Dagur - 15.05.1992, Blaðsíða 13

Dagur - 15.05.1992, Blaðsíða 13
Föstudagur 15. maí 1992 - DAGUR - 13 Minning n Síðbúin minning: T JónBjamason frá Garðsvík Fæddur 4. maí 1910 - 12. desember sl. barst til okkar dánarfregn tengdaföður míns, Jóns Bjarnasonar frá Garðsvík. Þá er einn af þeim mönnum, sem hefur staðið mér næst, farinn yfir móðuna miklu - ein af akkeris- festum mínum á íslandi; sá eini karlmaðurinn sem ég heilsaði ávallt með kossi. Ég man greinilega fyrsta skipt- ið er ég sá Jón. Það var í eldhús- inu í Garðsvík vorið 1960. Þá var ég ungur maður og nýkominn að utan frá Noregi, algerlega mál- laus á íslenska tungu. Jón var þá með alla fjölskyldu sína í kring- Á sumardaginn fyrsta, 23. apríl, veitti forseti ísjands, Vigdís Finnbogadóttir, Össuri hf. Útflutningsverðlaun for- seta íslands við hátíðlega athöfn að Bessastöðum. Jónas G. Rafnar, stjórnarformaður Össurar hf. veitti verðlaunun- um viðtöku fyrir hönd fyrir- tækisins. Útflutningsverðlaun forseta íslands voru nú veitt í fjórða sinn. Verðlaunin, sem Helgi Gíslason, myndhöggvari, gerði í ár, eru veitt í samráði og í sam- vinnu við Útflutningsráð íslands. í fyrra hlutu Flugleiðir hf. þessi verðlaun, en einnig hafa Marel hf. og Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna hreppt hnossið. Útflutningsverðlaun forseta íslands eru veitt í viðurkenninga- skyni fyrir markvert framlag til eflingar útflutningsverslunar og gjaldeyrisöflunar íslensku þjóð- arinnar. Úthlutunarreglur kveða á um að verðlaunin skuli veitt fyrirtækjum eða einstaklingum, íslenskum eða erlendum, fyrir árangursríkt starf að útflutningi á íslenskum vörum og á þjónustu til annarra landa. Veiting verð- launanna tekur mið af verðmætis- aukningu útflutnings, hlutdeild útflutnings í heildarsölu, markaðssetningu á nýjum mörkuðum og fleiru. Sérstök úthlutunarnefnd velur árlega verðlaunahafa. Nefndina skipa Brynjólfur Sigurðsson, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla íslands, formaður; Ólaf- ur B. Thors frá landsnefnd Alþjóða verslunarráðsins; Þór- unn Sveinbjörnsdóttir frá Alþýðusambandi íslands; Sveinn Björnsson frá embætti forseta íslands og Ingjaldur Hannibals- son, framkvæmdastjóri Útflutn- Dáinn 12. desember 1991 um sig, hress og höfðinglegur. Næst kom ég í hús þeirra hjóna, Jóns og Boggu, skömmu síðar. Tilefnið var 50 ára afmæli Jóns. Ég var þá í fylgd með heimilisfólkinu í Sveinbjarnar- gerði, þar sem ég var þá vinnu- maður. Aldrei, hvorki fyrr né síðar, hef ég komið í fjölsóttari afmælisveislu en þetta blíða maí- kvöld í Garðsvík. Örlögin höguðu því svo að ég komst í nánari kynni við Jón og fólkið hans, því seinna varð ég tengdasonur þar á bæ er ég kvæntist dóttur þeirra, Margréti. ingsráðs íslands. í greinargerð Útflutningsráðs segir um Össur hf.: „Össur hf. er ungt fyrirtæki, aðeins um 20 ára gamalt. Meginmarkmið fyrir- tækisins er að veita þeim, sem þarfnast stoðtækja markvissa og góða þjónustu, svo að þeir geti lifað eðlilegu lífi, stundað vinnu við sitt hæfi og sinnt áhugamálum sínum. Þrátt fyrir ungan aldur fyrirtækisins hefur stjórnendum þess og starfsfólki tekist að hanna, þróa og framleiða vörur sem eru einstæðar í veröldinni. Ber þar hæst silíkon-hulsa, sem tengir stúf við gerfilim, og gervi- ökla, sem gerir notendum kleift að