Dagur - 08.05.1992, Blaðsíða 9

Dagur - 08.05.1992, Blaðsíða 9
Föstudagur 8. maí 1992 - DAGUR - 9 Eiríkur og Kristinn æfa fyrir upptöku. Tónlistarfíklar á Sauðárkróki: Eyða Mstimdunum í hljóðveri litið inn í „Stúdíó GrámT Tónlist er snar þáttur í lífi mannfólksins og hefur verið það frá örófi alda. Frá því höfuðkúpur stórra dýra voru barðar og þar til rafmögnuð hljóðfæri nútímans fóru að hljóma, leið þó Iangur tími. Alltaf hefur mannskepnan samt haft jafngaman að því að framkalla hljóð og óhljóð og jafnvel tekið upp á því að tengja saman tóna og tónarað- ir til að skemmta sér enn frekar. Til þess að varðveita slíkan samhljóm þarf að hljóðrita hann og tækninni í því hefur fleygt hratt fram síð- ustu áratugina. Tæki og menn sem komast skammlaust frá upptöku á hljóðfæraslætti og hljóðfærablæstri eru því ekki á hverju strái. Einstaka sérvitr- ingar hafa þó róið að því öllum árum að koma sér upp góðri aðstöðu til að sinna af alvöru því tómstundagamni sem tón- listin er. Skagafjörður hefur alið af sér margan tónlistarmanninn og óhætt að segja að þeim fer ekki fækkandi í Skagafirði sem iðka tónanna list. Hljómsveitirnar Herramenn og Hljómsveit Geir- mundar, kannast sjálfsagt flestir við og ekki eru þeir ófáir kórarnir sem starfa í Firðinum. Ekkert eig- inlegt hljóðver hefur samt verið sett á stofn í þessu héraði söngsins, en þó eru þrír eldhugar á Sauðárkróki búnir að koma sér upp ágætri aðstöðu til hverskyns hljóðupptöku. Þetta eru: Eiríkur Hilmisson gítarleikari Geir- mundar, Birkir Guðmundsson, hljómborðsleikari Herramanna og Kristinn Baldvinsson enn einn tónlistarfíkillinn. Tíu ár í plötuútgáfu Dagur tók hús á eldhugunum fyr- ir skömmu og leit á aðstöðuna sem þeir hafa útbúið í Gránu, en undir því nafni gengur gamalt hús á Króknum sem hýsir m.a. nokkra listamenn. „Ætli það séu ekki ein sex ár síðan við keyptum lítinn minnis- banka (sequencer) og það má segja að þá hafi þessi draumur hafist. Frá því hefur tækjaeignin smám saman verið að aukast, en við höfum þó farið okkur hægt og passað okkur á að steypa okkur ekki í neinar skuldir við kaupin. Nú fyrst erum við komnir með þokkalega boðlegan útbúnað fyr- ir demóupptökur og ætli það séu ekki u.þ.b. tíu ár þangað til við verðum komnir í plötuútgáfuna,“ segja piltarnir. Eiga allt skuldlaust Nýverið fjárfestu tónlistar- mennirnir í stórum hljóðbland- ara (mixer) sem er 24 rása og ætl- aður fyrir hljóðver. Fyrir áttu þeir 16 rása segulbandsupptöku- tæki og allskyns tæki og tól sem nauðsynleg eru til að fanga tóna og troða þeim yfir á spólur. Með tilkomu hljóðblandarans segja þeir að stórt stökk hafi orðið í tæknimálum hljóðversins, en auk þess hljóðeinangruðu þeir fyrir skömmu herbergi þar sem hægt er að taka upp söng og hljóðfæra- slátt. „Þróunin er rosalega hröð í þessu, en ég held að við höfum farið rétt að við að eignast þenn- an tækjabúnað, því við eigum allt skuldlaust í dag. Núna sjáum við fram á það, að hér eftir verða hlutirnir bara betri, því við sitj- um ekki uppi með neitt fornald- ardót þrátt fyrir að hafa byggt þetta upp á svona löngum tíma. Þróunin hefur einnig orðið sú að í dag vilja margar hljómsveitir taka upp „life-sound“ og við höf- um góðan tækjabúnað í slíkt, svo við erum ekkert á eftir. Enda er ekki allt fengið með því að eltast við allt það nýjasta og besta í þessum bransa," segir Eiríkur. Hluti af byggðastefnunni Þeir þremenningar hafa enn sem komið er ekki gert þetta tóm- stundagaman sitt að atvinnufyrir- Eiríkur fiktar í hljóðblandaranum. tæki, en dekra þess í stað við eig- in sköpunargáfu með því að taka upp lög sem þeir eða vinir þeirra