Dagur - 15.05.1992, Blaðsíða 1
Olíufélögin:
Hægt að borga bensín
með greiðslukortinu
í dag mun Skeljungur hf. taka
upp greiðslukortaþjónustu á
bensínstöðvum félagsins um
land allt, en oft hefur verið
gagnrýnt að ekki hafi verið
hægt að kaupa bensín á bílinn
með greiðslukorti. Skeljungur
hf. hefur náð samningum við
greiðslukortafyrirtækin um
notkun Visa-, Euro- og Sam-
korta á bensínstöðvum félags-
ins.
Landsmenn geta því greitt
bensínið með korti frá og með
deginum í dag á bensínstöðvum
Veður og færð:
HeldurWýnandi
Shell og í fréttatilkynningu frá
Skeljungi kemur fram að með
þessari ákvörðun vilji félagið
mæta gagnrýni og auka þjónustu
við viðskiptamenn sína.
Bensínverð mun ekki hækka
með upptöku greiðslukorta því
Skeljungur hyggst mæta óhjá-
kvæmilegum kostnaðarauka með
aukinni vörusölu á bensínstöðv-
unum, en vöruúrval hefur verið
bætt og má á ýmsum stöðvum sjá
matvörur, sælgæti og ýmsar tóm-
stundavörur auk hinna hefð-
bundnu vara sem mátt hefur
finna á bensínstöðvum.
Þess má að lokum geta að hin
olíufélögin munu sigla í kjölfarið
og taka upp greiðslukortaþjón-
ustu. SS
Nemendur MA dimiteruðu í gær og við tekur próflestur.
Aðalfundur Foldu hf. á Akureyri:
Hagnaður síðasta árs 5 miUjómr króna
- víða hálka á vegum
Norðanáttin á að ganga niður
um helgina en ekki er þar með
sagt að kuldaboli hætti að bíta.
Lægðin sem er á leið sunnan úr
höfum til okkar mun ekki
flytja veruleg hlýindi til lands-
ins þótt vindur snúist til suð-
lægra átta. Þó má reikna með
að hálkan, sem hefur verið á
vegum á Norðurlandi í dag
hverfi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu íslands er gert ráð
fyrir að norðanáttin gangi niður
fyrir helgina og á laugardag verði
komin nokkuð hvöss suðvestan
átt um norðanvert landið og snú-
ist síðan til suðaustan áttar á
sunnudag. Gert er ráð fyrir að
hitastig verði á bilinu fjórar til
sex gráður á daginn og gæti orðið
kaldara um nætur.
Nokkuð snjóaði aðfaranótt
fimmtudagsins og varð að hreinsa
snjó af vegunum um Öxnadals-
heiði og Víkurskarð í gærmorg-
un. Nokkur hálka var á þessum
leiðum frameftir degi. Þá var
hálka á Holtavörðuheiði og
sömuleiðis austurlandsvegi fyrir
austan Grímsstaði á Fjöllum.
Einnig var hálka með köflum
með ströndinni á leiðinni austur
til Vopnafjarðar í gær. Pá var
Lágheiði talin ófær fyrir minni
bíla og ekki ráðlegt að fara hana
nema á vel búnum jeppum.
Hagnaður af rekstri Foldu hf.
á síðasta ári nam rúmum 5
milljónum króna, en fyrirtæk-
ið hóf starfsemi 1. október
1991 og var því aðeins starf-
rækt í þrjá mánuði á árinu.
Aðalfundur Foldu hf. var hald-
inn í gær og þar gerðu Baldvin
Valdemarsson, framkvæmda-
stjóri, og Ásgeir Magnússon,
stjórnarformaður, grein fyrir
stöðu fyrirtækisins.
í rekstrarreikningi kemur fram
að tekjur Foldu hf. á þessum
þremur mánuðum á síðasta ári
voru 123.576.145 kr. Þar vegur
útflutningur þyngst en fram-
leiðsluvörur voru fluttar út fyrir
102,5 milljónir en innanlandssal-
an nam 19,5 milljónum.
Rekstrargjöld voru 115.458.434
kr. og hagnaður án afskrifta og
fjármagnskostnaðar því 8.117.711
kr. en eftir þessa liði 5.009.497
kr.
Samkvæmt efnahagsreikningi
eru eignir Foldu metnar á
237.024.289 kr. en heildarskuldir
nema 167.644.727 kr. Eigið fé
fyrirtækisins í árslok var því ríf-
- hluthöfum hefur
iega 69,3 milljónir króna.
Hlutafé félagsins í árslok nam
64.230.000 kr. og skiptist það á
29 hluthafa. Stærstu hluthafarnir
eru Framkvæmdasjóður Akur-
eyrar með 46,7% hlutafjár og
Byggðasjóður með 18,7%. Aðrir
hluthafar eiga minna en 10% í
Tillaga um að gengið verði til
viðræðna um sameiningu
Kaupfélags Austur-Húnvetn-
inga og Sölufélags Austur-
Húnvetninga var samþykkt á
aðalfundi kaupfélagsins síðast-
liðinn miðvikudag. Á aðal-
fundi Sölufélagsins í gær voru
þessu mál mjög til umræðu og
þegar blaðið fór í prentun í
gærkvöld var gert ráð fyrir að
stjórn sölufélagsins yrði falið
að ganga til viðræðna við
kaupfélagið um þessi mál.
