Dagur - 19.03.1992, Qupperneq 15
Fimmtudagur 19. mars 1992 - DAGUR - 15
ÍÞRÓTTIR
Jón Haukur Brynjólfsson
B-keppnin hefst í Austurríki í dag:
Alfreð Gíslason spáir í spilin og
kryfur leiki íslenska liðsins
- spáir erfiðum leik en þó sigri gegn Hollendingum
Þorbergur tók áhættu
Alfreð Gíslason, þjálfari KA-
liðsins í handknattleik, mun
verða blaðamönnum Dags inn-
an handar meðan B-keppnin í
Austurríki stendur yfir, kryfja
leiki íslenska liðsins og spá í
spilin. Islendingar leika sinn
fyrsta leik í keppninni í dag kl.
17 þegar liðið mætir Hollend-
ingum. Alfreð spáir erfiöum
leik en telur þó að Islendingar
fari með sigur af hólmi.
Alfreð segir möguleika íslands
á að komast í A-keppnina velta
mikið á því hvernig liðið smelli
saman í fyrstu leikjunum og þá
kannski sérstaklega í leiknum
gegn Norðmönnum. „Ég á von á
að það verði allt í járnum í fyrsta
leiknum gegn Hollendingum þótt
við eigum að vera með sterkara
lið. Fyrstu leikirnir í svona mót-
um eru alltaf mjög erfiðir, mikið
stress í mannskapnum, og ég spái
því að munurinn verði mjög lítill
þar til í lokin en þá sígi íslending-
ar framúr og vinni með svona 3-4
mörkum, segjum 23:19. Við ætt-
um að vinna Belga nokkuð
örugglega en Norðmenn gætu
orðið erfiðir. Hins vegar bind ég
vonir við að Norðmenn verði eins
og þeir eiga að sér í svona stór-
mótum. Þeir eru yfirleitt heims-
meistarar í æfingaleikjum en geta
svo ekkert þegar á hólminn er
komið. Þeir eru reyndar með
leikreynt lið núna en ég vona
bara að þeir sýni sitt „rétta“ and-
lit eins og undanfarin ár.“
Sóknarleikurinn
veikasti hlekkurinn
Alfreð segist telja að íslendingar
eigi að vera með eitt af fjórum
bestu liðunum en undirbúningur-
inn hafi ekki gengið allt of vel,
aðstaðan ekki verið nægilega góð
Góð heimsókn í Bláíjöll
9-12 ára skíðakrakkar frá
Akureyri gerðu það gott í
árlegri heimsókn sinni í Blá-
fjöll um síðustu helgi. Þar tóku
þeir þátt í íslandsbankamóti í
stórsvigi ásamt jafnöldrum sín-
um í Ármanni og unnu 34
verðlaun af 47 mögulegum.
Þetta er í þriðja sinn sem
Akureyringar fara í þessa heim-
sókn til Ármenninga og ríkti
mikil ánægja í hópnum með við-
tökurnar.
Eftirtaldir krakkar urðu í efstu
þremur sætunum í hverjum
flokki:
9 ára drengir
1. Eiríkur Ingi Helgason, Ak. 43,98
2. Egill Jóhannsson, Ak. 45,27
3. Jóhannes Soega, Árm. 51,13
9 ára stúlkur
1. Helga Björk Árnadóttir, Árm. 42,48
2. Ragnheiður T. Tómasd., Ak. 43,21
3. Erika S. Pétursdóttir, Árm. 46,70
10 ára drengir
1. Kristinn Magnússon, Ak. 38,25
2. Orri Pétursson, Árm. 43,40
3. Björn Birgisson, Árm. 43,58
10 ára stúlkur
1. Ása Katrín Gunnlaugsd., Ak. 40,12
2. Brynja Kristjánsdóttir, Ak. 40,17
3. Brynja Björk Guðmundsd., Ak. 41,08
11 ára drengir
1. Jóhann Pórhallsson, Ak. 33,67
2. Hjörtur Jónsson, Ak. 37,36
3. Ólafur R. Sigurðsson, Ak. 39,55
11 ára stúlkur
1. Rannveig Jóhannsdóttir, Ak. 37,46
2. Rósa María Sigbjörnsdóttir, Ak. 38.08
3. Dagný Linda Kristjánsd., Ak. 38,34
12 ára drengir
1. Óðinn Árnason, Ak. 33,77
2. Rúnar Friðriksson, Ak. 35,15
3. Andri Þór Magnússon, Ak. 38,01
12 ára stúlkur
1. Dögg Guðmundsdóttir, Árm. 35,87
2. Guðrún V. Halldórsdóttir, Árm. 38,13
3. María Benediktsdóttir, Ak. 38,22
Alfreð Gíslason.
og ekki gengið nægilega vel að fá
góða æfingaleiki. Hann spáir því
að sóknarleikurinn verði veikasti
hlekkur íslenska liðsins í keppn-
inni. „Hann er of óstöðugur og
ég er mjög hræddur um að hann
geti farið út í hálfgerða vitleysu
ef illa gengur. Markvarslan hefur
verið áhyggjuefni og var t.d. ekki
nógu góð í Tékkóslóvakíu en ég
er ekkert sérstaklega hræddur við
hana núna. Bergsveinn er t.d.
búinn að verja mjög vel í vetur,
reyndar með sterka vörn fyrir
framan sig en hann verður líka
með góða vörn þarna og ég á von
á að hann standi fyrir sínu.“
Aðspurður um valið á hópnum
segir Alfreð það sína skoðun að
Þorbergur hafi tekið mjög mikla
áhættu með því að velja aðeins
einn hornamann í vinstra hornið.
