Dagur - 07.09.1991, Blaðsíða 2

Dagur - 07.09.1991, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 7. september 1991 Fréttir „Nei, hestfolaldið er ekki falt fyrir nokkurn pening. Þið verðið að átta ykkur á að móðirin er Sokka 4916. Sokka er 26 vetra og að vori keniur hún með þrettánda folahlið. Sá litli verður þekktur kynbótahestur, ég er þess viss af draumum,“ sagði Ásgeir Yaldimarsson eigandi Sokku, en Sokka er móðir þess þekkta gæðings Jörva frá Ákureyri. Mynd: Golli Iðnþróunarfélag Eyjaflarðar: Konur í fyrirtæk j arekstri fá aðstoð markaðsfræðings Skagastrandarhöfn: Grjótakstri að ljúka - byrjað á þili eftir helgi Grjótakstri í kjarna hafnar- garðs og brimvörn við höfnina á Skagaströnd lýkur í dag. Samkvæmt verksamningi eru búnir að fara í verkið 17.066 rúmmetrar eða rúmlega 51 þús. tonn af grjóti, en verktaki var V. Brynjólfsson sf. á Skaga- strönd. Grjótið var tekið í nýrri námu þar sem kallast Hvammskots- bruni og voru fjórir til sex vöru- bílar í akstrinum. Að sögn Magnúsar B. Jónssonar, sveitar- stjóra, gengu grjótflutningarnir ágætlega og nú eftir helgi verður byrjað að undirbúa það að stálþil verði rekið niður við hafnargarð- inn. Dýpkunarfélagið hf. mun koma með tæki til að grafa rás fyrir þilið, en hamar til að reka það niður verður fenginn hjá Hafnamálastofnun. Magnús segir að hafnaraðstæð- ur batni töluvert á Skagaströnd eftir þessar framkvæmdir og sér- staklega sé gott að fá brimvörn- ina þar sem hún verndar höfnina fyrir úthafsöldunni sem komið hefur inn yfir hafnargarðinn. SBG Alexandersflugvöllur: Bygging tækja- og vélageymslu í vikunni var gengið frá samn- ingi milli flugmálastjórnar og Trésmiðjunnar Borgar hf. á Sauðárkróki vegna byggingar á rúmlega 300 fermetra tækja- og vélageymslu á Alexanders- flugvelli. Að sögn Jóhanns Jónssonar hjá flugmálastjórn, var Trésmiðj- an Borg hf. lægstbjóðandi í lok- uðu útboði sem fram fór á Sauð- árkróki vegna verksins. Ekkert almennilegt geymslu- húsnæði er fyrir tæki og vélar á Alexandersflugvelli og segir Jóhann að með tilkomu hins nýja húss, sem á að verða risið á næsta ári, verði fyrst hægt að auka við tækjakost ,á vellinum. Þau tæki sem eru til á flugvellinum í dag eru lítið annað en snjóblásari og slökkvibifreið og hafa þau verið geymd í skúr á vellinum og leigu- húsnæði. SBG Aðalfundur Stéttarsambands bænda lýsti alvarlegum áhyggj- um með þróun viðræðna um hið Evrópska efnahagssvæði og hafnar algjörlega samning- um í þeim farvegi er þeir voru í þegar upp úr þeim slitnaði. Fundurinn benti á að þeir fyrirvarar, sem settir voru af hálfu íslands hafi fallið hver af öðrum. Nú stefni í að væntan- legur samningur, ef hann næst á komandi hausti, þjóni ein- ungis þeim þjóðum sem eru innan vébanda Evrópubanda- Fyrirtækjarekstur kvenna fær nú sérstaka meðhöndlun hjá Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar eftir að Elín Antonsdóttir, markaösfræðingur, var ráðin í tímabundið verkefni þar að lútandi. Iðnþróunarfélagið sótti um og fékk hluta af 15 milljóna króna styrk sem fé- lagsmálaráðuneytið veitti til að efla atvinnuþátttöku kvenna á landsbyggðinni. Elín hóf störf um miðjan ágústmánuð og sagði hún í sam- tali við Dag að sér væri ætlað að „Þetta er annað árið í röð sem eldri borgarar úr Hafnarfirði