Dagur - 06.11.1991, Side 2

Dagur - 06.11.1991, Side 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 6. nóvember 1991 Fréttir Ályktun íþrótta- og tómstundaráðs Akureyrar, vegna HM í handbolta 1995: Staðið verði við gefin loforð svo hægt sé að halda keppnina hér á landi - áhugi áað kanna með byggingu handboltahallar áAkureyri verði hún ekki byggð í Kópavogi Iþrótta- og tómstundaráð Akureyrar, ályktaði á fundi sínum á mánudag um heims- meistarakeppnina í handknatt- leik, þar sem m.a. skorað er á alla þá sem hlut eiga að máli, að standa við gefin loforð þannig að hægt verði að halda keppnina hér á landi árið 1995. í ályktun íþrótta- og tóm- stundaráðs segir orðrétt: „Á undanförnum árum hefur mikil vinna verið lögð í að fá heims- meistarakeppnina í handknatt- leik 1995 til íslands. Jafnframt hefur veruleg uppbygging átt sér stað í handknattleiksíþróttinni víðs vegar um landið. Slíkur stór- viðburður sem heimsmeistara- keppnin er, myndi verða landi og þjóð upplyfting á sviði ferðamála og ráðstefnuhalds og festa ísland endanlega í þá umræðu sem raunhæfan vettvang slíkra stór- viðburða. íþrótta- og tómstundaráð Akureyrar bendir á að mikil upp- bygging hefur átt sér stað á Akur- eyri, m.a. í þeim tilgangi að hægt verði að halda a.m.k einn riðil heimsmeistarakeppninnar á Akureyri. Það er því nauðsynlegt að standa þétt saman til að hægt verði að íjúka lokaáfanganum. Ef svo ólíklega færi að ekki yrði af byggingu handknattleikshall- arinnar í Kópavogi, er ráðinu kunnugt um mikinn vilja all- margra einstaklinga hér á Akur- eyri til að athuga hvort slík bygg- ing gæti orðið liður í stærri upp- byggingu íþrótta- og ferðamála hér á Akureyri. Iþrótta- og tómstundaráð Akureyrar skorar því á alla þá, sem hlut eiga að máli, að standa við gefin loforð þannig að hægt verði að halda heimsmeistara- keppnina í handknattleik 1995 á íslandi. Að hætta við þessa fram- kvæmd nú að miklu undirbún- ings- og kynningarstarfi loknu, myndi vafalaust skaða mjög ímynd íslands sem ráðstefnu- og ferðamannalands." -KK Landssamband smábátaeigenda: Fleiri störf skapast við smábáta- útgerð en frystitogaraútgerð í ályktun aðalfundar Lands- sambands smábátaeigenda, sem haldinn var um síðustu helgi, kemur fram að væri afla tveggja hæstu frystiskipanna í togaraflota landsmanna úthlut- að á smábáta sköpuðust í kringum það um 500 störf í Verkíærakynning á Holzher og Peugeot handverkfærum verður í verslun okkar á föstudag og laugardag Kynningarafsláttur s kapii illum 13 I Akuret hf Furuvöllum13 I Akureyri Sími 96-23830 stað 120. Smábátasjómenn benda því stjórnvöldum á að í vaxandi atvinnuleysi yrði það sterkur leikur hjá stjórnvöld- um að hvetja til aukinnar útgerðar smábáta. Smábátasjómenn lögðu á aðal- fundi sínum fram fleiri saman- burðadæmi varðandi smábátana og frystitogarana. „Skoðum stofnkostnað 136 smábáta annars vegar og tveggja frystiskipa hins vegar. Dýrustu krókaveiðibátar í nýsmíði á ís- landi í dag kosta um 7 milljónir. Stofnkostnaður þeirra yrði því um 952 milljónir króna. Erlend nýsmíði frystiskipanna myndi Iiggja nálægt 1.800 milljónum króna. Stofnkostnaður smábát- anna yrði því um helmingi minni en frystiskipanna. Dæmið er enn athyglisverðara sé skoðaður stofnkostnaður hvers ársverks. í frystiskipadæminu kostar árs- verkið 15 milljónir króna, en hjá smábátunum 1,9 milljónir króna," segir í ályktun smábáta- eigenda. JOH Kjördæmisþing framsóknarmanna: Vill þjóðaratkvæða- greiðslu um EES samninginn EES samningarnir eru