Dagur - 06.11.1991, Side 1

Dagur - 06.11.1991, Side 1
74. árgangur Akureyri, miðvikudagur 6. nóvember 1991 211. tölublað klæddur tum frá ^rnhardi lerrabudin | HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 ■ BOX 397 Aðgerðir í mjólkurframleiðslunni til að draga úr birgðasöfnun: Bændum verða greiddar 35 krónur á hvem lítra sem þeir framleiða ekki - hugmynd uppi um að mjólkursamlögin framleiði úr 2,7 milljónum lítra af mjólk á eigin ábyrgð Mjólkurframleiðendur hafa nú fengið í hendur tilboð Fram- kvæmdanefndar búvörusamn- inga um að þeir afsali sér hluta framleiðsluheimilda á yfir- standandi verðlagsári í því skyni að draga úr birgðum mjólkurvara sem vaxið hafa hraðbyri að undanförnu. Alls er áætlað að kaupa upp sem svarar 5 milljónum lítra og greiða bændum 35 kr. fyrir hvern lítra. Auk þessa er sú hugmynd nú komin upp að mjólkursamlögin taki við og framleiði úr 2,7 milljónum lítra af mjólk á eigin ábyrgð sem þýðir að þau yrðu að koma afurðum úr þessari mjólk á erlenda markaði. Óskar Gunn- arsson, formaður Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði, staðfestir að óformlegt tilboð í þessa veru sé komið frá ríkis- valdinu en hann segir að í byrjun næsta mánaðar skýrist hvort af þessu verði. í bréfi sem Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur sent mjólk- urframleiðendum kemur fram að ástæður birgðasöfnunar mjólkur- vara á síðustu mánuðum eru fyrst og fremst þær að framleiðsla mjólkur hefur aukist, lítilsháttar samdráttur hefur orðið í sölu mjólkurvara innanlands og erfið- leikar varðandi sölu mjólkurvara á erlendum markaði hafa aukist. Eins og áður segir býðst mjólk- urframleiðendum að selja hvern Ferskar afurðir: Svínakjötið vinsælt „Ég vildi helst ekkert fá nema svínakjöt núna, því markaður- inn fyrir það virðist vera í jafn- vægi í dag. Þessi tími er líka góður í svínakjötssölunni, því allir eru að gera sig klára fyrir jó)aösina,“ segir Sigfús Jóns- son í Ferskum afurðum á Hvammstanga. Sauðfjárslátrun er lokið hjá Ferskum, en slátrað var um 6000 fjár og var allt kjöt sent sam- dægurs suður á markað. Að sögn Sigfúsar mun tíminn fram að ára- mótum því aðallega fara í nauta- og folaldaslátrun auk þess sem verið er að lóga svínum. „Eftirspurn eftir svínakjöti er mikil og allt sem maður nær að festa hönd á er fljótt að seljast. Svínabú hér í kring eru aftur á móti orðin frekar fá,“ segir Sigfús. Sigfús segir sölu á folalda- og hrossakjöti vera daufa á þessum tíma árs enda fólk með hugann við annað en hrossakjötsát. Hann segir þá kjöttegund því vera þá einu sem verði að frysta, en annað fari beint suður til kaupenda sem fersk afurð. SBG lítra af framleiðsluheimildum sínum fyrir 35 kr. en þessir samn- ingar eiga ekki að skerða fram- leiðsluheimildir næsta verðlags- árs, sem hefst 1. september næst- komandi. Geri bændur samninga fyrir 15. desember fá þeir greiðslu 10. janúar en samningar sem gerðir eru á tímabilinu 15. desember til 1. mars verða ekki greiddir fyrr en 1. apríl. Ljóst er að uppkaup á 5 millj- ónum lítra af framleiðsluheimild- um mjólkurframleiðenda nægja ekki til að ná niður birgðum og því er sú hugmynd nú komin upp að mjólkursamlögin taki 2,7 milljónir lítra til vinnslu á eigin ábyrgð. Óskar Gunnarsson segir að spurningin sé sú hvort samlög- in vilji gera þetta en í þessum mánuði muni verða reiknað út hvort fjárhagslega sé rétt af þeim lað vinna úr þessu magni til út- flutnings. „Þetta verður skoðað á næstu vikum og svar höfum við ekki fyrr en í byrjun desember. Þá þarf að vera skýrt hvað á að gera en eins og allir sjá eru afurða- stöðvarnar á fá á sig mikið kjafts- högg því þessar aðgerðir nú þýða færri mjólkurlítra til vinnslu og þar af leiðandi hærri vinnslu- kostnað á hvern lítra,“ segir Óskar. JÓH Fjármögnun Iðnþróunarfélags EyjaQarðar: Stendur í Akureyringiim Töluveröar umræöur spunnust í bæjarstjórn Akureyrar í gær um fjármögnun Iðnþróunar- félags Eyjafjarðar hf. í bókun bæjarráðs frá 24. október sl. er lagt til að Akureyrarbær leggi fram 480 