Dagur - 29.10.1991, Page 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 29. október 1991
ÍÞRÓTTIR________________________________________
Leeds Utd. á toppnum eftir 17 ára bið
- Man. Utd. tapaði fyrsta leik sínum og efsta sætinu - Arsenal á sigurbraut
John Sheridan, í rðndóttum búningi, sést hér kljást við Kingsley Black hjá Nott. For. í leik liðanna um daginn. Um
helgina lék Sheridan stórt hlutverk hjá Sheff. Wed. gegn Man. Utd.
Það var mikið fjör í leikjum
laugardagsins í Englandi og að
þeim loknum hafði nýtt lið
komist á topp 1. deildar. í vik-
unni höfðu stórliðin Arsenal,
Man. Utd., Tottenham og Liv-
erpool leikið fyrri leik sinn í 2.
umferð Evrópukeppninnar með
misjöfnum árangri. Ellaust
hafa leikirnir setið í þessum
liðum, en hvað um það, lítum
á leiki iaugardagsins.
■ Man. Utd. tapaði sínum fyrsta
leik í deildinni að þessu sinni er
liðið beið lægri hlut fyrir Sheff.
Wed. sem sl. vor sigraði Utd. á
Wembley í úrslitum deildabikars-
ins. David Hirst sem átti stórleik
fyrir Sheffield kom Iiðinu yfir
með góðu skallamarki eftir send-
ingu Nigel Worthington, en Utd.
liðið sneri síðan leiknum sér í hag
og komst yfir með tveim mörkum
fyrir hlé. Brian McClair skoraði
bæði mörkin, fyrst er hann komst
inn í sendingu Paul Warhurst ætl-
aða markverði og síðan eftir að
vörn Sheff. Wed. hafði mistekist
að bægja frá sendingu Neil
Webb. I síðari hálfleiknum náði
heimaliðið smám saman undir-
tökunum og Nigel Jemson sem
liðið keypti frá Forest kom inn á
sem varamaður og tryggði sigur-
Lee Chapman, hinn harðskeytti miðherji Leeds Utd., þjarmaði svo
að Brian Kilchine, miðverði í Old-
liarn að hann sendi boltann í cigið
mark og kom Leeds í efsta deildarinnar. sæti
Urslit
1. deild
Arsenal-Nolls Counly 2:0
Aston Villa-Wimbledon 2:1
Crvstal Palace-Chclsea 0:0
Leeds Utd.-Oldham 1:0
Liverpool-Covenlry 1:0
Manchesler City-Sheffield Uld. 3:2
Nonvich-Luton 1:0
Nottingham For.-Southampton 1:3
Q.P.R.-Everton 3:1
Sheffield Wed.-Manchester Utd. 3:2
West Ham-Tottenham 2:1
2. deild
Blackburn-Grimsby 2:1
Brighton-Swindon 0:2
Bristol City-Newcastle 1:1
Cambridge-Barnsley 2:1
Middlesbrough-Port Vale 1:0
MiIIwall-Derby 1:2
Oxford-Leicester 1:2
Plymouth-Watford 0:1
Portsmouth-Ipswich 1:1
Southend-Charlton 1:1
Sunderland-Bristol Rovers 1:1
Wolves-Tranmere 1:1
Úrslit í vikunni
Evrópukeppnin 2. umferð
fyrri leikir. Benfica-Arsenal 1:1
Tottenham-F. C. Porto 3:1
Atletico Madrid-Manchester Utd. 3:0
Auxerre-Liverpool 2:0
2. deild
Oxford-Charlton 1:2
inn með tveim mörkum, fyrst er
hann vippaði yfir Peter Schmei-
chel í marki Utd. og síðan með
skalla eftir hornspyrnu Phil King.
Mikill baráttuleikur og vel leik-
inn af báðum liðum, en þreyta
eftir Evrópuleikinn kostaði Utd.
sennilega sigur.
■ Howard Wilkinson stjóri
Leeds Utd. gerir lítið úr mögu-
leikum liðsins á meistaratitli og
miðað við leik liðsins gegn Old-
ham hefur hann sennilega rétt
fyrir sér. Petta var líklega slakasti
leikur Leeds Utd. í haust þrátt
fyrir sigur og þá staðreynd að lið-
ið komst í efsta sæti 1. deildar í
fyrsta sinn í 17 ár. En sigurinn
skipti hina kröfuhörðu aðdáend-
ur liðsins öllu þrátt fyrir að Old-
ham léki betur nær allan leikinn.
Sjálfsmark Brian Kilcline á 48.
mín. réð úrslitum í ieiknum, en
aðþrengdur af Lee Chapman
sendi hann boltann í eigið mark.
Leeds Utd. þétti vörn sína eftir
markið og tókst að verjast öllum
sóknum Oldham. Neil McDon-
ald átti skot naumlega framhjá og
John Lukic í marki Leeds Utd.
varði vel frá Mike Milligan auk
þess sem Kilcline átti skalla í
stöng áður en hann sendi boltann
í rangt mark og tryggði Leeds
Utd. sem varla fékk færi í leikn-
um hinn mikilvæga sigur.
