Dagur - 31.08.1991, Side 20
Árskógsströnd:
Sveinn Jónsson, oddviti á
Arskógsströnd, segir að inn-
an skamms verði hafnar
framkvæmdir við byggingu
lítilla íbúða á Litla-Arskógs-
sandi, sem henti vel fyrir ungt
fólk sem er að hefja búskap
eða eldra fólk sem vill
minnka við sig.
Sveinn sagði ætlunina að
byggja fjórar íbúðir, 45 til 65
fermetra að stærð, á vegum Ár-
skógshrepps, og er hugmyndin
að þær verði í kaupleigukerf-
inu. „Við erum búnir að skipu-
leggja byggingareit á Árskógs-
sandi, sem við ætlum fyrir íbúð-
ir fyrir bæði unga og aldna,“
sagði Sveinn.
Hann sagði að þegar hefði
verið spurst fyrir um íbúðirnar
og því virtist vera næg eftir-
spurn eftir þeim. óþh
Blönduvirkjun:
Aflvélin prófuð á næstunni
- fiögur hús keypt á Blönduósi
Vinna við Blönduvirkjun
gengur samkvæmt áætlun og
að sögn Páls Ólafssonar, yfir-
manns byggingadeildar
Landsvirkjunar, verður afl-
vélin sem verið er að ganga
frá þessa dagana prófuð í
kringum 10. sept. nk.
Lokið er byggingu tengilínu
frá virkjuninni í byggðalínu svo
hægt verður að keyra raforkuna
beint inn á dreifikerfi Lands-
virkjunar þegar þessi fyrsta afl-
vél verður tekin formlega í
notkun í byrjun októbermánað-
ar. Páll segist ekki búast viö
öðru en sú tímaáætlun standist,
enda er nú lokið allri steypu-
vinnu og stíflugerð við virkjun-
ina og nær eingöngu unnið við
frágang.
Landsvirkjun er einnig búin
að festa kaup á fjórum einbýlis-
húsum á Blönduósi fyrir fram-
tíðarstarfsmenn Blönduvirkjun-
ar. Knútur Otterstedt, svæðis-
stjóri Landsvirkjunar á
Norðurlandi, segir framboð á
húsurn á Blönduósi vera það
mikið að frekar hafi verið
keypt, en byggð ný hús. Hann
segir þessa framtíðarstarfsmenn
vera komna til starfa og að þeir
muni á næstunni flytja inn í hús-
in með fjölskyldur sínar. SBG
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Stéttarsamband bænda:
Aðalfundur
á Hvanneyri
Aöalfundur Stéttarsambands
bænda hefst á Hvanneyri í dag
og stendur fram á mánudag.
Fundurinn veröur settur kl.
13.30 en stefnt er að því að
honum ljúki kl. 18.00 á mánu-
dag.
Að lokinni fundarsetningu og
kosningu fundarstjóra og fundar-
ritara, flytur Haukur Halldórs-
son, formaður Stéttarsambands-
ins, skýrslu formanns. Pví næst
flytur Halldór Blöndal, landbún-
aðarráðherra ræðu og gestir
ávarpa samkomuna.
Búast má við miklum umræð-
um um stöðu landbúnaðarins í
ljósi væntanlegs búvörusamnings
og markaðstengingar landbúnað-
arframleiðslunnar. Einnig má
reikna með að samningar Islands
og annarra EFTA-landa við
Evrópubandalagið um evrópskt
efnahagssvæði komi til umræðu
og fjallað verði um hugsanlegan
innflutning á landbúnaðarvörum.
Málefni sauðfjárræktarinnar
verða einnig til umræðu en nú um
mánaðamótin rennur út frestur
sauðfjárbænda til þess að taka
fyrsta tilboði ríkisins um sölu á
fullvirðisrétti. -KK
Akureyrarbær gerir Gosan tilboð um flutninga
gosdrykkjaframleiðslunnar norður:
Fjölgar vonandi plúsum ívrir
staðsetningu á Akureyri
- segir Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar
fræðibraut við Háskólann
Stjórn Fjóröungssambands
Norðlendinga telur að koma
verði á fót uppcldisfræöideild
við Háskólann á Akureyri.
Á fundi stjóniar Fjórðungs-
sambands Norðlendinga fyrr í
þessum ntánuði var samþykkt
eftirfarandi ályktun: „Fjórð-
Bæjarráð Akureyrar hefur
samþykkt að mæta hækkuðum
rekstrargjöldum bæjarsjóðs á
þessu ári að hluta með Ián-
töku. AHt stefnir í að taka
þurfi um 60 milljónir að láni en
endurskoðun fjárhagsáætlunar
sýnir hækkun rekstrargjalda
um tæplega 80 milljónir króna.
Stærsti hluti þessarar upphæð-
ar er vegna áfalla sem bærinn
verður fyrir af gjaldþrotuin
Álafoss og ístess. Áfallnar
bæjarábyrgðir af gjaldþrotun-
um eru 55 milljónir króna og
til viðbótar lækka tekjur
bæjarsjóðs vegna þessara
gjaldþrota.
ungsstjórn leggur áherslu á að
hið fyrsta verði stofnuð
uppeldisfræðibraut við Háskól-
ann á Akureyri til að bæta úr til-
finnanlegum skorti á fóstru- og
kennaramenntuðu fólki á lands-
byggðinni. Einnig verði komið
á endurmenntun kennara við
skólann.“ óþh
Sigurður J. Sigurðsson, forseti
bæjarstjórnar, segir að auk áhrif-
anna af gjaldþrotum Álafoss og
ístess hafi ýmsir liðir á fjárhags-
áætlun þurft endurskoðunar við.