Guðsteinn Einarsson, kaupfé-
lagsstjóri á Blönduósi sagði að
nokkrar hugmyndir væru uppi
varðandi samstarf félaganna. í
ljós hafi komið mikill vilji fund-
armanna til að vinna að þessum
málum og finna farsæla lausn á
þeim. Félögin væru nú þegar rek-
in í náinni samvinnu og rekstur
þeirra tengdur. Guðsteinn sagði
að umræðurnar á fundinum í gær
hafi einkum snúist um þá leið að
sameina félögin eins og samþykkt
var að hefja viðræður um á aðal-
fundi Kaupfélagsins fyrr í vik-
unni. Önnur hugmynd sem
einnig hefði verið mikið rædd
væri að stofnaður verði B-stofn-
sjóður við kaupfélagið og sölufé-
lagið komi til samstarfs sem eign-
ijölgað úr 29 í 39
félaginu.
Á árinu störfuðu að meðaltali
127 starfsmenn hjá Foldu og
námu launagreiðslur samtals 38.1
milljón króna. Félagið leigir um
5.000 fermetra húsnæði í Gefjun-
arhúsinu á Gleráreyrum og gildir
leigusamningurinn til 1. október
araðili samvinnuhlutabréfa í
sjóðnum. Með því yrði eigin-
fjárstaða kaupfélagsins styrkt. Ef
sú leið verður farin er gert ráð
fyrir að gefa út samvinnuhluta-
bréf í B-stofnsjóði kaupfélagsins
fyrir um 80 til 90 milljónir króna.
Afkoma samvinnufélaganna í
Austur-Húnavatnssýslu var frem-
ur erfið á síðasta ári sérstaklega
Kaupfélags Austur-Húnvetninga
eins og Dagur greindi frá síðast-
liðinn miðvikudag. Hagnaður af
rekstri sölufélagsins varð aðeins
um hálf milljón króna en um 17,7
„Byggingariðnaðurinn virðist
allur vera að hressast. Nú þeg-
ar er nokkuð að gera við jarð-
vinnu og steypuvinna farin
talsvert af stað,“ sagði Hólm-
steinn Hólmsteinsson hjá Möl
og sandi hf. á Akureyri.
„Það horfir alveg þokkalega
fyrir sumarið og ástæðulaust að
vera með einhverja svartsýni.
Þetta verður síður en svo verra
1996. Þá hefur félagið gert kaup-
leigusamning um vélar og tæki til
10 ára.
Á aðalfundinum kom fram
ánægja með að Folda hf. skyldi
skila hagnaði og eru hluthafar
fyrirtækisins orðnir 39. SS
milljón króna tap varð á rekstri
kaupfélagsins. Eigið fé Sölufé-
lagsins var 266 milljónir króna
um síðustu áramót, en eigin-
fjárstaða Kaupfélagsins var þá
neikvæð um 36 milljónir króna.
Guðsteinn Einarsson sagði að
fyrir utan umræður um samein-
ingarmál samvinnufélaganna á
Blönduósi hefði mikil umræða
farið fram um almenn landbún-
aðarmál og þá stöðu sem bændur
og afurðastöðvar landbúnaðarins
stæðu nú frammi fyrir. ÞI
en í fyrra í byggingarfram-
kvæmdum í bænum. Núna virðist
svo margt vera að fara af stað fyr-
ir utan stóru framkvæmdina sem
er bygging íbúða fyrir aldraða,“
sagði Hólmsteinn.
Aðspurður segir hann að góð
sala hafi verið í holræsarörum í
vor, að stærstum hluta til sveitar-
félaga. Ljóst sé því að sveitarfé-
lögin hafi farið snemma af stað í
lagnavinnu í vor. JÓH
Suður-Þingeyjarsýsla:
Miðlunartillagaii sam-
þykkt í ölliun félögum
Miðlunartillaga ríkissáttasemj-
ara var samþykkt með miklum
mun af félögum í verkalýðsfé-
lögunum í Suður-Þingeyjar-
sýslu, en atkvæði voru talin sl.
miðvikudag.
Hjá Verkalýðsfélagi Húsavík-
ur voru 783 á kjörskrá. Atkvæði
greiddu 424 eða 54,2%. Já sögðu
293 (69,1%), nei 111 (26,2%).
Auðir seðlar voru 19 (4,5%) og 1
ógildur (0,2%).
Hjá Versiunarfélagi Húsavíkur
voru 168 á kjörskrá. Atkvæði
greiddu 84 eða 50%. Já sögðu 59
(70,2%), nei 24 (28,6%). Einn
seðill var auður (1,2%).
Hjá Byggingamannafélaginu
Árvakri voru 46 á kjörskrá.
Atkvæði greiddu 26 eða 56,5%.
Já sögðu 12 (46,1%), nei 10
(30,5%). Auðir seðlar voru 4
(15,4%).
Hjá Sveinafélagi járniðnað-
armanna voru 31 á kjörskrá.
Atkvæði greiddu 16 eða 51,6%.
Já sögðu 9 (52,3%), nei 7
(43,7%). óþh
Aðalfundur Sölufélags Austur-Húnvetninga:
Sameining við Kaupfélag Austur-
Húnvetninga eða stofiiun B-stofiisjóðs
- sölufélagið yrði þá hluthafi í kaupfélaginu
Möl og sandur:
Lifiiar yfir steypusölu