Dagur - 26.02.1992, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 26. febrúar 1992 - DAGUR - 11
Iþróttir
Jón Haukur Brynjólfsson
Unglingamót Fimleikasambandsins:
Akiireyringar heim með
þrenn gullverðlaun
Fjórar stúlkur frá Fimleikaráði
Akureyrar tóku þátt í Ung-
lingamóti Fimleikasambands
íslands sem fram fór þann 15.
febrúar sl. Stúlkurnar náðu
góðum árangri, hrepptu þrenn
gullverðlaun, ein silfurverð-
laun og þrenn bronsverðlaun.
Þá munaði aðeins hársbreidd
að tvær stúlknanna næðu að
tryggja sér þátttökurétt á Ung-
lingameistaramóti íslands sem
haldið var daginn eftir.
Hulda Guðmundsdóttir, Mar-
grét ísleifsdóttir og Sandra Hall-
dórsdóttir kepptu í 4. þrepi í
flokki 13-16 ára stúlkna. Hulda
hlaut gullverðlaun í æfingum á
tvíslá, hlaut 9,40 í einkunn, og
bronsverðlaun í gólfæfingum,
8,75, og samanlögðu, 33,30.
Sandra vann til gullverðlauna í
stökki, fékk 9,25 einkunn. Mar-
grét hlaut bronsverðlaun í stökki
með einkunnina 9,05.
Halla S. Bjarklind keppti í 4.
þrepi 11-12 ára stúlkna og hlaut
gullverðlaun í æfingum á tvíslá
með 9,15 í einkunn og silfurverð-
laun í stökki með 9,00.
Halla S. Bjarklind vann til silfur-
verðlauna. Mynd: jhb
Til að fá að keppa á Unglinga-
meistaramótinu þurftu keppend-
ur að fá 33,50 eða meira í saman-
lögðu og voru þær Hulda og
Halla nálægt því. Hulda hlaut
33,30 og vantaði því 0,20 og
Halla hlaut 33,25 og vantaði
0,25.
Körfuknattleikur, drengjaflokkur:
Haukar upp í A-riðil
á besta stigahlutfaUinu
Um síðustu helgi fór fram á
Akureyri þriðja og síðasta
umferð í B-riðli Islandsmótsins
í drengjaflokki, 16-17 ára, í
körfuknattleik. Sex lið leiddu
saman hesta sína og urðu þrjú
lið jöfn í efsta sæti, Haukar,
ÍA og Þór en Haukar höfðu
hagstæðasta stigahlutfallið og
komust því upp í A-riðil.
Þessi þrjú lið unnu alla leiki
sína nema einn. Þór tapaði fyrir
ÍA, ÍA fyrir Haukum og Haukar
fyrir Þór.
Leikirnir fóru fram í íþrótta-
húsi Glerárskóla föstudag, laug-
ardag og sunnudag. Úrslit urðu
þessi:
ÍA-Snæfell
Þór-Skallagrímur
73:49 (37:17)
81:61 (37:32)
UMFN-Haukar
Snæfell-Þór
Haukar-ÍA
UMFN-Skallagrímur
Þór-Haukar
Skallagr.-Snæfell
ÍA-UMFN
Haukar-Skallagr.
Þór-ÍA
UMFN-Snæfell
Skallagrímur-ÍA
Snæfell-Haukar
Þór-UMFN
Lokastaðan:
Haukar
ÍA
Þór
Snæfell
UMFN
Skallagrímur
43:66 (17:35)
57:87 (22:40)
65:52 (27:34)
53:52 (24:27)
48:46 (21:31)
41:57 (23:28)
63:43 (39:21)
80:42 (40:22)
47:67 (18:35)
59:64 (23:38)
49:67 (24:32)
57:80 (32:48)
2:0
5 4-1 337:239 8
5 4-1 322:253 8
5 4-1 265:231 8
5 2-3 284:340 4
5 1-4 198:247 2
5 0-5 245:338 0
Skíðamót íslands:
Akureyri verður til vara
- ef snjólaust verður í Ólafsfirði og á Dalvík
Á fundi stjórnar Skíðasam-
bands íslands á mánudags-
kvöldið var ákveðið að Akur-
eyri yrði varastaður fyrir
Skíðamót íslands sem fram á
að fara á Dalvík og í Ólafs-
firði í byrjun apríl. Eins og
Dagur skýrði frá í síðustu
viku hafa vaknað verulegar
áhyggjur vegna snjóleysis á
væntanlegum mótsstöðum og
því þótti Ijóst að hafa yrði
annan stað til vara ef ekki
rættist úr veðurfarinu. Ekki
hefur verið ákveðið hvenær
mótið verður fært ef af
verður.
