Dagur - 31.08.1991, Side 19
Popp
Stjórnin
Magnús Geir Guðmundsson
- Tvö líf:
Stjórnin styrkist
Stjórnin má vera ánægö meö sin Tvö líf.
Það er örugglega ennþá öllum í
fersku minni þegar Stjórnin
hreppti fjórða sætið í Eurovision í
fyrra með „skagfirsku" sveiflunni
Eitt lag enn. Var hljómsveitin
reyndar lengi á góðri leið með að
vinna keppnina en varð af sigr-
inum á lokasprettinum. Kom
þessi góði árangur í beinu fram-
haldi af vaxandi velgengni hljóm-
sveitarinnar hér heima en auk
þess að hafa unnið undankeppn-
ina fyrir Eurovision hafði hún
sigrað áður í Landslagskeppn-
inni með laginu Við eigum sam-
leið.
Má segja að nú rúmu ári eftir
Eurovision ævintýrið hafi Stjórnin
ekki litið til baka. Með þessum
tveimur stóru plötum sem hljóm-
sveitin hefur sent frá sér þ.e. Eitt
lag enn og svo Tvö líf, hefur hún
fest sig vel í sessi sem ein
vinsælasta hljómsveit landsins.
Það er líka ekkert skrýtið að tón-
list Stjórnarinnar skuli fara vel í
landann því þar fer saman góður
og vandaður flutningur og meló-
dískar lagasmíðar. Tvö líf verður
að teljast mjög rökrétt framhald
af Eitt lag enn og eru lögin á
henni í svipuðum stíl, blanda af
léttu poppi, ballöðum með rokki
saman við. Koma margir við
sögu í lagasmíðunum og eru
flest lögin eftir aðila utan hljóm-
sveitarinnar. Má þar nefna
Valgeir Guðjónsson, Eyjólf Krist*
jánsson, Karl Örvarsson bróður
Grétars söngvara og Friðrik
Karlsson m.a. auk þess sem
nokkur lög eru eftir erlenda
höfunda.
Svona samtíningur á lögum úr
ýmsum áttum getur oft verið
vafasamur og gert plötur ærið
misjafnar að gæðum. Hér er þó
ekki um slíkt að ræða og er plat-
an hin ágætasta í heildina. Upp-
tökustjórn Óskars Páls Sveins-
sonar er ekki hvað síst sá þáttur
sem gerir Tvö líf eins góða og
áheyrilega og raun ber vitni, en
hún er líkt og hjá GCD hreint
frábær. Bestu lög aö mínum
dómi eru titillagið, Láttu þér líða
vel, Draumar eftir Karl og Það er
nú það eftir Valgeir þar sem
hann fetar í fótspor þeirra Geir-
mundar og Harðar í sveiflunni. Á
Tveimur lífum hafa þau Sigga og
Grétar og hinir strákarnir sannað
styrk sinn og að hann fer vaxandi.
Hitt og þetta
Guns ’n’ Roses
Ef ekkert óvænt kemur upp á, þá
lítur nú út fyrir að nýju plöturnar
tvær með Guns ’n’ Roses Use
your illusion I og II komi út þann
16. september næstkomandi.
Eins og margoft hefur komið
fram hér á Poppsíðunni hefur
útgáfan tafist af ýmsum ástæð-
um en nú á sem sagt ekkert að
vera því til fyrirstöðu að plöturnar
komi út. Nú á mánudaginn kemur
svo út önnur smáskífan af
plötunum með laginu Don’t cry.
Annars er það af högum hljóm-
sveitarinnar að segja að ólætin
sem brutust út fyrir nokkru á tón-
leikum hennar í St. Louis ætla að
draga dilk á eftir sér. Eins og
fram hefur komið áður þá brutust
þessi ólæti út I kjölfar þess að W.
