Dagur - 07.09.1991, Blaðsíða 8

Dagur - 07.09.1991, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 7. september 1991 Stefán Karlsson er einn af fremstu sérfræðingum okkar í málfræði og málvísind- um, ekki síst hvað varðar íslensk handrit og íslenskt mál á miðöldum og munu fáir vísindamenn í heiminum honum fremri í þeim efnum. Hann hefur gert víð- reist en engu að síður er hann tengdur nánum böndum heimabyggð sinni, Akur- eyri og Fnjóskadal. Blaðamaður Dags hitti hann að máli á dögunum. vi minni má skipta í þrjú jafnlöng skeið; ég er rúm- lega sextugur og var þriðj- ung ævinnar á Akureyri og í Fnjóskadal og Eyjafirði á sumrin. Annan þriðjung var ég erlendis, lengst af í Kaupmannahöfn, og þann þriðja hér í Reykjavík, sagði Stefán Karlsson handritafræðingur þegar blaða- maður hitti hann að máli í íbúð hans á Víði- mel á dögunum. „Ég er Þingeyingur að ætt og uppruna, kominn af bændafólki að langfeðgatali. Ég þarf að fara meira en tvö hundruð ár aftur í tímann til að finna nokkurn prest eða ann- arrar stéttar mann meðal forfeðra,“ segir Stefán kíminn. „Ég er fæddur á Belgsá í Fnjóskadal en faðir minn fórst þar í snjóflóði þegar ég var á fyrsta ári. Ég fluttist þá til Akureyrar með móður minni sem gerðist ráðskona hjá ógiftum systkinum sínum og þar var amma mín líka og reyndar ömmusystir þegar ég man fyrst eftir mér. Ég ólst þannig upp í stórfjölskyldu á Akureyri. Mér finnst að okkar fjölskylda og sjálf- sagt mjög margar aðfluttar fjölskyldur á Akureyri á þessum tíma hafi haldið áfram að lifa í fyrra umhverfi. Ég held að langflest af því fólki sem kom á heimili okkar hafi verið annað hvort Fnjóskdælingar sem voru fluttir til Akureyrar eða Fnjóskdælingar í kaupstaðarferð sem komu til að heilsa upp á okkur og borðuðu og gistu. Ég kalla mig aldrei Akureyring. Ég kalla mig Þingeying eða Fnjóskdæling - alinn upp á Akureyri - bæti ég við ef ég er nákvæm- ur,“ segir Stefán og hlær. „Hitt er annað mál að ég leita alltaf til Akureyrar og þykir gott að koma þar og ég fer helst ekkert annað í fríum en norður til Akureyrar og á upprunaslóðir mínar í Fnjóskadal. Skógræktin hefur átt Belgsá í marga ára- tugi en einum hektara var haldið eftir handa mér og þarna get ég frílystað mig á sumrin, búið í tjaldi mínu og höggvið skóg. Það er nú sú skógrækt sem þar er mest þörf á. Og á mörgum bæjum eru frændur og vinir.“ Ætlaði að verða dönskukennari Stefán er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1948 en hvernig atvikaðist það að hann fór utan til náms? „Það má nú segja að það hafi verið hálf- vikur eitt sumar og ég hafði töluverð tengsl við Færeyinga því að á fyrstu námsárum mínum í Höfn og reyndar fram eftir var æði mikill samgangur fslendinga og Færeyinga; við sóttum samgöngur hvorir hjá öðrum svo að ég bjarga mér á íslenskuskotinni fær- eysku.“ Stefán er sagður hafa vald á fimm norður- landamálum því auk íslenskunnar ku hann tala mjög góða færeysku og að sjálfsögðu dönsku eins og innfæddur. „Þetta er nú ofmælt en á námsárum mín- um tók ég tvo vetur í að fara á milli landa. Ég var einn vetur hér í Reykjavík og skipti öðrum vetri á milli Óslóar og Uppsala, ekki síst til þess að fá veður af því hvernig kennsla væri í þessum löndum og líka til að venja mig við að tala sænsku og norsku en þessi mál verða dönskublandin í munni mér þegar ég reyni að bregða þeim fyrir mig. Handritamálið Strax á fyrri hluta aldarinnar og einkanlega eftir að ísland var