Dagur - 15.05.1992, Qupperneq 3
Föstudagur 15. maí 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Skagaströnd:
Hlutafélag um stofmm fiskmarkaðar
Nýverið var stofnað hlutafélag
um rekstur fiskmarkaðar á
Skagaströnd. Hluthafar eru
Skagstrendingur hf., Hólanes
hf., Höfðahreppur og fleiri
hagsmunaaðilar og áhuga-
menn. Stefnt er að því að
markaðurinn verði fjarskipta-
markaður, en með aðstöðu í
Hólanesi til að taka fisk inn á
gólf.
Hvammstangi:
Auglýst eftir
ábúanda
á Ytrivelli
Hreppsnefnd Hvammstanga
ákvað fyrir skömmu að aug-
lýsa eftir ábúanda á jörðina
Ytrivelli, sem hreppurinn
keypti á síðasta ári. Að sögn
Bjarna Þórs Einarssonar,
sveitarstjóra, er ætlunin að
kanna áhuga fyrir því að jörðin
verði notuð sem bújörð fyrst
um sinn.
Ytrivellir eru í landi Kirkju-
hvammshreppi, rétt utan við
Hvammstanga. Hvammstanga-
hreppur keypti jörðina með það
fyrir augum, að auka það land-
rými sem hreppurinn hefur til úti-
vistar fyrir íbúa sína og ná-
granna.
„Við erurn ekki með neina fjár-
veitingu á þessu ári til að gera
neitt í útivistarmálum á Ytrivöll-
um. Pess vegna ákváðum við að
auglýsa eftir ábúanda á jörðina.
Enginn framleiðsluréttur fylgir
frá okkar hendi, en þetta er kjör-
in staður fyrir hrossaræktendur,
sem gætu þá haft vinnu úti á
Hvammstanga með hrossunum,
ef þannig stæði á,“ segir Bjarni
Þór. SBG
Akureyri:
Lokakvöld
Golfskála-
bridds
í kvöld verður síðasta spila-
kvöldið í bridds í Golfskálan-
um að Jaðri.
Spilaður verður eins kvölds
tvímenningur eins og önnur
föstudagskvöld og hefst keppni
kl. 20.00. Glæsileg verðlaun eru í
boði.
Akureyri:
Hafspil hf.
úrskurðað
gjaldþrota
Hafspil hf. á Akureyri var
úrskurðað gjaldþrota hjá
bæjarfógetaembættinu á
Akureyri sl. miðvikudag.
Hafspil hf. hefur lengi átt við
miklar fjárhagsþrengingar að etja
hefur gengið í gegnum greiðslu-
stöðvun. Um miðjan mars sl. var
fyrirtækið innsiglað vegna van-
goldinna opinberra gjalda.
Hafspil hf. hefur framleitt
vökvaknúinn búnað í skip og
báta, s.s. línu- og netaspil. óþh
- fyrsti markaðurinn á Norðurlandi vestra
Fiskmarkaðurinn á Skaga-
strönd verður fyrsti fiskmarkað-
urinn sem starfræktur verður á
Norðurlandi vestra. Að sögn
Óskar Þórðarsonar, stjórnarfor-
manns markaðarins, er fram-
kvæmdin á undirbúningsstigi, en
stefnt er að opnun í byrjun næsta
mánaðar.
„Ég held að það sé engin
spurning, að þörf er fyrir fisk-
markað hér á Norðurlandi
vestra. Tæknin og annað gerir
þetta mögulegt, án mikils til-
kostnaðar og aðstaðan í frysti-
húsi Hólaness er fyrir hendi, svo
ekki þarf að leggja út í neina fjár-
festingu í sambandi við það.
Enda teljum við að þetta sé það
sem koma skal,“ segir Óskar.
Óskar segir að hugmyndir séu
uppi um kanna ntöguleika á að
selja rækju á markaðnum, en
slíkt tíðkast hvergi um þessar
mundir. Hann segist telja það
koma vel til greina, þar sem stað-
urinn liggi vel við rækjumiðunum
úti fyrir Norðurlandi.
Stofnhlutafé fiskmarkaðarins á
Skagaströnd er ein milljón
króna, en að sögn Óskars er
leyfilegt að tvöfalda hlutaféð, án
þess að stofnhluthafar eigi for-
kaupsrétt að hlutabréfum. Hann
segir að kannað verði sérstaklega
hvort áhugi sé fyrir aðild að
markaðnum hjá aðilum á öðrum
þéttbýlisstöðum kjördæmisins,
því fyrst og fremst sé þetta hugs-
að sem þjónustufyrirtæki. SBG
NÝR OG
GLÆSILEGUR
MITSUBISHI
NÝTT OG STEFNUMARKANDI ÚTLIT
SÝNING UM HELGINA
HJÁ HÖLDI - LAUGARDAG KL. 10 - I 7 OG SUNNUDAG KL. 13 - l 7
> Meira innirými > Betri hljóðeinangrun > Aukinn öryggisbúnaður >
> Aflmiklir hreyflar með rafstýrðri fjölinnsprautun > Styrktarbitar í hurðum >
> Aukin þægindi > Enn betri al<sturseiginleikar >
KVOLDSYNING SUNNUDAG:
DALVÍK KL. I 8 - 19 ÓLAFSFIRÐI KL 20 - 21
Verð frá kr. 897.600
DÆMIÐ SJALF AÐ LOKNUM REYNSLUAKSTRI
HVARFAKUTUR
MINNI MENGUN
>
A
MITSUBISHI
MOTORS
M
OLDUR HF
TRYGGVABRAUT12
SÍMI 21715-23515
>