semja. Þeir segjast samt búast við að endirinn verði sá að fara út í rekstur á hljóðveri og telja góðan grundvöll vera fyrir slíkum rekstri á svæðinu. „Hér er aragrúi af fólki sem er alltaf að semja lög og si'ðan gæt- um við t.d. tekið upp útvarps- auglýsingar. Við höfum líka það mikla tónlistarreynslu að við gæt- um hjálpað til við útsetningar á iögum og jafnvel spilað undir hjá fólki. Grundvöllinn fyrir stofnun hljóðvers hér á Sauðárkróki vantar því ekki og við getum t.d. litið á það, að oft hefur verið sagt að erfitt sé fyrir tónlistarmenn á landsbyggðinni að taka þátt í söngvakeppnum eins og Júró- visjón og Landslaginu vegna þess að svo virðist sem einungis full- unnin lög komist þar inn. Þess vegna kostar miklu meira fyrir landsbyggðarmanninn að taka þátt í þessum keppnum, því hann þarf að fara suður til Reykjavík- ur og taka þar upp sín lög. Það væri hinsvegar mun ódýrara fyrir tónlistarmenn hér á Norðurlandi vestra að þurfa aðeins að renna á Sauðárkrók til að taka upp, svo segja má að það sé hluti af byggðastefnunni að setja hér á stofn hljóðver." Alltaf að læra eitthvað nýtt Þeir Eiki, Kiddi og Birkir segja að líkja megi þessu tómstunda- gamni þeirra við hestamennsk- una hjá öðrum Skagfirðingum og þegar vinir þeirra skreppi í reið- túra, þá fari þeir í hljóðverið. Þekkingu sína á upptökutækjun- um hafa þeir m.a. öðlast í gegn- um blöð og bækur, en segjast þó aðallega hafa lært af reynslunni. „Það er endalaust hægt að læra eitthvað nýtt í þessu fagi, því þetta gengur ekki bara út á það að setjast niður, kveikja á tækj- unum og stilla í botn. Reynslan hefur verið okkar aðal kennari og við höfum svona fiktað okkur áfram í þessu. Draumurinn er hins vegar að öðlast þá þjálfun sem til þarf til að vera góður upptöku- stjóri og náttúrlega væri gaman að geta farið erlendis í skóla til að læra þetta almennilega. Slíkt kostar aftur á móti stórfé og með- an við höfum ekki efni á því, þá æfum við okkur bara hér, enda lærum við alltaf eitthvað nýtt í hvert skipti sem við tökum upp. Aðallega erum við að taka upp eigin lög og spörum okkur auð- vitað stórar fúlgur með því að þurfa ekki að fara suður til þess, því þrátt fyrir að stofnkostnaður- inn við þetta hljóðver hafi verið mikil, þá fer ekki óheyrilegur peningur í þetta dags daglega. Með því að eiga svona aðstöðu sjálfir getum við einnig leyft okk- ur að dunda við lögin þar til við erum fyllilega ánægðir með afraksturinn.“ Eflaust eiga lesendur eftir að heyra meira af hljóðveri þeirra þremenninga í framtíðinni, en þegar við kvöddum þá, voru þeir í óða önn við að útsetja lag eftir Eirík: „Væminn formúlusmell, tilvalinn í Júróvisjón." SBG Restíiurmil i rí $ ^ staðuiiun á toppnum . -----F^. Skemmtikvöld verður föstudagskvöldið 15. maí í veislusölum Fiðlarans 4. hæð Alþýðuhússins. Fram koma hinir landsfrægu skemmtikraftar, Bergþór Pálsson og Þórhallur Sigurðsson, Laddi, ásamt undirleikaranum Jónasi Þóri. ★ C H A N E L llmvatnskynning frá Vörusölunni og tískusýning verður einnig PA R1 s til skemmtunar og fróðleiks. ★ Tekið verður á móti gestum með fordrykk og léttu góðgæti. Eftir skemmtunina verður síðan snæddur blandaður sælkeradiskur (lax, humar og buffsteik ásamt viðeigandi meðlæti) með ostafylltu brauði. ★ Hljómsveitin Namm með Júlíus Guðmundsson leikur fyrir dansi. ★ Kynnir kvöldsins er Davíð Jóhannsson. ★ Miðaverð kr. 3.400. Fyrir hópa 15 eða fleiri kr. 3.200. Húsið opnað kl. 20.00 og skemmtun hefst kl. 21.00. Borðapantanir og allar upplýsingar í síma 27100. Ath. Aðeins verður um þetta eina skipti að ræða.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.