Dagur - 07.04.1992, Page 1
75. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 7. apríl 1992
68. tölublað
HERRADEILD
Gránutelagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Dalvík/Ólafsfjörður:
Tillaga um sam-
einingu hafnanna
Hafnarstjórnir Dalvíkur og
Ólafsfjarðar hafa náð sam-
komulagi um að leggja til við
bæjarstjórnir staðanna að
hefja undirbúning að stofnun
byggðasamlags um rekstur
hafnanna á þessum stöðum.
Segir í tillögunni að stefnt skuli
að undirritun stofnsamnings
Hafnasamlags Dalvíkur og
Ólafsfjarðar fyrir lok þessa árs
þannig að einn hafnarsjóður
taki við rekstrinum í byrjun
næsta árs.
Umræður um sameiningu
hafnanna hafa verið í gangi síðan
í ágúst 1990 þegar sett var á stofn
sameiginleg nefnd á vegum kaup-
staðanna. Nefndin hefur haldið
sex fundi, kynnt sér áætlanir
Hafnamálastofnunar um fram-
kvæmdir í höfnunum á næstu
árum og kynnt hugmyndir sínar
fyrir ráðherrum, þingmönnum og
hagsmunaaðilum.
I tillögu nefndarinnar er lagt til
að gerð verði sameiginleg fram-
kvæmdaáætlun fyrir báðar hafn-
irnar í samráði við samgöngur-
áðuneyti og þingmenn kjör-
dæmisins. Þar verði miðað við að
ljúka uppbyggingu fiskihafnar í
Ölafsfirði og vöru- og fiskihafnar
Grunur um
matrareitrun á
Dalbæ á Dalvík:
Beðið niðurstöðu
rannsóknar
á saursýnum
Við rannsókn á sýnum úr salt-
kjöti á Dalbæ á Dalvík kom
ekkert í Ijós sem gæti hafa
orsakað matareitrun hjá þrettán
íbúum og tveim starfsmönnum
Dalbæjar fyrir síðustu helgi.
Valdimar Brynjólfsson, heil-
brigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseft-
irliti Eyjafjarðar, segir að lík-
legra sé að matareitrunina megi
rekja til baunasúpu sem fólkið
borðaði, en ekki hafi náðst sýni
úr henni. „Við bíðum eftir niður-
stöðu rannsóknar á saursýnum úr
fólkinu,“ sagði Valdimar. óþh
á Dalvík. Er reiknað með að
þessar framkvæmdir komist inn á
hafnaáætlun fyrir árin 1993-96.
Á fundinum þar sem tillagan
var samþykkt ríkti mikill einhug-
ur um sameiningu hafnanna og
var tillagan samþykkt með
atkvæðum allra hafnarstjórnar-
manna á báðum stöðum. Kristján
Þór Júlíusson bæjarstjóri á Dal-
vík nefndi möguleikann á aðild
Árskógshrepps og Hríseyjar-
hrepps að slíku hafnarsamlagi.
Taldi hann ekki ráðlegt að þeir
yrðu með í upphafi, það flækti
málin einungis. Hins vegar kæmi
til greina að þeir gerðust aðilar
að því síðar. -PH
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari, lék með Kammerhljómsveit Akureyrar á tónleikum á Blönduósi og Akureyri um
helgina og var gerður góður rómur að leik þeirra. Mynd: Golli
Afgreiðsla Húsnæðisstofnunar ríkisins á umsóknum um félagslegar íbúðir:
Beðið eftir samuingum við
lífeyrissjóði um skuldabréfakaup
- sveitarstjórnarmenn mjög ósáttir við þann drátt sem orðið hefur á úthlutun
Yngvi Örn Kristinsson, for-
maður stjórnar Húsnæðis-
stofnunar ríkisins, segist vænta
þess að fljótlega eftir að búið
verður að semja við lífeyris-
sjóðina um skuldabréfakaup
verði unnt að ganga frá úthlut-
un fjár til byggingar félagslegra
íbúða víða um land.
Húsnæðisstofnun hafði gefið
út að stefnt væri að því að ganga
frá skiptingu fjár til byggingar
félagslegra íbúða um mánaða-
mótin febrúar-mars, en á því hef-
ur orðið verulegur dráttur. Yngvi
Örn Kristinsson segir að megin-
skýringin sé sú að dráttur hafi
orðið á samningum við lífeyris-
sjóðina um skuldabréfakaup, en
stefnt sé að því að þeim ljúki í
þessari viku og þá fari rnálin að
skýrast. „Þetta fléttast líka inn í
kjarasamninga. Þarna hefur
tvennt komið til. Annars vegar
fjöldi íbúða til úthlutunar og hins
vegar sjónarmið varðandi vexti
hjá Byggingarsjóði verkamanna.
Málið hefur því verið bundið á
ýmsa kanta, en ég vonast til þess
að það fari að skýrast, nema það
komi til með að flækjast aftur
vegna kjarasamninganna," sagði
Yngvi Örn.