Sigurður Einarsson, formað-
ur Skíðasambands íslands,
sagði í samtali við Dag að
ákveðið hefði verið að hafa
Akureyri til vara þannig að
mótið færi ekki úr héraðinu ef
þyrfti að færa það. Sagði hann
að Akureyringar væru reyndar
ekki búnir að gefa svar um
hvort þeir vildu fá mótið en
reiknaði fastlega mcð að það
yrði jákvætt.
Sigurður var spurður hvort
ekki væri hæpið að velja Akur-
eyri sem varastað þar sem
ástandið hefði verið svipað þar í
vetur og bærinn það stutt frá
Ólafsfirði og Dalvík að búast
mætti við svipuðu tíðarfari á
þeim slóðum.
„Nei, skíðasvæðið þar stend-
ur hærra en á Dalvík og í Ólafs-
firði. Við ætlum a.m.k. að bíða
með að velja annan varastað og
vonum að þetta gangi upp
svona.“
Sigurður sagði að ákveðið
yrði í þessari viku hversu lengi
yrði beðið með að færa mótið.
„í reglugerð er talað urn viku en
þá er átt-við bikarmót þannig að
fresturinn veröur eitthvað
lengri. Ég myndi halda að hann
ætti að vera svona 10-14 dagar,“
sagði Sigurður Einarsson.
Knattspyrna:
Landsliðið til Dubai
Ásgeir Elíasson, landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu, hefur
valið 16 leikmenn til að taka
þátt í ferð landsliðsins til
Dubai 28. febrúar til 5. mars
nk. Leiknir verða tveir leikir,
gegn A-landsliði Sameinuðu
arabísku furstadæmanna og U-
19 liði sama ríkis.
Leikurinn gegn A-landsliðinu
verður mánudaginn 2. mars en
leikurinn gegn U-19 liðinu dag-
inn eftir.
Engir atvinnumenn eru í
íslenska landsliðshópnum sem er
þannig skipaður:
Markverðir:
Birkir Kristinsson Fram
Friðrik Friðriksson ÍBV
Tveir leikir
í gærkvöldi
Norðlendingar voru í eldlínunni í
gær á tveimur vígstöðum þ.e. á
Selfossi og Sauðárkróki. Fyrstu-
deildarlið KA í handknattleik lék
við Selfoss og Tindastóll og KR
léku í úrvalsdeildinni í körfu-
bolta. Nánar verður greint frá
leikjunum í fimmtudagsblaði.
Varnarmenn: Kristinn R. Jónsson Fram
Einar Páll Tómasson Val Arnar Grétarsson UBK
Þormóður Helgason KR Andri Marteinsson FH
Atli Helgason Víkingi Rúnar Kristinsson KR
Ólafur Kristjánsson FH
Miðvallarleikmenn: Sóknarmenn:
Baldur Bjarnason Fram Atli Einarsson Víkingi
Baldur Bragason Val Grétar Einarsson FH
Valur Valsson UBK Tómas Ingi Tómasson ÍBV
Aðalfundur
H.S.S.A.
verður haldinn mánudagskvöldið 9. mars kl.
20.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf og lagabreytingar.
Stjórnin.
Opið hús
fyrir aldraða
í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju alla fimmtu-
daga kl. 15-17.
Fimmtudaginn 27. febrúar veröur dagskrá þessi:
Málfríður Sigurðardóttir segir sögu.
Örn Birgisson syngur einsöng.
Áskell Jónsson stjórnar fjöldasöng.
Veitingar seldar á vægu veröi.
Allt eldra fólk og fylgdarlið þess velkomið.
Undirbúningsnefndin.
Um síðustu helgi var haldið fyrsta skíðagöngumót á Norðurlandi í ár en þá fór fram svokallað Tröllaskagamót á
Kleifum í Oláfsfirði. Hér sést Haukur Sigurðsson ræsa út keppendur í flokkum 12 ára og yngri. Mynd: h.bi.
Hentugt verslunarhúsnæði
er til leigu nú þegar
í Hafnarstræti 20, Akureyri.
Upplýsingar gefur aðalfulltrúi, Sigurður Jóhannes-
son, en upplýsingar eru ekki gefnar í síma.
Kaupfélag Eyfirðinga