Dagur - 15.05.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 15. maí 1992
Hvað er að gerast?
Veitingahús
- Skemmtistaðir
Sjallinn
Upplyfting ásamt Evrovision-söng-
konunni Sigrúnu Evu Ármanns-
dóttur leikur fyrir dansi í Sjallanum
um helgina. Sigrún Eva geröi sem
kunnugt er góða ferð til Málmeyjar
í Svíþjóð á dögunum og söng þur
ásamt Sigríði Beinteinsdóttur „Nei
eða já“.
í Kjallaranum verða Rúnar Þór
og félagar og verður Þorsteinn
Magnússson, gítarleikari, með þeim
í þetta skipti.
Hótel KEA
Hljómsveit Ingimars Eydal leikur
fyrir dansi á Hótel KEA á Akureyri
annað kvöld, laugardagskvöld.
Hótel KEA minnir á glæsilegan
matseðil. Borðapantanir eru í síma
22200.
1929
{ kvöld verður hljómsveitin Rokk-
bandið á dansleik í 1929 á Akureyri.
Annað kvöld verður síðan herra-
kvöld í 1929. Húsið verður opnað
kl. 21.30 og dagskráin, með m.a.
dönsku fatafellunni Anitu Leonardo,
undirfatasýningu og fatauppboði
hefst síðan kl. 22. Húsið verður
opnað fyrir kvenþjóðina á miðnætti.
Kynnar kvöldsins verða Alfreð
Gíslason, handknattleiksmaður, og
Guðjón Guðmundsson, fyrrverandi
aðstoðarmaður Bogdans landsliðs-
þjálfara í handknattleik. Hljóm-
sveitin Rokkbandið sér um fjörið
fram eftir nóttu.
Smiðjan
Þeir félagar Gunnar Gunnarsson
píanóleikari og Jón Rafnsson bassa-
leikari leika léttan „dinnerdjass" í
Smiðjunni á Akureyri í kvöld,
föstudagskvöld, og annað kvöld.
Fiðlarinn
Veitingastaðurinn Fiðlarinn á Akur-
eyri verður með skemmtikvöld í
veislusölum Fiðlarans á 4. hæð
Alþýðuhússins í kvöld, föstudaginn
15. maí. Fram koma Bergþór Páls-
son og Þórhallur Sigurðsson (Laddi)
ásamt undirleikaranum Jónasi Þóri.
Tekið verður á móti gestum með
fordrykk og léttu góðgæti. Eftir
skemmtunina verður snæddur
blandaður sælkeradiskur (lax, hum-
ar og buffsteik ásamt viðeigandi
meðlæti) með ostafylltu brauði.
Hljómsveitin Namm leikur fyrir
dansi. Kynnir kvöldsins verður
Davíð Jóhannsson.
Tónlist
Vorkliður í
Skemmunni
Vorkliður er heiti á tónlistarhátíð í
Skemmunni á Akureyri nk. sunnu-
dag kl. 20.30. Flutt verður Vínar-
tónlist, verk úr óperum og óperett-
um auk kóra-, einsöngs- og hljóm-
sveitarverka. Flytjendur eru Karla-
kór Akureyrar-Geysir, Passíukór-
inn og Blásarasveit æskunnar undir
stjórn Roars Kvam. Einsöngvarar
verða Signý Sæmundsdóttir, Þuríð-
ur Baldursdóttir og Michael Jón
Clarke og einleikari á píanó
Richard Simm. Þráinn Karlsson,
leikari, sér um upplestur á efni sem
tengist vorinu.
íslenska óperan:
Töfraflautan
á Blönduósi
og í Miðgarði
íslenska óperan sýnir Töfraflautuna
cftir W. A. Mozart á Blönduósi ann-
að kvöld, laugardaginn 16. maí kl.
21 og í Miðgarði í Skagafirði nk.
sunnudag kl. 15.
í aðalhlutverkum í þessari stór-
kostlegu óperu eru Þorgeir J.
Andrésson sem Tamino, Ólöf Kol-
brún Harðardóttir sem Pamina,
Bergþór Pálsson sem Papageno og
Aðalfundur
Skagfirðingafélagsins á Akureyri
verður haldínn í starfsmannasal KEA í Sunnuhiíð,
laugardaginn 16. maí kl. 14.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldu lausafé þrotabús Fiskavíkur hf., Raufarhöfn,
lyftari, bílkrani, 55 fiskkör, 3,5 tonn af salti, tunnuveltibún-
aöur. Nauðungaruppboöið á sér staö fimmtudaginn 21.
maí kl. 14.00 aö Höfðabakka, Raufarhöfn.
