Dagur - 19.03.1992, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 19. mars 1992 - DAGUR - 9
Frá fundinum á Hótel KEA.
Mynd: Golli
BÍLASÝNING
*\A Sýnum allt þaö nýjasta frá ww Volkswagen og Mitsubishi Sérstök kynning á nýjum Gol A MITSUBISHI MOTORS f
Bíll ársins í Evrópu 1992
gisin og fámenn að verslun leggist
af. Það er hlutdeild viðskipta-
ráðuneytis að fylgjast með versl-
un og viðskiptum í landinu og
skapa þessari starfsemi heilbrigt
umhverfi. Menn greinir ef til vill
á um einstaka þætti þess ramma
sem lög og reglur mynda um
verslunina, en stöðugt er verið að
endurskoða og leita leiða til að
bæta þetta starfsumhverfi.“
í framhaldi greindi skrifstofu-
stjórinn frá nefndarstörfum á
vegum ráðuneytis og kaupmanna-
samtaka þar sem fjallað var um
vanda lansbyggðarverslunar.
Vestfirðir fengu sérstaka
umfjöllun, en þar er vandinn
hvað mestur. Skrifstofustjórinn
lagði út frá niðurstöðum könnun-
ar er Sigurður Jónsson, verslun-
arráðgjafi, hafði gert á viðskipta-
háttum á Vestfjörðum og í loka-
orðum sagði Atli Freyr Guð-
mundsson:
„Dagvöruverslun á landsbyggð-
inni er á vegamótum, en ekki er
hægt að standa í stað. Verslunin
verður fyrst og fremst að treysta
á sjálfa sig við að leysa vandamál
sín og marka stefnu til framtíðar.
Vinnubrögðin verða að vera fag-
leg og markviss. Traustar upplýs-
ingar verða að liggja til grund-
vallar ákvörðunum og ef til vill
þarf víðtæka samvinnu til að ná
besta árangri. Viðskiptaráðu-
neytið mun eftir megni styrkja
slíka þróun.“
Smásöluverslunin nýtur
ekki sannmælis
„Mér finnst oft að smásöluversl-
unin njóti ekki sannmælis. Þetta
er sú grein er skapar 45% af inn-
lendri framleiðslu og veitir 7% af
launþegum atvinnu, reyndar 9%
ef við undanskiljum opinbera
geirann. Þúsundir fasteigna eru
lagðar undir þessa starfsemi út
um allt land. Sá misskilningur
virðist lifa góðu lífi að smásölu-
verslunin eigi aðeins minni háttar
þátt í að skapa þjóðarauð á ís-
landi, að hún búi í sjálfu sér ekki
yfir hagvaxtaráhrifum né atvinnu-
sköpun. Þetta má að nokkru leyti
rekja til þess að Háskólinn og
þeir aðilar er fást við rannsóknir
á atvinnuvegunum hafa ekki
sinnt þessari grein, hún hefur
verið afskipt,“ sagði Sigurður
Jónsson, verslunarráðgjafi, er
var fjórði framsögumaður fund-
arins að Hótel KEA.
Yfirskrift ræðu Sigurðar var
„Er framtíðin falin í „keðjum“?“
Sigurður byggði ræðu sína á fag-
legum grunni þar sem stuðst var
við glærur mönnum til glöggv-
unar. Sigurður kvaðst ekki boða
mönnum neinn „Stóra sannleik",
en hann velti upp ýmsum hug-
myndum og sjónarhornum um
verslunarhætti.
Að afloknum framsöguerind-
um tóku nokkrir fundarmenn til
máls þar á meðal Jóhannes kaup-
maður í Bónus. Hann vakti máls
á því að afar eðlilegt væri að
verslun á íslandi stæði höllum
fæti. Hann vildi kenna um að fag-
leg kennsla verslunarfólks væri
ekki fyrir hendi.
Um landsbyggðarverslunina
sagði Jóhannes: „Eg á eina lausn
til að styrkja landsbyggðarversl-
unina. Það er að leggja niður
Verðlagsstofnun og nota þá pen-
inga sem þar hafa farið í rekstur
og laun á ársgrundvelli til að
byggja upp landsbyggðarverslun-
ina. Verðlagsstofnun er úrelt
batterí. Bónus hefur tekið að sér
verðlagsvörslu fyrir fólkið í land-
inu. Verðlagsbatteríið sem við
höfum kallað yfir okkur er frá
annarri öld. í gegnum höft og
skammtanir erum við 25 árum á
eftir í verslunarháttum miðað við
nágrannaþjóðirnar.“ ój
Komið og reynsluakið
Opið: Laugard. ogsunnud. frá kl. 13-17
1 [h|heklahf j Íöldur sf.
~Biodroqa
SNYRTIVÖRI_I KVI\I l\l I l\IC3
Edda Hauksdóttir
snyrtifræöingur
verður hjá okkur
á morgun föstudag
frá kl. 13.00-1 8.00
og kynnir nýju
litalínuna frá
T3iodroqa
\0/o kynr/:
Veniö velkomin! '• /
snyntivörudeild
T3iodroqa
- lífrænar snyrtivörur