Dagur - 06.11.1991, Blaðsíða 4

Dagur - 06.11.1991, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 6. nóvember 1991 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SfMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 100 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Að vinna að heill sinna heimahaga Atvinnuleysi hefur aukist verulega á Akureyri á síðustu dögum. Fyrir um mánuði síðan voru 127 skráðir atvinnu- lausir hjá Vinnumiðlunarskrifstofunni í bænum. Nú í byrjun nóvembermánaðar var tala atvinnulausra komin upp í 174 og eru karlar án vinnu heldur fleiri en konur. Miklar líkur eru á að atvinnuleysi eigi eftir að aukast á Akureyri það sem eftir er ársins og ef fer fram sem horfir er alveg óvíst að úr þessu ástandi rætist það sem eftir er vetrar. Fyrirtæki í bæn- um eru að segja upp fólki með fyrirvara og hæst ber þar erf- iða verkefnastöðu skipaiðnaðarins og uppsagnir hjá Slipp- stöðinni og Vör hf. Hákon Hákonarson, formaður Félags málmiðnaðarmanna á Akureyri, sagði í samtali við Dag nýverið að mjög þung- lega horfi fyrir málmiðnaðarmenn á þessu svæði ef upp- sagnirnar hjá Slippstöðinni komi til framkvæmda. Hann kvaðst halda fast í þá von að unnt verði að endurráða þá menn, sem nú hafa fengið uppsagnarbréf því staða annarra fyrirtækja á Eyjafjarðarsvæðinu sé með þeim hætti að þau geti ekki tekið við þessum mönnum. Hákon sagði ennfrem- ur að verði tekin ákvörðun um að skera Slippstöðina niður úr stórfyrirtæki í meðalstórt fyrirtæki þá hafi slík aðgerð víð- tækar afleiðingar sem virkað geti mjög neikvætt fyrir málm- iðnaðarmenn á Akureyri og einnig á bæjarfélagið sem heild. Þótt þunglega horfi nú með atvinnu fyrir skipasmiði og aðra málmiðnaðarmenn á Akureyri er langt frá því að vandi þeirra sé einsdæmi. Mikill samdráttur hefur orðið í bygging- ariðnaðinum á undanförnum árum og aðeins veik von að úr honum rætist á næstunni. Byggingariðnaðurinn er samof- inn öðrum atvinnugreinum og þegar almennur samdráttur verður í atvinnulífi á tilteknum stað hættir íbúum að fjölga og færri kalla eftir nýju húsnæði. Gildir þar einu um hvort fólk eða atvinnufyrirtæki eiga í hlut. Þótt tekist hafi að reisa nýjan rekstur á rústum Álafoss hf. á Akureyri og ástæða sé til að binda ákveðnar vonir við þá starfsemi í framtíðinni leysir hún ekki nema hluta af þeim atvinnuvanda er erfiðleikar ullaiðnaðarins höfðu skapað. Tímarnir eru breyttir og hið nýja fyrirtæki nær ekki að veita vinnu þeim fjölda fólks er starfaði á við ullarvinnslu og fata- framleiðslu á Gleráreyrum þegar best lét á árum áður. Samdráttur í landbúnaði hefur einnig tekið sinn toll af eyfirsku atvinnulífi. Færri hendur þarf til að vinna úr þeim framleiðsluafurðum sem nú berast til úrvinnslufyrirtækj- anna og þjónustustarfsemin við sveitabyggðirnar hefur minnkað að undanförnu. Eins og sakir standa virðist sjávarútvegurinn vera í mestu jafnvægi allra atvinnugreina á Eyjafjarðarsvæðinu. Nokkur traust og vel rekin sjávarútvegsfyrirtæki eru starf- andi við fjörðinn er draga björg í bú og veita fólki atvinnu- tækifæri. En vaxtarmöguleikar útvegs og fiskvinnslu eru því miður litlir. Takmarkanir á sókn í sjávarafla halda lífskjörum þjóðarinnar niðri um þessar mundir og óvíst er hvort fiski- stofnamir við landið ná að skapa auknar afurðir á næstunni. Þótt áfram verði unnið að málefnum orkufreks iðnaðar