orðið fullvalda komu upp óskir um að íslensk handrit í Danmörku yrðu afhent hingað og 1928 var afhent tölu- vert af skjalagögnum; dálítið úr ríkisskjala- safni Dana og líka var þar um að ræða skjalagögn sem Árni Magnússon hafði á sín- um tíma fengið léð úr söfnum biskupsstól- anna og klaustranna á íslandi. Svo er þetta mál tekið upp að nýju eftir stríðið. Árin 1945-46 starfaði dönsk/íslensk nefnd, sem átti að ganga frá ýmsum málefn- um ríkjanna í kjölfar lýðveldisstofnunar. íslensku nefndarmennirnir báru handrita- málið upp þar en danski nefndarhlutinn taldi sig enga heimild hafa til þess að ræða það mál. Danska þingið setti síðan nefnd á laggirn- ar til þess að meta þetta mál. í nefndinn voru bæði stjórnmálamenn og fræðimenn og nefndin skilaði áliti 1951 og var margklofin. Ótal minnihlutaálit spönnuðu yfir alla möguleika: að afhenda ekki nokkurn skapaðan hlut og yfir í að afhenda hérumbil öll íslensk handrit. Sanngirnismál en ekki Iagaiegur réttur Síðan kom fram 1954 af hálfu danska menntamálaráðherrans hugmynd um lausn en henni var hafnað af íslenskri hálfu. Sú hugmynd fól í sér að handritin yrðu sameign sanngirnismál, sem Danir urðu að gera upp við sjálfa sig. Aukinn áhugi á íslenskum fræðum Þama var um að ræða handrit í opinberum söfnum; annars vegar Konunglega bóka- safninu, sem var nú lítið fjallað um, og hins vegar safni Árna Magnússonar, sem Árni hafði arfleitt Hafnarháskóla að. Auðvitað hefur honum ekki dottið í hug þá að háskóla yrði komið upp á íslandi. Sanngirniskrafan byggðist á því að þarna væru gripir, sem hefðu lent til Danmerkur vegna pólitísks sambands ríkjanna en ættu nú að koma aft- ur til heimalandsins sem væri orðið sjálf- stætt ríki og hefði sinn eigin háskóla. Þess vegna hafa íslendingar aldrei haft uppi neitt handritamál gagnvart Svíum þó að þeir eigi margt af gömlum og merkileg- um íslenskum handritum enda eru það handrit sem þeir hafa yfirleitt keypt eða eignast með öðrum hætti. Ég var ánægður með lausnina þó að við fengjum ekki öll handritin og megi segja að skiptingin hafi ekki að öllu leyti verið upp á það skynsamlegasta. Sú staðreynd að æði mikið af íslenskum handritum verður eftir í Danmörku veldur því líka að Danir hafa skyldu til þess að halda uppi rannsóknar- starfsemi í kringum þessi handrit. Það er mjög mikilvægt að rannsóknir á íslenskum handritum fari fram víðar en hér í Reykjavík og langbestu skilyrðin til þeirra utan Islands eru í Kaupmannahöfn. Á Árnastofnun þar er t.a.m. mun stærra safn ljósmynda af íslenskum handritum en við eigum hér heima enn. Yfirleitt er það svo með allar rannsóknir að það er heppilegt að í þeim sé fólk sem hefur ólíkan grundvöll að byggja á; misjafna menntun og ólíkt umhverfi. Það sást vel á 8. fornsagnaþinginu í Gautaborg sem ég var að koma af en þar voru 230 manns úr öllum heiminum, þ. ám. Ítalíu, Sovétríkjunum, Japan og Ástralíu, sem áttu það sameiginlegt að hafa sýslað við forníslenskar bókmenntir. Obbinn af þessu fólki er læs á íslenska forntexta og brýst fram úr nútímatextum þó að ekki séu nema sumir talandi á íslensku enda er eitthvert annað germanskt mál aðal-kennslugrein flestra. Áhugi á íslenskum fræðum hefur aukist stórlega víða um lönd á síðustu ára- tugum í tengslum við aukinn áhuga á evrópskum miðöldum yfirleitt, sem flestum þótti lengi lítið til koma. Farsæl lausn Endanlega var gengið frá skiptingu handrit- anna 1971. Öll handritin sem eiga að koma eru reyndar