Dagur


Dagur - 29.10.1991, Qupperneq 5

Dagur - 29.10.1991, Qupperneq 5
Þriðjudagur 29. október 1991 - DAGUR - 5 Ranghermi blaðamanns leiðrétt HUGA Stefón Sæmundsson _ Kostnaðar- meðvitundaríeysi á lyfjum hefur stórhækkað. sins m _ Jrð a lyfjum hefur stórhækkað, eins oq lfFhm ætt'..fö vera kunnugt. Heilbrigð l?he-r\rokstuddl Þessa aðgerð m a T Pv! a° hun myndi efla kostnaðarvit- VnJa iæknum og sjúklingum. Þeir 1“ nu gera sér grein fyrir þvi hvað ■aunverulega kostuðu og draaa bá lanotkun eða snúa sér Ið lyffum á Skaupal.sta, Þessi röksemd um aðarvitundina virðist nú ætla að a anga sína vítt og breitt um þjóð- Bið með ognvekjandi afleiðingum fyr- fcimilin i landinu. ímnnÖfUm á?Ur heyrt áform stjórnar- franna um skolagjöld, innritunargjald Lúkrahus, vexti á námslán og fleira í ■a dur. Almenningur á sum sé að Iser grein fyrir þvi hvað hlutirnir lfrAme/?n haff ekkl efni á þjónust- ferða þeir að sleppa henni. Hin B ameriska hugsjón um frelsi ein- Jigsins til allra hluta, þ.e fiárhaos Jrelsi efnafólks. skal nú höndluð , ■ninu noröur á hjara veraldar Fri^kifíf mri- Sem tengíst kos'naðar- f d,S kfa,t.fölnu er kvöð á flugfélögin hféiaf M fmfnn ' öllu farÞe9aflugi. £ð ND0röurlands hefur til þessa fcð litlar Piper vélar með einum flug- V'aætlunarflugi milli Akureyrar oa rn s,aöa a Norðurlandi. Eftir áramót % tveir flugmenn að vera í vélunum fcrða ryrar rútur þá enn rýrari fyrir Neiria fargjöldin ver^jhækk- bent ráöamönnum á afleiðingarnar ff j um yerði fækkað til smærri staðá " flug lagt af nema leiðirnar verði styiÉ liM og gert er með flóabáta. Onnuri er hækkun fargjalda en framkværf stjonnn bendir á að það só ekki hæcl ætlast til þess að farþegi í vél á'l Akureyrar og Kópaskers þurfi að bol meira en farþegi sem fer meö Fluqk* urn milli Akureyrar og Reykjavíkur Þaö er þetta með kostnaðarvitur, Ibuar a Kópaskeri, Raufarhöfj Þorshofn, svo nokkrir staðir séu n,k virðast eiga að gera sér grein fyrir ll það er ohagkvæmt að fljúga til þe;l staða og þess vegna verði þeir að tl hærra fargjald en ella. Þeir sem hafal a þjonustiinni geta þá notað hana, I ekki. Ef flugfélögin eiga að verölel leiðir i samræmi við kostnaö viö flj gætu skrýtnar tölur fariö að birtast Stjornvöld geta haldið áfram á þ braut. Það mætti setja sérstaka, ' t.d. a Isfirðinga og Siglfirðinge þess hvað þaö er dýrt að annr > mokstur á þessum stöðum " verða aö gera sér grein fyrir um. Þaö má halda áfram og tí munandi kostnaö við raflýs veitu, póstflutninga, sjónj útvarpsútsendingar o.s frv ' hverjum stað veröa að átti hvað hlutirnir kosta og greið j1 við það. Nei, þetta kostriað 1 arleysi stjójjua^^á. ekki f / Greinin sem Sigbjörn Gunnarsson gerir að umtaisefni. Athugasemdir blaðamanns Ég varð dálítið hissa og vonsvik- inn við lestur greinar eftir Stefán Sæmundsson, sem bar titilinn - Kostnaðarmeðvitundarleysi - og birtist í Degi þann 19. október sl. Ég varð hissa vegna þess, að skrifin komu úr penna blaða- manns, sem á að hafa góðan aðgang að upplýsingum og á að fara með það sem sannast reyn- ist. Grein Stefáns er hins vegar í þeim anda sem við tíðast heyrum í - Þjóðarsálinni -, upphrópanir, sem hver étur eftir öðrum. Grein Stefáns hefst á þessum orðum: „Verð á lyfjum hefur stórhækkað eins og flestum ætti að vera kunnugt." Þessi fullyrð- ing blaðamannsins er fjarri raun- veruleikanum. Ef hins vegar L hefði komið í stað H og stór- hækkað orðið stórlækkað, þá hefði fullyrðingin verið rétt. Sannleikurinn er sá að lyfjakostn- aður landsmanna hefur stórlega lækkað. Kemur þar nokkuð til. Ber þar fyrst að nefna að veru- lega hefur dregið úr lyfjaneyslu. í öðru lagi hafa sjúklingar og lækn- ar leitast við að velja ódýrari lyf en áður. Með öðrum orðum, kostnaðarvitund hefur aukist. í dag gera allir sér grein fyrir að lyfin þarf að greiða. Aður en