Dagur - 26.02.1992, Blaðsíða 12
heimsendingarþjónusta
alla daga
Sun.xiu.daga til fimmtudaga kl. 12.00-SS.30
Föstudaga og laugardaga kl. 1S.00-04.30
Hádegistilboð alla daga
VEITINGÆ H U S I Ð
Akureyri, miðvikudagur 26. febrúar 1992
Gjaldakönnun Samtaka fiskvinnslustöðva:
Hæstu þjónustugjöldin
á Skagaströnd
Glerárgötu 20 • 26690
Fiskvinnsiufyrirtæki með eigin
útgerð þyrfti að greiða tæplega
15,4 milljónir króna á ári í
opinber þjónustugjöld á
Skagaströnd en nokkru lægri
upphæð eða rúmlega 10,9
milljónir á Húsavík. Þetta
kemur fram í samanburðar-
könnun sem samtök fisk-
vinnslustöðva hafa gert á þjón-
ustugjöldum nokkurra sveitar-
félaga á landinu í ársbyrjun
1992. Skagaströnd hefur hæstu
álagningarprósentu fasteigna-
gjalda á þeim stöðum sem
bornir voru saman.
í dæmi samtakanna er um að
ræða fiskvinnslufyrirtæki með
eigin hráefnisöflun. Aðstöðu-
gjaldsstofn vinnslunnar var
ákveðinn 400 milljónir, útgerðar
240 milljónir og endurstofnverð
fasteigna 100 milljónir. Raforku-
notkun er áætluð 1 milljón kWh á
ári miðað við 4000 klst. nýtingu
skv. afltaxta, húshitun ýmist með
raforku (300 þús. kWh/ári) eða
sambærileg hitaveita sem svarar
til 6,500 rúmmetrum af heitu
vatni. Kaldavatnsnotkun er áætl-
uð 40 þús. tonn á ári.
Það sem mestu skiptir um mun
á Skagaströnd og öðrum sveitar-
félögum á Norðurlandi í könnun-
inni eru aðstöðugjöldin. Á með-
an umrætt fyrirtæki þyrfti að
greiða 5,2 milljónir í aðstöðu-
gjald fiskvinnslunnar á Skaga-
strönd væri sama gjald á bilinu 3-
3,4 milljónir á hjá öðrum sveitar-
félögum. Svipað er uppi á ten-
ingnum hvað varðar aðstöðu-
gjald útgerðarinnar en þó skal
þess getið að þar er Húsvik í sér-
flokki enda í hópi þeirra sveitar-
félaga sem leggja á lægstu pró-
sentu í aðstöðugjaldi útgerðar.
Þau sveitarfélög á Norðurlandi
sem könnunin nær til, auk Húsa-
víkur og Skagastrandar, eru
Sauðárkrókur, Siglufjörður,
Akureyri, Ólafsfjörður og
Þórshöfn. í heild hefði þetta
fyrirtæki greitt 11,6 milljónir í
þjónustugjöld á Sauðárkróki,
12,2 milljónir á Siglufirði, 11,8
milljónir á Akureyri, 11,3 millj-
ónir á Ólafsfirði. og 12,1 milljón
á Þórshöfn. JÓH
Krafa skólanefndar Þelamerkurskóla þess efnis að vatns-
magn í farvegi Hörgár við austurbakkann verði minnkað:
„Misskilnings gætir í málfhitningT
- segir Guðmundur Steindórsson, ráðunautur Búnaðarsambands Eyjagarðar
erindi var gerö eftirfarandi
bókun á fundi skólanefndar:
„Skólanefnd hefur móttekið
Á fundi skólanefndar Þela-
merkurskóla 21. janúar sl. var
tekiö fyrir erindi frá skóla-
stjóra Þelamerkurskóla varð-
andi framkvæmdir í farvegi
Hörgár. í framhaldi af þessu
Sunnudagaskóli Húsavíkurkirkju:
Felldur niður um óákveðinn tíma
- aðeins 10-15 börn mæta í kirkjuna eftir áramótin
„Aðsókn hefur verið frekar
dræm eftir áramótin, það hafa
komið 10-15 börn auk for-
eldra. Þessi ákvörðun var tek-
in til að vekja fólk til umhugs-
unar,“ sagði sr. Sighvatur
Karlsson, aðspurður um þá
ákvörðun sóknarprests og
sóknarnefndar Húsavíkur-
kirkju að fella niður sunnu-
dagaskóla við kirkjuna um
óákveðinn tíma vegna lítillar
þátttöku. Sóknarbörn við
Húsavíkurkirkju eru alls um
2600.