eru hjá okkur síðustu viku sumarsins svo segja má að fólk sé farið að þekkjast og það er mjög glatt á hjalla þegar Blönduósingarnir mæta hingað,“ segir Þór Ragnars- son, hótelstjóri á Edduhótel- inu að Húnavöllum. Þór og kona hans Sigríður Sig- mundsdóttir eru búin að reka hótelið að Húnavöllum sl. fimm sumur og árið 1989 fengu þau lagsins. Fundurinn varaði sérstaklega við rýmkun á reglum um eignar- hald á landi, reglum um innflutn- ing á garð- og gróðurhúsaafurð- um og í ályktun segir að bókun II í drögum að samningi þar að lút- andi gangi þvert á búvörulögin og einnig nýgerðan búvörusamning. Fundurinn ályktaði að fari svo að samningsgerð haldi áfram verði algjört skilyrði að landbúnaðar- ráðuneytið hafi forystu á hendi varðandi málefni landbúnaðarins og að fullnægjandi fyrirvarar um eignarhald á landi, heilbrigðis- fylgjast með og aðstoða konur í fyrirtækjarekstri á Eyjafjarðar- svæðinu, en þetta sérstaka átaks- verkefni myndi standa yfir í sex mánuði. „Það var haft samband við konur sem höfðu verið á nám- skeiði hjá Brjótum múrana fyrir nokkrum árum og spurst fyrir um hvernig gengi hjá þeim í atvinnu- rekstri. Niðurstaðan var sú að helsti flöskuhálsinn virtist vera sölu- og markaðsmál og þess vegna var markaðsfræðingur ráð- inn í verkefnið. Þennan hálfa mánuð sem ég hef gegnt starfinu fyrsta hópinn af eldri borgurum til vikugistingar síðustu viku sumarsins. í fyrra kom síðan hópur eldri borgara úr Hafnar- firði og þau voru svo ánægð með gistinguna þá, að flest komu aftur í ár. Sú hefð er að komast á að eldri borgarar á Blönduósi bjóða hópnum á Húnavöllum í heim- sókn til sín eina kvöldstund og fara svo sjálf í kaffi og á dansleik að Húnavöllum laugardagskvöld- ið áður en hópurinn fer suður aftur. Að sögn Þórs lukkaðist þetta vel í ár og mikið fjör sl. kröfur og innflutningsvernd verði tekin upp. Þá benti aðalfundur Stéttar- sambands bænda á að íslendingar flytji eins og er inn allt aö helm- ingi þeirra landbúnaðarvara sem neytt er í landinu og sé það eitt hæsta hlutfall innflutnings þess- ara vörutegunda sem þekkist í Evrópu. Fundurinn taldi að með því sé gengið mjög langt til móts við þau sjónarmið er vilji sem frjálsust viðskipti með landbún- aðarafurðir. Fundurinn benti einnig á að til þess að unnt verði að bera saman verðlag á land- hef ég skrifað bæjar- og sveitar- félögum bréf til að fá upplýsingar um fyrirtæki kvenna og einnig er ég byrjuð að hafa samband við fyrirtæki,“ sagði Elín. Hún sagðist í upphafi leggja áherslu á framleiðslufyrirtæki, enda kvennafyrirtæki mjög mörg á svæðinu, sérstaklega á sviði þjónustu, og ekki víst að tíminn nægði til að sinna þeim öllum. „En auðvitað eru allar konur sem eru í einhverjum rekstri vel- komnar til mín og allar hug- myndir vel þegnar,“ sagði Elín. laugardagskvöld þar sem dansað var við undirleik harmonika og orgels. Hafnfirðingarnir höfðu einnig haft danskennslu á hverj- um morgni áður en lagt var í skoðunarferðir svo fótamenntin var í góðu lagi. Þór segist búast við að áfram- hald verði á slíkum eldri borgara- vikum að Húnavöllum, en segir að Hafnfirðingarnir komi því miður ekki á næsta ári þar sem þeir séu búnir að skoða sig svo veí um á svæðinu. SBG búnaðarvörum á íslandi og í öðr- um löndum af einhverri sanngirni