breytingin var gerð á þátttöku notenda í lyfjakostnaði, hugsaði eflaust hver fyrir sig, að kostnað- urinn skipti ekki máli, þar sem ríkið greiddi. Það vill oft gleym- ast að ríkið, það erum við, þegn- ar þessa lands. Nú þykist ég vita að Stefán hafi átt við að hlutdeild hvers ein- staklings f lyfjakostnaði hafi stór- hækkað. Sé svo, hefði Stefán átt að vera nákvæmari í orðavali. Svo má auðvitað endalaust deila um hvort meðaltalshækkunin, kr. 190, er stórhækkun eða ekki. Þessi umtalaða lyfjareglugerð var sett með það að markmiði að ná fram heildarsparnaði í lyfja- kostnaði landsmanna. Að þeir okkar, þar með ég og vonandi Stefán Sæmundsson, sem stöku sinnum þurfum á lyfjum að halda og höfum þolanlegar tekjur, greiðum fyrir lyfin. Að við höld- um jafnframt vöku okkar í því skyni að læknar og lyfjafræðingar velji hagkvæmt fyrir okkur í læknisfræðilegu og fjárhagslegu tilliti. Þeir sem aftur á móti eru haldnir langvarandi sjúkleika og þurfa stöðugrar lyfjagjafar með njóti þess með lyfjakortum að hinir betur settu (ég og Stefán) „Þér veitist innsýn“ - lífsspekibók frá Hörpuútgáfunni Hörpuútgáfan hefur sent frá sér 3. útgáfu lífsspekibókarinnar „Þér veitist innsýn“. Einn Iesandi hennar gaf henni nafnið „Nátt- borðsbókin“ - lykill að lausn vandamála rninna. í formála þýðanda segir m.a.: „Trú mín er að þessi gagnmerka bók eigi eftir að verða mörgum til blessunar og leiðsagnar í andlegri leit þeirra, og færa birtu inn í líf margra, sem hugsanlega hafa ekki getað fundið haldfestu á hál- unt leiðum þessa heims. Hér er að finna speki sem hver maður á að geta fært sér í nyt í flestum vandamálum lífsins. Segja má að hagnýti kenninganna sé slíkt að sérhver geti fundið lykil að sínum vandamálum.“ Þér veitist innsýn er 153 bls. að stærð, Sveinn Ólafsson íslenskaði en hönnun og útlit annaðist Haf- steinn Guðmundsson. Sigbjörn Gunnarsson. greiðum fyrir þá með sköttum okkar. Þetta er einmitt jafnaðar- mennska. Hitt er kommúnismi, að allir fái allt á kostnað þegn- anna, með þeim skelfilegu afleið- ingum, sem við sjáum alls staðar blasa við í A.-Evrópu. Af flugmálum Síðari hluta greinar sinnar ver Stefán undir vanda smærri flug- félaga og íbúa þeirra staða sem eiga á hættu að flugsamgöngur leggist af í kjölfar reglugerðar, sem gerir kröfu um tvo flugmenn þar sem einn dugði áður. Það er rétt hjá Stefáni að þessi breyting getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þá sem að framan greinir. Það er hins vegar alrangt, sem Stefán gefur í skyn, að þessi reglugerð sé runnin undan rifjum þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr. Staðreyndin er sú, að þessi reglu- gerð var sett af Steingrími J. Sig- fússyni, þáverandi samgönguráð- herra, og kom á engan hátt til kasta Alþingis. Steingrímur J. Sigfússon lét undan þrýstingi frá Félagi íslenskra atvinnuflug- manna (FÍA), þegar þessum regl- um var breytt. Talsmenn FIA lögðu áherslu á að öryggi farþega væri í húfi. Þau rök eru auðvitað sterk. Raunar eru þetta svipuð rök, sem læknar nefna gjarnan þegar talað er um sparnað í heil- brigðiskerfinu. Þá er sagt: „Fólk deyr á biðlistum.“ Vissulega get ég skilið að Steingrímur J. Sigfússon hafi fall- ið fyrir öryggistali flugmanna. Það skyldi þó ekki vera að örygg- istalið hafi verið notað sem skálka- skjól til að afla fleiri starfa fyrir flugmenn? Reyndin gæti hins vegar orðið sú að þessi reglugerð hitti flugmenn illa fyrir, þannig að flug leggist af til ýmissa smærri staða hér á landi. Þannig getur þessi reglugerð orðið „boomer- ang“, en ekki atvinnuauki eins og ætlunin var að mínu mati. Mér er fullkomlega ljóst að FÍA mun mótmæla þessum orðum mínum, og segja öryggið aðalatriðið. Þannig fara menn nú oft í kring- um heita grautinn. Ég tel nauðsynlegt að gera breytingar á þessari reglugerð, þannig að