Dagur - 08.01.1992, Side 2

Dagur - 08.01.1992, Side 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 8. janúar 1992 Aukafundur í bæjarstjórn Ólafsijarðar í fyrrakvöld í framhaldi af samkomulagi milli bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Pólitíkin snýst um að kunna að búa til málamiðlanir - sagði Sigurður Björnsson, bæjarfulltrúi D-lista í fyrrakvöld kom bæjarstjórn Olafsfjaröar saman til auka- fundar þar sem á ný var kosið í embætti eftir þær breytingar sem voru á meirihlutaskipan sjálfstæðismanna síðustu sex mánuði. A fundinum tilkynntu sjálfstæðismenn formlega um lausn á þeim deilum sem uppi hafa verið að undanförnu en á fundinum voru nokkrar um- ræður um þá stöðu sem nú er uppi í bæjarmálunum. Hér á el'tir er gripið niður í þessar umræður bæjarfulltrúanna. Yfírlýsing sjálfstæðismanna I upphafi fundar bæjarstjórnar- innar í fyrrakvöld var lesin yfir- lýsing frá bæjarfulltrúum sjálf- stæðismanna. Hún er svohljóð- andi: „Bæjarfulltrúar sjálfstæðis- manna í bæjarstjórn Ólafsfjarðar hafa ákveðið að starfa áfram sem ein heild í bæjarstjórninni. Sam- komulag hefur orðið um ákveðna verkaskiptingu bæjarfulltrúanna og að Bjarni Grímsson verði ^ífram bæjarstjóri. Jafnframt er því lýst yfir að bæjarstjóri og meirihlutinn munu starfa saman af fullum heilindum. Þá er það von bæjarfulltrúa D-listans að samstarf við H-listann megi verða málefnalegt og gott í fram- tíðinni, bæjarfélaginu til heilla." Breyting í embættaskipan Samkvæmt yfirlýsingunni hér að framan var á fundinum kosið á ný í nefndir og ráð á vegum bæjar- ins. Óskar Þór Sigurbjörnsson verður áfram forseti bæjarstjórn- ar en Sigurður Björnsson og Þor- steinn Asgeirsson taka sæti meiri- hlutans í bæjarráði. Þar sat Ósk- ar Þór áður ásamt Gunnlaugi Jóni Magnússyni sem var vara- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins síð- ustu sex mánuði. Guðbjörn Arn- grímsson verður fulltrúi minni- hlutans í bæjarráði. Þá urðu einnig breytingar á embættum 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar en fyrrnefnda embættinu gegnir nú Kristín Trampe en Þorsteinn Ásgeirsson hinu síðarnefnda. „Nýtur bæjarstjórinn traust og stuðnings?‘‘ Að loknum kosningum tók Björn Valur Gíslason, oddamaður minnihlutans, til máls og taldi ýmis atriði í lausu lofti varðandi þetta samkomulag innan raða sjálfstæðismanna og vert sé að hreinsa andrúmsloftið nú í upp- hafi árs. „Það mun ekki standa á okkur að vinna að heill bæjarfélagsins í góðu samstarfi við meirihluta sjálfstæðismanna og á því hefur reyndar ekki staðið. Ég vænti góðs af framhaldinu milli okkar í minnihluta og meirihluta í bæjar- stjórn ef svo fer sem ntenn virð- ast ætla sér og lesið var upp hér áðan. Ég hjó reyndar eftir því í þessari tilkynningu að menn hafi ákveðið að starfa saman og bæjarstjórinn verði áfram en þar var ekki um traustsyfirlýsingu né stuðning við bæjarstjórann að ræða. Mér hefði fundist að slíkt vanti þarna inn í ef menn vilji hafa hreint borð hér í upphafi árs og ná fram þeim vinnubrögðum sem æskileg eru í bæjarstjórn og bæjarráði. Það sem mér finnst vert að fá að vita er hvort allir bæjarfull- trúar meirihlutans standa að baki bæjarstjóranum, framkvæmda- stjóra bæjarins, og lýsi trausti við hann. Yfirlýsingar