verði að gera þá kröfu til stjórn- valda að landbúnaðurinn hér á landi sitji við sama borð og ann- arsstaðar hvað varðar álagningu gjalda. f því sambandi er minnt á aðstöðugjald, sem hvergi þekkist í þeirri mynd sem það er í hér á landi, tryggingagjald og síðast en ekki síst virðisaukaskatt á inn- lend matvæli. í>á búi íslenskur landbúnaður einnig við rnikið verri kjör til fjármögnunar en bændur í nágrannalöndum þurfi að sætta sig við. Þ.I. ■ Bæjarráð hefur ákveðiö að leita samþykkis Vegagerðar ríkisins á því að Strandvegur verði tekinn í tölu þjóðvega ( þéttbýli vegna breyttra aðstæðna. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að fela bæjarstjóra að ganga til samnínga við Rúnar Gíslason um skólaakstur veturinn ’91- 92. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að hækka styrk til Umf. Tindastóls á árinu 1991, um kr. 200.000.-. Áður hafði íþróttaráð samþykkt hækkun- iná ogverður styrkur til félags- ins á árinu því kr. 1.520.000.-. ■ Bæjarráði hefur borist bréf frá Bílaklúbbi Skagafjarðar. þar sem þökkuð er aðstoð við framkvæmd rallýs þann 27. júlí sl. ■ Bygginganefnd fjallaði á fundi sínum nýlega urn skipu- lag við Flæðigerði. Árni Ragn- arsson arkitekt lagði fram umræðutillögu að skipulagi hesthúsasvæðis við Flæði- gerði. Bygginganefnd sam- þykkir framkomnar hugmynd- ir og felur Árna að vinna áfram að málinu. ■ íþróttaráði hefur borist erindi frá körfuknattleiksdeild Tindastóls, þar sem óskað er levfis til að setja auglýsingu á suðurgafl íþróttahúss aö utan- verðu. Einnig er sótt um leyfi til að setja auglýsingar á körfuspjöld og gólf íþrótta- vallar. íþróttaráð samþykkir þessá framkvæntd fyrir sitt leyti en felur húsverði að ræða þessi mál nánar við deildina. ■ Umferðarnefnd fjallaði um gangstíga f Hlíðahverfi á fundi sínum fyrir skömmu. Á fund- inn mætti Guðmundur Ragn- arsson byggingafulltrúi. Sam- þykkt var að göngustígur liggi upp Batavég austan bóknáms- húss, yfir Spítalaveg og upp opna svæðið sunnan Spítala- vegar, suður fyrir gatnamót Sæmundarhlíðar og Sauðár- hlíðar, samkvæmt nánari útfærslu byggingafulltrúa. Gangbraut verður sett á Sæm- undarhlíð sunnan gatnamót- anna. Einnig verður sett gangbraut þar sem göngustíg- ur fer yfir Spítalaveg. Með- fram göngustígnum skulu sett ljós og lýsing skal sett yfir gangbrautina á Sæmundar- hlíð. ■ Húsnæðisnefnd telur að stöðug eftirspurn eftir félags- legum íbúðum staðfesti að þörfin fyrir slíkar íbúðir er mjög knýjandi í bænum. Því harmar nefndin þá afstöðu húsnæðisstofnunar að synja umsókn um framkvæmdalán til nýs byggingaráfanga. Þá átelur nefndin þau vinnubrögð að afgreiðsla á umsóknum skuli ekki liggja fyrir fyrr en komið er fram yfir mitt ár og skorar á stofnunina að breyta þeim á þann veg að afstaða til umsókna liggi fyrir i tíma og ekki síðar en um áramót. ■ Húsnæöisncfnd hcfur sam- þykkt að hafist verði handa um að gera könnun á þörf fyrir félagslegar íbúðir á Sauðár- króki og verði henni lokið eigi síðar en 15. sept. n.k. Aðalfundur Stéttarsambands bænda: Hafiiar algjörlega drögum að sammngum um EES - langt frá því að íslenskur landbúnaður sitji við sama borð og í nágrannalöndunum ss Edduhótelið Húnavöflum: Eldri borgarar blanda geði

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.