Dagur - 06.11.1991, Side 5

Dagur - 06.11.1991, Side 5
Miðvikudagur 6. nóvember 1991 - DAGUR - 5 Sveinn Ólafsson: Fyrir atvik sem forsjónin ein kann skil á, lágu leiðir mínar óvænt í sumar á stað, sem ég hafði aldrei komið á áður, að Reykhólum við Breiðafjörð, þar sem rekið er að sumarlagi athygl- isvert og skemmtilegt heilsubót- arhótel af þeim ágætishjónum Þóri Barðdal, myndhöggvara og Sigrúnu Ó. Olsen, listmálara. Þar upplifði ég meðal annars, að hitta yfirlætislausan aldinn bónda, sem hafði í fórum sínum nokkur ein- tök af litlu kveri, sem Hörpuút- gáfan á Akranesi er nú á leið að gefa út eftir hann - og senda á markað. Það skal játað að í byrjun gerði ég mér litla grein fyrir innihaldi þessa kvers, þótt aðrir sem voru þarna staddir virtust fullir áhuga á þessari - þá fyrir mér óþekktu ritsmíð - en þó einkum og sér í lagi frú Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona, sem hafði þegar í byrj- un dvalar komist í snertingu við þetta kver. Og fyrstu dagana sem ég var þarna las hún upp í heyr- anda hljóði nokkur atriði, sem hún hafði hrifist af. Þetta voru stuttar setningar - en satt best að segja, náði þetta ekki nema tak- markað til mín þá. Og að sinni gaf ég því ekki frekari gaum, þótt ég yrði var við umsagnir og umtal, - ekki fyrri en sérstök atvik gerðu það að áhugi minn vaknaði, og ég ákvað að verða mér úti um eintak af kverinu. Tókst mér að ná í eitt af síðustu eintökunum, sem þarna voru tiltæk. Þegar heim kom fór ég að glugga í bókina, og því meira sem ég las, þess meiri undrun varð ég sleginn á víðfeðmi þeirra hugsana og spekimála, sem hinn lífsreyndi, yfirlætislausi bóndi hafði þarna sett fram, en þetta mun vera afrakstur hugleiðinga bóndans um langan æviveg - í einsemd og önnum búverkanna, og meðal búsmalans úti í hinni íslensku náttúru - einn með Guði sínum. Ég hefi kynnst mörgum speki- ritum úr ólíkum áttum og frá ýmsum tímum, en það sem þarna gat að líta snart mig sem einstakt og óvænt. Og þótt það opnist við lesturinn, þá leynir það vissulega á sér hverjar hugsanir og lífsleið- sögn er hér að hafa - þjappað saman í stuttar meitlaðar setning- ar. Sýnist mér að þetta bókarkorn, þótt það láti lítið yfir sér og sé ekki stórt í sniðunum, megi skoðast sem einstakt í sinni röð - margt einmitt hliðstætt við hina öldnu speki - og að því hljóti að teljast verulegur fengur fyrir alla. Á þetta að mínu mati bæði við um hina eldri sem og hina yngri, - og þó ekki síst fyrir hina síðar- nefndu, sem gjarnan eru að leita að kjarna lífsins, og oft vanhagar um leiðsögn um þá villugjörnu vegaslóða sem blasa við og liggja í all^s áttir - og erfitt er að henda reiður á, nema leiðsögn reynsl- unnar komi til. Þetta litla kver, sem ég hefi hér talað um nefnist því ágæta nafni: „Óðurinn til lífsins" sem telja má að sé vel við hæfi. Höfundur þess er Gunnþór Guðmundsson, sem nú býr á Hvammstanga, eftir að hafa sest í helgan stein að loknu ævistarfi sínu sem bóndi. Ég vil ekki láta hjá líða að benda ung- um og öldnum á að þetta frábæra litla kver, sem er eins og áður segir, gefið út af Hörpuútgáfunni á Akranesi, er nú að koma á bókamarkaðinn. - Ég get þó ekki látið hjá líða í þessu sambandi