„Það hefur verið deyfð yfir
aðsókn að sunnudagaskólanum í
vetur, hvað sem því veldur. Það
getur vel verið að það vanti boð-
skipti milli kirkjunnar og heimil-
anna í bænum. í hvert sinn sem
foreldrar bera börn sín til skírnar
þá fá þeir að heyra þau tilmæli frá
prestinum sínum að þau kenni
barni sínu að elska Guð, tilbiðja
hann, varðveita orð hans og
sakramenti og þjóna náunganum
í kærleika. Með þessum orðum
er lögð áhersla á trúarlegt upp-
eldishlutverk foreldra skírnar-
barna því að í skírninni hefst
þátttaka barnsins í kristinni
kirkju. Trúarlegt uppeldi skírn-
arbarna innan veggja heimilanna
er mjög mikilvægt þar sem þau
læra af foreldrum sínum að biðja
frá eigin brjósti eða þá að þau
læra tiltekin bænavers og faðir-
vorið. En þátttaka skírnarbarna í
barnastarfi kirkjunnar er einnig
stór þáttur í trúaruppeldi hvers
barns. En þar fá þau að heyra
ýmsar sögur úr lífi og starfi Jesú
Krists ásamt siðferðilegum dæmi-
sögum sem miða að því að þau
finni til þeirrar ábyrgðar sinnar
að hjálpa náunganum,“ sagði sr.
Sighvatur.
Hann sagði að þrátt fyrir að
sunnudagaskólinn hefði verið
felldur niður mætti alltaf endur-
skoða þá ákvörðun og það stæði
ýmislegt til varðandi barnastarf-
ið. Næsta sunnudag væri Æsku-
lýðsdagur þjóðkirkjunnar og þá
yrði samverustund með börnum
og unglingum kl. 11. Þann 8.
mars kæmi sr. Sigurður Pálsson,
framkvæmdastjóri Biblíufélags-
ins, og mundi spjalla við börnin
auk þess að predika við guðs-
þjónustu og flytja erindi í Kirkju-
bæ. Og þann 22. mars kæmi sr.
Pétur Þórarinsson í heimsókn
með börn úr sínum sunnudaga-
skóla, auk kirkjukórsins.
Sr. Sighvatur Iét vel af sam-
skiptum við starfsfólk sunnu-
dagaskólans sem hann sagði
nokkuð margt. Hann sagði að
mesta aðsókn að sunnudaga-
skólanum hefði verið 140-150
börn, en frá því í haust hefðu þau
mest verið 50-60. Kannski hefði
jólafríið verið of langt, fyrsti
sunnudagaskólinn á árinu hefði
verið 26. jan. og síðan væri
aðsókn eins dræm og raun bæri
vitni.
Að sögn sr. Sighvats hefur
kirkjusókn verið lítil á Húsavík í
tugi ára. Hann sagði að kórfólkið
legði talsvert á sig við æfingar og
í haust hefði kirkjan fengið hjón
sem organista og kórstjóra, en
kirkjusókn virtist ekki aukast og
það væri leiðinlegt fyrir kórfólk-
ið. „Hvað mig varðar þá skiptir
höfðatalan í kirkjunni ekki öllu
máli, því þegar messað er í Húsa-
víkurkirkju þá fer fram guðs-
þjónusta á himnum um leið, þar
sem hinir himnesku herskarar
lofa Drottin,“ sagði sr. Sighvat-
ur. IM
erindi frá Karli Erlendssyni,
skólastjóra Þelamerkurskóla,
um breytingar á farvegi Hörg-
ár við skólann. Skólanefnd
stendur heils hugar að sam-
þykkt þess efnis að mótmæla
þessari framkvæmd harðlega
vegna hættu sem sundlaug
stafar af henni og ekki síður
vegna nemenda skólans sem
oft eru þarna við störf og leik.