■ Lið Man. City er skemmtileg
blanda af ungum og eldri leik-
mönnum og þessi blanda er nú í
þriðja sæti 1. deildar eftir 3:2
heimasigur gegn Sheffield Utd.
City náði forystu í leiknum með
marki Mike Sheron sem stakk sér
í gegn og skoraði framhjá Phil
Kite í marki Sheffield eftir send-
ingu Peter Reid sem splundraði
vörn Sheffield liðsins. Baráttu-
jaxlinn og fyrirliðinn Brian Gayle
náði síðan að jafna fyrir Sheff.
Utd. með skalla eftir hornspyrnu
John Gannon. Frábær sókn
þeirra Sheron, Mike Hughes og
Adrian Heath endaði síðan með
því að Niall Quinn kom City yfir
að nýju, en skömmu síðar endur-
tók Gayle leikinn og jafnaði fyrir
Sheff. Utd. með skalla eftir aðra
hornspyrnu Gannon. Það var síð-
an Hughes sem skoraði sigur-
mark City eftir að Kite hafði hálf-
varið skot Quinn, en bæði lið
fengu tækifæri eftir það sem fóru
forgörðum og sigur City fremur
sanngjarn.
■ Það var markalaust í leik
Arsenal og Notts County er 20
mín. voru til leiksloka og allt
hafði gengið meisturunum í
óhag. Arsenal hafði yfirburði í
leiknum, en vörn County var
sterk og markvörður þeirra Steve
Cherry í banastuði, þrívegis í
fyrri hálfleik varði hann frábær-
lega vel frá Ian Wright sem einn-
ig átti skot í stöng. Colin Pates
miðvörður Arsenal átti skot í
þverslá af löngu færi og mark var
dæmt af Alan Smith. í síðari hálf-
leik skaut Nigel Winterburn tví-
vegis naumlega framhjá marki
County áður en liðinu tókst loks
að skora. Alan Smith skoraði eft-
ir sendingu frá Anders Limpar
sem hafði komið inn á sem vara-
maður. Við markið slaknaði á
spennu Arsenal manna og
Wright bætti öðru marki liðsins
við, hans sjöunda mark í sex
leikjum síðan hann var keyptur
frá Crystal Palace og Arsenal læt-
ur örugglega ekki titilinn átaka-
laust frá sér fara.
■ Southampton sem leikið hefur
illa til þessa í haust náði góðum
leik á útivelli gegn Nottingham
For. og sigraði af öryggi 3:1. Carl
Tiler miðvörður Forest var rek-
inn útaf rétt fyrir hlé eftir brot á
Alan Shearer sem var kominn
einn í gegn. En Southampton var
betra liðið allan leikinn og
Matthew Le Tissier náði forystu
fyrir liðið með glæsilegu marki á
30. mín. og hann lagði síðan upp
þriðja mark Southampton með
glæsilegri sendingu á Shearer sem
afgreiddi boltann í netið hjá
Forest. Þess á milli skoraði Le
Tissier úr vítaspyrnu fyrir Sout-
hampton. Eina mark Forest skor-
aði Kingsley Black með þrumu-
skoti frá vítateig undir lokin og
Forest liðið má illa vera án þeirra
Nigel Clough og Roy Keane sem
voru meiddir að þessu sinni.
■ Liverpool vann sinn fyrsta sig-
ur í 1. deild síðan í september er
liðið sigraði Coventry á Anfield
1:0. Leikurinn var jafn og tvísýnn
allan tímann, en sigurmark Liver-
pool skoraði Ray Houghton á 35.
mín. eftir sendingu frá Mark
Walters. Leikmenn Liverpool
fengu síðan upplögð færi til að
bæta við mörkum, en Steve
Ogrizovic markvörður Coventry
var sterkur í markinu og þeir Ian
Rush og Dean Saunders fóru illa
með færin.
■ Aston Villa hafði yfir 2:0 í
hálfleik gegn Wimbledon þar
sem þeir Ian Olney og Dwight
Yorke höfðu skorað fyrir liðið,
en ekki hefði verið ósanngjarnt
að munurinn hefði verið fjögur
mörk. Wimbledon liðið bætti
hins vegar í baráttuna í síðari
hálfleiknum og John Fashanu
minnkaði muninn fyrir liðið á 77.
mín. með marki af stuttu færi.
Neal Ardley misnotaði síðan tví-
vegis dauðafæri fyrir Iiðið þannig
að í lokin var Wimbledon heldur
óheppið að ná ekki stigi úr leikn-
um.
■ West Ham vann sanngjarnan
sigur gegn Tottenham 2:1, þrátt
fyrir að Gary Lineker næði for-
ystu fyrir Tottenham snemma í
leiknum. Mike Small náði að
jafna fyrir West Ham og sigur-
markið fyrir West Ham skoraði
síðan Mitchell Thomas fyrrum
leikmaður Tottenham sem var
seldur til West Ham í sumar.
