Dagur - 07.04.1992, Blaðsíða 8

Dagur - 07.04.1992, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 7. apríl 1992 Íþróttir Rögnvaldur Ingþórsson. Mynd: JHB Rögnvaldur Ingþórsson: „Ég er bara þokkalega ánægður með árangurimf „Ég er bara þokkalega ánægð- ur með minn árangur. Mér fannst ekki nógu gott að vera svona langt á eftir Daníel í 15 km göngunni en er mjög ánægður með sigurinn í hinum greinunum,“ sagði skíðagöngu- maðurinn Rögnvaldur Ing- þórsson frá Akureyri. Rögnvaldur vann nokkuð öruggan sigur í 30 km göngunni. Vilhelm Þorsteinsson: Erfiður og leiðinglegur vetur „Ég átti alveg eins von á að vinna gull í samhliðasvigi. Þetta er öðru vísi en aðrar greinar, eins og brautin var núna var þetta mitt á milli þess að vera svig og stórsvig og það þarf öðruvísi tækni. Svo er maður ekki að keppa við klukkuna heldur við annan við hliðina,“ sagði Vilhelm Þor- stcinsson frá Akureyri sem sigraði í samhliða svigi og vann þar með einu gullverðlaun Akureyringa í alpagreinum. Vilhelm sagði að aðalatriðið væri að ná góðu „starti“ og vera svo á undan allan tímann. „Mér hefur gengið nokkuð vel í þessari grein. Þetta er í sjötta sinn sem ég keppi í samhliðasvigi á Lands- móti og hef alltaf komist í fjög- urra manna úrslit. Reyndar hef ég alltaf verið í fjórða sæti þar til núna svo það var kominn tími til að gera eitthvað meira. Annars er ég ekkert alltof ánægður með árangurinn í heildina, fór á hlið- ina í stórsviginu en kláraði og hlekktist á í sviginu og endaði í sjötta sæti. Ég tel að ég hafi átt góða möguleika á að lenda í þriðja sæti þar.“ Vilhelm sagði að veturinn hefði verið erfður „og raunar hundleiðinlegur. Ég sleit liðbönd í ökkla í byrjun janúar og svo aft- ur nokkrum vikum seinna. Ég hef því lítið getað æft þar til fyrir þremur vikum. Svo hefur snjó- leysið spilað inn í hjá mér eins og öðrum þannig að ég get kannski verið sáttur við minn hlut,“ sagði Vilhelm og bætti því við að hann vildi koma á framfæri þökkum til Skíðaráðs Akureyrar fyrir stuðn- inginn og eins til kennara sinna í Verkmenntaskólanum. Vilhelm Þorsteinsson. Mynd: Golli „Ég náði Geira eftir svona 10 km og búinn að taka þá af honum 30 sekúndur. Hann náði svo ekki að hanga í mér eftir það. Ég er nokkuð ánægður með hvernig ég gekk á þessu móti, formið er reyndar búið að vera á niðurleið síðan eftir Ólympíuleikana, bæði vegna þess að færið hefur verið hálfleiðinlegt þar sem ég bý og svo þurfti ég að vinna upp tveggja mánaða prógramm íj skólanum á tveimur vikum. Mérí fannst ég samt vera í ágætu formi um helgina.“ Rögnvaldur sagðist vera skráð- ur í tvær keppnir úti í Svíþjóð um næstu helgi en bjóst ekkert frekar við að komast í þær vegna anna í skólanum. Það yrðu þá síðustu göngurnar hjá honum á tímabil- inu. „Svo tekur bara við undir- búningur fyrir nýtt keppnistíma- bil, hlaup og sumaræfingar.