Dagur - 19.03.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur
Akureyri, fimmtudagur 19. mars 1992
55. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Húsavík:
Kolbeinsey fékk 80 tonn
af ufsa á 12 tímum
Kolbeinsey ÞH-10 kom til
heimahafnar á Húsavík með
155 tonn á þriðjudag, eftir viku
veiðiferð. Uppistaða aflans var
ufsi og fékk skipið 80 tonn af
ufsa á 12 tímum. í lokin sprakk
trollið er skipverjar náðu 30-40
tonna hali. Kolbeinsey lét reka
meðan skipverjar luku við að
gera að aflanum, en þeir stóðu
alls 26 tíma við aðgerð áður en
skipið lagðist að bryggju.
Skipstjóri á Kolbeinsey er
Kísiliðjan:
Eldur laus í
rafinagnstöflu
- tveggja vikna
framleiðslustöðvun
Vinnsla stöðvaðist í Kísil-
iðjunni hf. í Mývatnssveit sl.
sunnudag er skammhlaup
varð í rofa og eldur laus í
töfluherbergi fyrirtækisins.
Starfsmenn rufu strauminn
og við það slokknaði eldur-
inn, skemmdir urðu tölu-
verðar en engin slys á
mönnum.
„Það rofar til í þcssu,1* sagði
Róbert B. Agnarsson, fram-
kvæmdastjóri Kísiliðjunnar,
aðspurður um afleiðingar
brunans. Hann reiknar með
að framleiðsla stöðvist í tvær
vikur eða jafnvel lengur. Kísil-
iðjan stöðvar mjög sjaldan
vélabúnað sinn og þar er unn-
ið allan sólarhringinn svo til
árið um kring.
Tjónið sem bruninn olli hef-
ur ekki verið metið. Róbert
sagði að stoppið kæmi sér illa
fyrir Kísiliðjuna en hún væri
þokkalega stödd hvað birgðir
varðaði og ætti að geta þjónað
sínum viðskiptavinum.
Róbert tekur við stöðu
bæjarstjóra í Mosfellsbæ 1.
maí nk. en Friðrik Sigurðsson
við stöðu framkvæmdastjóra
Kísiliðjunnar. Aðalfundur
Kísiliðjunnar verður haldinn
30. apríl. IM
Benjamín Antonsson.
Kolbeinsey heldur á karfaveið-
ar og siglir með afla sinn eftir
næstu veiðiferð, og mun væntan-
lega landa í Bremerhaven 9. eða
10. apríl.
Aðalfundur íshafs, útgerðar-
fyrirtækis Kolbeinseyjar, verður
haldinn 24. mars nk. Er þetta
fyrsti aðalfundurinn hjá fyrir-
tækunum þremur, íshafi, Höfða
og Fiskiðjusamlagi Húsavíkur,
sem haldinn er í ár, en ákveðið
hefur verið að hefja sameiginleg-
an rekstur þeirra. Á aðalfundi
íshafs verður því skipuð ný
stjórn, sameiginleg fyrir fyrirtæk-
in þrjú, og mun hún taka ákvarð-
anir um framhaldið á rekstri
þeirra. IM
Komdu þér úr pollinum!!!
Mynd: Golli
Náttúrulækningafélag Akureyrar:
Andvirði Sogns í Olfiisi mun renna
til byggingar Kjamalundar
- einstaklingur gefur 1,5 milljónir til byggingarinnar
Á aöalfundi Náttúrulækninga-
félags Akureyrar, sem haldinn
var síðastliðið þriðjudagskvöld
var tilkynnt um að einstakling-
ur, sem ekki vill láta nafns síns
getið, hafi ákveðið að gefa
eina og hálfa milljón króna til
byggingar Kjarnalundar. Á
fundinum kom einnig fram að
ef væntanleg sala á eignum
Náttúrulækningafélags íslands
á Sogni í Ölfusi verði að veru-
leika þýði það gjörbyltingu fyr-
ir framkvæmdir við Kjarna-
lund á Akureyri þar sem veru-
legum hluta söluverðmætisins
verði þá væntanlega varið til
uppbyggingar Kjarnalundar.
Þá veitti fundurinn stjórn
félagsins heimild til að kannað-
ir verði möguleikar á stofnun
hlutafélags um Kjarnalund í
framtíðinni.
Vilhjálmur Ingi Árnason, for-
maður Náttúrulækningafélags
Akureyrar, sagði gleðilegt til
þess að vita að enn væri til fólk
sem væri reiðubúið að leggja
stórar upphæðir fram því bygging
Kjarnalundar væri að miklu leyti
gerð fyrir framlög einstaklinga og
félagasamtaka. Vilhjálmur Ingi
sagði ennfremur að ef fyrirhuguð
sala á eignum Náttúrulækninga-
félags íslands á Sogni yrði að
veruleika, sem allar líkur væru á,
þá myndi hún skipta sköpum
fyrir framkvæmdirnar í Kjarna-
lundi. Gert væri ráð fyrir að sölu-
verðmæti eignanna á Sogni sé á
bilinu 30 til 40 milljónir króna.
Trúlega verði einhverjum hluta
þess ráðstafað til greiðslu skulda
en þrátt fyrir það verði verulegur
hluti þess eftir til ráðstöfunar fyr-
ir bygginguna í Kjarnalundi.
