Dagur - 26.02.1992, Blaðsíða 2

Dagur - 26.02.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 26. febrúar 1992 Fréttir___________________________________________________________________ Úthlutun úr „safnpotti“ heilbrigðisráðuneytisins til sjúkrastofnana: Hlutur sjúkrahúsa á Norðurlandi heldur rýr Þessa dagana eru forsvars- menn sjúkrahúsa og heilsu- gæslustöðva á Norðurlandi að fá í hendur erindi frá heilbrigð- isráðuneytinu þar sem tilkynnt er um úthlutun fjárveitinga- valdsins af 499 milljóna safnlið heilbrigðisráðuneytisins til heilbrigðisstofnana um allt land. Edda Hermannsdóttir í heilbrigðisráðuneytinu vildi í gær ekki upplýsa hver hlutur sjúkrastofnana á landsbyggð- inni væri, þar sem ólokið væri úthlutun til sjúkrastofnana á höfuðborgarsvæðinu. I eftir- farandi samantekt er ekki get- ið Sjúkrahússins á Sauðár- króki, sem kemur til af því að forsvarsmenn þess höfðu í gær ekki vitneskju um hlut þess í nefndum 499 milljónum af safnlið heilbrigðisráðuneytis- ins. Sjúkrahúsið á Blönduósi Samkvæmt niðurskurðarfrum- varpinu átti Sjúkrahúsið á Blönduósi að spara 10,6 milljónir króna á árinu. Að sögn Bolla Ólafssonar, framkvæmdastjóra sjúkrahússins, gerðu stjórnendur þess ráð fyrir um 6,5 milljóna króna sparnaði með þeim tillög- um sem sendar voru til ráðuneyt- isins. Á þeim tillögum og endan- legri niðurskurðartölu munar aft- ur á móti nálægt tveimur milljón- um króna. „Þetta eru mikil vonbrigði því við reiknuðum með að fá um sex milljónir upp í niðurskurðinn. Hinsvegar fáum við einungis 2,6 milljónir króna og það þýðir að við þurfum að vinna allar sparn- aðaraðgerðir okkar upp að nýju. Ég vil á þessu stigi málsins ekki segja neitt til um hvernig reynt verður að leysa málið, en með til- lögum þeim sem við sendum suð- ur fylgdi greinargerð þess efnis að frekari aðgerðir myndu þýða stórfellda röskun á starfsemi sjúkrahússins,“ sagði Bolli Ólafs- son. Niðurskurður á framlagi til Vestur-Húnavatnssýsla: Brúna tók af Bergá „Það er útlit fyrir að mynd- ast hafi klakastífla einhvers staðar fyrir ofan brúna og hún síðan brostið og flóðið sópað með sér brúnni,“ seg- ir Ólafur B. Óskarsson, bóndi í Víðidalstungu og oddviti Þorkelshólshrepps. Þegar bóndinn í Litluhlíð, fremst i Víðidal, ætlaði að skreppa upp á Víðidalstungu- heiði fyrir skemmstu, komst hann að þvi að brúin yfir Bergá var horfin. Brúin var byggð fyrir rúmum tíu árum síðan, járnbitabrú með tré- dekki og hefur hún komið í góðar þarfir þegar fé hefur verið keyrt fram á heiði til sleppingar. Að sögn Ólafs hef- ur einnig verið töluvert um að ferðafólk notaði brúna, því þó nokkur umferð er upp á Víði- dalstunguheiði og suður úr að sumarlagi. „Ég býst ekki við að bænd- um lítist vel á að fara að reka féð fram á heiði upp á gamla mátann, svo sjálfsagt verður ný brú byggð yfir ána í vor,“ segir Ólafur. SBG heilsugæslu á Blönduósi og Skagaströnd var samkvæmt frumvarpi 1,2 milljónir króna, en 500 þús. krónur af því fást til baka og segir Bolli að það nægi til að endar náist saman í þeim rekstri. Sjúkrahúsið á Hvammstanga Sjúkraúsið á Hvammstanga átti samkvæmt frumvarpi ríkisstjórn- arinnar að spara 4,8 milljónir króna. Endanlegar niðurskurðar- tölur eru aftur á móti 3,8 milljón- ir króna, en ein milljón fékkst til baka. Heilsugæslunni á Hvamms- tanga var gert að spara 700 þús. krónur, en upp í það koma 300 þús. krónur. „Við gerðum tillögur um allan þennan sparnað en vonuðumst náttúrlega til að fá eitthvað til baka. Ætlunin er að reyna að