Axl Rose söngvari stökk niður af
sviðinu í miðju kafi til að hindra
Ijósmyndara við iðju sína. Hefur
söngvarinn nú verið kærður fyrir
þetta athæfi sitt og á yfir höfði sér
allt að fjögurra og hálfs árs fang-
elsisvist ef í hart fer. Þá hefur
hann sömuleiðis verið krafinn um
skaðabætur vegna tjónsins sem
varð en það skiptir milljónum ísl.
króna.
Þessar kærur koma þó ekki í
veg fyrir að Guns ’n’ Roses geti
hafið tónleikaferð sína um Evr-
ópu sem einmitt hefst nú í kvöld
á Wembley leikvanginum í
London.
Tónleikaplata væntanleg
með Neil Young
Kanadíski fjöltónlistarmaðurinn
Neil Young sem á síðasta ári
sendi frá sér gæðaplötuna
Ragged Glory, ætlar að fylgja
henni rækilega eftir. Er nefnilega
von á tvöfaldri tónleikaplötu frá
kappanum ásamt félögum hans I
hljómsveitinni Crazy Horseþann
16. september. Var efnið á henni
tekið upp á tónleikaferð Youngs
og félaga um Bandaríkin á síð-
asta ári sem kallaðist einfaldlega
Ragged Glory tour.
Big Country
Frekar hljótt hefur verið um stór-
hljómsveitina skosku Big Coun-
try nú hin seinni ár, en síðasta
hljóðversplata hennar, Peace in
our time, kom út fyrir rúmum
þremur árum. Nú eru hins vegar
Stuart Adamson og félagar
vaknaðir til lífsins og búnir að
senda frá sér EP plötu sem
kallast Republican party repile.
Er titillag þessarar EP plötu for-
smekkur þess sem koma skal á
nýrri breiðskífu sem væntanleg
er nú í september. Verður þessi
nýja hljóðversbreiðskífa sú fjórða
í röðinni hjá Big Country en
hljómsveitin hefur nú starfað í
um átta ár.
Skid Row með tvenna
tónleika í Laugardals-
höll
Nú virðist Ijóst að bandaríska
þungarokkhljómsveitin Skid
Row muni halda hér á landi
tvenna tónleika í Laugardalshöll-
inni um næstu helgi, 6. og 7.
september. Hefur Skid Row náð
gríðarmikilli hylli með fyrstu
tveimur plötum sínum, SkidRow
og Slave to the grind og er
skemmst að minnast að sú
síðarnefnda fór beint á toppinn í
Bandarlkjunum yfir söluhæstu
plötur vikunnar, sem er mjög
sjaldgæft. Þá náði lagið 18 and
life af fyrri plötunni efsta sæti
vinsældalistans bandaríska.
Er ekki að efa að rokkunnend-
ur munu fagna þessum glaðningi
vel og flykkjast á tónleikana
ásamt fieiri tónleikaunnendum.
Þróunin virðist nú ætla að verða
sú að rokktónleikar verði hér
reglulegur viðburður. Er það vel
og er vonandi að fólk láti sig ekki
vanta hér eftir sem hingað til.
Plötupunktar
Mikið af athygliverðum þlötum af
ýmsu tagi hefur verið að koma út,
eða er við það að koma út,
þessa dagana. Kemur hér
samantekt á nokkru af því sem
þar er á boðstólum. Svo byrjað
sé fremst í stafrófinu, þá er
skoska þjóðlagarokksveitin All
about Eve nýbúin að senda frá
sér sína þriðju plötu sem nefnist
því hjartnæma nafni Touched
by Jesus. The Blue Aero-
planes er fyrir skömmu búin að
senda frá sér sína nýjustu skífu
sem kallast Beatsongs Það
hafa þau í T’Pau líka gert og
kallast platan sem er þeirra þriðja
The promise. Ein af þeim betri í
rappinu, Public Enemy, kemur
með sína nýjustu afurð í október.
Smáskífa með laginu Can’t
truss it kemur út í september.
