Dagur - 15.02.1992, Side 5
Laugardagur 15. febrúar 1992 - DAGUR - 5
Efst í HUGA Svavar °ttesen
Landsmenn vilja ekkiniður-
skurð i heilbrigðiskerfinu
Það sem er efst í huga mínum þessa dag-
ana er hin mikia umræða, sem orðið hefur í
þjóðfélaginu um hið svokallaða íslenska
velferðarkerfi. Nú berast þau tíðindi frá hag-
fræðideild Háskóla íslands í Reykjavík að
íslenska heilbrigðiskerfið sé hið dýrasta í
heimi. Þetta kom mér í sjálfu sér ekki svo
mjög á óvart. En er heilbrigðiskerfið íslenska
þá ekki líka eitt hið manneskjulegasta og
besta í heiminum?
Ég er eindregið þeirrar skoðunar að nauð-
synlegt sé að fara vel með það fé sem við
landsmenn greiðum í hinn sameiginlega
sjóð, skatta til ríkisins og bæjarfélaganna.
Þess vegna er ekki nema sjálfsagt að reyna
af fremsta megni að gæta sparnaðar og
hagræðingar í öllum rekstri hjá ríki og
bæjarfélögum.
En nú vendi ég mínu kvæði í kross. Ég fór
að hugleiða það að ég er einn af þeim fjöl-
mörgu, sem hef greitt kostnaðinn við að
koma upp þessu ágæta heilbrigðiskerfi. Árið
1992 er hið fertugasta og þriðja sem ég
greiði mína skatta og skyldur til þjóðfélags-
ins. (Ég er ekki langskólagenginn og byrjaði
bví að greiða skatta 16 ára).
Ég man tímana tvenna. Um 1940 var ég
skorinn upp við kviðsliti á gamla sjúkrahús-
inu við Spítalaveginn. Fimmtíu árum síðar,
1990, var ég svo skorinn upp á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu og var það allstór aðgerð. Árið
1940 lá ég 7 daga á sjúkrahúsinu eftir uþþ-
skurðinn en aðeins 5 daga eftir aðgerðina
1990. Eftir því sem ég best veit eru þeir
sendir heim samdægurs sem skornir eru
upp við kviðsliti í dag. Já, það hefur eðlilega
margt breyst á 50 árum. Við Eyfirðingar og
nágrannar okkar fyrir austan og vestan hljót-
um að hrósa happi yfir því að á Akureyri
skuli vera jafn fullkomið sjúkrahús og raun
ber vitni og þar skuli alltaf vera til taks hið
hæfasta fólk til að taka á móti okkur ef eitt-
hvað bjátar á heilsufarslega. Allir hljóta að
vera sammála um það að slíkt er ómetan-
legt. Ég er þeirrar skoðunar að Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri eigi að efla svo sem
frekast má. Það hlýtur að gefa auga leið, að
það er mjög kostnaðarsamt að senda sjúkl-
inga héðan að norðan til Reykjavíkur, auk
þess sem það hefur slæm áhrif á sjúklinginn
sjálfan og aðstandendur.
Að lokum þetta: Þegar ég hugleiði þá
umræðu sem verið hefur að undanförnu í
þjóðfélaginu um niðurskurð í heilbrigðiskerf-
inu og að mér finnst ómarkvissar aðgerðir
ríkisvaldsins á mörgum sviðum þess, þar
sem starfsfólk margra heilbrigðisstofnana
veit varla hvers það á að vænta í framtíð-
inni, þá vil ég segja það að stjórnmálamenn
verða að.fara með mikilli gát þegar heilbrigð-
iskerfið er annars vegar. Það er sjálfsagt að
gæta hagræðingar og sparnaðar, en einu
megum við aldrei gleyma. Við höfum byggt
upp mjög traust og gott heilbrigðiskerfi og
það kostar mikla peninga að reka það. Af
þeirri umræðu í þjóðfélaginu, sem orðið hef-
ur undanfarið, geta stjórnmálamenn dregið
þá ályktun að landsmenn eru ekki tilbúnir til
að samþykkja niðurskurð í heilbrigðiskerfinu
sem nokkru nemur. Því þarf að finna í næstu
fjárlögum aðra pósta til að skera niður.
|j|| FUFAN
Fundur þriðjudaginn 18. feb. kl. 21.00.
