Dagur - 06.11.1991, Qupperneq 11
Miðvikudagur 6. nóvember 1991 - DAGUR - 11
ÍÞRÓTTIR
Jón Haukur Brynjólfsson
Knattspyrna:
Nói þjálfar og leikur
með Magna á Grenivík
Nói Björnsson hefur ákveðið
að þjálfa og leika með knatt-
spyrnuliði Magna frá Grenivík
næsta sumar. Nói hefur leikið í
15 ár í meistaraflokki Þórs og
er langleikjahæsti lcikmaður
félagsins frá upphafi. „Þetta er
auðvitað mikið stökk. Maður
hefur verið alla sína tíð í sama
félaginu og þekkir önnur ekki
nema af afspurn. Það hefur
líka tekið sinn tíma að taka
þessa ákvörðun og ég get ekki
neitað því að hún var erfið,“
sagði Nói.
Nói liefur leikið í 15 ár í meist-
araflokki Þórs. Hann hefur leikið
164 leiki í 1. deild en leikirnir fyr-
ir liðið eru alls um 350 talsins.
Hvers vegna valdi hann að hætta
núna?
„Það var nú aldrei meiningin. í
haust stóð aldrei annað til en að
halda áfram með Þór en síðan
„Það er auðvitað mikið áfall
fyrir Þórsliðið að missa Nóa.
Það er engin spurning,“ sagði
Sigurður Lárusson, þjálfari
Þórs.
„Nói er búinn að vera fyrirliði
til ntargra ára og hefur unnið
geysilega mikið starf fyrir félagið
og það er auðvitað alltaf slæmt að
missa menn eins og liann. Það er
hins vegar mjög eðlileg þróun hjá
honum að vilja reyna fyrir sér
sem þjálfari og það er ekkert
hægt að vera að nudda í manni
sem er búinn að skila slíku
breyttist ýmislegt hjá mér og
þetta varð niðurstaðan.“
Nói segir að eftirminnilegustu
stundirnar séu þegar liðið liafi
spilað best, t.d. 1985 þegar það
hafnaði í þriðja sæti í 1. deild og
komst í undanúrslit bikarkeppn-
innar. En um leið viðurkennir
hann að hafa orðið fyrir von-
brigðum. „Það ár áttum við raun-
verulega möguleika á að vinna
titla en klúðruðum því illa og
komumst á endanum ekki einu
sinni í Evrópukeppni. Það er í
sjálfu sér ekki merkilegur árang-
ur sem liðið hefur náð allan
þennan tíma. Við komumst þó
ansi nálægt því að komast í
alvöru úrslitaleik í sumar og
sennilega er undanúrslitaleikur-
inn gegn Val stærstu vonbrigðin á
ferlinum.“
Nói segir að það hafi lengi
blundað í sér að gerast þjálfari og
hlakkar til að takast á við það
starfi," sagði Sigurður.
Þórsarar hafa nú misst bæði
Nóa og Friðrik og heyrst hefur að
Þorsteinn Jónsson væri á förum.
Sigurður sagðist ekki kvíða
keppnistímabilinu þrátt fyrir
þetta. „Það er alltaf slæmt að
missa leikmenn en það þýðir
ekkert að væla yfir því. Þetta
er bara eins og gengur og gerist í
fótboltanum í dag. Við eigum
nóg af efnilegum strákum og ég
er bjartsýnn. Það er alveg ljóst að
við byrjum með 11 menn inná í
öllum leikjum næsta sumar,“
sagði Sigurður Lárusson.
verkefni. „Magnaliðið féll úr 3.
deildinni í sumar og ætti að eiga
góða möguleika á að endur-
heimta sætið þar. Ég þekki þessa
stráka ágætlega, hef spilað rnarg-
oft á móti þeim flestum, og líst
vel á liðið. Mér er sagt að þeir
ætli allir að halda áfram nema
kannski Stjáni [Kristján Kristjáns-
son] - það er stóra spurningin
með hann.“
En hvernig líst nýja Magna-
þjálfaranum á Nóalausa Þórsara í
1. deildinni?
