Dagur - 08.05.1992, Síða 15

Dagur - 08.05.1992, Síða 15
Föstudagur 8. maí 1992 - DAGUR - 15 ÍÞRÓTTIR Jón Haukur Brynjólfsson JÚdÓ: Freyr Gauti keppir á EM Fjórir íslendingar taka nú þátt í Evrópumeistaramót- inu í júdó sem fram fer í París. Þeirra á meðal er Freyr Gauti Sigmundsson, KA. Hinir þrír eru Bjarni Frið- riksson, Halldór Hafsteinsson og Sigurður Bergmann. Mótið hófst í gær og keppni heldur áfram á laugardag og sunnu- dag. JMJ-mótið: Leikið um helgina Nokkrir leikir verða í JMJ- mótinu í knattspyrnu um helgina. A morgun, laugardag, mæt- ast Völsungur og Magni á Húsavíkurvelli kl. 10.30 og Þór og KA á Þórsvellinum kl. 11. A sunnudaginn mætast KA og Vöisungur á KA-vell- inum kl. 16 og á mánudags- kvöldið Þór og Dalvík á Þórs- vellinum kl. 19. Handknattleiksdeild Þórs: Aðalfimdur á mánudagskvöld Aðalfundur handknattleiks- deildar Þórs verður haldinn í Hamri á mánudaginn kl. 20.30. Á fundinum fara fram venjuleg aðalfundarstörf. SRA selur skíðafestingar Rekstur Skíðaráðs Akureyr- ar hefur verið erfiður í vetur vegna óhagstæðs tíðafars og til að bæta þar úr hyggjast félagar ganga í hús á næst- unni og seija skíðafestingar til fjáröilunar. Festingar þessar eru hengd- ar á veggi, t.d. í geymslum, og tekur hver festing tvenn pör af skíðum. Stykkið kostar 2.000 kr. og eru velunnarar skíða- íþróttarinnar hvattir til að taka vel á móti söiufólkinu. Leiðrétting: Stefán á EM en ekki Elvar I þriðjudagsblaðinu var viðtal við Sigurrósu Karlsdóttur þar sem fram kom að sveit Akurs heldur til Finnlands seinna í mánuðinum og tekur þátt í Norðurlandamótinu í boccia. Þar var sagt að Stefán Thorar- ensen kæmist ekki með en hið rétta er að bróðir hans Elvar Thorarensen kemst ekki með þar sem hann er að taka stúdentspróf. Þá hefur verið ákveðið að Hjalti Eiðsson, ÍFR, kemur inn í sveitina í stað Elvars en ekki Elma Finnbogadóttir eins og til stóð. Siguróli, Allt útlit er fyrir að 1. deildar- lið KA í knattspyrnu missi tvo varnarmenn frá í fyrra út úr liðinu í sumar. Halldór Hall- dórsson hefur ákveðið að taka sér frí og Erlingur Kristjánsson reiknar með að einbeita sér að handboltanum. Ekki er enn orðið Ijóst hvað Siguróli Krist- jánsson, fyrrum þjálfari og leikmaður Reynis, gerir en hann á við meiðsli að stríða og spilar hugsanlega ekkert í sumar. Erlingur Kristjánsson sagði í samtali við Dag að hann væri ekki búinn að taka endanlega ákvörðun um hvort hann spilaði fótbolta í sumar en hann reiknaði ekki með því. „Ég er að æfa handbolta þessa dagana eftir stutt hlé og reikna með að láta það duga,“ sagði Erlingur. Verði þetta niðurstaðan er það áfall fyr- ir KA-liðið en Erlingur hefur ver- ið einn traustasti leikmaður þess til margra ára. Hann er leikja- hæsti leikmaður félagsins í 1. deild frá upphafi með 127 leiki og hefur að auki leikið 5 landsleiki. Halldór Halldórsson sagði öruggt að hann yrði ekki með í sumar. „Ég veit ekki hvort þetta Knattspyrna: Erlingur og Halldór í frí? Siguróli Kristjánsson, Erlingur Kristjánsson