Uppboðsbeiðandi er skiptaráðandi búsins.
Bæjarfógeti Húsavíkur.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
MFra
^ Dalvíkurskóla
Innritun nýrra nemenda í 1.-10. bekk fyrir
skólaárið 1992-1993, fer fram vikuna 18.-22.
maí.
Símar 61380 og 61381.
Skólastjóri.
Sigrún Hjálmtýsdóttir sem Nætur-
drottningin.
Tónlistinni stjórnar Garðar
Cortes, undirleikarar eru Iwona
Jagla og Rosemary Hewlett. í sýn-
ingunni taka þátt börn af Norður-
landi vestra.
X-tríóið í
Lóni í kvöld
X-tríóið heldur tónleika í Lóni við
Hrísalund á Akureyri í kvöld, föstu-
daginn I5. maí, kl. 21. Tríóið flytur
létt grín og gleðisöngva, lög við ljóð
Davíðs Stefánssonar, Jóns Thor-
oddsen, Jónasar Friðriks, Sigurðar
Þórarinssonar o.fl. Einnig verður
flutt frumsamið efni.
Tónleikar X-tríósins, sem voru
fyrirhugaðir í Grímsey annað kvöld,
falla niður.
T ónlistarskólinn á Akureyri:
Vortónleikar
á morgun
Vortónleikar Tónlistarskólans á
Akureyri verða í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju á morgun, laugar-
daginn 16. maí. Tónleikar yngri
nemenda verða kl. 15 og eldri
nemendur spila kl. 17. Efnisskráin
verður fjölbreytt. Aðgangur ókeyp-
is.
Styrktartón-
leikar og
skólaslit
Hljómskólans
Styrktartónleikar og skólaslit
Hljómskólans á Akureyri verða í
Sjallanum nk. sunnudag kl. 16.
Nemendur allra deilda skólans flytja
fjölbreytta dagskrá. Boðið verður
upp á kaffi og meðlæti á meðan á
tónleikunum stendur. Á síðustu
styrktartónleika Hljómskólans
mættu 280 manns og er gert ráð fyrir
ekki færri gestum nú. Styrktarmið-
inn kostar 1000 krónur og er kaffi og
veitingar innifaldar í honum.
Áttatíu nemendur hafa stundað
nám við Hljómskólann í vetur.
Hvammstangi:
Danska hljómsveitin
Bazaar með tón-
leika í Vertshúsinu
Danska hljómsveitin Bazaar heldur
tónleika í Vertshúsinu á Hvamms-
tanga nk. þriðjudag, 19. maí.
Hljómsveitina skipa Peter Bastian,
sem spilar á rafmagnsfagot, klari-
nettu, ocarina og ásláttarhljóðfæri,
Anders Koppel, sem spilar á
Hammond-orgel, og Flemming
Quist Möller, sem spilar á congas,
trommur og darbuka.
Erfitt er að flokka tónlist Bazaar.
í henni er að finna áhrif frá öllum
tegundum tónlistar, s.s. djassi,
fönki, þjóðlögum frá Afríku, Asíu
og Suður-Ameríku, klassík og
rokki.
Bazaar er stórt nafn í tónlistar-
heiminum í Danmörku og víða utan
Danmerkur. Hljómsveitin hefur
gefið út fjölda hljómplatna og kom-
ið fram á fjölda tónleika.
I Bazaar eru þeir Peter Bastian,
Anders Koppel og Flemming Quist
Möller.
Kór Akureyrarkirkju ásamt stjórnanda sínum, Birni Steinari Sólbergssyni.
Mynd: Á.Á.
Kór Akureyrarkirkju:
TónleikaríMið-
garði, Akureyri
og Olafsfirði
Kór Akureyrarkirkju undir stjórn
Björns Steinars Sólbergssonar mun
halda þrenna tónleika um helgina.
Þeir fyrstu verða í kvöld kl. 21.00 í
félagsheimilinu Miðgarði í Skaga-
firðí, á sunnudag kl. 17 syngur kór-
inn í Akureyrarkirkju og nk. mánu-
dagskvöld kl. 20.30 verður kórinn
með tónleika í félagsheimilinu
Tjarnarborg í Ólafsfirði, sem marka
upphaf svokallaðra Vordaga Ólafs-
fjarðarkirkju.
