Dagur - 19.03.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 19. mars 1992
Fréttir
Reiðhöllin:
Mikill emhugur á Norðlenskum hestadögum
- fegurðardrottningin í söðli og tveir hestar á flugstökki með einn mann
„Það er gífurleg samstaða og
einhugur í öllum við undirbún-
ing sýningarinnar. Ég spái því
að þetta sé upphafið að öðru
og meira samstarfi,“ sagði
Baldvin Kr. Baldvinsson í gær,
en þá var hann staddur í Reið-
höllinni í Reykjavík við undir-
búning Norðlenskra hestadaga,
fjölbreyttrar sýningar sem þar
verður haldin nk. fimmtudag,
föstudag, laugardag og sunnu-
dag. Það eru hestamenn í
Húnavatnssýslum, Skagafirði,
Eyjaiirði, Þingeyjarsýslum og
Hólaskóla sem að sýningunni
standa og ganga æfingar vel,
að sögn Baldvins.
Dagskrá sýninganna er fjöl-
breytt. Hún hefst með fánareið
norðlenskra hestamannafélaga
og því að blásið er til leiks af Atla
Guðlaugssyni trompetleikara.
Allar þrjár sýningarnar hefjast
kl. 20.30.
í næsta atriði sýna nemendur
frá Hólaskóla taumhringsvinnu
sem Eyjólfur ísólfsson stjórnar.
Síðan verða stóðhestar sýndir,
þar á meðal Hjörtur frá Tjörn,
eign Hrossaræktarsambands
Eyfirðinga og Þingeyinga. Tölt-
arar koma fram, þar á meðal
þekktir hestar, Hausti og Fálki.
Sex afkvæmi Elds 950 frá Stóra-
Hofi verða sýnd. Hann er í eigu
hrossaræktarsambandanna í
Húnavatnssýslum.
Unglingar frá Hestamannafé-
laginu Létti á Akureyri koma
fram á sýningu sem Kolbrún
Kristjánsdóttir, æskulýðsfulltrúi
FH, stjórnar. Síðan verður sýnd-
ur þáttur úr þjóðsögum um sr.
Magnús. Nemendur Hólaskóla
sýna munsturreið. Kynbótahryss-
ur í B-flokki verða sýndar. Atriði
úr þjóðsögunum um sr. Odd frá
Miklabæ verður sýnt.
Þá er komið að hléi á dag-
skránni og sýningargestum gefst
kostur á að skoða iðnaðarvörur
sem Norðlendingar hafa á boð-
stólum í sýningarbásum.
Hólanemendur munu síðan
sýna hindrunarstökk sem Eyjólf-
ur ísólfsson stjórnar. Kynbóta-
hryssur í A-flokki koma fram, en
Páll Bjarki stjórnar því atriði.
Tveir glæsilegir töltarar af
Norðurlandi eru næstir, en síðan
ræktunarsýning frá Leifi í Keldu-
dal. Síðan er munsturreið sem
fjöldi hesta tekur þátt í.
Nemendur Hólaskóla hafa
skorað á einn fremsta hesta-
íþróttakeppnismann landsins,
Sigurbjörn Bárðarson, í einvígi
um hæsta stökk á hesti. íþrótta-
hestar verða kynntir undir stjórn
Hermanns Ingasonar og fleiri.
Fegurðardrottning Norður-
lands, Pálína Halldórsdóttir,
kemur fram ríðandi í söðli.
Baldvin vildi taka það sérstak-
lega fram að Pálína kæmi ekki
fram á sundbol á sýningunni, eins
og fram hefði komið í útvarps-
umfjöllun. Húnvetnskur póstur
heitir glæsilegt atriði úr Húna-
vatnssýslu, sem felst í því að
ísólfur Þórisson stendur samtímis
á tveimur hestum sem hann
hleypir á flugstökk.
Næstur á dagskrá er sjálfur
Djákninn á Myrká. Síðastur
kemur glæsilegur hestur, Hrímn-
ir frá Hrafnagili, eigandi og knapi
er Björn frá Varmalæk. „Ég hef
heyrt að Hrímnir hafi aldrei verið
betri,“ sagði Baldvin. I lokin er
sýningin blásin af og hún endar
með mikilli blyssýningu.