ofarlega á baugi þessa dagana og fram- sóknarmenn sem héldu kjör- dæmisþing sitt á Raufarhöfn um helgina fjölluðu um þá í stjórnmálaályktun sinni á þessa leið: „Mikilvægasta málið í stjórn- málaumræðunni á næstu mánuð- um verður samningurinn um EES. Framsóknarmenn í NE benda á að samningurinn liggur ekki enn fyrir í endanlegri gerð, en af fréttum má ráða að á við- skiptasviðinu hafi náðst veruleg- ur árangur og fyrirvari um fjár- festingabann útlendinga í útgerð og fiskvinnslu sé tryggður. Vert er þó á hinn bóginn að benda á að veigamiklir fyrirvar- ar, sem fyrri ríkisstjórn setti, eru fallnir út og í staðinn er kominn einn allsherjar fyrirvari sem menn greinir mjög á um hversu mikið hald sé í. Þá verður að ganga rækilega úr skugga um hve mikil takmörkun sjálfsforræðis, bein eða óbein, sé í samningunum og tryggja að þjóöin verði upplýst um það og samningurinn síðan borinn undir þjóðaratkvæði áður en Alþingi tekur endanlega afstöðu til hans.“ IM Ávaxtahringur... 295,- Jólakaka...........260,- Tilboðið stendur frá 6. nóv.-15. nóv. BRAUÐGERÐ OALVIK Dalvík: Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráð hefur samþykkt eftirtaldar umsóknir um bú- fjárhald í Ytra-Holti: Hilmar Daníelsson, Hólavegi 15, 2 hross, Björn Gunnlaugsson, Drafnarbraut 2, 2 hross og Einar Hjörleifsson, Lynghól- um 14, 10 hross. ■ Friðbjörn Baldursson hefur verið ráðinn til starfa á Kríla- koti. ■ Ný gjaldskrá fyrir íþrótta- hús og sundlaug. Gjald fyrir klukkustund í íþróttahúsinu hækkar úr 1200 krónum í1350 krónur. Þá breytist verðskrá sundlaugar úr kr. 100 í kr. 110 fyrir fullorðna, en barnagjaid verður óbreytt kr. 50. ■ Daltré hf. hefur fengið út- hlutað lóðinni nr. 5 við Skógarhóla. ■ Olíufélagið hf. hefur fengið leyfi bygginganefndar til að grafa 1900 lítra olíugeymi fyrir steinolíu á lóð félagsins að Hafnarbraut 24. ■ Á fundi félagsmálaráðs nýverið var samþykkt tillaga Steinunnar Hjartardóttur. fé- lagsmálastjóra, um starfshætti og vefksvið leikskólanefndar. í nefndinni skulu sitja 3 full- trúar, starfsmaður félagsmála- ráðs auk tveggja félagsmála- ráösmanna. Fulltrúi starfs- manna og fulltrúi foreldrafé- lagsins eiga seturétt á fundum með málfrelsi og tillögurétt þegar þeir óska eftir því eða nefndin ákveður þaö. Nefndin hittist á 4 til 6 vikna fresti, eða þegar ástæða þykir. Nefndin stendur fyrir könnun meðal íbúa sveitarfélagsins á heildar- þörf fyrir leikskóla, skóla- gæslu, gæsluvelli og gæslu í heimahúsi, sbr. lög um leik- skóla. Nefndin gerir tillögu að ráðningu starfsfólks fyrir leik- skólann og semur erindisbréf fyrir þá. Nefndin leysir úr ágreiningsefnum sem upp kunna að koma milli leikskól- ans og forráðamanna barna í leikskólanum, t.d. varðandi biðlista/inntöku. í samvinnu við leikskólastjóra sér nefndin um að fylgt verði eftir ákvörð- unum varðandi viðhald og framkvæmdir við leikskólann. ■ Á fundi húsnæðisnefndar nýverið kom fram að fimm aðilar hafa boðið eldri íbúðir tii sölu. Þetta eru Lárus Gunn- laugsson, Hjarðarslóð 2d, Margrét Ásgeirsdóttir, Stór- hólsvegi 4, Sigvaldi Gunn- laugsson, Mímisvegur 4 (e.h.), Gunnlaugur Kárason, Hjarðarslóð 2c og Torfi Sig- urðsson, Hjarðarslóð 4b. Húsnæöisnefnd lýsir yfir vilja sínum til að kaupa eldri íbúðir til endursölu samkvæmt félagslega kerfinu. Jafnframt er bent á að reglur Húsnæðis- stofnunar um þetta séu Dal- vík óhagstæðar þar sem þær heimila ekki kaup á einbýlis- húsum eða húsnæði sem er eldra en 15 ára.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.