voru gefnar á sínum tíma um vanhæfni bæjar- stjóra síðastliðið sumar og að hann hafi leynt menn upplýsing- um innan meirihlutans. Hann var borinn þungum sökum um að hafa farið illa með fé en það hef- ur að mínu mati verið borið að fullu til baka. Ég vil fá að vita hvað hefur breyst, hvort bæjar- stjórinn hafi vikið af braut sinnar villu eða hvort þessir þremenn- ingar séu með þessari tilkynningu að játa að þau hafi ekki farið með rétt mál síðastliðið sumar. Ég held að ef þessi fundur á að marka einhver skil í bæjarkerfinu þá verðum við að byrja nýtt ár með hreint borð og hafi menn eitthvað um þessi mál að ræða þá er þetta rétti vettvangurinn." „Megum ekki vera föst í gamla tímanum“ Óskar Þór Sigurbjörnsson, for- seti bæjarstjórnar svaraði þessum orðum Björns Vals og taldi að ekki megi lifa of mikið í fortíð- inni. Eigi að marka framtíðar- stefnu þá megi ekki dvelja um of í fortíðinni. „Við verðum að passa okkur á að vera ekki of föst við gamla tímann. Það getur hugsanlega gerst að menn skipti um skoðun, breyti um afstöðu til manna og málefna og við getum ekki gefið okkur að ekkert slíkt gerist. Ekki meira um fortíðina frá mér en ég vil ítreka það sem í yfirlýsingu okkar stendur að við munum vinna saman af fullum heilindum.“ „Tilbúinn í dansinn“ Guðbjörn Arngrímsson, fulltrúi minnihlutans, lýsti því yfir að hann sé tilbúinn til að „stíga þann dans sem meirihlutinn sé að bjóða upp í,“ eins og hann orðaði það. „Ég held að yfirlýsing þeirra hér áðan sé gefin af heilum hug. Ég vil ekki trúa að eftir það sem á undan er gengið Iáti menn frá sér annað en þeir meina. Komi hins vegar á daginn að í þessum dansi verði farið að troða okkur um tær þá mun ég endurskoða það hvort ég dansa dansinn til enda. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að hreinsa út núna þannig að byrjað sé á hreinu ári. Ég tel hins vegar að það hafi ver- ið gert. Þeim spurningum sem í huga okkar eru sem hafa fylgst með þessum málum er svarað að mestu leyti í þessari yfirlýsingu, reyndar afskaplega vítt, en það að menn séu tilbúnir til að draga allt til baka sem áður var sagt hlýtur maður að líta á sem útrétta sáttarhönd.“ „Menn eru tilbúnir að íhuga vinnubrögð á alla lund“ Sigurður Björnsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og einn þre- menninganna sem tóku sér leyfi síðastliðið sumar, sagðist í upp- hafi máls síns jafnan hafa gaman af þegar minnihlutinn stilli full- trúum meirihlutans upp á sakar- bekk. „Ég vil af þessu tilefni segja aðeins það að vissulega var þessi deila sem hér var á vordögum á síðasta ári snörp og erfið. Það að við höfum komist að þeirri niður- stöðu að halda áfram þessu meirihlutastarfi í Sjálfstæðis- flokknum varðar fyrst og fremst málefnagrunn og samstarf okkar félaganna áfram án tillits til þess sem á undan er gengið. Það felur auðvitað í sér að menn eru fúsir til að íhuga vinnubrögð á alla lund og reyna að bæta þau sín í milli. Varðandi þetta samkomulag sem við höfum gert okkar í milli þá felur það í sér að við ætlum að vinna saman og það af fullum heilindum. Við eigum síðan eftir að sjá hvernig það þróast og útfærist og ég er sannfærður um að allir í okkar hópi eru fúsir til að leggja sitt af mörkum. Við viljum ekki draga neinn til ábyrgðar í þessari deilu því þann- ig er þegar tveir deila að aldrei er annars sök og ég vil síður þurfa að fara að karpa við vin vorn Björn Val um þessi mál. Mér fannst nóg gert í vor sem leið þegar fjölmiðlaumræðan dundi dag eftir dag án þess að við hefð- um yfir höfuð nokkuð við fjöl- miðla að segja. Það var ekki gott að koma Ólafsfirði þannig á framfæri og gaf ekki góða mynd af plássinu.