Hann sagði ekki endanlega
liggja fyrir hversu margar íbúðir
yrðu til úthlutunar í ár. „Ég á von
á því að þær verði á bilinu 5-600,
sennilega nær neðri tölunni,“
sagði Yngvi Örn og vísaði til
greinargerðar með frumvarpi til
fjárlaga fyrir yfirstandandi ár, en
þar segir orðrétt um Byggingar-
sjóð verkamanna: „Þess er vænst
að unnt verði að veita ný útlán á
árinu 1992 til byggingar eða
kaupa 500-600 íbúða jafnframt
því að byggja upp eiginfjárstöðu
sjóðsins og tryggja jafnvægi í
fjárhagsstöðu hans til frambúð-
ar.“
Dagur hefur fyrir því heimildir
að sveitarstjórnarmenn víða á
Norðurlandi séu mjög ósáttir við
þá frestun sem orðið hefur á
afgreiðslu stjórnar Húsnæðis-
stofnunar, enda mjög erfitt að
skipuleggja framkvæmdir sumars-
ins fáist ekki vitneskja um fjár-
hagslega fyrirgreiðslu til byggingar
Fiskeldi Eyja^arðar:
Hrygning lúðuraiar stendur sem hæst
Hrygning lúðunnar í klakstöð
Fiskeldis Eyjafjarðar á Hjalt-
eyri stendur nú sem hæst. „Við
erum komnir með mikið af
hrognum og þau eru byrjuð að
breytast í lirfur. En helsti
þröskuldurinn í klakinu er þeg-
ar fóðrunin hefst og að honum
komum við ekki fyrr en um
næstu mánaðamót. Fyrr vitum
við ekki hvernig klakið tekst,
en þetta lítur mjög vel út,“
sagði Ólafur Halldórsson
framkvæmdastjóri Fiskeidis
Eyjafjarðar í samtaii við Dag í
gær.
Það er mikið að gerast hjá
Fiskeldi Eyjafjarðar um þessar
mundir, en eins og við sögðum
frá fyrir helgi er fyrirtækið að
yfirtaka fiskeldisstöð Ölunar á
Dalvík. Að sögn Ólafs er ætlunin
að hefja þar klak á lúðu og hlýra
í byrjun júní. „Það er liður í
norrænu samstarfsverkefni sem á
að taka þrjú ár. Að því loknu
gerum við okkur vonir um að
verða komnir með stofna af lúðu
og hlýra sem hrygna á mismun-
andi árstímum. Með því móti
getum við nýtt betur aðstöðuna
sem við höfum komið okkur upp
á Hjalteyri, en eins og er nýtist
hún ekki nema lítinn hluta
ársins.“
Þá standa yfir viðræður um
yfirtöku fyrirtækisins á seiðaeld-
isstöð íslandslax í Grindavík.
Ólafur vildi sem minnst tjá sig
um þær viðræður annað en það
að stefnt væri að yfirtökunni.
-ÞH
félagslegra íbúða.
Um 20 sveitarfélög á Norður-
landi sóttu um fyrirgreiðslu til
Húsnæðisstofnunar á þessu ári til
byggingar tæplega 170 félagslegra
íbúða. Þar af sótti Húsnæðis-
nefnd Akureyrar um fyrirgreið;
til byggingar 60 íbúða, 15 félags-
legra kaupleiguíbúða, 10 félags-
legra leiguíbúða, 5 almennra
kaupleiguíbúða og 36 félagslegra
eignaríbúða. óþh
Hótel Blönduós:
Tilboði tekið í hlut Kaup-
félagsins og Sölufélagsins
„Það á eftir að ganga frá ýms-
um formsatriðum, en við ger-
um ráð fyrir að af þessari sölu
verði,“ segir Guðsteinn Ein-
arsson, kaupfélagsstjóri á
Blönduósi, en Kaupfélag Hún-
vetninga og Sölufélag Austur-
Húnvetninga ákváðu nýlega að
taka kauptilboði í eignarhlut
félaganna í Hótel Blönduósi.
Guðsteinn segir að félögin hafi
verið að reyna að selja sinn hlut í
hótelinu síðustu þrjú árin, en
hingað til hafi ekki fengist viðun-
andi tilboð. Hlutur þeirra er um
57% af hlutafé hótelsins og til-
boðið sem ákveðið var að taka
eiga þau Ásrún Ólafsdóttir og
Gunnar Richardsson, en þau eru
búsett á Blönduósi. Áður en
gengið verður endanlega frá söl-
unni þurfa aðrir hluthafar í hótel-
inu samt að ákveða hvort þeir
nýti sér sinn forkaupsrétt á hluta-
bréfunum.
„Við ætlum okkur ekki að ráð-
ast í neinar stórar breytingar og
ætlum fyrst og fremst að einbeita
okkur að heimamarkaðnum.
Annars er lítið um þetta að segja
fyrr en allir hluthafar hafa sam-
þykkt söluna, annað en það að
við sjálf erum ákveðin, enda höf-
um við áhuga á öllu því sem varð-
ar velgengni þessa héraðs og eitt
af því er að hafa gott hótel, sem
við teljum Hótel Blönduós vera,“
segir Ásrún. SBG
Hafnarframkvæmdir
á Húsavík:
Fjórir aðflar
bjóði í verkið
Hafnarstjórn Húsavíkur hefur
ákveðið að leggja til að fjórum
aðilum verði gefinn kostur á að
bjóða í fyrirhugaðar hafnar-
framkvæmdir í lokuðu útboði.
Þessir fjórir aðilar eru: Kraft-
tak sf., Istak hf., Hagvirki/Klett-
ur hf. og Húsvískir verktakar/
Köfunarstöðin.
Verkið sem um er að ræða er
dýpkun í höfninni, niðursetning
stálþils og fyllingar við Norður-
garðinn. Sex aðilar sýndu áhuga
á að bjóða í verkið við forval á
verktökum, þar með taldir
Húsvískir verktakar og Köfun-
arstöðin hf. sem síðan hafa náð
samkomulagi um að bjóða sam-
eiginlega í verkið. IM