“ Rögnvaldur var annar af þeim sem keppti fyrir íslands hönd í göngu á Ólympíuleikunum. Eins og menn muna var frammistaða íslendinga nokkuð gagnrýnd hér heima og Rögnvaldur var spurð- ur álits á gagnrýninni. „Ég hef náttúrlega ekki séð eða heyrt allt af því sem sagt var eða skrifað það sem maður hefur heyrt finnst mér hálffurðulegt. Það var t.d. margoft haft sam- band við okkur og það virtist nokkuð sama hvað við sögðum, það var oftast snúið einhvern veginn út úr því. Hvað árangur- inn varðar er alltaf spurning hvað á að miða við. Það voru sett lág- mörk af Ólympíunefnd og það er engin spurning að við náðum þeim og áttum því tvímælalaust að fara. Ég er persónulega mjög ánægður með árangurinn í 10 km og 50 km göngunum. Mér finnst t.d. ekki lélegt að vera 4 sekúnd- um á eftir De Zolt í 10 km og skjóta aftur fyrir sig Rússa, Bandaríkjamanni, Kanadamanni og Tékka. Þetta eru allt þjóðir sem eru með margfalt fleiri skíðamenn og margfalt meira fjármagn til að undirbúa sín lið,“ sagði Rögnvaldur Ingþórsson. Ásta S. Halldórsdóttir: Æfingar og keppni erlendis að skila sér „Ég er auðvitað mjög ánægð með árangurinn enda gekk allt upp hjá mér,“ sagði Ásta S. Halldórsdóttir sem vann allt sem hægt var að vinna í alpa- greinum kvenna. „Ég ætlaði mér að vinna bæði svigið og stórsvigið en lagði minni áherslu á samhliðasyigið. Það er svona meiri leikur en auð- vitað var ekki verra að vinna það líka. Ég er búinn að æfa mjög vel í vetur og er í besta formi sem ég hef nokkurn tíma verið í.“ Ásta sagði alls ekki hægt að spá því hvort hún myndi endur- taka leikinn á næsta Landsmóti. „Þetta er svo fljótt að breytast og svo margt sem spilar inní. Það hefur sýnt sig margoft að þeir sem fá tækifæri til að æfa og keppa erlendis hafa strax forskot á þá sem heima eru. Ég er búinn að vera mikið úti í vetur og tel að það sé að skila sér hér. Ég stefni að því að vera alveg í Svíþjóð næsta vetur og vona bara að það gangi vel. En það verða fleiri erlendis og eiga eftir að njóta þess.“ Ásta verður meðal keppenda á alþjóðlegu mótunum á næstunni og stefnir að því að gera góða hluti þar. „Það koma þarna sterkir einstaklingar og maður fær tækifæri til að bæta punkta- stöðuna í svigi og stórsvigi. Ég geri mér ekki vonir um að vinna Ólympíumeistarann en reyni að standa mig eins vel og ég get,“ sagði Ásta S. Halldórsdóttir. Ásta S. Halldórsdóttir. Mynd: Golli Skíðamót íslands: ALPAGREINAR Stórsvig karlar 1. Kristinn Björnsson, Ó. 1:32,04 2. Örnólfur Valdimarsson, ÍR. 1:32,67 3. Haukur Arnórsson, Árm. 1:33,50 4. Gísli Reynisson, Árm. 1:35,17 5. Arnór Gunnarsson, í. 1:35,22 6. Ásþór Sigurðsson, Árm. 1:36,01 7. Vilhelm Þorsteinsson, A. 