Mun platan eiga að heita
Apocalypse 1991. Dave Stew-
art úr Eurythmics og The
spiritual cowboys, senda frá
sér sína aðra plötu í lok sept-
ember sem kallast mun Honest.
Nokkrar safnplötur er vert að
nefna eins og með vinsælustu
lögum The Cult, sem reyndar
kemur líka með nýja plötu í okt-
óber (af henni er að koma fyrsta
smáskífan sem geymir lagiö
Wild hearted son). Safn með
eldra efni hins ráma Tom Waits
sem komið er út er einnig vert að
nefna og sömuleiðis endurútgáfu
á plötu þeirra Byrds þrímenn-
inga McGuinn, Clark og Hill-
man á geisladiski, sem fyrst kom
út 1979 og var eitt þaö síðasta
sem Gene Clark hljóðritaði, en
hann lést í sumar. Að lokum ber
svo að nefna enn eina plötuna
með rokkjöfrunum öldnu í Jethro
Tull sem út kemur nú í septem-
ber og heitir Catfish rising.
Laugardagur 31. ágúst 1991 - DAGUR - 19
Spurning vikunnar
Hvernig þótti þér heimsókn
forseta íslands til
Skagafjarðar takast?
Snorri Björn Sigurðsson,
bæjarstjóri á Sauðárkróki:
Mér þótti hún takast vel og held
að í öllum meginatriðum hafi
þetta gengið upp. Við vorum
heppin með veður því þegar
komið er fram á þennan
árstíma má búast við hvass-
viðri, rigningu og jafnvel kulda.
Ég verð líka að segja það, að
ég er alveg sérstaklega ánægð-
ur með hvað fólk tók mikinn þátt
í heimsókninni eins og t.d. í
íþróttahúsinu hér á Króknum
þar sem fjöldi fólks mætti. Allt
fór samkvæmt áætlun og ég get
ekki annað sagt en minnsta
kosti það sem snýr að okkur hér
á Sauðárkróki, hafi tekist vel og
vona að gestunum hafi þótt það
einnig.
Halldór Þ. Jónsson,
sýslumaður Skagafjarðarsýslu:
Mitt mat er að heimsóknin hafi
tekist mjög vel. Það gekk allt
upp og skipulagning stóðst.
Móttökur voru alls staðar með
ágætum og mæting var góð á
þá staði þar sem forsetinn kom
til að hitta fólk. Ég held að því
sé ekki annað hægt að segja en
hún hafi tekist með ágætum.
Magnús Sigurjónsson,
framkvæmdastjóri Héraðs-
nefndar Skagafjarðar:
Ég er mjög ánægöur með
hvernig þetta gekk allt saman.
Auðvitað er ég ekki rétti maður-
inn til að segja til um hvernig
móttökurnar tókust, en ég var
ánægður með hvernig sveitar-
félögin stóðu sig og er mjög
stoltur af Skagfirðingum eftir
þessa heimsókn því hvarvetna
var tekið á móti forsetanum
með mikilli reisn. Þrátt fyrir
mikla tímapressu gekk allt upp
og forsetinn heillaði alla hvar
sem hún kom og ef einhver var
stressaður þá eyddist það um
leið og hún var komin á vett-
vang því hún náði inn að hjarta-
rótum hvers síns viðmælanda.
Bjöm Sigurbjörnsson,
formaður undirbúnings-
nefndar heimsóknarinnar:
Mér þótti heimsóknin takast vel.
Allt gekk upp og Skagfirðingar
mættu vel á þá staði þar sem
þeim gafst kostur á að hitta
forsetann. Við vorum heppin
með veður, því það var eins og
sólargeisli brytist í gegn þessa
daga þegar forsetinn heiöraði
Skagafjörð með nærveru sinni.
Undirbúningur var langur og
strangur, en við í undirbúnings-
nefndinni erum í sjöunda himni
yfir því hvernig til tókst.