Skólanefndin krefst þess að
vatnsmagn í farvegi Hörgár við
austurbakkan verði minnkað“.
Karl Erlendsson, skólastjóri,
segir að á síðari árum hafi Hörgá
brotið niður vesturbakkana og
landeigendur í Skriðuhreppi og
Arnarneshreppi hafi staðið í
framkvæmdum til að verja engja-
lönd sín. Bændur hafa notið
stuðnings Landgræðslu ríkisins
við framkvæmdirnar. „Fyrir
tveimur árum var hafist handa og
síðan aftur í haust. Það sem ein-
faldlega hefur gerst er að Hörgá
hefur verið sett öll að austur-
bakkanum og rennur því af full-
um þunga meðfram skólanum.
Þessi framkvæmd var gerð án
samkomulags við skólanefnd
Þelamerkurskóla og án samráðs
við sýslumann sem er umsjónar-
maður landsins, en Legatsjóöur
Jóns Sigurðssonar á jörðina. Við
óttumst um sundlaugina er stend-
ur á horni er skagar út í Hörgá.
Að óbreyttu mun Hörgá grafa
undan mannvirkinu og þá væri
illa komið. Rætt hefur verið um
að verja undirstöður sundlaugar-
innar en lítið bólar á fram-
kvæmdum og í erindi mínu benti
ég einnig á að skólabörnunum
stafar hætta af beljandi ánni hér í
túnfætinum," sagði Karl Erlends-
son, í samtali við Dag og Karl
bætti við: „Ég hef ekki orðið var
við að neinar deilur væru í gangi,
en okkur þótti miður að við
skyldum ekki vera með í ráðum
þannig að hagsmunum skólans
væri borgið".
Guðmundur Steindórsson,
ráðunautur hjá Búnaðarsam-
bandi Eyjafjarðar, hefur verið
verkefnisstjóri við framkvæmdir
vegna farvegsbreytinga í Hörgá
og hann segir að nokkurs mis-
skilnings gæti í málflutningi
skólastjóra sem skólanefndar.
Ráðunauturinn segir að við fram-
kvæmdir í haust hafi álagið á
austurbakkann minnkað stórum,
en engu að síður hafi Hörgá brot-
ið úr bakkanum sunnan sund-
laugarinnar. „Ljóst er að mann-
virkjum verður ekki fórnað og
gripið verður til allra tiltækra
aðgerða sé þess þörf, en ekki
horfir til þess sem stendur og
myndin er stórýkt,“ sagði Guð-
mundur Steindórsson. ój
Fiskeldi EyjaQarðar hf.:
Kannar með leigu á fiskeldisstöð til lúðueldis
„Fiskeldi Eyjafjarðar hf. er að
leita fyrir sér með leigu á
fiskeldisstöð til lúðueldis. Við-
ræður eru hafnar við Fram-
kvæmdasjóð vegna leigu á
aðstöðu Isþórs í Þorlákshöfn,
en Framkvæmdasjóður er eig-
andi stöðvarinnar,“ segir Ólaf-
ur Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Fiskeldis Eyjafjarðar hf.
Ólafur segir að með bættum
árangri á Hjalteyri sé svo komið
að Fiskeldi Eyjafjarðar hf. verði
að líta til framtíðar þ.e. lýtur að
lúðueldinu. „í fyrra fengust 80
lítrar af hrognum og klakið gekk
mjög vel. Seiðin voru flutt til
Grindavíkur og þar fer fram 'til-
raunaeldi við mismunandi hita-
stig og fóður. Seiðin hafa dafnað
mjög vel. í stöðinni á Hjalteyri er
allt á fullu. Fyrsta hrygnan
hrygndi um sl. helgi, en um 30
kynþroska lúður eru í stöðinni.
Hrognamagnið verður nægilegt.
Af fyrri árangri með klak má ætla
að seiðamagnið verði verulegt og
því vantár okkur aðstöðu fyrir
eldið. Ekki er rökrétt að byggja
yfir starfsemina þar sem fjöldi
stöðva eru á lausu og aðrar van-
nýttar. Stöð ísþórs myndi henta
okkur vel og nú er að sjá hvort
við náum samningum við Fram-
kvæmdasjóð,“ sagði Ólafur Hall-
dórsson. ój