fólkið hafi í byrjun ekki fundist að neitt það hefði gerst sem horft hefði til varan- legra breytinga. En að kvöldi föstudagsins og eftir atburði þess dags var greinilegt að slaknaði á spennunni og fólk fann að hlut- irnir voru breyttir. „Mér fannst í raun að ég hefði engan rétt til að vera á útifundinum í Vilnius því þetta var þeirra dagur. Fundur- inn var kyrrlátur, fólkið var rólegt en hrært og maður sá víða blika tár á hvörmum. Fólkið sá fram á að ríkið var að verða sjálfstætt,“ segir hann. Hreyfing sem ekki varð stöðvuð Að sögn Jóhannesar Geirs var greinilegt eftir þennan fund og eins útför mannanna sem féllu við að verja Hvíta húsið í Moskvu, að hreyfing var komin af stað sem ekki varð stöðvuð og að endalok Sovétríkjanna blöstu við. „Þegar við komum inn í Lit- háen var greinilegt að fólkinu fannst tnikils virði að halda alþjóðlega þingmannaráðstefnu í landinu. Okkur var sagt að þetta skipti verulegu máli. Við fundum þetta einna best þegar við kont- um að landamærum Litháens, þá var tekið á móti okkur með hljóðfæraleik og biskup héraðs- ins var þar einnig. Borð var þar úti undir berum himni, þar voru veitingar; matur, ávaxtasafi og heimagerður bjór. Þetta eru ein- hverjar hlýjustu mótttökur sem ég hef nokkru sinni fengið,“ segir Jóhannes Geir. EHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.