ganga fjaðurmögnuðum skrefum. í fyrstu starfaði Össur hf. ein- göngu á innanlandsmarkaði, en árið 1986 hóf fyrirtækið að hasla sér völl erlendis. Farið var hægt af stað, en smám saman fór bolt- inn að rúlla og nú er svo komið, að 95 prósent af hulsuframleiðslu fyrirtækisins fer á erlenda mark- aði, einkum til Norðurlandanna, Vestur-Evrópu, Bandaríkjanna og Kanada. Árið 1990 flutti Öss- ur hf. út fyrir rúmar 22 milljónir, árið 1991 var heildsalan um 50 milljónir og í ár er áætlað að sal- an verði um 140 milljónir. En það er ekki eingöngu á sviði vöruútflutnings sem Össur hf. hefur áhuga á að reyna fyrir sér. Fyrirtækið hefur í hyggju að flytja út þekkingu í formi þeirrar reynslu sem það býr yfir í stoð- tækjagerð. Þá er helst verið að hugsa um námskeiðshald og kynningu á hulsugerð, svo og almennum fyrirlestrum, en Össur Kristinsson, stofnandi og aðaleig- andi fyrirtækisins, er eftirsóttur fyrirlesari á ráðstefnum víða um heim.“ ój Þann tíma er ég var bílstjóri á mjólkurbílnum á Svalbarðs- strönd bjó ég því hjá fjölskyld- unni í Garðsvík. Jón var hygginn og áhugasam- ur bóndi og við áttum skap sam- an í búskapnum og fleiru. Þetta kom greinilega fram þegar tengdaforeldrar mínir komu í heimsókn til okkar Margrétar eftir að við vorum farin að búa hér í Noregi. Jón sýndi mikinn áhuga á búskap okkar og veitti okkur stuðning með góðum ráð- leggingum og stappaði í okkur stálinu rétt eins og hann væri ungur öðru sinni og hyggðist stunda búskapinn með okkur. Þó var hann búinn að sjá að ekkert barnanna hans myndi taka upp þráðinn eftir hann og Boggu í Garðsvík. Þau voru ekki létt sporin þeirra hjóna er þau yfirgáfu sveitina; sveitina sem þau höfðu lifað í þar til þau voru farin að þreytast og fluttu sig um set inn á malbikið, eins og Jón orðaði það. En aldrei heyrðum við þau kvarta yfir þessu, þótt við vissum að ákvörð- unin og umskiptin hefðu verið þeim þungbær. Það leynir sér ekki, þegar litið er á ljóðin hans Jóns, hvaða til- finningar hann bar til sveitarinn- Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Fasteign v/Kaldbaksgötu, Akureyri, þingl. eigandi O.S. hf., fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 20. maí 1992, kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er: Bæjarsjóður Akureyrar. Kaldbaksgötu 2, Akureyri, þingl. eigandi Blikkvirki sf., fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 20. maí 1992, kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru: Guðjón Ármann Jónsson hdl., Benedikt Ólafsson hdl., innheimtu- maður ríkissjóös, Ólafur Birgir Árnason hrl., Steingrímur Eiríksson hdl., Kristinn Hallgrímsson hdl. og Ólafur Gústafsson hrl. Múlasíðu 5, íb. 301, Akureyri, þingl. eigendur Jóhann Jóhannsson og Hjördís Henriksen, fer fram á eign- inni sjálfri miðvikud. 20. maf 1992, kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Sigurmar K. Albertsson hdl. og Húsnaeðisstofnun ríkisins. Strandgötu 51, Akureyri, þingl. eig- andi Blikkvirki sf., fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 20. maí 1992, kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur eru: Guðjón Ármann Jónsson hdl., Benedikt Ólafsson hdl., innheimtu- maður ríkissjóðs, Ólafur Birgir Árnason hrl., Steingrímur Eiríksson hdl., Kristinn Hallgrímsson hdl. og Ólafur Gústafsson hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu ar. í einu af ljóðum sínum lýsir hann vorkomunni í sveitinni svo: I loftinu syngur lóa, á lóninu kafar önd. Ó, hvað má nú hug minn róa, þar halda víst engin bönd, því nú fer grasið að gróa í Garðsvík, á Svalbarðsströnd. Önnur vísa eftir Jón sýnir hið sama: Ég hef látið böl og bú brekkur, tún og fjallalæki. Væri ég ungur orðinn nú upp ég þráðinn glaður tæki. Þannig var hugur hans til sveit- arinnar og búskaparins og ununin sterk í sál hans. Sumarið 1985 heimsóttu þau hjónin okkur hingað til Noregs í fjórða og síðasta sinn. Þá fórum við Jónarnir (sonur okkar heitir í höfuðið á afa sínum) í ferðalag um Austur-Noreg. Þetta reyndist skemmtilegt ferðalag. Jón hafði áhuga á öllu sem fyrir augu bar, mestan þó á skepnunum, lands- laginu og lifnaðarháttum fólksins. Hann hafði hins vegar minni áhuga á gömlum bygging- um, þótt sumar þeirra væru allt að 800 ára gamlar. Við runnum m.a. í hlað á nokkrum stærri búum landsins á Hedemark. Slík bú má einnig finna á íslandi að því undanskildu að þar er ekki ræktað korn. Sums staðar var ekkert nema skóglendi meðfram vegunum og ég fann að Jóni leiddist skógurinn til lengdar. Við Jón sáumst í síðasta sinn sumarið 1990. Hann var hress í viðmóti eins og venjulega þótt heilsan væri tekin að bila. En hann gantaðist bara með veikleik sinn. Jón bar ávallt mikla umhyggju fyrir fólkinu sínu. Það var t.d. til fyrirmyndar hvað hann sýndi eig- inkonu sinni mikinn kærleik og umhyggju en hún hefur síðustu árin verið meira eða minna rúm- liggjandi. Okkur Jóni varð aldrei sundur- orða. Kannski var það mest hon- um að þakka svo og því að ég bar mikla og djúpstæða virðingu fyrir honum. Ég hugsa oft til hans. Ég vil nota tækifærið, þótt seint sé, til að þakka starfsfólkinu á Dvalarheimilinu Hlíð fyrir ágæta umönnun tengdaforeldra minna. Blessuð sé minning tengdaföð- ur míns. Leif Rörtveit. Húsbréf _______ Innlausnarverð húsbréfa í 1. flokki 1989 1. flokki 1990 2. flokki 1990 Innlausnardagur 15. maí 1992. 1. flokkur 1989 Nafnverð: 5.000 50.000 500.000 Innlausnarverð: 6.838 68.389 683.898 1. flokkur 1990 Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000 6.037 50.000 60.379 500.000 603.798 2. flokkur 1990 Nafnverð: Innlausnarverð: 10.000 11.897 100.000 118.977 1.000.000 1.189.772 Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands Suðurlandsbraut 24. qp HÚSNÆÐISSTOFNUN RIKISINS LJ HÚSBRÉFADEILO ■ SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI 696900 «ti Móðir mín, stjúpmóðir og amma, GUÐRÚN SNORRADÓTTIR, frá Vestaralandi, Öxarfirði, Smárahlíð 12 d, Akureyri, andaðist 13. maí á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Fyrir hönd ættingja, Steinþórunn Karólína Steinþórsdóttir. Okkar bestu þakkir fyrir veitta hluttekningu og vinarhug í veik- indum og við útför, PÁLS BERGSSONAR, kennara frá Akureyri, Fossheiði 54, Selfossi. Guðs blessun fylgi ykkur. Eiginkona, börn og systkini. Við afhendingu Útflutningsverðlauna forseta íslands 1992 að Bessastöðum. Jónas G. Rafnar, stjómarformaður Össurar hf., flytur ræðu, til hægri Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands. Útflutningsverðlaun forseta íslands 1992: Össuri M. veitt verðlaunin

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.