Mögulega geti þar verið um að
ræða upphæð á bilinu 25 til 30
milljónir króna.
Akureyrarbær hefur gefið
fyrirheit um fjárframlag til
Bæjarráð Siglufjarðar:
Yfirstjóm og skrifstofu-
hald SR verði á Siglufirði
I athugasemdum sem bæjarráð
Siglufjarðar hefur gert við
frumvarp til laga um stofnun
hlutafélags um rekstur Síldar-
verksmiðja ríkisins kemur
m.a. fram það álit að nauðsyn-
legt sé að í lögunum komi skýrt
fram að heimilisfang SR verði
á Siglufirði.
í fyrirliggjandi frumvarpi um
að breyta Síldarverksmiðjum
ríkisins í hlutafélag er ekki gert
ráð fyrir ákveðnu heimilisfangi
SR, en í athugasemdum bæjar-
ráðs Siglufjarðar kemur fram að
eðlilegt sé að yfirstjórn og skrif-
stofuhald SR verði á Siglufirði
þar sem afkastamesta verksmiðja
fyrirtækisins sé staðsett.
í bókun bæjarráðs um frum-
varpið kemur fram að samkvæmt
gögnum sem bæjarráð hafi undir
höndum virðist augljóst að niður-
felling skulda að upphæð 500
milljónir króna nægi engan veg-
inn til þess að gera hlutafélagið
rekstrarhæft. Af þeim sökum sé
nauðsynlegt að liggi ljóst fyrir
hvert hlutafjárframlag ríkisins
verði. „Við viljum auðvitað að
tryggt verði að Síldarverksmiðjur
ríkisins geti starfað í framtíðinni.
Annars er engin ástæða tii þess
að breyta rekstrarformi fyrir-
tækisins,“ sagði Ólöf Kristjáns-
dóttir, formaður bæjarráðs Siglu-
fjarðar. óþh
Kjarnalundar ef Náttúrulækn-
ingafélaginu takist einnig að
útvega fjármagn annarsstaðar
frá. Vilhjálmur Ingi sagði að ef
þessi mál gengju eftir á næstu
dögum eins og búist væri við yrði
hafist handa um að ræða við for-
ráðamenn Akureyrarbæjar og
kanna hvort bæjarfélagið myndi
ekki standa við sín fyrri fyrirheit.
Ef svo yrði væri búið að útvega
fjármagn til að ljúka fram-
kvæmdum við Kjarnalund að
mestu og því mætti fara að horfa
til þess að starfsemi hæfist þar.
Aðalfundur félagsins veitti
stjórn þess síðan heimild til þess
að kanna hvort æskilegt væri að
gera eignarhald Kjarnalundar að
hlutafélagi í framtíðinni og gefa
þannig fleiri aðilum kost á að
vera með sem beinir eignaraðilar
að þessum framkvæmdum. Vil-
hjálmur Ingi sagði að fram til
þessa hefði fjáröflun vegna fram-
kvæmdannan byggst að miklu
leyti á gjafafé en margt væri nú
breytt í þjóðfélaginu síðan hafist
var handa um byggingu Kjarna-
lundar og því væri nú talinn kost-
ur að stofna hlutafélag um þessa
eign. Vilhjálmur Ingi sagði enn-
fremur að í framhaldi af þessu
yrði farið að kanna með rekstur
Kjarnalundar og til að byrja með
yrði haft samband við heilbrigðis-
yfirvöld og læknafélög í Norður-
landskjördæmi eystra og rek-
straráætlun endurunnin í samráði
við þessa aðila þannig að tryggt
verði að verkefnin nýtist innan
heilbrigðisgeirans á þessu svæði.
ÞI
„Leiðindaástand
á loðnunni núna“
„Það er leiðindaástand á
loðnunni núna. Hún veiöist
bara et'tir hádegi á daginn,
liggur á botninuni á morgn-
ana og keinur upp yflr hádag-
inn en hverfur þegar fer að
dimma. Þannig hefur þetta
verið síðustu daga,“ sagði
Aðalgeir Bjarnason, skip-
stjóri á loönuskipinu Björgu
Jónsdóttur ÞH, í gær.
Aðalgeir sagði aö veiðisvæöiö
væri nú við Snæfellsnes. Greini-
legt sé að loönan er komin í
hrygningarástand og því hægi á
veiðinni. Spurningiri sé hvort
komi ný ganga upp að landinu
vestan rnegin frá cn eftir tnæl-
ingu á henni bættu fiski-
fræðingar 50 þúsund tonnum
við loönukvótann á dögunutn.
„Ef þessi ganga kemur þá
bætist hálfur mánuður víð í
veiðinni. Viö höfum ekki enn
orðið varir við hana en mér
skilst að yfirleitt koiui hún allt í
einu. Ef hún kemur þá verður
það ábyggilega dálítið ntagn,“
sagðj Aðalgeir.
Björg Jónsdóttir hefur aflað
um 11 þúsund tonna á vertíð-
inni og sagði Aðaigeir að skipiö
ætti nú eftir af kvöta sem svarar
5 fullfermistúrum. Verði veður
skaplegt og veiði hakiist næsta
hálfa mántiðinn þá muni sá
kvóti nást. JÓH