og Halldór Halldórsson. Halldór fer örugglega í frí frá fótboltanum og útlit er fyrir að hinir tveir geri það líka. á að kallast frí eða að ég sé hættur, við skulum orða það þannig að ég verði ekki með í sumar. Þetta er tímafrekt og það er ýmislegt sem spilar inn í hjá mér. Ég hef ekkert hugsað um að spila í neðri deildunum, stefnan er að hvíla sig alveg á fótbolta í sumar,“ sagði Halldór. Hann er 27 ára og hefur leikið 58 leiki í 1. deild fyrir KA. Siguróli Kristjánsson er enn slæmur af meiðslum sem hrjáðu hann í mestallt fyrrasumar og óvíst er hvað hann gerir í sumar. „Þetta var komið í lag en svo fór allt í sama farið í febrúar. Meðan ég skána ekki geri ég ekkert enda ekki í neinu formi og verð það sjálfsagt ekki héðan af fyrr en í júlí. En það er a.m.k. ljóst að maður spilar ekki í 1. deildinni, ég hef verið í sambandi við Dal- víkinga og ef ég næ mér er líkleg- ast að ég spili þar. Ef ekki sleikir maður bara sólina,“ sagði Sigur- óli sem hefur spilað 82 leiki í 1. deild með Þór auk þess sem hann hefur leikið með Grindavík í 2. deild og Reyni í 3. deild. Þorvaldur Örlygsson er nú á heimleið og framtíðin er óráðin. Héraðsmót HSÞ í frjálsum íþróttum: Völsungur bikarhafí Þorvaldur haftiar nyjum sairniingi við Forest Völsungur sigraði í stigakeppni félaga á Héraðsmóti HSÞ í frjálsum íþróttum innanhúss sem fram fór að Laugum í síð- asta mánuði. Ágæta þátttaka var í mótinu og árangur góður. 7 félög sendu keppendur í mótið og hlaut Völsungur 85,5 stig, Efling varð í 2. sæti með 65,5 og Eilífur í 3. sæti með 27. Úrslit: Langstökk án atr. karlar 1. Heimir Leifsson, Völ. 3,09 2. Erlendur Konráðsson, Efl. 3*07 3. Hákon Sigurðsson, Völ. 3,05 Langstökk án atr. konur 1. Guðný Sveinbjörnsdóttir, Völ. 2,51 2. Gunnhildur Hinriksdóttir, Eil. 2,46 3. Sigurrós Friðbjarnardóttir, Völ. 2,43 Þrístökk án atr. karlar 1. Hákon Sigurðsson, Völ. 9,23 2. Heimir Leifsson, Völ. 9,00 3. Erlendur Konráðsson, Efl. 8,92 Þrístökk án atr. konur 1. Guðný Sveinbjörnsdóttir, Völ. 7,29 2. Gunnhildur Hinriksdóttir, Eil. 7,16 3. Sigurrós Friðbjarnardóttir, Völ. 7,05 Hástökk karlar 1. Unnar Vilhjálmsson, Efl. 1,85 2. Skarphéðinn Fr. Ingason, Mýv. 1,80 3. Lúðvík Haraldsson, Efl. 1,75 Hástökk konur 1. Guðný Sveinbjörnsdóttir, Völ. 1,50 2. Gunnhildur Hinriksdóttir, Eil. 1,50 3. Valgerður Jónsdóttir, Efl. 1,40 Hástökk án atr. karlar 1. Heimir Leifsson, Völ. 1,60 2. Unnar Vilhjálmsson, Efl. 1,50 3. Skarphéðinn Fr. Ingason, Mýv. 1,45 Hástökk án atr. konur 1. Guðný Sveinbjörnsdóttir, Völ. 1,25 2. Gunnhildur Hinriksdóttir, Eil. 1,22 3. Hólmfríður Jóhannsdóttir, Efl. 1,19 Kúluvarp karlar 1. Unnar Vilhjálmsson, Efl. 13,31 2. Heimir Leifsson, Völ. 11,42 3. Steingrímur Stefánsson, Gei. 10,18 Kúluvarp konur 1. Guðný Sveinbjörnsdóttir, Völ. 10,07 2. Stefanía Guðmundsdóttir, Gei. 8,12 3. Anna María Þórhallsdóttir, G&A 7,60 Stig fclaga 1. Völsungur 85,5 2. Efling 65,5 3. Eilífur 27 4. Geisli 14 5. Mývetningur 9 6. Gaman og alvara 5 7. Bjarmi 3 Þorvaldur