Dagur - 08.05.1992, Blaðsíða 4

Dagur - 08.05.1992, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 8. maí 1992 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA /65 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585). JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþrótlir), ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Átök í Alþýðuflokknum Taugaspennan fer vaxandi í Alþýðuflokknum þessa dagana. Það styttist í að æðsta valdasam- koma flokksins, flokksþingið, komi saman og kjósi sér forystusveit til að stýra flokksskútunni næstu tvö árin. Alþýðuflokksmenn hafa í seinni tíð oftar en einu sinni fellt sitjandi formann, sem sóst hefur eftir endurkjöri. Slíkar hallarbyltingar eru fremur sjald- gæfar í íslenskum stjórnmálum en einhverra hluta vegna algengari í Alþýðuflokknum en öðrum pólitískum hreyfingum hér á landi. Núverandi for- maður Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibals- son, komst einmitt til valda í síðustu hallarbylt- ingu, á kostnað Kjartans Jóhannssonar. Kjartan felldi á hinn bóginn Benedikt Gröndal úr for- mannssæti flokksins þar á undan. Því má segja að alþýðuflokksmenn hafi mesta reynslu íslenskra stjórnmálamanna í pólitískum „aftökum" afþessu tagi. Það vakti óneitanlega athygli á dögunum er Jón Baldvin Hannibalsson lagði til að flokksþingi Alþýðuflokksins yrði flýtt. Tímasetningu æðstu valdasamkomu stjórnmálaflokks, sem venjulegast er ákveðin með tveggja ára fyrirvara, er ekki breytt nema mjög veigamikil rök mæli með því. Að því er séð verður gengur núverandi formanni það fyrst og fremst til að forðast mótframboð frá óánægðum flokksfélögum. Mjög margir Alþýðuflokksmenn eru óánægðir með stefnu flokks síns, eins og hún birtist í stefnu og störfum ríkisstjórnarinnar. Þeir telja réttilega að stefna flokksins sé komin alllangt frá jafnaðarhug- sjóninni sem flokkurinn þó kennir sig við. Óánægjuöflin í Alþýðuflokknum telja að Jónarnir tveir í forystusveitinni, þ.e. Jón Baldvin Hannibals- son og Jón Sigurðsson, beri höfuðábyrgð á núver- andi stefnu flokksins og því að flokkurinn sveigði til hægri í leit sinni að samstarfsmönnum til að mynda ríkisstjórn. Óánægjuöflin setja traust sitt á Jóhönnu Sigurðardóttur, Guðmund Árna Stefáns- sonar, Össur Skarphéðinsson og fleiri, sem ljóst og leynt hafa haldið uppi andófi gegn formanni sínum. Ljóst er að stjórnarsamstarfið við Sjálf- stæðisflokkinn reynir mjög á þolrif sumra Alþýðu- flokksmanna; jafnvel svo að þeir vinstrisinnuðustu í hópnum hafa snúið baki við félögum sínum, um sinn að minnsta kosti. Það herbragð formanns Alþýðuflokksins, að halda flokksþingið fyrr en ráð var fyrir gert, virðist ætla að heppnast. Margt bendir til þess að hann fái ekki mótframboð. Hitt er ljóst að ágreiningur innan flokksins fer vaxandi og gæti endað með spreng- ingu. Jón Baldvin Hannibalsson og nánustu sam- starfsmenn hans þurfa á allri stjórnkænsku sinni að halda á næstunni til að forðast enn frekari sundrungu í Alþýðuflokknum. Óvíst er hvort þeim tekst það. BB. Ráðalausir foreldrar Niðurstöður nýlegra rannsókna frá Surgeon General Anatonia Novello, sýna að 8 milljónir af 20,7 milljónum nemenda í Banda- ríkjunum, drekka 7-12 glös af áfengi í hverri viku, (7-12 glös af áfengi