ekki komin. „Það var sam- handritamálinu. Hitt var annað mál að með- an deilurnar voru sem mestar, einkum á árunum 1961-65, þá ýfðu þær mjög upp gömul sárindi Dana út af sambandsslitun- um. En auðvitað eru nú tiltölulega fáir Dan- ir sem eru svo gamlir að sambandsslitin sitji í þeim og mér finnst líka að margir sem voru á móti afhendingu handritanna á sínum tíma hafi alveg jafnað sig á því. Samstarf þessara tveggja Árnastofnana hefur líka alltaf verið mjög gott. Danir komu upp rannsóknarstofnun í Kaupmannahöfn 1956 í samræmi við mála- miðlunartillögu sína. Þá fyrst var kominn fjárhagslegur grundvöllur fyrir verulega rannsóknarstarfsemi þar, sem óx alveg gríðarlega á sjöunda áratugnum þegar þrennt fór saman: Áhugi og vitund um handritin jókst vegna handritamálsins. í öðru lagi var forysta Jóns Helgasonar, sem var gríðarlega áhugasamur um þessar rann- sóknir, og í þriðja lagi er sjöundi áratugur- inn þetta mikla þensluskeið í Danmörku þegar ríkisstofnanir og þ.á m. háskólastofn- anir blésu út. Áhugi á þjóðfélagsmálum heima En var það afleiðing þess að handritin komu heim að Stefán fluttist heim um sama leyti? „Jú, en kannski ekki bein afleiðing því ég var í ágætu starfi við handritarannsóknir í Danmörku og launin hafa alla stund verið helmingi hærri þar en hér. Ég var hins vegar búinn að vera það lengi erlendis að ég varð að gera það upp við mig hvort ég ætlaði að koma mér heim eða setjast alveg að þar. Ég valdi þann kostinn að fara; ekki síst af því að mér bauðst starf hérna við stofnun- ina. Þó að ég væri í sjálfu sér ánægður í fyrra starfi mínu voru tvær meginástæður fyrir því að ég vildi frekar flytja mig en að vera um kyrrt. Önnur var sú að mér fannst vera ófullnægjandi að eiga til lengdar heima í þjóðfélagi sem kom manni ekki við. Ég var íslenskur ríkisborgari og hafði allan minn áhuga á þjóðfélagsmálum hér. í annan stað átti ég von á því að hér væri fleira fólk sem hefði áhuga á því sem ég var að sýsla við. Þetta seinna hefur nú kannski ekki alveg gengið eftir því að sannleikurinn er sá að það er ákaflega fámennur hópur hér sem hefur beinan áhuga á handritarann- sóknum þó að stærri hópur hafi áhuga á þeim textum sem handritin hafa að geyma.“ Árnastofnun alþjóðleg En kemur áhugaleysi fram í skorti á fjár- veitingum? „Það er nú varla hægt að segja annað en að sæmilega hafi verið við okkur gert í fjár- „Hefði misst höfuðið í Rússlandi Stefán Karlsson handritafrœðingur í helgarviðtali gerð tilviljun. Ég var dálítið óráðinn í því hvað ég ætti að gera eftir stúdentspróf, þ.e.a.s. ég hafði hugsað mér að verða kenn- ari. Ég varð stúdent úr stærðfræðideild en hafði meiri áhuga á tungumálum og það varð úr að ég fór til Kaupmannahafnar í dönskunám; ætlaði mér að verða dönsku- kennari." En var það ekki viðkvæmt mál að fara að læra dönsku rétt eftir lýðveldisstofnunina? „Nei, það þótti aðallega skrýtið. Margir kennarar mínir og fleiri voru undrandi á þessu námsvali en eftir að ég impraði á þessu hvatti Þórarinn Björnsson, skóla- meistari MA, mig enda gerði hann sér vonir um að fá mig seinna sem dönskukennara að skólanum en ég sveik hann nú um það af því að áhugamálin fóru að beinast að öðru. Smám saman eftir að ég fór að lesa annað mál og aðrar bókmenntir þá vaknaði og jókst áhuginn á eigin máli og eigin bók- menntum. Þannig að eftir að ég lauk fyrri- hlutaprófi í dönsku fór ég yfir í norræn mál almennt og lagði megináherslu á íslensku. Sá kostur