1:36,33 8. Eggert Óskarsson, Ó. 1:37,34 Stórsvig konur 1. Ásta S. Halldórsdóttir, í. 1:35,61 2. Eva Jónasdóttir, A. 1:38,35 3. Hildur Ösp Þorsteinsdóttir, A 1:44,81 4. Hjördís Þórhallsdóttir, A. 1:46,38 5. Fanney Pálsdóttir, í. 1:47,16 6. Margrét Ingibergsdóttir, Fr. 1:48,65 7. Jónína Björnsdóttir, Ó. 1:50,08 8. Þórey Árnadóttir, A. 1:50,43 Svig karlar 1. Kristinn Björnsson, Ó. 1:42,88 2. Örnólfur Valdimarsson, ÍR 1:42,97 3. Arnór Gunnarsson, í. 1:47,41 4. Ásþór Sigurðsson, Árm. 1:47,76 5. Eggert Óskarsson, Ó. 1:48,39 6. Vilhelm Þorsteinsson, A. 1:48,73 7. Egill Ingi Jónsson, ÍR 1:51,15 8. Ingvi Geir Ómarsson, Árm. 1:53,18 Svíg konur 1. Asta S. Halldórsdóttir, í. 1:16,35 2. Guðrún H. Kristjánsdóttir, A. 1:18,04 3. Hildur Ösp Þorsteinsdóttir, A 1:24,93 4. Hjördís Þórhallsdóttir, A. 1:24,94 5. Fanney Pálsdóttir, í. 1:26,95 6. Jónína Björnsdóttir, Ó. 1:33.50 7. Guðný Hansen, Árm. 1:33,63 8. Kristín Björnsdóttir, Árm. 1:36,21 Alpatvíkeppni karlar 1. Kristinn Björnsson, Ó. 0,00 2. Örnólfur Valdimarsson, ÍR 5,98 3. Arnór Gunnarsson, í. 52,74 4. Ásþór Sigurðsson, Árm. 61,55 5. Eggert Óskarsson, Ó. 76,60 6. Egill Ingi Jónsson, ÍR 104,66 Alpatvíkeppni konur 1. Ásta S. Halldórsdóttir, í. 0,00 2. Hildur Ösp Þorsteinsdóttir, A. 141,04 3. Hjördís Þórhallsdóttir, A. 154,25 4. Fanney Pálsdóttir, í. 175,78 5. Jónína Björnsdóttir, Ó. 249,12 6. Guðný Hansen, Árm. 259,37 Samhliðasvig karlar 1. Vilhelm Þorsteinsson, A. 2. Kristinn Björnsson, Ó. 3. Örnólfur Valdimarsson, ÍR Samhliðasvig konur 1. Ásta S. Halldórsdóttir, í. 2. Eva Jónasdóttir, A. 3. Guðrún H. Kristjánsdóttir, A. SKÍÐAGANGA Karlar 20 ára og eldri, 30 km F 1. Rögnvaldur Ingþórsson, A. 1:19,28 2. Sigurgeir Svavarsson, Ó. 1:21,41 3. Dan Hellström, A. 1:25,19 Drengir 17-19 ára 15 km F 1. Daníel Jakobsson, í. 38:12 2. Gísli E. Árnason, f. 40:03 3. Kristján Ó. Ólafsson, A. 40:40 4. Árni Elíasson, í. 40:51 5. Tryggvi Sigurðsson, Ó. 46:56 6. Kári Jóhannesson, A. 49:34 Tvíkeppni karlar 20 ára og eldri 1. Rögnvaidur Ingþórsson, A. 10,84 2. Sigurgeir Svavarsson, Ó. 21,03 3. Dan Hellström, A. Tvíkeppni drengir 17-19 ára 1. Kristján Ó. Ólafsson, A. 7,20 2. Gísli E. Árnason, í. 9,13 3. Árni F. Elíasson, í. 10,84 Konur 5 km H 1. Auður Ebenezersdóttir, í. 16:29 2. Thelma Matthíasdóttir, Ó. 18:08 3. Heiðbjört Gunnólfsdóttir, Ó. 19:39 4. Elín Harðardóttir, S. 21:33 Boðganga 16 ára og eldri 1. A-sveit Akureyrar 1:13,36 Kristján Ólafsson 25:23 Haukur Eirfksson 51:13 Rögnvaldur Ingþórsson 1:13,36 2. Sveit ísafjarðar 1:14,09 Árni Elíasson 25:56 Gísli Árnason 51:58 Daníel Jakobsson 1:14,09 3. A-sveit Ólafsfjarðar 1:14,39 Kristján Hauksson 25:20 Ólafur Björnsson 51:47 Sigurgeir Svavarsson 1:14,39

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.