flugsamgöngur séu áfram tryggðar við hina smærri staði. Dagur á Akureyri er á sinn hátt mitt blað. Undanfarin ár hefur Dagur skrifað í þá veru að það sé lítt tengt Framsóknar- flokknum. Auðvitað hefi ég oft efast. Ég fæst ekki um leiðara blaðsins, sem eru mér þó oft á móti skapi. Ég hvet ritstjóra Dags, sem segir blaðið opið og óháð, að skapa blaðamönnum gott aðgengi að upplýsingum, þannig að hið sanna fái litið dags- ljósið. Sigbjörn Gunnarsson. Höfundur er alþingismaður fyrir Alþýðuflokk- inn á Norðurlandi eystra. Ég skellti í góm, missti andlitið og snýtti rauðu við lestur greinar eftir Sigbjörn Gunnarsson, sem bar titilinn „Ranghermi blaða- manns leiðrétt". Ég missti andlit- ið vegna þess að skrifin komu úr penna alþingismanns sem á að hafa góðan aðgang að upplýsing- um og á að fara með það sein sannara reynist. Sigbjörn hringdi í mig sama dag og grein mín um kostnað- armeðvitundarleysið birtist og sagði það rangt að verð á Iyfjum hefði stórhækkað. Það hefði þvert á móti lækkað. Ég gerði mér strax grein fyrir því hvað hann var að fara enda hafði ég gleymt að setja „til almennings" inn í fullyrðingu mína um að lyfjaverð hefði hækkað. Sjálfsagt var ég ónákvæmur í orðavali og viðurkenndi það fyrir téðum alþingismanni Alþýðuflokksins. Flestir virðast þó átta sig á því að þegar neytendur segja að verð á lyfjum hafi hækkað þá meina þeir það verð sem þeir þurfa að greiða fyrir Iyfin, ekki innkaupsverð. Ég ætla ekki að þræta fyrir það að meðaltalshækkunin til neyt- enda sé 190 kr. eins og Sigbjörn Gunnarsson, formaður heilbrigð- isnefndar, segir. Hann ætti að vita þetta. Og auðvitað er já- kvætt ef óþarfa lyfjaát leggst af og læknar skrifi upp á ódýrari lyf en ella. Það er hagur okkar allra. Ef til vill er heldur ekkert mark takandi á öldruðum lyfjanotend- um og barnafólki sem kveinkar sér í Þjóðarsálinni og á götum úti yfir stórhækkuðu verði lyfja. Meðaltalshækkunin er jú aðeins 190 krónur. Yfir hverju er fólk þá að kvarta? Þetta er allt saman gott og blessað en verra þykir mér að sjá eftirfarandi setningu úr penna þingmannsins: „Að þeir okkar, þar með ég og vonandi Stefán Sæmundsson, sem stöku sinnum þurfunt á lyfjunt að halda og höf- um þolanlegar tekjur, greiðum fyrir lyfin.“ Hvað áttu við, Sig- björn minn góður? Að ég þurfi vonandi stöku sinnum á lyfjunt að halda eða hafi vonandi góðar tekjur? Ég vil biðja þig að vera ekki að nefna tekjur mínar í sömu andrá og þínar enda hyl- djúp gjá þar á milli. Hvað flugmálin varðar þá var það hugmyndafræðileg samteng- ing hjá mér, en ekki árás á núver- andi ríkisstjórn, að tengja kvöð um tvo flugmenn í öllu farþega- flugi við kostnaðarvitundarum- ræðuna. Ég þakka þér fyrir að benda mér og lesendum á að þarna hafi atvinnuflugmenn ginnt Steingrím J. Sigfússon til að breyta reglunum. Þú færð von- andi einhver viðbrögð við þeim fullyrðingum. Að lokum: Niðurlag greinar þinnar er út í hött, Sigbjörn. Pist- ill minn, sem þú vitnar í, er ekki fréttaskýring blaðamanns heldur hugleiðingar þjóðfélagsþegns. Blaðið er vissulega öllum opið og mér er eins og öðrum frjálst að viðra skoðanir mínar. Við fréttir og fréttaskýringar högum við okkur auðvitað á annan hátt og þá hefði ég aldrei farið að skrifa um lyfjaverð án þess að hafa töl- ur og staðreyndir á borðinu. í rauninni vildi ég aðeins leið- rétta þennan misskilning hjá þér, Sigbjörn minn góður, en ég á stundum erfitt með að hemja pennann. Ef þú ætlar að gera athugasemdir við „ranghermi“ allra þeirra sent viðra skoðanir sínar í fjölmiðlum, í lesendadálk- um, viðtölum, pistlum og kjall- aragreinum, þá verður nóg að gera hjá þér á næstunni. Stefán Sæmundsson. TílböÐ Glassúrterta... ... 229,- Skúffukaka. 212,- Tilboðið stendur frá 1. nóv.-5. nóv. KEA 1 I BRAUÐGERÐ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.