Á efnisskránni er blanda íslenskr-
ar og erlendrar tónlistar, bæði af
kirkjulegum og veraldlegum toga.
Sungin verður íslensk kirkjutónlist
eftir Róbert A. Ottósson, Jakob
Tryggvason, Pál ísólfsson, Þorkel
Sigurbjörnsson og Jón Hlöðver
Áskelsson. Þá verða sungin ættjarð-
arlög eftir Emil Thoroddsen, Þórar-
inn Guðmundsson og Bjarna Thor-
steinsson og íslensk þjóðlög eftir
Jón Ásgeirsson, Emil Thoroddsen,
Hafliða Hallgrímsson og Hjálmar
H. Ragnarsson. Að lokum syngur
kórinn eitt lag eftir danska kór-
stjórnandann Ulrik Rasmussen auk
tveggja mótetta eftir A. Bruckner.
Þessa efnisskrá mun Kór Akur-
eyrarkirkju syngja í tónleikaferð til
Danmerkur dagana 29. maí til 7.
júní nk. f kórnum er um 45 manns.
Myndlist
GaJleríAllraHanda
Málverkasýningu Einars Hákonars-
sonar í Galleríi AllraHanda á Akur-
eyri, sem staðið hefur yfir frá 2. maí
sl. lýkur um helgina.
Blómaskálinn Vín
Sýningu Elínar Kjartansdóttur í
Blómaskálanum Vín í Eyjafjarðar-
sveit lýkur nk. sunnudag. Á sýning-
unni er vefnaður úr leðri, mokka-
skinni, ull og hör. Sýningin er opin
frá kl. 12 til 22.
Fundir
Akureyri:
Bændafundur
um skýrslu sjö-
mannanefhdar
Búnaðarsamband Eyjafjarðar boð-
ar til bændafundar á Hótel KEA í
kvöld, föstudaginn 15, kl. 21.
Umræðuefni fundarins verður
skýrsla sú sem sjömannanefnd hefur
nýverið lagt fram um mjólkurfram-
leiðsluna. Frummælendur verða
Haukur Halldórsson, formaður
Stéttarsambands bænda og Björn
Arnórsson, hagfræðingur B.S.R.B.
Aðalftmdur
Kvikmyndaklúbbs
Akureyrar
Aðalfundur Kvikmyndaklúbbs
Akureyrar verður haldinn á
morgun, laugardaginn 16. maí, kl.
17 í stofu C-02 í Verkmenntaskólan-
um á Akureyri (inngangur að
norðanverðu).
Klúbburinn hefur starfað í tvö ár
og er ekki annað hægt að segja en
að starfsemin hafi gengið vel, miðað
við að þetta er nýr félagsskapur og
ekki er um reglulegt sýningarhald
að ræða. Á liðnum vetri hefur
klúbburinn staðið fyrir komu níu
mynda og sýnt á 22 sýningum.
Á næsta starfsári verður hluti
stjórnar klúbbsins fjarverandi við
nám og störf og því óskar stjórnin
eftir áhugasömu fólki til starfa, sem
vill og getur haft áhrif á val mynda
til sýninga.
Kvikmyndir
Borgarbíó
Léttgeggjuð ferð Billa og Tedda
verður sýnd kl. 21 í A-sal um helg-
ina. í B-sal kl. 21 í kvöld verður síð-
asta sýning á JFK. Annað kvöld og
á sunnudagskvöld verður sýnd
myndin Stóri Skúrkurinn. Klukkan
23 verða sýndar myndirnar Síðasti
skátinn og I dulargervi. Á barnasýn-
ingum á sunnudag verða sýndar
myndirnar Leitin mikla og Hundar
fara til himna.
Leiklist
Leikfélag Akureyrar
Allra síðustu sýningar Leikfélags
Akureyrar á íslandsklukkunni eftir
Halldór Laxnes verða í kvöld, föstu-
daginn 15. maí kl. 20.30 og annað
kvöld, laugardaginn 16. maí á sama
tíma. Þessi sýning hefur fengið
ágætar viðtökur áhorfenda jafnt
sem gagnrýnenda. Það er því full
ástæða til að hvetja þá sem hafa
ekki drifið sig í Samkomuhúsið að
grípa nú gæsina.