Aðgangur að sýningunni kost-
ar 1000 krónur fyrir fullorðna en
500 krónur fyrir yngri en 12 ára.
Flugleiðir bjóða helgarpakka frá
Húsavík, Akureyri og Sauðár-
króki í sambandi við sýninguna.
IM
Heildarafli fyrstu sex mánuði kvótaárs:
saman
um rúm 15 þúsund tonn - grálúðuveiðin hefur stóraukist
Heildarafli fyrstu sex mánuði
yfirstandandi fiskveiðiárs nem-
ur 559.245 tonnum samkvæmt
bráðabirgðatölum frá Fiskifé-
lagi Islands. Eins og kunnugt
er hófst fiskveiðiárið 1. sept-
ember 1991 og stendur til 31.
ágúst 1992.
Sé litið til einstakra fiskteg-
unda þá hefur þorskaflinn
minnkað í ár sé miðað við sama
tíma í fyrra. Þorskur hefur vart
gefið sig á togslóð síðustu mán-
uði og þorskaflinn minnkar á
íslandsmiðum ár frá ári. Sjó-
menn og útgerðarmenn jafnt sem
fiskifræðingar hafa miklar
áhyggjur vegna þessa.
Frá 1. september 1991 til 29.
febrúar 1992 bárust 99.582 tonn
af þorski á land en 1. september
1990 til 28. febrúar 1991 115.074
tonn. 125.381 tonn bárust hins
vegar á land frá 1. september
1989 til 28. febrúar 1990.
Ýsuaflinn hefur einnig dregist
saman. Atján þúsund og eitt
hundrað tonn voru komin á land
Föstudagur:
Hinir geðþekku gleðigjafar
Sniglabandið
í sínu allra besta formi
Ath! Nýr rótari - Miðaverð kr. 1.000
Laugardagur:
Skagfirski sveiflukóngurinn
Geirmundur Valtýsson
ásamt hljómsveit
Nú mæta allir!
Guðmundur Hjálmarsson
heiðursgestur kvöldsins
Miðaverð kr. 1.000
Fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld:
Ingvar Grétarsson n_rtU ^
í bænurí'
Fimmtudagur:
Happy hour kl. 21.30-22.30
Snyrtilegur klæðnaður
Borðapantanir I síma 24199
BesW
29. febrúar en á sama tíma í fyrra
voru tonnin 31.663.
Svipað er að segja um ufsann
og þorskinn og ýsuna, en karfa-
veiðin er á sömu nótum og í
fyrra. Grálúðuveiðin hefur gefið
mun betur í ár en í fyrra, enda
hefur sókn í grálúðu stóraukist,
sem er afleiðing þess að illa hefur
gengið með þorskinn.
Sé litið á samanlagðar aflatölur
bolfisks þá eru á kvótaárinu nú
komin 228.070 tonn á land. Við-
hlítandi tala frá í fyrra er 245.805
tonn. Árið áður var hún 343.822.
Síldveiðar hafa gengið betur í
ár en í fyrra. í lok febrúar voru
92.744 tonn komin á land á móti
90.331 tonnum í fyrra. Loðnu-
veiðin hefur gengið mun betur
sem alþjóð veit. Um síðustu
mánaðamót var aflinn 418.833
tonn, en í byrjun mars í fyrra
222.353 tonn. Rækjuaflinn hefur
einnig aukist, en hörpuskelsveið-
in dregist saman.
í lok febrúar 1990 var heildar-
afli íslendinga 913.873 tonn eftir
hálfs árs úthald. í fyrra í byrjun
mars var hann 577.462 tonn, en
þar munaði mestu um að loðnu-
veiðarnar brugðust. í ár hefur
loðnan aftur komið inn í aflatölur
Sérkjarasamningur
á Blönduósi:
Samþykktur
af báðum
aðilum
Sérkjarasamningur á milli
Verkalýðsfélags Austur-Húna-
vatnssýslu og Blönduósbæjar,
sem undirritaður var með
fyrirvara í síðustu viku, hefur
verið samþykktur bæði af
bæjarstjórn og verkalýðsfé-
lagi. Fyrirhuguðu framhaldi á
verkfallsaðgerðum á Ieik-
skólanum Barnabæ hefur því
verið aflýst.