“ „Vonandi starfhæft í bæjarstjórn í framtíðinni“ Björn Valur tók á ný til máls og ítrekaði að hjá honum vakni spurningar hvernig samstarf eigi að vera með nýjum bæjarráðs- mönnum og bæjarstjóranum. Vel megi vera að gróið sé um heilt en enginn af þeim meirihlutamönn- um hafi enn svarað því hvort þeir styðji bæjarstjórann. „Ástæðan fyrir því að ég spurði þessara spurninga var að ég var að blaða í gömlum fundargerðum frá þess- um tíma og sá þá ekki í hendi mér hvernig menn gátu fallist í faðma sem þeir virðast hafa gert í dag og ég vonast til að sé satt og rétt. Ég vona að menn séu búnir að ná sáttum og vel verði starf- hæft í bæjarstjórn í framtíðinni og vil trúa því að þetta sé gert af heilum hug. Á það mun reyna iitnan Sjálfstæðisflokksins hvort þetta hefur tekist en ég hef mínar efasemdir um að það hafi gerst.“ „Öll ákveðin í að gera okkar besta“ Sigurður Björnsson kom aftur í ræðustól og svaraði Birni Val. „Mig langar aðeins til að spyrja fólk eftir því hvað það haldi til dæmis að gerist í pólitík þegar ólíkir stjórnmálaflokkar ná saman. Hvernig skyldi það hafa verið þegar nýsköpunarstjórnin var stofnuð á sínum tíma. Hvern- ig skyldi þeim hafa gengið að ná saman þessum höfuðandstæðing- um í pólitík sem þá voru. Hvern- ig skyldi þeim ganga að ná saman Jóni Baldvin og Davíð Oddssyni og hvernig skyldi þeim hafa geng- ið að ná saman Steingrími Her- mannssyni og Þorsteini Pálssyni á sínum tíma, þó það endaði allt illa. Pólitík snýst nefnilega um það að vinna í stjórnmálum og gæta þess að láta persónulega hagsmuni, persónulegar væring- ar, ekki ná alltof miklum tökum á manni. Auðvitað gera þær það, slíkt er ekki nema mannlegt. Við horfðum bara á oddvita vinstri manna hér síðastliðið vor fara hamförum. Menn hafa gjarnan látið út úr sér ýmislegt í hita leiksins sem þeir hefðu viljað láta ósagt. Það á ekki síður við um mig en alla aðra en pólitíkin snýst um þann hlut að kunna að búa til málamiðlanir. Málið snýst ekki um neitt annað. Við erum breið- ur flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn og innan okkar raða verður ágreiningur eins og innan allra annarra flokka. Það var nákvæm- lega til þess sem við tókum okkur leyfi að láta gruggið setjast og mynda nýjan jarðveg fyrir sam- komulagi. Ég treysti mér mæta- vel til að vinna með Bjarna Grímssyni. Við ætlum að láta all- ar hástemmdar traustsyfirlýsing- ar bíða á báða bóga og sjá hvern- ig okkur tekst til. Við erum sam- mála um það öll fimm að sjá hvernig mál þróast. Við erum ákveðin í því öll, hvert fyrir sig, að gera okkar besta. Það er bjargföst ætlun. Við höfum ákveðið að reyna til þrautar að ná saman og það er nákvæmlega engin minnkun í því að fólk taki saman höndum þó kannski hafi flogið hnútur um borð,“ sagði Sigurður Björnsson.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.