með Eyjafjarðarsvæðið í huga mun einhver tími líða áður en sú vinna nær að skila raunverulegum árangri í atvinnulegu til- liti. Ef Eyjafjarðarsvæðið og raunar Norðurland allt á að standast hinar erfiðu horfur í atvinnumálum má ekki láta neitt tækifæri til atvinnusköpunar framhjá fara. Menn verða að taka höndum saman og vinna af heilindum að heill sinna heimahaga. ÞI Einar Kristjánsson, veislustjóri, faðir hans Kristján Benediktsson og Jóhannes Sigurjónsson, ritstjóri Víkurblaðsins og ræðumaður kvöldsins, á góðri stundu. Herrakvöld Þórs: Um 140 Þórsarar og aðrir velumiarar félagsins skemmtu sér konunglega saman Þórsarar héldu sitt árlega herrakvöld í félagshcimili sínu Hamri sl. laugardag. Þar voru mættir um 140 Þórsarar og aðrir velunnarar félagsins og skemmtu sér konunglega saman. Herrakvöldið heppn- aðist með miklum ágætum enda var dagskráin sem boðið var uppá ekki af lakara taginu. Aðalsteinn Sigurgeirsson, for- maður Þórs bauð gesti vel- komna og þakkaði þeim Antoni Benjamínssyni og Olafi Hilm- arssyni sérstaklega fyrir þeirra hlut en þeir báru hita og þunga af undirbúningi kvöldsins. Aðalsteinn gaf síðan veislu- stjóra kvöldsins, Einari Kristj- ánssyni orðið en Einar stjórn- aði samkomunni af röggsemi. Eftir að gestir höfðu gætt sér á kræsingum frá Kjarnafæði, sté Jóhannes Sigurjónsson, ritstjóri Víkurblaðsins á Húsavík, í pontu en hann var ræðumaður kvölds- ins. Jóhannes gerði m.a. að umtalsefni samskipti sín sem Völsungs við Þór og einstaka Þórsara og skaut hann bæði fast og hnitmiðað. Margt fleira bar á góma en miðað við viðbrögð gesta, var greinilegt á öllu að Jóhannes hitti í mark. Því næst tók Eyjólfur Kristjáns- son við og söng hann nokkur lög með aðstoð herrakvöldsgesta. Eins og Eyjólfs var von og vísa, tókst honum vel upp og fékk Eyjólfur Kristjánsson söng nokkur lög og fékk herrakvöldsgesti til þess að taka duglega undir. hann menn til að taka duglega undir. Jóhannes Kristjánsson eftir- herma sté á svið á eftir Eyjólfi og lét gamminn geysa góða stund. Hann bæði sagði brandara og hermdi eftir nokkrum sívinsælum stjórnmálamönnum, eins og Ólafi Ragnari, Steingrími Her- mannssyni, Halldóri Blöndal, Eyjólfi Konráð Jónssyni, Halldóri Ásgrímssyni og Davíð Oddssyni. Jóhannes á ótrúlega auðvelt með að herma eftir þessum köllum og tókst honum vel upp, ef marka má viðbrögð gesta. „Þórsarar ársins“ voru valdir á herrakvöldinu og urðu þeir bygg- inganefndarmenn, Hallgrímur Skaptason og Guðmundur Sigur- björnsson fyrir valinu að þessu sinni. Sértaklega þótti þeim hafa tekist vel upp, er þeir völdu gólf- dúk á skrifstofur aðalstjórnar og deilda félagsins og fengu þeir afhentan bút af þeim dúk í ramma til minja. Uppúr miðnætti fóru gestir að tínast úr Hamri, ýmist til síns heima eða á danshús bæjarins þar sem menn skemmtu sér fram eftir nóttu. -KK Haraldur Helgason, fyrrverandi formaður Þórs og Anton Benjamínsson, sem ásamt Olafi Hilmarssyni bar hita og þunga af undirbúningi herrakvölds- ins, fylgjast með gangi mála á sviðinu. Jóhannes Kristjánsson, eftirherma og brandarakarl, fór á kostum á herrakvöldinu og beitti m.a. fyrir sig röddum landsþekktra ráðherra og alþingismanna. Það var glatt á hjalla í Hamri sl. laugardag... ...og inargt af því sem þar var sagt og gert, kitlaði hlát- urtaugarnar. Mynd. kk

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.