Dagur - 08.05.1992, Blaðsíða 6

Dagur - 08.05.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 8. maí 1992 Opið hús á morgun í Hvammshlíðarskóla á Akureyri, sérskóla fyrir þroskahefta: Hvammshlíðarskóli er of einangraður í þjóðfélaginu Halldóra Haraldsdóttir, skólastjóri. - segir Halldóra Haraldsdóttir, Hvammshlíðarskóli á Akur- eyri. Sennilega eru ekki mjög margir sem vita hverskonar skóli það er. En hvað sem því líður, þá fer þar fram merki- legt starf í þágu þjóðfélagshóps sem sjaldan ber vandamál sín á torg. Hvammshlíðarskóli er sérskóli fyrir þroskahefta og þar eru skráðir tíu nemendur í grunnskóla og áttatíu eru skráðir í fullorðinsfræðslu. A morgun, laugardaginn 9. maí, ætlar skólinn að hafa „opið hús“ frá kl. 13 til 16 þar sem kennarar verða til viðtals og greina fólki frá skólastarfinu. „Skólastarfið er að stærstum hluta óhefðbundið. Pó er vissu- lega hefðbundin kennsla eins og íþróttir, hand- og myndmennt og heimilisfræði," sagði Halldóra Haraldsdóttir, skólastjóri Hvammshlíðarskóla, þegar blaðamaður forvitnaðist um skólastarfið. „í grunnskóla eru nú tíu nemendur á aldrinum átta til sextán ára. Kennt er alla virka daga og hefst skóladagurinn á samverustund, sem byggist á söng og öðru. Markmiðið með henni er að örva félagsleg tengsl krakkanna, að þau læri aga, að vera með öðrum og hafa frum- kvæði. Síðan er hópnum skipt og hver fer inn í sína stofu, þar sem mismunandi kennsla fer fram. Rauði þráðurinn er þó málþjálf- un, skilningur og þeir sem lengst eru komnir fá grunnþjálfun í lestri. Verkleg þjálfun skipar einnig drjúgan sess í kennslunni. Nokkrir nemendur eru á því stigi sem við köllum skynhreyfistig. Lögð er áhersla á hreyfingu og skynjun, sjón-, heymar- og snerti- skyn. Tjáning er mikilsverður þáttur, sem við leggjum mikið upp úr,“ sagði Halldóra og bætti við að við kennsluna væru auk talaðs máls notuð myndtákn (piktogram) og ísbliss-táknmál á tölvutæku formi. Hún sagði að einnig væri mikið lagt upp úr líkamsþjálfun, t.d. líkamsnuddi og hreyfiþjálfun, en sá þáttur kennslunnar fer bæði fram innan veggja Hvammshlíðarskóla og í Sundlaug og íþróttahúsi Glerár- skóla. Fullorðinsfræðslan í fullorðinsfræðslu eru 80 nemendur skráðir og því er hún stór þáttur í starfi skólans. Að sögn Halldóru er markmiðið með fullorðinsfræðslunni að gefa þroskaheftum einstaklingum kost á námskeiðum til þess að auka færni í að takast á við heimilis- hald og starf, svo og þjálfun í að verja tómstundum á gefandi hátt. Af þeim námskeiðum sem boðið er upp á má nefna lestur, stærð- fræði, tölvunotkun, handmennt ýmiskonar, leikfimi (á Bjargi), sund (í sundlaug Sólborgar), matreiðslu (í Lundarskóla), líkamshirðingu og snyrtingu, umferðarfræðslu og mál og tján- ingu. f>á er boðið tómstunda- starf, eins og t.d. spilakvöld, þar sem kennd eru einföldustu spil. Auk þess hefur Hvammshlíð- arskóli í samvinnu við Svæðis- stjórn um málefni fatlaðra tekið þátt í þjálfa upp einstaklinga á vinnumarkaðnum við störf sem þeir ef til vill geta unnið sjálfstætt síðar. Nemendur í grunnskóla koma víðsvegar að af Norðurlandi, en í fullorðinsfræðslu eru einnig nemendur af Vestfjörðum og Austurlandi, sem búsettir eru á Sólborg og sambýlum. Við Hvammshlíðarskóla starfa 20 kennarar, sem skipta með sér 16 kennarastöðum. „Fötlun nemendanna er af margvíslegum toga, en þeir eiga það sameiginlegt að vera allir þroskaheftir. Nokkrir nemend- anna hafa einhverja viðbótar- hömlun, t.d. hreyfihömlun og sjón- og heyrnarskerðingu. IJá eru dæmi um börn sem hafa ein- hverfueinkenni,“ sagði Halldóra. Samverustund krakkanna með starfsfólki að morgni dags. Frá vinstri Helgi Jóhannsson, Baldvina Snælaugsdóttir, þroskaþjálfi, Andri Harðarson, Anna Kristjánsdóttir, Ásta Þorsteinsdóttir, leiðbeinandi, Vignir Hauksson, Sigríður Guðnadóttir, kennari og Þorbjörg Sigurðardóttir, kennari. Myndir: Golli skólastjóri Óhentugt húsnæði Hvammshlíðarskóli er staðsettur í einbýlishúsahverfi á Akureyri og því verður ekki á móti