eru hálf til ein flaska af sterku víni eða 4-8 bjórar). Flest þessara 8 milljóna eru eða munu verða alkohólistar. Bak við hvert og eitt þessara ungmenna með áfengisvandamál, standa foreldr- ar með vandamál. Að eiga við fullorðinn alkohólista er eitt, en að eiga við ungling sem er alko- hólisti er allt annað. Aðstand- endur hans þjást af sektarkennd í algjörum vanmætti. Al-anon, World Service Off- ice, fékk nýlega sent bréf frá for- eldrum í Suður-Afríku, sem voru að biðja um hjálp vegna drykkju- vanda sonar síns, „við erum örvæntingarfull og getum ekki gert meira,“ sögðu þau meðal annars. Því miður, eru þessi orð sögð af vörum örmagna foreldra alls staðar í heiminum. Áfengissýki drepur fólk, en hefur líka áhrif á, ekki bara þann sem drekkur, heldur alla vini, kunningja og fjölskyldumeðlimi, sérstaklega foreldrana, sem sífellt spyrja sig; „hvað gerði Ég rangt? Hvernig hefði Eg getað komið í veg fyrir þetta? Petta hlýtur að vera Mér að kenna, eða hvernig gat barnið Mitt breyst svona?“ Um 20 prósent af Al- anon félögum eru foreldrar alko- hólista og þeir vita að Al-anon getur hjálp'að elskandi foreldrum í gegnum erfiðleikana sem fylgja því að „sleppa“ áfengissjúka barninu sínu. Hvernig „sleppir“ maður 16 ára gömlum unglingi, en þrátt fyr- ir það virðir hina lagalegu og sið- ferðislegu ábyrgð sem fylgir því að vera foreldri? í Al-anon er því haldið fram, að ef maður „slepp- Ingjaldur Arnþórsson. ir“ sé maður að gefa barninu sínu reynslu og á þann hátt að hjálpa því að læra að taka afleiðingum gjörða sinna og að jafnframt læri maður sem foreldri að hætta að vera of-verndari. Þetta er hæg- fara, erfið þróun, en sú eina sem virkar. Foreldrar hafa lært það, að það, að slíta sig frá börnum sfn- um (klippa á naflastrenginn), er ekki það sama og áhugaleysi. Miklu frekar þýðir það að for- eldrar fara að kynnast æðruleysi og byrja að ráðast á og laga van- ræktu samböndin við maka sinn, vini sína, hin börnin sín og sér- staklega sjálfan sig. Eins og við öll vitum, þá er for- eldrahlutverkið ævilöng skuld- binding sem lýkur ekki við það að barn verður fullorðið. For- eldrum fullorðinna alkohólista líður alveg jafn illa þó að barnið þeirra sé ekki lengur unglingur. Al-anon býður von fyrir foreldra alkohólista á öllum aldri. Faðir nokkur, en sonur hans var alkohólisti, reyndi að hjálpa með því að elda máltíðir, þvo þvotta og passa barnabörnin. Hann skrifaði okkur og sagði: „Al-anon félagar hjálpuðu mér að koma auga á það, að eins og væntumþykja mín birtist gagn- vart syni mínum, gæti ég engum hjálpað, hvorki sjálfum mér, konu minni, syni mínum né fjöl- skyldu hans. Ég fór að læra nýja leið til hjálpar. Sú leið krafði mig um þekkingu á sjálfum mér. Með átökum skildi ég við sjúkdóm sonar míns og tengdadóttur, án þess að ég hætti að elska þau. Ég fór að koma auga á nauðsyn þess að hugsa um mínar eigin þarfir, burtséð frá öllu öðru - maka, fjölskyldu og vinnu. Ef ég gerði það ekki, myndu þessir hlutir verða mér lítils virði. Fyrst ég gæti hvorki breytt eða bjargað neinum öðrum, yrði ég að reyna að bjarga sjálfum mér.