standa við þær tillögur sem við gerðum og skrimta með því, en það þýðir fækkun um tvo starfsmenn. Við munum engu að síður reyna að halda uppi óbreyttri þjónustu,“ segir Guð- mundur Haukur Sigurðsson, framkvæmdastjóri sjúkrahússins á Hvammstanga. Skógræktarfélag Þingeyinga og Búnaðarsamband S-Þing. gengust fyrir almennum fundi að Ýdölum sl. laugardag. Fundarefnið var uppgræðsla örfoka lands. í því sambandi var m.a. rætt um Hólasand og friðun í Kinnarfelli. Framsögu- menn voru Andrés Arnalds, gróðurverndarfulltrúi Land- græðslu ríkisins og Jón Guð- Heilbrigðisráðherra hefur gef- ið út framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðrar byggingar 1. áfanga viðbyggingar við dval- arheimili aldraðra, Hvamm á Húsavík. Um er að ræða 1950 fm byggingu, með 19 þjónustu- íbúðum sem ýmist verða bú- seturéttaríbúðir eða íbúðir í eigu Dvalarheimilis aldraðra sf. í húsinu verður einnig sam- komusalur, lyfta og auk þess nýr aðalinngangur fyrir alla bygginguna. Áætlað er að byggingarkostn- aður við umræddan áfanga verði 145 milljónir og að kostnaður við byggingu hans skiptist niður á þrjú ár, þannig að áfanginn verði tilbúinn á árinu 1994. Fyrirhugað er að vinna fyrir 50 milljónir á þessu ári, svo framarlega sem útvegun fjármagns tekst. Gert er ráð fyrir að eignaraðilar Dvalar- heimilis aldraðra sf. og væntan- legir eigendur búseturéttaríbúð- anna greiði 40% kosnaðar, 40% verði tekin að láni og Fram- kvæmdasjóður aldraðra greiði 20% af kostnaði við bygginguna. Hönnun verksins er í góðum Fjóröungssjúkrahúsiö á Akureyri Fjórðungssjúkrahúsinu var gert að skera niður um 56 milljónir króna, en það fékk aðeins 12 milljónir til baka, eða ríflega 21 prósent. Til þess að bregðast við 56 milljóna niðurskurðinum var gripið til almennra sparnaðarað- gerða, sem miðuðu að hagræð- ingu í vinnu og að minnka kostn- að við öll innkaup á rekstrarvör- mundsson plöntulífeðlis- fræðingur Rannsóknastofu landbúnaðarins. Hólmfríður Pétursdóttir, for- maður Skógræktarfélags Þingey- inga, sagði aðspurð um fundinn, að þar hefðu ekki verið sam- þykktar neinar ályktanir eða ákvarðanir verið teknar, fyrst og fremst hefði verið um að ræða Svonefndir Alþýðubandalags- dagar verða á Akureyri og,í Eyjafirði dagana 27.-29. febrúar. Þessa daga munu for- ystumenn Alþýðubandalagsins heimsækja fyrirtæki og stofn- anir, ræða við starfsfólk og hitta sveitarstjórnarmenn, forsvarsmenn verkalýðs- hreyfingar og atvinnulífs að máli. Almennir stjórnmálafundir verða haldnir í Alþýðuhúsinu á Akureyri fimmtudaginn 27. febrúar kl. 20.30, í Tjarnarborg í Ólafsfirði föstudaginn 28. febrú- ar kl. 20.30 og í Víkurröst á Dal- vík laugardaginn 29. febrúar kl. 14.00. Dagskránni lýkur svo laugar- dagskvöldið 29. febrúar með árs- hátíð Alþýðubandalagsfélaganna um. Ekki var gert ráð fyrir að lokunum á deildum um lengri tíma, en hins vegar að draga umtalsvert úr starfsemi spítalans. Sjúkrahúsið á Siglufirði „Við fengum tvær og hálfa millj- ón fyrir sjúkrahúsið. Samkvæmt því þurfum við að skera niður um 4,2 milljónir," sagði Jón Sigur- björnsson, framkvæmdastjóri Sjúkahússins á Siglufirði Jón segir að fylgt verði tillög- um, sem forsvarsmenn sjúkra- hússins hafi gert til heilbrigðis- fræðslufund um uppgræðslu. Hún sagði fundinn hafa verið mjög góðan og fróðlegan. Rætt var um friðun og uppgræðslu Kinnarfells við Skjálfandafljót, en Skógræktarfélag Ljósvetninga vinnur að málinu, sem Hólmfríð- ur sagði að væri áhugavert verk- efni. Einnig var rætt um uppgræðslu