Small og Frank McAvennie áttu
síðan báðir skot í stöng fyrir
West Ham og Erik Thorstvedt í
marki Tottenham varði tvívegis
vel frá Ian Bishop. Pað bætti
heldur ekki úr skák fyrir Totten-
ham að bakvörðurinn Pat Van
Den Hauwe var borinn meiddur
útaf og síðan var Gordon Durie
rekinn af leikvelli.
■ Norwich sigraði Luton með
eina marki leiksins sem Rob
Newman skoraði rétt fyrir hlé
með góðu skoti eftir undirbúning
Robert Fleck. Leikmenn Luton
fengu tvö góð færi á að skora, en
liðið getur þó þakkað markverði
sínum Alec Chamberlain fyrir að
tapið varð ekki stærra því þríveg-
is varði hann glæsilega frá leik-
mönnum Norwich í leiknum.
■ Við fengum að sjá í sjónvarp-
inu markalaust jafntefli Lundúna-
liðanna Crystal Palace og Chelsea.
Par var hart barist, en minna um
góða knattspyrnu. Palace liðið
saknar greinilega þeirra Ian
Wright sem seldur var til Arsenal
og John Salako sem er meiddur.
Marco Gabbiadini sem keyptur
var frá Sunderland fyllir enn ekki
skarð Wright, en hann var þó
óheppinn að skora ekki gegn
Chelsea, en markvörður Chelsea
Kevin Hitchcock varði með
fætinum skot hans þrátt fyrir að
vera á leiðinni í öfugt horn.
■ Heldur gengur rólega hjá
Everton þessa dagana og liðið
átti ekki svar við góðum leik
Q.P.R. á laugardaginn og tapaði
3:1. Dennis Bailey náði forystu
fyrir Q.P.R. strax í upphafi leiks
og þannig var staðan í hálfleik. í
síðari hálfleiknum tókst Tony
Cottee að skora fyrir Everton, en
það dugði skammt því Q.P.R.
skoraði tvö mörk í síðari hálf-
leiknum og var Simon Barker að
verki í bæði skiptin.
2. deild
■ Middlesbrough heldur forystu
í 2. deild eftir 1:0 heimasigur
gegn Port Vale þar sem Alan
Kernaghan skoraði sigurmarkið.
■ Simon Garner og Mark Atkins
skoruðu mörk Blackburn í sigrin-
um gegn Grimsby og Kenny
Dalglish fór því ánægður heim.
■ Duncan Shearer skoraði bæði
mörk Swindon í útisigrinum gegn
Brighton.
■ Birmingham er efst í 3. deild
með 28 stig, Brentford 27 og
W.B.A. 26 stig, en á botninum er
Torquay með 9 stig.
■ Efst í 4. deild eru Mansfield
og Barnet með 29 stig og Black-
pool með 24 stig, en botninn
vermir síðan Doncaster með 6
stig. Þ.L.A.
Staðan
1. deild
Lceds Utd. 14 8-5-1 25:12 29
Manchester Utd. 13 8-4-1 21: 7 28
Manchester City 14 8-1-5 19:17 25
Arsenal 13 7-3-3 29:18 24
Shcftield Wednesday 14 7-3-4 26:18 24
Aston Villa 14 6-3-5 20:15 21
Crystal Palace 13 6-3-4 22:24 21
Liverpool 12 5-5-2 14:10 20
Coventry 14 6-2-6 16:13 20
Chelsea 14 4-7-3 23:20 19
Norwich 14 4-7-316:17 19
Wimbledon 14 5-2-7 22:22 17
Tottenham 11 5-1-5 18:17 16
Nottingham For. 13 5-1-7 24:24 16
Everton 14 4-4-6 20:20 16
Oldham 13 4-3-6 19:20 15
West Ham 14 3-6-516:1915
QPR 14 3-6-5 14:20 15
Notts County 14 4-3-7 17:25 15
Southampton 14 3-4-7 13:22 10
Luton 14 2-4-8 8:30 10
Sheffield Utd. 14 2-3-9 20:31 9
2. deild
Middlesbrough 15 9-2-4 20:11 29
Cambridgc 13 9-1- 3 26:1628
Charlton 14 8-3- 3 21:14 27
Swindon 138-2- 3 30:16 26
lpswich 14 7-5- 2 23:19 26
Derby 14 74- 3 22:14 25
Leicester 13 7-1- 5 18:18 22
Blackburn 13 6-3- 4 18:14 21
Bristol City 15 5-5- 4 18:21 20
Wolvcs 13 54- 418:17 19
Southcnd 13 5-4- 4 15:14 19
Portsmouth 13 54- 4 13:13 19
Grimsby 13 4-2- 7 19:22 17
Port Vale 15 4-5- 6 15:18 17
Tranmere 13 3-7-318:17 16
Sunderiand 14 4-4- 6 25:26 16
Watford 135-1-715:16 16
Millwall 134-3- 6 21:21 15
Brighton 14 4-3- 7 19:25 15
Newcastlc 14 3-5- 6 22:27 14
Barnsley 15 4-2- 9 15:24 14
Bristol Rovers 13 2-4- 7 14:21 10
Oxford 14 3-1-10 19:27 10
Plymouth 13 2-3- 8 14:27 9