Mætum öll.
Stjórnin.
Leikklúbburinn
Saga
15 ára afmæli L.S.
verður haldið þann 22. febrúar kl. 16.00 í
Dynheimum, Akureyri.
Gamlir og nýir félagar velkomnir.
Upplýsingar hjá Systu í síma 96-21764.
Bridge - Bridge
Einmenningskeppni
Fyrsta spilakvöld í einmenningskeppni Bridgefé-
lags Akureyrar verður haldið þriðjudaginn 18.
febrúar og hefst kl. 19.30. Spilað verður í Hamri.
Allir bridsáhugamenn velkomnir.
Bridgefélag Akureyrar.
----------------
ÚTBOÐ
Fjölmiðlar
Þröstur Haraldsson
Afalmennu og pólitísku
siöferöi stjórnmálamanna
Nú eru forsetakosningar í aösigi vestur í Banda-
ríkjunum og þá bregst það ekki aö fjölmiðlar fyll-
ast af sögum um siðferöisþrek frambjóðenda.
Einn sigurstranglegasti frambjóðandi Demókrata
varð að viöurkenna að um tíma hefði hjónaband
hans ekki verið upp á það besta og því hefði hann
freistast til að skrlða nokkrum sinnum upp í til
vandalausrar konu.
Það verður æ algengara, ekki síst í hinum eng-
ilsaxneska heimi, að fæti só brugðið fyrir stjórn-
málamenn með því að afhjúpa einhverja Ijós-
fælna bletti úr einkalífi þeirra. Af þessu mætti
draga þá ályktun að engilsaxneskir póiitfkusar
séu óvenjulega siðvilltir og allflestir haldnir ein-
hverjum afbrigðilegum kenndum.
Eða þá að fjölmiölar í þessum iöndum séu
óvenju opnir fyrir sögum af einkalífi, einkum kyn-
Iffi stjórnmálamanna. Ég hallast helst að þvf að
það síðarnefnda sé raunin. Ekki eru þeir skárri í
Bretlandi. í sföustu viku lenti formaður Frjáls-
lyndra demókrata í verstu málum vegna þess að
einhver hafði komist á snoðir um að hann heföi
gerst helst til fjölþreifinn þegar einkaritari hans átti
í hlut - um nokkurra mánaöa skeið árið 1986. Af
þessum sökum var pólitískur frami mannsins f
uppnámi.
Fyrir skömmu keypti ég mér Sunday Times.
Þar var sagt frá dómara nokkrum sem hafði
hrökklast úr embætti eftir að upp komst að hann
hafði keypt sér þjónustu vændiskonu. Fréttin var
hins vegar ekki um það heidur að nú væri konan
hans að fara frá vesalings manninum. Önnur frétt
var þar einnig sem snerti einkalíf stjórnmála-
manns. Að þessu sinni var um aö ræða Harold
Macmillan forsætisráðherra íhaldsflokksins á ár-
unum 1957-63. Nú er komin út bók um þennan
mann og í henni er því haldið fram aö hann hafi
verið haldinn svo ákafri ást á móður sinni að hún
hafi gert honum ókleift að eiga í eðlilegu ástar-
sambandi við konur. Þeir látnu fá ekki einu sinni
aö hvfla f friði.
Satt að segja á ég dálítið erfitt með aö sjá að
hve miklu leyti fréttir af þessu tagi eigi erindi til
almennings. Nú veit ég að kynlíf og einkalíf
manna getur vissulega haft áhrif á hegöun þeirra
á opinberum vettvangi. En ég á enn eftir aö sjá aö
formaður Frjálslyndra demókrata í Bretlandi eða
frambjóðandi Demókrata í Bandaríkjunum séu
verr til forystu fallnir af því þeir misgripu sig í
ástamálunum.