mælt að húsnæði hans hentar afar illa fyrir þá starfsemi sem þar fer fram. Skólinn á rætur að rekja til Vist- heimilisins Sólborgar, en þar var starfandi kennari allt frá stofnun þess árið 1969. í fyrstu fengu aðeins þeir hæfustu kennslu, sem var í samræmi við hugmynda- fræði þess tíma, þ.e.a.s. að ekki væru allir þroskaheftir námshæf- ir. Á þessu varð þó fljótlega breyting. Hvammshlíðarskóli flutti í núverandi húsnæði árið 1984. Þá var reyndar gert ráð fyr- ir því að byggja sérskóla á lóð eins grunnskólans í bænum og húsnæði skólans við Hvammshlíð yrði til bráðabirgða. Átta árum síðar er skólinn enn á sama stað og segir Halldóra að það sé henn- ar stærsta ósk fyrir hönd Hvammshlíðarskóla að hann fá húsrými í einhverjum grunnskól- anna í bænum þannig að betri kostur gefist til blöndunar og annars samstarfs sérskóla og almenns grunnskóla. „Því miður er Hvammshlíðarskóli alltof ein- angraður í þessu þjóðfélagi. Fólk veit almennt mjög lítið um það sem fer fram hérna. Kannski eig- um við líka einhverja sök á því. Nemendur hér eru dálítið ein- angraðir og að hluta til ofvernd- aðir. Þeir eru keyrðir hingað og að kennslu lokinni fara þeir heim eða á skóladagheimili á Sólborg. Af því leiðir að þeir sjást lítið út í samfélaginu. Ég vil gjaman sjá okkar skóla í tengslum við annan grunnskóla þannig að möguleiki sé á meiri blöndun fyrir þá sem geta tekið þátt í henni. Með því móti yrði þroskaheft fólk sjáan- legra, ef svo má að orði komast, og það myndu skapast tengsl við heilbrigð börn, sem ég tel að sé mjög mikilvægt til að skapa gagn- kvæmt traust og skilning," sagði Halldóra. óþh Hvammshlíðarskóli dregur nafn sitt af götunni. Skólinn hefur verið til húsa í þessu einbýlishúsi frá 1984, en óhætt er að segja að það sé óhentugt fyrir þessa starfsemi. Vignir Hauksson 15 ára og Helgi Jóhannsson 14 ára. Esther Berg Grétarsdóttir 14 ára í tölvuþjálfun. Vil sjá kennslu þroskaheftra og heilbrigðra undir sama þaki - segir Þær stöllur Hólmfríður Ósk Jónsdóttir og Elísabet Hannes- dóttir voru í lestrartíma þegar blaðamaður og Ijósmyndari Dags heimsóttu Hvammshlíð- arskóla á dögunum. Blaða- maður truflaði þær frá lestrin- um og átti við þær stutt spjall. Hólmfríður er 39 ára gömul og býr í eigin húsnæði við Borgar- hlíð ásamt kærasta sínum, Olafi Bjarnasyni. „Við fluttum þangað 16. desember í fyrra og okkur líkar mjög vel,“ sagði hún ánægð á svip. Hún hefur tekið fjölmörg námskeið í Hvammshlíðarskóla, t.d. tölvunámskeið, matreiðslu og lestur, auk þess sem hún vinn- ur af fullum krafti í Iðjulundi, vernduðum vinnustað við Hrísa- lund. Hólmfríður var ekki í vafa þegar hún var spurð um hvaða nám höfðaði mest til hennar. „Það er lesturinn. Mér finnst gaman að læra,“ sagði hún ákveðin. Hólmfríður sagðist lesa Hólmfríður Ósk Jónsdóttir Þær stöllur Hólmfríður Ósk Jóns- dóttir og Elísabet Hannesdóttir taka námskeið í fullorðinsfræðslunni í Hvammshlíðarskóla. Auk þess vinna þær í Iðjulundi, vernduðum vinnustað við Hrísalund á Akureyri. töluvert, einkum þó handavinnu- blöð, enda hefði hún mikinn áhuga á hannyrðum. Hólmfríður sagðist vilja koma. þeirri skoðun sinni á framfæri að nauðsynlegt væri að hafa kennslu þroskaheftra og heilbrigðra undir sama þaki. Með því móti yrði blöndun þroskaheftra og heil- brigðra meiri og betri. Elísabet er 25 ára gömul og býr á sambýlinu að Þórunnarstræti 114 ásamt þrem öðrum, en áður bjó hún á sambýlinu við Helga- magrastræti. Áður en Elísabet hóf nám við Hvammshlíðarskóla var hún í sérdeild við Lundar- skóla og Öskjuhlíðarskóla í Reykjavíkur. „Hérna læri ég lest- ur og leikfimi á Bjargi,“ sagði Elísabet og bætti við að hún stundaði íþróttir með íþrótta- félaginu Eik og hefði keppt fyrir hönd þess á Hængsmótinu á Akureyri um síðustu helgi. Eins og Hólmfríður vinnur Elísabet fullan vinnudag í Iðju- lundi auk námskeiðanna í Hvammshlíðarskóla. Hún sagði mjög gaman að læra og leikfimi væri í uppáhaldi hjá henni. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.