„Ég er nokkuð ánægður með
þennan samning, en hann hefur í
för með sér um 7% meðaltals
hækkun á launum hjá starfs-
mönnum bæjarins í A- og B-
launaflokkum. Byrjendalaun í
A-flokki hækka t.d. úr 46 þús.
krónum í nær 54 þús. krónur og
það eru náttúrlega lægstu launin
sem við erum alltaf að berjast
fyrir að hækki,“ segir Valdimar
Guðmannsson, formaður Verka-
lýðsfélags Austur-Húnavatns-
sýslu.
Valdimar segir að auk þess
sem beinar launagreiðslur hækki,
verði smávægilegar breytingar
varðandi orlof starfsmanna og
fatapeninga. Hann segist persónu-
lega ennþá ekki vera ánægður, en
miðað við sérkjarasamning hafi
ekki verið hægt að vænta þess að
ná mikið lengra. SBG
í auknu mæli og heildaraflinn er
því 759.245 tonn. ój
■ í bókun bæjarráðs frá 12.
febrúar er lýst yfir ánægju með
núverandi þjónustu sérleyfis
áætlunarbifreiða til og frá
Siglufirði og óskað eindregið
eftir því að núverandi sérleyf-
ishafar haldi sínum sérleyfum
við endurúthlutun þeirra.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að taka tilboði Magnúsar
Eiríkssonar í áhorfendapalla í
íþröttahús. Tilboð hans var
lægst fimm tilboða í verkið og
hljóðaði upp á 487.920 kr.,
sem er 65,4% af 746.385 kr.
kostnaðaráætlun. Aðrir sem
gerðu tilboð eru Ólafur Kára-
son, Hjálmar Jóhannesson,
Sigurður Konraðsson og Berg
hf.
■ Sóiveig Jónsdóttir hefur
boðið Siglufjarðarbæ til sölu
máíverk af Hvanneyri við
Siglufjörð eftir Svein Þórarins-
son. Bæjarráð fjallaði um
erindið og þakkaði boðið en
hafði ekki áhuga á kaupunum.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að nýta sér ekki forkaupsrétt
að hlutafjáraukningu í Ferða-
bæ.
■ Bæjarráð hefur hafnað
erindi Framtaks hf. um bæjar-
ábyrgð og er vísað til þess að
samkvæmt sveitarstjórnarlög-
um sé óheimilt að veita slíkar
ábyrgðir.
■ Ekkert verður framkvæmt
við Siglufjarðarhöfn í ár, en á
árunum 1993 og 1994 gerir
hafnarnefnd ráð fyrir að unnið
verði við nýja viðlegukantinn,
raflagnir, vatnslagnir og þekju,
auk þess sem sett verði upp
ljósamastur og löndunarkrani.
Við innri höfnina verði stefnt
að því að koma fyrir raflögnum
og vatnslögnum. Einnig verði
stefnt að því að fá dýpkun við
nýja viðlegukantinn og breikka
rennuna að innri höfninni.
■ Kristján Rögnvaldsson,
hafnarvörður, hefur lagt til að
nýja viðlegukantinum verði
gefið nafnið Ingvarsbryggja t
höfuðið á Ingvari Guðjóns-
syni, útgerðarmanni. Hafnar-
nefnd hefur samþykkt þessa
nafngift.
■ Bygginga- og skipulags-
nefnd hefur samþykkt erindi
fþróttabandalags Siglufjarðar
um Ieyfi til aö byggja kvist á
austurhlið skemmunnar á
Hóli, en ráðgert er að nota þá
aðstöðu sem við þessa breyt-
ingu skapast fyrir tímatöku á
göngumótum.