„Ég er alls ekki að skíta Konráð
neitt út en mér hefði frekar fund-
ist koma til greina að hafa aðeins
einn hornamann ef Jakob hefði
verið heill. Konráð er mjög góð-
ur hornamaður en hefur að mínu
mati varla nægilega reynslu til að
standa undir þessu. Ég hefði val-
ið annan hornamann með honum
og ef maður miðar út frá deilda-
keppninni hérna heima í vetur er
ekkert vafamál að það hefði orð-
ið Sigurpáll."
- Hvernig heldurðu að byrjun-
arliðið líti út í fyrsta leik?
„Ég hef trú á að Héðinn og
Bjarki byrji fyrir utan, Valdimar
og Konráð í hornunum og Gunn-
ar Andrésson á miðjunni. Ég hef
trú á að hann noti ekki Kristján í
þessum leik og láti Bjarka byrja
inná í staðinn fyrir Sigga. Hins
vegar er Þorbergur örugglega
strekktur fyrir þennan leik og
það kæmi mér ekki á óvart þótt
hann hefði alla örvhentu menn-
ina í hópnum. Bergsveinn byrjar
í markinu, Geir og Birgir sjá um
línuna, Siggi Bjarna verður vara-
maður vinstra megin og á miðj-
unni en Einar Gunnar hvílir,"
sagði Alfreð Gíslason.
Körfuknattleikur, 2. deild:
Laugaskóli áfram
með fiillt hús stiga
Síðasta umferö í Norðurlands-
riðli B í 2. deild Islandsmótsins
í körfuknattleik fór fram á
Laugum um síðustu helgi.
Iþróttafélag Laugaskóla hélt
uppteknum hætti og sigraði
með yfirburðum í riðlinum.
Aðeins þrjú lið áttu sæti í riðl-
inurn, ÍFL, Iþróttafélag Mennta-
skólans á Akureyri og Æskan úr
Skagafirði. ÍFL var með fullt hús
stiga eftir tvær fyrstu umferðirnar
og vann báða leikina um helgina,
Æskuna 71:56 og ÍMA 67:54.
Æskan vann síðan ÍMA 54:44.
Eins og fram kom í blaðinu í gær var lialdið Akureyrarmót í júdó í KA-hósinu um síðustu helgi. Ljósmyndari Dags,
Golli, var á staðnum og tók þessar myndir.
ÍFL varð í efsta sæti með 12 stig,
Æskan í öðru með 6 stig og ÍMA
rak lestina með ekkert stig.
Það verða því UFA og ÍFL
sem verða fulltrúar Norðurlands
í úrslitakeppni deildarinnar sem
fram fer í Reykjavík helgina 4.
og 5. apríl.
Þorsteinn Jónsson.
Steini seigur
í ftjálsum
Knattspyrnumaðurinn Þor-
steinn Jónsson frá Grenivík,
sem lék með Þór þar til í
haust að hann skipti í FH, er
farinn að láta að sér kveða í
frjálsum íþróttum. Hann
sigraði óvænt í 800 m hlaupi
á meistaramótinu sem fram
fór um síðustu helgi.
Þorsteinn hefur reyndar
keppt lítillega í frjálsum
íþróttum áður en þetta mun
vera í fyrsta sinn sem hann
keppir á meistaramóti. Sigur-
inn kom á óvart því Björn
Traustason úr FH var talinn
sigurstranglegastur. Keppt var
í tveimur riðlum og vann
Björn sinn auðveldlega. Í hin-
urn riðlinum lentu hins vegar
Þorsteinn og Jón Þ. Þorvalds-
son, UMSB, í mikilli keppni
þar sem Þorsteinn hafði betur
á endasprettinum og kom í
mark á besta tímanum. Björn
varð hins vegar að gera sér 3.
sætið að góðu.
Knattspyrna:
Greifamóti
frestað
Greifamóti 5. flokks í knatt-
spyrnu, sem fram átti að
fara í Iþróttahöllinni á
Akureyri á laugardag, hefur
verið frestað.
Ekki hefur verið ákveðið
hvenær mótið fer fram en það
verður auglýst þegar þar að
kemur.
Hverjir verða íslandsmeistarar
2. deildar?
Þór-ÍR
föstudaginn 20. mars kl. 20.30
í íþróttahöllinni
Fjölmennum og styðjum
okkar menn
Dregið í happdrætti í leikhlé.
Miði gildir sem aðgöngumiði.
Happdrættismiðar seldir í Hamri, Topp-sport,
Sporthúsinu og í íþróttahöllinni.
Fjölmennum í Flamar fyrir og eftir leik.
BLIKKRAS HF.