kr. á íbúa til félagsins á þessu ári, í samræmi við sam- þykkt síðasta aðalfundar Iðn- þróunarfélagsins, og jafnframt kemur þar fram að meirihluti bæjarráðs telji eðlilegt að öll fjárframlög sveitarfélaga til Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar verði í formi hlutafjárfram- laga. í samþykkt aðalfundar Iðn- þróunarfélagsins 14. júlí sl. var lagt til að helmingur þeirrar upp- hæðar sem sveitarfélög, er aðild eigi að félaginu, leggi fram skoð- ist sem rekstrarframlag og helm- ingur hlutafjárframlag. Björn Jósef Arnviðarson (D) lagði til á bæjarstjórnarfundinum í gær að Akureyrarbær setti það sem skil- yrði fyrir framlagi bæjarins að það verði allt hlutafé. Skiptar skoðanir voru um til- löguna og lýsti Gísli Bragi Hjart- arson (A) einn sig fylgjandi svo róttækri hugmynd. Tillaga Björns var felld með 8 atkvæðum gegn atkvæðum þeirra Gísla Braga og málinu í heild var vísað aftur til bæjarráðs. óþh „O, ætli við fáum ekki ineiri snjó en þetta í vetur. En það er best að taka forskot á sæluna.“ Mynd: Golli FSA bráðvantar hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild: „Trulega er kaup ekki í samræmi við ábyrgð og á!ag“ - segir Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri bráðvantar hjúkrunar- fræðinga á gjörgæsludeild, en illa gengur með mannaráðn- ingar þrátt fyrir auglýsingar og fyrirspurnir um land allt. Að sögn framkvæmdastjóra Fjórðungssjúkrahússins, Inga Björnssonar, eru níu stöður hjúkrunarstarfsmanna leyfðar við gjörgæsludeildina, en á deild- inni vinna nú aðeins sex faglærðir starfsmenn. Deildin telur fimm gjörgæslurúm auk herbergis þar sem fólk bíður þess að vakna eft- ir minni háttar aðgerðir. Her- bergið gengur undir nafninu „vöknun“. Góð vinnuaðstaða er á deildinni og aðlögun nýrra hjúkrunarfræðinga fer fram með reyndum hjúkrunarfræðingum. „Við náum ekki að manna þær stöður hjúkrunarfræðinga er við höfum heimild fyrir. Þegar einn hjúkrunarfræðingur af gjörgæslu- deild fær barnsburðarleyfi og enginn kentur í hans stað skapast vandræðaástand sem eðlilegt er þar sem deildin er undirmönnuð. Starfið á gjörgæsludeild er afar sérhæft og krefjandi. Enginn gengur inn í slfkt starf án hald- góðrar starfsreynslu. Orsök þess að svo illa gengur að manna deildina er trúlega að kaup er ekki í samræmi við ábyrgð og álag starfsfólks, en við verðum að finna lausn á vandanum fljótt og vel,“ sagði Ingi Björnsson. ój „Hundamálið“ á Dalvík: Eiganda hundsins gert að greiða 150 þúsund krónur í skaðabætur - og 78 þúsund krónur í málskostnað auk vaxta Dómur er fallinn í bæjarþingi Dalvíkur í skaðabótamáli er Björn Víkingsson, lögreglu- varðstjóri á Dalvík, höfðaði gegn Gylfa Gunnarssyni á Akureyri. Málið var höfðað vegna líkamlegs og andlegs áverka er lögregluvarðstjórinn taldi sig hafa orðið fyrir er hann reyndi að handtaka hinn stefnda við Sæluhúsið á Dalvík. Um er að ræða „hundamálið“ svokallaða, þarsem stefndi sigaði hundi sínum á stefnanda fyrir utan Sæluhúsið á Dalvík í lok ágúsl 1990, með þeim afleiðing- um að hann hafi hlotið af því var- anlegan áverka, andlega sem lík- amlega, auk þcss sem fatnaður hans hafi eyðilagst. Stefnandi fór fram á kr. 15.000,- í fatatjón og kr. 485.000,- í ófjárhagslegt tjón. í dómi Freys Ófeigssonar, héraðs- dómara, er stefnda gert að greiða stefnanda kr. 150.000,- ásamt vöxtum og kr. 78.000.- í máls- kostnað ásamt dráttarvöxtum. Nánar er fjallað um dóminn á bls. 3. -ój Akureyri: við sundlaug Kona slasaðist í Glerársund- laug síðastliðinn mánudag og var flutt með sjúkrabif- reið á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Þær upplýsingar fengust á varðstofu slökkviliðsins á Akureyri að konan hefði handleggsbrotnað og hiotið aðra áverka. Tildrög slyssins voru þau að konan rann til í tröppum sem liggja að heitu pottunum á úti- svæði sundlaugarinnar og handleggsbrotnaði hún við fallið. Fór hún þá inn í sturtu- klefann en fékk aðsvif og hlaut áverka á andliti er hún datt á gólfið. SS

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.