„Mér líst vel á þá og held að
það sé ekki spurning að þeim á
eftir að vegna vel. Það kernur
maður í manns stað og sennilega
er þetta leiðinlegast fyrir áhorf-
endur sem fá ekki að njóta þess
að sjá limaburð minn á vellinum.
Svo er þetta auðvitað áfall fyrir
einstaka menn sem hafa fengið
að skamma mann úr fjarlægð öll
þessi ár,“ sagði Nói Björnsson.
Guðjón þjálfar og
leikur á Dalvík
Guðjón Guömundsson hef-
ur verið ráðinn þjálfari
knattspyrnuliðs Dalvíkinga.
Hann mun einnig ieika með
liðinu.
Guðjón kom til Dalvíkur
um síðustu helgi og gekk frá
sínum málum. Hann fór síðan
nteð liðinu til Akureyrar þar
sem það tók þátt í Coca-Cola
mótinu í innanhússknatt-
spyrnu.
Guðjón hefur þjálfaö og
leikiö með Haukum úr Hafn-
arfirði undanfarin ár. Hann er
31 árs gamall og hefur gífur-
lega reynslu sem leikmaður,
hefur m.a. leikið 88 leiki í 1.
dcild mcð Þór og FH.
„Áfall að missa Nóa“
- segir Sigurður Lárusson
Friðrik fer til Ejja
- Lárus Sigurðsson í Þór
Friðrik Friðriksson, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu og
leikmaður Þórs sl. tvö ár, hef-
ur ákveðið að leika með ÍBV
næsta sumar. I hans stað hafa
Þórsarar fengið Lárus Sigurðs-
son sem verið hefur varamark-
vörður Vals undanfarin ár.
Eins og komið hefur fram hef-
ur Friðrik ekki fengið vinnu við
Handknattleikur:
Breiðablik-KA
í kvöld
KA-menn mæta Breiðabliki í
kvöld í 1. deild íslandsmótsins
í handknattleik.
KA-menn hafa nú leikið fjóra
leiki í deildinni og hlotið tvö slig.
Þeir unnu sinn fyrsta sigur í síð-
ustu umferð eftir heldur laka
byrjun, sigruðu þá Hauka með
sjö marka mun á Akureyri. Þeir
ættu að eiga þokkalega mögu-
leika á sigri í kvöld þar sem
Breiðablik hefur tapað öllum sín-
um leikjum og situr á botni deild-
arinnar. Leikurinn fer fram í
Digranesi og hefst kl. 20.
sitt hæfi á Akureyri og tók því þá
ákvörðun að fara.
Lárus Sigurðsson er sonur
Sigurðar Dagssonar, fyrrum
landsliðsmarkvarðar, og þykir
mjög efnilegur. Hann er aðeins
tvítugur að aldri og hefur leikið
einn leik í I. deildinni - einmitt
gegn Þór.
Friðrik Friðriksson hefur leikið með Þór sl. tvö ár en skiptir nú yfir í ÍBV.
M ISUZU
Sports Cab,
upphækkaður
með ýmsum
aukahlutum.
Laugardag frá kl. 10.00 til 17.00
Sunnudag frá kl. 11.00 til 16.00
Léttar veitingar frá Viking brugg.
Ostakynning frá KEA.
ÞÓRSHAMAR HF
Glerárgötu 36, sfmar 1 1036 & 30470
Nói í baráttu við fyrruin KA-mann, Antony Karl Gregory. Eins og sjá má á
höfði Nóa var ekkert gefið eftir í þessum lcik.
Sleða- og
bílasýning
Konungur fjallanna mættur
BB
vélsleðar og
aukahlutir
AUGLYSING
um leyfi til leiguaksturs
Skv. 10. gr. reglugerðar nr. 308/1989 auglýsist hér
með til umsóknar atvinnuleyfi til leiguaksturs fólks-
bifreiðar á Akureyri.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Bif-
reiðastöðvar Oddeyrar.
Umsóknarfrestur er til 30. nóv. 1991.
Nánari upplýsingar veitir formaður nefndarinnar í
síma 26899.
F.h. Umsjónarnefndar fólksbifreiða,
Heimir Ingimarsson, formaður.
1