fylgdi því að vera í Kaupmanna- höfn að þar var maður í nábýli við handrit- in. Tengsl við Færeyinga Hluti af mínu námi í norrænum málum var færeyska og ég sótti tíma í færeysku marga vetur í Höfn. Ég var í Færeyjum nokkrar þjóðanna tveggja og að Árnastofnun væri ein en henni yrði skipt í tvær deildir; önnur væri í Kaupmannahöfn og hin í Reykjavík og á þessum stöðum yrði komið upp rann- sóknarstofnunum. Þessi lausn, sem íslend- ingar höfnuðu þá, hefði í framkvæmd orðið mjög áþekk þeirri lausn sem síðar fékkst með miklum harmkvælum. Sú lausn var einnig fólgin í skiptingu þannig að vissir flokkar íslenskra handrita verða kyrrir í Kaupmannahöfn. íslenskir og danskir stjórnmálamenn komu sér saman um þá lausn, sem varð ofan á. Hún var borin fram í danska þinginu og samþykkt 1961 og aftur 1965. Svo urðu málaferli; fyrst út af því hvort lögin færu í bága við stjórnarskrána og síð- an um það hvort ríkið ætti að borga skaða- bætur. Þessu var ekki lokið fyrr en 1971 og þá byrja handritin að koma.“ En hvar stóð Stefán sjálfur í handritamál- inu? „Auðvitað fylgdist ég grannt með þessu og liðsinnti ofurlítið dönskum stuðnings- mönnum okkar, veitti þeim fróðleik og skrifaði sjálfur fáein lesendabréf í dagblöð þegar missagnir andstæðinga gengu alveg fram af mér. Það lá náttúrulega fyrir - ekki bara í þessu danska nefndaráliti heldur var það líka almennt viðurkennt af íslendingum - að íslendingar hefðu engan lagalegan rétt í þessu máli þannig að þar með var þetta komulag um að afhenda þau smám saman á 25 árum og það eru eftir fimm ár af því tímabili. Líklega er um fimmtungur ókom- inn af því sem ákveðið er að komi. Yfirleitt er gert við handritin áður en þau fara; þau eru ljósmynduð mjög vel og ljós- myndirnar bornar vandlega saman við frumskjölin einmitt vegna rannsóknanna í Danmörku. Auk þess er það öryggisatriði að senda ekki nema fá handrit í einu en þau eru öll flutt með skipi. Þó að hér á landi hafi lengi verið stunduð íslensk fræði var tiltölulega lítið um beinar handritarannsóknir þangað til að því dró að ísland fengi þessi gömlu handrit frá Dan- mörku til varðveislu og þegar gengið var frá endanlegri skiptingu íslenskra handrita í Danmörku milli þessara tveggja landa þá lýstu dönsk stjórnvöld þeirri skyldu sinni að styðja áfram við rannsóknir þar í landi. Þessi málalok í Danmörku eru einstök og ég held að fáar aðrar þjóðir en Danir hefðu leyst þetta mál svona farsællega." Gömul sárindi ýfð upp En finnur Stefán mun á sambandi íslend- inga og Dana eftir að handritadeilan leyst- ist? „Það er merkjanlegur munur hér á ís- landi; að Danir eru, nærri því að segja, allra þjóða vinsælastir eftir að lausn fékkst á veitingum miðað við aðrar stofnanir en það er þó alls ekki nóg. Eitt er það sem ekki hef- ur fengist full viðurkenning á hjá þeim sem með fjármálin fara; að handritin skuli vera hér flest núna það leggur ekki aðeins þær skyldur á okkur að sinna þessum rannsókn- um sjálfir heldur er Árnastofnun hér ein af örfáum alþjóðlegum vísindastofnunum á íslandi. Það er ótrúlegur fjöldi erlendra fræðimanna sem kemur hingað til rann- sókna á hverju ári; sérstaklega á sumrin því að þetta eru mest háskólakennarar sem eru bundnir af sinni kennslu á veturna. Sumir gestanna vilja gjarnan að verk þeirra séu gefin út hér en það kostar bæðí peninga og drjúgan tíma fyrir okkur sem erum fastráðin á Árnastofnun að liðsinna þessu fólki. Það er því smám saman minni og minni hluti af okkar vinnutíma sem við getum varið til eigin rannsókna vegna þjón- ustu við fræðimenn og aðra sem til okkar leita. Við þyrftum því að vera liðfleiri og hafa meira fé til útgáfustarfsemi.