Einn stærsti liðurinn segir hann
tekjuminnkun hjá Skíðastöðum
sem leiði af sér 6 milljóna króna
aukin útgjöld fyrir bæjarsjóð. Þá
verða tekjur af aðstöðugjöldum
13,5 milljónum lægri en áætlað
var, sem að hluta skýrist með
áðurnefndum gjaldþrotum.
Hækkuðum rekstrargjöldum
verður mætt með niðurskurði á
snjómokstri um 5 milljónir og
bygging dagvistar við Helga-
magrastræti frestast. Sigurður
segir að með tilfærslu í eigna-
Akureyrarbær hefur gert gos-
drykkjafyrirtækinu Gosan hf. í
Reykjavík tilboð um Ilutninga
á gosdrykkjaframleiðslunni
norður yfir heiðar. Aðilar vilja
ekki gefa upp hvað er fólgið í
þessu tilboði en eins og Dagur
hefur skýrt frá stendur Gosan
nú frammi fyrir þeim valkost-
um, þar sem finna þarf nýtt
hús fyrir gosdrykkjaframleiðsl-
una í Reykjavík, að sameina
bjór- og gosdrykkjaframleiðsl-
una undir eitt þak á Akureyri
Ágætlega viðrar til berjatínslu
á Norðurlandi um helgina.
Léttskýjað verður í dag en í
kvöld þykknar upp og fer að
rigna á köflum. Á morgun,
sunnudag, léttir aftur til með
suðvestanátt.
Að sögn Ásdísar Auðunsdótt-
ur, veðurfræðings hjá Veðurstofu
íslands, verður suðvestlæg átt í
dag en með kvöldinu fer að
eða í Reykjavík eða finna nýtt
húsnæði fyrir gosdrykkjafram-
leiðsluna í Reykjavík og þar
með yrði bjórframleiðsla Vik-
ing Brugg um kyrrt á Akur-
eyri.
Werner Rasmusson, stjórnar-
formaður Gosan, segir að afstaða
til tilboðs Akureyringa verði ekki
tekin fyrr en í fyrsta lagi í lok
næstu viku þar sem nokkrir
stjórnarmenn Gosan eru í
útlöndum. Aðspurður hvernig
bæjarfélag geti komið inn í mál af
þykkna upp með suðaustlægri
átt. „Það verður bjart framan af
degi en þykknar svo upp og má
búast við einhverri vætu með
köflum á laugardagskvöld.
Á sunnudag léttir sennilega
aftur til með suðvestanstrekkingi
eða -kalda og hitinn verður
eitthvað yfir tíu stigurn á meðan
léttskýjað er og sunnudagurinn
gæti orðið dálítið góður,“ sagði
Ásdís í samtali við Dag. GT
þessu tagi segir Werner að ekki
geti orðið um nein fjárframlög að
ræða en á hinn bóginn séu dæmi
þess að kornið sé til móts við
fyrirtæki með niðurfellingu á
gjöldum tímabundið.
Ef af flutningum til Akureyrar
verður segir Werner að Gosan og
Viking Brugg, sem nú eru rekin
aðskilið, verði sameinuð og æski-
legast væri að framleiðsla yrði á
einuin stað snemma næsta árs.
Fulltrúar Akureyrarbæjar og
Gosan hafa farið sameiginlega
yfir málið á síðustu dögum og í
framhaldi af þeirri vinnu var
Gosan gert tilboð um flutninga
norður. „Það má segja að þeir
hafi spurt okkur þeirrar spurn-
ingar hvort við gætum gert eitt-
hvað til að koma inn í myndina
við ákvörðun þeirra. Við gerðum
þeim því tilboð í þeirri von að
þeir gætu flutt starfsemina norð-
ur og sameinað framleiðsluna hér
á Akureyri því við lítum svo á að
hér hafi þeir góðar aðstæður til
þess,“ segir Sigurður J. Sigurðs-
son, forseti bæjarstjórnar Akur-
eyrar.
Sigurður segir ljóst að mjög
stór markaðar fyrir framleiðsluna
sé á höfuðborgarsvæðinu og því
snúist spurningin um að brúa það
bil svo framleiðslan verði sam-
keppnisfær í verði á markaðinum.
„Það er langt í frá að rnálið sé
útrætt en við reyndum að draga
myndina upp eins skýrt og við
gátum. Vonandi verður þetta
framlag okkar til að plúsarnir
verði fleiri fyrir staðsetningu hér
á Akureyri," segir Sigurður J.
Sigurðsson. JÓH
Endurskoðun fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar:
Fyllt í 60 milljÓDa gat með lántökum
- gjaldþrot Álafoss og ístess vega þyngst í hækkuðum rekstrargjöldum
breytingalið náist lækkun um 20 I upp á um 60 milljónir sem fylla
milljónir en þá standi eftir gat | þurfi með lántökum. JÖH
Ágætt beriatínsluveður