“ Al-anon hefur það megin- markmið, að hjálpa fjölskyldum og vinum alkohólista og ÞAR MEÐ TÖLDUM FORELDR- UM. Al-anon getur gefið von um breytingu inn á vonlaus heimili, sem orðin eru undirlögð af drykkjuskap ungra sem fullorð- inna afkomenda. Hafir þú sem þetta lest við vandamál af þessu tagi að stríða, ættir þú að kynna þér fræðslu- námskeið fyrir aðstandendur alkohólista, sem auglýst er ann- ars staðar í blaðinu. Ingjaldur Arnþórsson. Heimildir: Al-anon speaks out. A community resource for professionals. Greinarhöfundur starfar sem ráðgjafi hjá S.Á.Á.-N. Húsavík: Landsþing ITC um helgina Landsþing ITC verður haldið á Hótel Húsavík um helgina. Þinghaldið hefst í kvöld kl. 18 með skráningu og kvöldverði en að því loknu er árleg ræðu- keppni þar sem etja kappi saman fulltrúar allra ráða ITC. ITC er félagsmálaskóli sem hefur það að leiðarljósi að virkja hæfileika hvers og eins, byggja upp sjálfstraust og örva forystuhæfileika. Þessi félags- skapur hefur verið starfandi hér á landi um 15 ára skeið. Fyrir hádegi á morgun verða afgreidd félagsmál en hádeg- isverðarerindi mun Jóhannes Sig- urjónsson, ritstjóri Víkurblaðs- ins, flytja. Eftir hádegi verður Valgerður Bjarnadóttir, félags- ráðgjafi á Akureyri, með erindi sem hún nefnir „Leitin að jafn- vægi - um hina ytri og innri bar- áttu kvenna.“ Síðan er fræðslu- dagskrá um dómgæslu í ræðu- keppni, stjórnun og nefndarstörf, hvernig búa á til fræðslu og flytja hana. Fræðsludagskráin verður flutt af ITC félögum og þar á meðal mun heiðursgestur þings- ins Edna Chapmann frá Bret- landi flytja þinggestum fræðslu- erindi sem hún nefnir „Why extension“ Gestur samtakanna á hátíðar- kvöldverði á laugardag er Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík. Eftir kvöldverðinn verða tilkynnt úrslit í ræðukeppni frá kvöldinu áður, ný stjórn landssaintaka ITC verður formlega sett í embætti af heiðursgestinum Ednu Chapmann. Á sunnudagsmorgun verður Edna Chapmann með fræðslu fyrir verðandi embættismenn við- takandi landsstjórnar. Hádeg- isverðarerindi flytur Sigríður Birna Ólafsdóttir frá Húsavík. Afhent verða verðlaun til þeirra ITC deilda sem best hafa staðið að kynningarmálum samtakanna. Nýjar stjórnir ráða ITC verða kynntar og fleira verður á dagskrá eftir hádegið en þingslit verða kl. 14.50. Umsjónarmaður þingsins í ár er Helga Gunnardóttir, ITC Melkorku í Reykjavík. Post- og símamálastofnunin Ný talsímaþjónusta Póst- og símamálastofnunin til- kynnir hér með, að opnuð hefur verið ný talsímaþjónusta, fsland beint, sem mun nýtast íslending- um, sem ferðast til útlanda. Þá er hringt í ákveðið símanúmer í við- komandi landi og næst þá beint samband við talsímavörð á ís- landi. Fyrstu löndin sem tengjast þessari þjónustu eru Bandaríkin og Noregur. Þegar hefur verið opnað frá þessum löndum. Síðan munu Bretland, Danmörk og Svíþjóð bætast fljótlega við og verður það tilkynnt síðar. í Noregi hringja íslendingar í símanúmer 050 19354 og í Bandaríkjunum í símanúmer 1800 423 3614. Greitt er fyrir samtölin á ís- landi. Venjulegt mínútugjald fyrir handvirka þjónustu er innheimt fyrir samtölin með lágmarki fyrir 3 mínútur að viðbættu aukagjaldi kr. 230,- þegar samtalið er skráð á heimasíma viðkomandi. Samþykki viðtakandi að greiða fyrir samtalið verður innheimt venjulegt aukagjald eins og fyrir kollekt samtöl að upphæð kr. 460,-.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.