“ Fornbréfarannsóknir Eitt af fyrstu rannsóknarverkefnum Stefáns eftir að áhugi hans fór að beinast að hand- ritarannsóknum var að kanna mál íslenskra fornbréfa fram til 1450, sem ekki höfðu ver- ið gefin út nógu nákvæmlega áður. „Fornbréfin hafa þann kost fram yfir Laugardagur 7. september 1991 - DAGUR - 9 venjuleg handrit að það er tekið fram hvar og hvenær þau eru skrifuð þannig að rann- sóknir á þeim geta auðveldað að komast að því á hvaða tíma og hvar í landinu einstök handrit eru skrifuð. Eitt af því sem ég hef unnið mest við í mínum rannsóknum er að koma tímasetn- ingu handrita á traustari grundvöll og jafn- framt að reyna að komast að því í hvers konar umhverfi og hvar á landinu þau eru skrifuð! Það eru ákveðnar ritvenjur á hverj- um tíma sem virðast vera bundnar að miklu leyti við landshluta þó að mállýskumunur sé mjög óverulegur og ekki sé vitað hvernig mállýskur hafa skipst á fyrri öldum. Handritin heim - í fjórðunginn Mér hefur stundum verið legið á hálsi að ég fari með öll handrit norður í land og það er svolítið til í því. Það er nú kannski ekki bara vegna þess að ég vilji koma þeim í minn fjórðung heldur einnig hitt að varðveisla fornbréfa af landinu sem heild er mjög mis- jöfn - það er svo miklu meira af fornbréfum til úr Norðlendingafjórðungi en úr öðrum landshlutum og þess vegna er auðveldara að komast að því hvaða handrit hafa verið skrifuð á þeim slóðum. Þetta hefur verið skýrt öðrum þræði með veðurfari og það er áreiðanlega hluti af skýringunni að loftslags vegna hafi skinnin, og seinna pappír, sem skrifað var á, varð- veist betur. Fleira kemur til þvf það er t.a.m. gríðarmikið til af skjallegum heimild- um frá Hólum en mjög lítið af frumritum frá Skálholti vegna þess að þar urðu svo oft brunar. Til að mynda er hægt að setja tvö mjög stór konungasagnahandrit niður í Eyjafirði út frá þessum samanburði á skrift á tíma- settum bréfum. Annað þeirra er frá seinni hluta 14. aldar, kallað Hulda, og reyndist vera skrifað með sömu hendi og tvö bréf sem voru skrifuð í Munkaþverár- klaustri 1375. Hitt er Hrokkinskinna, um hálfri öld yngra, með sömu hendi og bréf sem var skrifað í Lögmannshlíð 1423. Handrit skrifuð á stórbýlum Stefán segir suma erlenda fræðimenn hafa ímyndað sér að mjög mikill hluti handrita, ekki síst þau sem voru skrifuð af fleiri en einum skrifara, væri skrifaður annað hvort á biskupsstólunum eða í klaustrum. Stefán hefur hins vegar andmælt því að öll meiri- háttar bókagerð hafi verið bundin við klaustur og biskupsstóla. Skilyrði til menn- ingarframleiðslu hafa að mati Stefáns víðar verið góð. „Á íslandi voru að vísu engir kaupstaðir þannig að menn hafa ímyndað sér að klaustrin og biskupsstólarnir hafi verið einu menningarmiðstöðvarnar í landinu en hins Mynd og texti: Gísli Tryggvason vegar var fjölmenni á stórbýlum eins og t.a.m. Möðruvöllum í Eyjafirði þar sem bjó ríkasta fólk á landinu. Prestastéttin var líka miklu fjölmennari þá en núna og á þessum stórbýlum, sem jafnframt voru kirkjustaðir, áttu yfirleitt að vera tveir prestar og 1-2 djáknar að auki þannig að á hverjum stað voru allt að því fjórir vígðir menn og börn efnafólksins hafa án efa lært að lesa og skrifa." Raungreinar fyrir ráðherra Síðast þegar Stefán var vetrarlangt á Akur- eyri kenndi hann við sinn gamla Mennta- skóla veturinn 1951-52. „Ég kenndi aðallega raungreinar og guma stundum af því að hafa kennt Hjörleifi Guttormssyni og Júlíusi Sólnes efnafræði,“ segir Stefán og hlær. Þá var það enn til siðs meðal manna með stúdentspróf að ganga með svartar stúdents- húfurnar til merkis um prófið. „Ég bar húf- una daglega þangað til hún týndist eða rifn- aði í aftakastormi þennan vetur.