Hólasands, sem er milli Reykja- við Eyjafjörð sem haldin verður á Fiðlaranum á Akureyri. Allir stuðningsmenn Alþýðubanda- lagsins og gestir þeirra eru vel- komnir með húsrúm leyfir. (Fréttatilkynning) Eyjaíjörðiir: Starf bygginga- fulltrúa auglýst Héraðsnefnd Eyjafjarðar hef- ur ákveðið að auglýsa lausa til umsóknar stöðu byggingafull- trúa Eyjafjarðar. Sigtryggur Stefánsson, fyrrver- andi byggingafulltrúi, lést á síð- asta ári og síðan hefur Jósavin Gunnarsson gegnt starfinu. óþh ráðuneytisins um sparnað, en samkvæmt þeim sé allt kapp lagt á að ekki þurfi að skerða þjón- ustu. Niðurskurður framlaga til heilsugæslustöðvarinnar á Siglu- firði nam 600 þúsundum, en helmingur þeirrar upphæðar fékkst til baka. „Auðvitað tekur þess niður- skurður á, en það er fyrst og fremst fyrir velvilja starfsfólksins sem þetta vonandi gengur upp. Við stefnum á það að vera innan fjárlaga,“ sagði Jón. Sjúkrahúsið á Húsavík Forsvarsmönnum Sjúkrahússins á Húsavík var gert að leita leiða til að spara 13,2 milljónir á þessu ári. Samkvæmt ákvörðun fjár- veitingavaldsins fær það samtals 4 milljónir króna til baka, 2,5 milljónir til sjúkrahússins og 1,5 milljón króna til heilsugæslu- stöðvarinnar. Ólafur Erlendsson, fram- kvæmdastjóri, sagðist í gær ekki vera búinn að fá tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu um hlut Sjúkrahússins á Húsavík og því gæti hann ekki tjáð sig um málið. óþh/SBG hverfis og Mývatnssveitar. „Þetta eru bara svo geigvænlega stór svæði í sýslunni sem eru svo illa farin og nauðsynlegt er að græða. Svo er náttúrlega alltaf komið að því sama, peningaleysinu. Það voru gerðar tilraunir í sumar og lúpínu sáð, í samráði við Land- græðslu ríkisins. Það er kannski möguleiki að hægt sé að taka svona stór svæði fyrir og sá í þau með þeirri tækni sem er komin til. Og ekki síst í samvinnu við áhugamannahópa sem vilja beina kröftum sínum að því að græða upp stór svæði. Það kom fram á fundinum að það eru miklir möguleikar fyrir hendi,“ sagði Hólmfríður. Hún sagðist hafa heimildir fyrir því að á Hólasandi hefðu fundist gamlar kolagrafir, svo hann hefði einhvern tíma verið skógi vaxinn og gaman væri að geta séð slíkt á ný. Hólmfríður sagði að t.d. væri ótrúlega mikið búið að græða upp ofan við þorpið í Mývatns- sveit með því að dreifa þar úr- gangi úr görðum. Um 40-50 manns sóttu fundinn að Ýdölum og miklar umræður urðu að framsöguræðum loknum, fjöldi fyrirspurna barst og velt var upp ýmsum hliðum á málunum. Það kom t.d. fram að verið væri að athuga með nýjar landgræðsluplöntur sem falla bet- ur að íslensku landslagi en lúpín- an. „Austurhlulinn af Hólasandi er í mikilli fokhættu. Þar stóð til að Landgræðslan girti, en það er hætt við að ekki verði af því í sumar. Sumir eru þó farnir að gæla við þá hugmynd að áhuga- menn geti girt eitthvað af þessu sjálfir ef þeir taka sig saman. Við vorum mjög ánægð að Búnaðar- sambandið skyldi standa að fund- inum með okkur, en það er ekki síður hagur fyrir bændurna að græða Iandið,“ sagði Hólmfríður. IM Skógræktarfélag Þingeyinga: Það væri gaman að sjá Hólasand skógivaxiim á ný - segir Hólmfríður Pétursdóttir, formaður félagsins eftir Ýdalafundinn um uppgræðslu örfoka lands Dvalarheimilið Hvammur á Húsavík: Viðbygging með nítján íbúðum - framkvæmdaleyfi hefur verið veitt gangi og reiknað með að hægt verði að bjóða það út í maí og hefja síðan framkvæmdir í júní. IM Alþýðubandalagsdagar á Akurevri og í Eyjafirði

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.