Þegar ég las um framhjáhald Bill Clintons hins
bandarfska rifjaðist upp fyrir mér að fyrir nokkrum
árum gengu mergjaðar sögur meðal blaðamanna
og eflaust fleiri hópa um ævintýralega hegðun
ákveöins stjórnmálamanns hér á landi. Hann átti
að hafa dottiö upp í hjá hinum aðskiljanlegustu
konum, stundum við fáránlegar aðstæður. Blaða-
menn skemmtu sér ágætlega við þessar sögur en
ég held að það hafi ekki hvarflaö að neinum
þeirra að gera sér mat úr þeim eöa leggja vinnu í
að kanna sannleiksgildi þeirra.
Enn síður datt mönnum í hug að þetta fjöl-
skrúðuga ástalíf - ef sögurnar áttu þá við rök að
styðjast - geröi viökomandi óhæfari til að stunda
stjórnmál. Ef eitthvað var óx hann frekar í áliti hjá
okkur en hitt.
Hefðu þessar sögur gengið meðal kollega okk-
ar vestanhafs eöa austan má ganga að þvi gefnu
að fjöldi blaðamanna og Ijósmyndara hefði fylgt
hverju fótmáli viðkomandi og reynt allt hvaö af tók
aö hafa uppi á einhverju „fórnarlambi“ hins losta-
fulla frammámanns.
Sem betur fer er íslensk blaðamennska ekki
enn oröin jafnþróuö og meðal engilsaxa að þessu
leyti. Á hinn bóginn mætti hún vera nokkuð þró-
aðri í umfjöllun sinni um pólitískt siögæöi stjórn-
málamanna. Hér á landi komast menn upp meö
aö eyða milljörðum króna af almannafé eins og
það væri skotsilfrið þeirra og eru meira að segja
svo ósvífnir að gangast vlö því. En pressan hreyf-
ir hvorki legg né lið til að láta þá axla hina póli-
tísku ábyrgð á óráðsíunni.
Og hér á landi komast ráðherrar upp með að
ráðast á fjölmiðla úr ræðustói á Alþingi og bera
upp á þá hlutdrægni og óvönduð vinnubrögö, að
ekki só talað um framlag einstakra þingmanna.
Hvað myndu þeir þá segja ef viö færum að haga
okkur eins og engilsaxnesku kollegamir?
VEGAGERÐIN
V.
Vegagerð ríkisins óskar eftir tiiboðum í
eftirtalin verk á Norðurlandi eystra:
1. Norðurlandsvegur í Öxnadal, Engi-
mýri - Varmavatnshólar.
Lengd kafla 9,6 km, magn 260.000 rúm-
metrar.
Verki skal lokið 1. ágúst 1993. Útboö-
sgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis-
ins á Akureyri og í Reykjavík (aðalgjald-
kera) frá og með 17. febrúar nk. Skila
skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þann 2. mars 1992.
2. Eyjafjarðarbraut eystri, um Þverá.
Lengd kafla 0,8 km, magn 30.000 rúm-
metrar.
Verki skal lokið 1. júlí 1992. Útboðsgögn
verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Akureyri og í Reykjavík (aðalgjaldkera)
frá og með 17. febrúar nk. Skila skal til-
boðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 9. mars 1992.
Vegamálastjóri.
AKUREYRARBÆR
Akureyrarhöfn auglýsir
deiliskipulag fiskihafnar
Uppdráttur er sýnir tillögu aö deiliskipulagi
svæöis, sem afmarkast af Hjalteyrargötu í vestri,
lóö Slippstöövarinnar hf. í noröri og lóð Útgerðar-
félags Akureyringa hf. í suöri liggur frammi
almenningi til sýnis á skrifstofu Akureyrarhafnar,
Óseyri 16, 2. hæð, næstu 4 vikur frá birtingu
þessarar auglýsingar, þ.e. til föstudagsins 13.
mars 1992, þannig aö þeir sem þess óska geti
kynnt sér tillöguna og gert athugasemdir sbr.
grein 4.4. í skipulagsreglugerð. Athugasemdum,
ef einhverjar eru, skal skila á hafnarskrifstofuna,
Óseyri 16, eða á bæjarskrifstofu Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, 2. hæö, fyrir kl. 15.00 13. mars
1992.
Hafnarstjóri.