að benda á, að það eina sem mér finnst vanta í sambandi við útgáf- una er efnisyfirlit, til að gera það mögulegt að finna aftur ákveðin atriði, eftir að hafa lesið textann allan yfir - ef maður vildi síðar geta gengið að og notað ein- hverja spekikjarna sem þarna er alls staðar að finna, en eru ó- flokkaðir, þannig að saman blandast ólík og óskyld efni á ýmsum stöðum. - Ég vona því, að ef þessi ágæta ritsmíð myndi njóta þeirra vinsælda, eins og mér sýnist hún eiga skilið, að verða gefin út aftur, að þá verði bætt úr þessu. Ég get ekki lokið þessum orð- um án þess að nota tækifærið til að óska höfundinum til hamingju með þetta fallega framlag til feg- urra mannlífs og göfugri hugsun- ar - og það svo rækilega á eigin hönd. Slíkt verður að teljast tals- vert afrek séð frá sjónarhóli þeirra sem skoða þennan afrakst- ur frjórrar hugsunar úr fjarlægð. Að fá að kynnast þessu bókar- korni gefur fulla ástæðu til að vera forsjóninni þakklátur. Ogég er illa svikinn ef hún á ekki eftir að verða mörgum hinna yngri til hjálpar og stuðnings á lífsgöng- unni, eins og áður er bent á, auk þess sem hún ætti einnig að geta orðið til ánægju og veitt birtu inn í líf ýmissa hinna eldri, sem hugs- anlega finna þörf fyrir að víkka sjóndeildarhringinn og dýpka skilning sinn á lífinu, en einmitt þetta er að hafa í þesu kveri, í svo einfaldri og aðgengilegri mynd, að öllum ætti að vera auð- velt að meðtaka þann vísdóm sem þar er að finna. Sveinn Ólafsson. Höfundur er fyrrverandi verslunarmað- ur. Námskeið í sjálfsþekkingu verður haldið á Akureyri dagana 9.-10. nóvem- ber 1991. Kennt veröur meöal annars: ★ Hvernig þú hreinsar sjálfið af neikvæðni. ★ Hvernig þú hreinsar húsið þitt af neikvæðum hugarform- um. ★ Hreinsun orkustöðvanna. ★ Að þekkja eigið orkusvið og annarra. ★ Nauðsyn þess að við eflum eigið innsæi og hugmyndun- arhæfileika okkar. ★ Sjálfsheilun. ★ Tækni til að eyða eigin takmörkunum. ★ Hugleiðslur. ★ Hvernig við vinnum með Alheims Kærleik. Og margt fleira. Upplýsingar gefa Árný og Michael í síma 21312, milli kl. 19 og 21 á kvöldin. Barnaspítali Hringsins: Jólakort seld norðan heiða Kvenfélagið Hringurinn í Reykjavík hefur nú um árabil látið hanna jólakort fyrir sig til fjáröflunar. Allt okkar fé fer eingöngu til Barnaspítala Hringsins og eru náttúrlega ótæmandi verkefni þar. Helsta ósk okkar er að byggja alveg nýjan barnaspítala. Það er draumur, sem vonandi cin- hvern tíma rætist. Kortasala fyrir jólin virðist vera orðin ansi vinsæl af mörg- um félögum. Svo nú ætlum við að reyna nýjar leiðir, þ.e. að breikka sjóndeildarhringinn því auðvitað er Barnaspítalinn nýtt- ur af börnum utan af landi eins og á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Kortið er íslensk hönnun, teiknuð af ungri íslenskri konu, unnið af íslenskri prentsmiðju og ágóðinn fer til umönnunar og lækninga lítilla íslenskra barna. Þaðeru lOstk. í pakkan- um, 5 blá og 5 rauð og 10 um- slög, sem kostar 600 kr. Um- boðsaðiii okkar á Akureyri hef- ur síma 96-25632 Góð bók sem athygli á skilið „Óðurinn til lífsins...“ - eftir Gunnþór Guðmundsson, bónda, nú búsettan á Hvammstanga

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.