“ Stúdentafélagið í utanríkispólitík En hvernig fékk Stefán útrás fyrir pólítískan áhuga sinn erlendis í þjóðfélagi sem kom honum ekki beinlínis við? „í íslensku nýlendunni var mikið rætt um þessi mál og við vorum frægir í Félagi íslenskra stúdenta í Kaupmannahöfn fyrir að þar var alla tíð mjög eindregin andstaða gegn hersetunni. Stúdentafélagið gerði líka samþykkt 1954 þar sem við fundum að því að málamiðlunartillögu Dana til lausnar handritamálinu hefði verið hafnað af íslend- ingum að lítt athuguðu máli. Við vorum nokkuð einir um þá afstöðu. Veturinn 1954-1955 þegar ég kenndi við Samvinnuskólann þá man ég að Jónas frá Hriflu, skólastjóri Samvinnuskólans, fór að tala við mig um þessa afstöðu Hafnarstúdenta og sagði: Ef þetta hefði gerst í Ameríku eða Rússlandi að hópur ungra menntamanna hefði gengið í berhögg við stefnu stjórn- valda í tveimur mikilsverðustu utanríkis- málurn - handritamáli og herstöðvamáli - þá hefðu þessir menn misst höfuðið í Rúss- landi en æruna í Ameríku.“ ísland kom þægilega á óvart Stefán segir þessa gagnrýni sína út í margt í íslensku þjóðfélagi á Hafnarárunum hafa orðið til þess að búsetan hér varð auðveldari en ella því það sem kom á óvart var yfirleitt betra en hann bjóst við. „Ég uppgötvaði t.d. kosti fámennisþjóð- félagsins, sem ég hafði ekki haft auga fyrir. Og svo var það veðurlagið; fyrir mér var það svo í endurminningunni frá þessum eina vetri sem ég hafði verið áður hér í Reykja- vík að hér væri alltaf rok og rigning. Það var mjög þægilegt að komast að því að það var nú stundum stillt og þurrt veður. Þessi löngun til að skipta sér af umhverf- inu fékk nokkra útrás hjá mér eftir að ég kom heim frá Danmörku. Ég kalla mig allt- af framsóknarmann og tala stundum um okkur framsóknarmenn hvar í flokki sem við stöndum út frá því sjónarmiði að margir okkar, sem ólumst upp í framsóknarum- hverfi, hafa haldið fast við þær grundvallar- hugmyndir um lýðræðislega og þjóðlega félagshyggju sem Framsóknarflokkurinn var reistur á þó að okkur hafi stundum þótt aðrir flokkar fara nær þeim stefnumálum. Ég var í Þjóðvarnarflokknum á sínum tíma og reyndar í framboði í Eyjafirði 1956 ásmat nafna mínum á Hlöðum og fleiri góð- um mönnum. Eftir að ég fluttist heim 1970 fór Alþýðu- bandalagið að setja mig í nefndir án þess að ég gengi þó í þann flokk fyrr en löngu seinna og ég sat eitt kjörtímabil í því ágæta útvarpsráði sem Njörður P. Njarðvík var formaður fyrir og átti sinn þátt í því að gera Ríkisútvarpið opnari fjölmiðil en það hafði verið. Ég hef nú áhyggjur af uppgangi auð- hyggju. Velferðarþjóðfélagið, byggð víða um landið og þjóðleg verðmæti, allt á þetta í vök að verjast þegar sem fæst má gera án þess að það borgi sig í beinhörðum pening- um. Hitt verð ég að viðurkenna að eftir því sem á ævina líður er ég orðinn latari við félagsmálastarf; mér finnst ég hafa takmark- aðan tíma til að koma frá mér ýmsu í fræðunum sem ég á efnivið í.“ GT

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.