Öriygsson er enn ákveðinn í að fara frá Notting- ham Forest og á dögunum hafnaði hann tilboði frá félag- inu. „í fyrsta lagi er ég ekki hrifinn af þeirri hugmynd að vera hjá félaginu eftir það sem á undan er gengið og svo var langt frá að ég væri ánægður með ti!boðið,“ sagði Þorvald- ur í samtali við Dag. Þorvaldur sagðist hafa átt í við- ræðum við forráðamenn Forest að undanförnu og þeir hefðu boðið sér 2-3 ára samning sem hann hefði hafnað. „Ég vil ekki útiloka neitt meðan ég á í samn- ingum við félagið en það þarf eitthvað mikið að gerast til að ég skrifi undir nýjan samning. Það hefur ekkert annað komið upp á borðið svo ég viti til, klúbburinn lætur mig ekkert vita þótt fyrir- spurnir berist, en það er verið að athuga ýmislegt fyrir mig og ég er nokkuð bjartsýnn á að eitthvað gerist eftir að ég hef hafnað nýj- Víðavangshlaup UMSE fór fram á Arskógsströnd um síð- ustu helgi. Keppendur voru 68 frá 6 félögum, þátttakan var góð í yngri flokkunum en mun lakari í þeim eldri. Úrslit urðu þessi: Tálur 10 ára og yngri, 900 m 1. Ásta Árnadóttir, Sv. 4:08 2. Freydís Bóasdóttir, Sv. 4:11 3. Svanhildur Ketilsdóttir, F. 4:15 Hnokkar 10 ára og yngri, 900 m 1. Birgir Sigurðsson, Sv. 3:46 2. Gylfi Jónsson, Sv. 3:54 3. Fjölnir Finnbogason, Sv. 3:55 Slelpur 11-12 ára, 1800 m 1. Ingibjörg E. Halldórsdóttir, Sv. 8:09 2. Ingibjörg Ragnarsdóttir, R. 8:49 3. Ellý R. Elvarsdóttir, R. 9:06 um samningi við Forest. Ef ekk- ert annað býðst er hugsanlegt að ég verði hjá Forest á undirbún- ingstímabilinu og skrifi þá undir samninga til einnar viku í einu. Takmarkið er að vera áfram atvinnumaður í fótbolta en ég tel að hér sé engin framtíð fyrir mig.“ Þorvaldur kemur heim til íslands um helgina og ætlar að taka sér frí á meðan hann er í gifsi en eins og áður hefur komið fram handarbrotnaði hann á dögunum. „Ég stefni að því að spila með landsliðinu í Ungverja- landi 3. júní en verð að sleppa leiknum gegn Grikkjum. Það hefði ekki borgað sig fyrir mig að spila þann leik með spelku, bæði hefði ég getað lent í basli með meiðslin og eins hefði ég getað lent í vandamálum gagnvart For- est þar sem ég spilaði ekki síðasta deildarleikinn með liðinu vegna þessara meiðsla," sagði Þorvald- ur Örlygsson. Strákar 11-12 ára, 1800 m 1. Einar M. Ólafsson, R. 7:45 2. Ómar Sigurjónsson, Sv. 7:46 3. Sveinn Sveinsson, R. 7:57 Telpur 13-14 ára, 1800 m 1. Berglind Gunnarsdóttir, Sv. 7:23 2. Sigurlaug Níelsdóttir, F. 7:47 3. Eva Bragadóttir, Sv. 8:02 Pillar 13-14 ára, 1800 m 1. Benjamín Davíðsson, V. 7:01 2. Róbert Þorvaldsson, Sv. 7:19 3. Árni Jóhannesson, Sv. 7:36 Drengir 15-18 ára, 2700 m 1. Sigurður B. Sigurðsson, Þ.Sv. 11:17 Konur 15 ára og eldri, 2700 m 1. Valdís Hallgrímsdóttir, R. 13:08 2. Heiðdís Þorsteinsdóttir, Sv. 13:54 Karlar, 3600 m 1. Pétur Friðriksson, Æ. 16:21 Næsta á dagskrá hjá UMSE er Bændadagshlaup fimmtudaginn 4. júní. Hlaupið verður í Hrísey. UMSE: Úrslit úr Víðavangshlaupi

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.