Dagur - 23.05.1992, Síða 7
Laugardagur 23. maí 1992 - DAGUR - 7
Efst í huga
Svavar Ottesen
Lítil íbúð óskast til leigu, þarf að vera laus
* jHL um miðjan júní.
* Æ Upplýsingar í síma 21466.
Niðursuðuverksmiðja
Wff j K. Jónssonar & Co. hf.
Styðjum vel við bakið
á okkar liðum
„Vorið er komið og grundirnar gróa,“
flaug í huga minn er ég hóf að rita þenn-
an pistil. Vorið er og hefur alltaf verið
mín uppáhalds árstíð og svo er áreiðan-
lega um flesta landsmenn. Þó verið hafi
nokkuð kalt það sem af er maímánuði
þá er ég ekki í nokkrum vafa um að
sumarið er alveg að koma og þessa síð-
ustu daga má „sjá grasið spretta", eins
og stundum er sagt.
Margt breytist með vorkomunni og eitt
af því er, að nú tekur alvara lífsins við
hjá knattspyrnumönnum okkar hér á
landi á sama tíma og knattspyrnumenn
annarra þjóða eru að Ijúka sínu keppn-
istímabili. Bæði Akureyrarliðin, KA og
Þór, leika nú í 1. deild og ættu knatt-
spyrnuunnendur að eiga ánægjulegt
sumar framundan, þó þessir árlegu spá-
dómar dæmi bæði liðin fyrirfram niður í
2. deild.
Þessi spá um gengi Akureyrarliðanna
er ekki ný bóla, en hún hefur sjaldan
gengið eftir. Á síðustu árum hefur
„Reykjavíkurrisunum" svokölluðu,
Fram, KR og Val, vanalega verið spáð
sigri fyrirfram í íslandsmótinu, en þess
er skemmst að minnast að KA varð
íslandsmeistri 1989 öllum að óvörum. Á
síðasta ári sigruðu svo Víkingar þrátt
fyrir allar spár.
Eins og menn muna frá síðasta sumri
þá lögðu Þórsarar, sem þá léku í 2.
deild, KR-inga á Akureyrarvelli í bikar-
keppninni og töpuðu síðan naumlega
fyrir Val eftir vítaspyrnukeppni, en Valur
varð síðan bikarmeistari.
Það er mikið til í þvi, sem Sigurður
Lárusson, þjálfari Þórs, segir í viðtali í
Degi sl. miðvikudag, þegar hann er
spurður af hverju þessi vantrú manna
fyrir sunnan á Akureyrarliðinum stafi:
„Ég held að það stafi af miklu leyti af
aðstöðuleysinu. Þegar við erum að fara
suður á vorin í æfingaleikina spilum við
gjarnan á gervigrasinu sem við erum
ekki vanir og menn spá út frá þeim leikj-
um. En ég er búinn að vera alltof lengi í
þessu til að vera hræddur við svona
lagað.“
í dag, laugardag, hefst svo baráttan í
íslandsmótinu. Þórsarar eiga heimaleik
gegn væntanlegum íslandsmeisturum
Fram, samkvæmt spánni. KA-menn
sækja hins vegar núverandi íslands-
meistara Víkings heim á sunnudag. Það
er því ekki hægt að segja að Akureyrar-
liðin ráðist á garðinn þar sem hann er
lægstur.
Vonandi eiga knattspyrnuunnendur á
Akureyri ánægjulegt sumar framundan.
Það eina sem jáeir geta gert er að styðja
vel við bakið á sínum liðum, fjölmenna á
völlinn og hvetja leikmenn vel. Ef Akur-
eyringar gera það þá vænti ég þess að
við eigum áfram tvö lið í 1. deild.
Fyrir sumarið!
Svampdýnur í sumarbústaðinn,
hjólhýsið, tjaldvagninn.
Svefnsófar eftir máli, hornsófar.
Sauma yfir dýnur og púða.
Mikið úrval áklæða.
SVAMPUR OG BÓLSTRUN
Austursíðu 2 (Sjafnarhúsið), sími 96-25137.
11
J
Gróðrarstöðin Réttarhóll
Svalbarðseyri, sími 11660.
Plöntusala hafin.
Sumarblóm og fjölærar plöntur.
Opið verður virka daga frá kl. 20 til 22
og laugardaga og sunnudaga frá kl. 10
til 18.
Reiðskóli að
Hamraborgum
Fréttagetraun
Hér kemur lauflétt getraun sem tengist fréttum og
öðru efni Dags í síðustu tölublöðum. Þetta er til-
valinn leikur fyrir þá sem vilja skerpa skammtíma-
minnið og svörin fylgja með til hægðarauka og
staðfestingar.
1. Hvað heitir framkvæmdastjóri Foldu hf.?
2. Útgerðarfélag Akureyring hf. á töluverða
upphæð í Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins.
Hvað eru þetta margar milljónir?
3. Lúðrasveit Tónlistarskóla Dalvíkur og Ólafs-
fjarðar fór í tónleikaferð sl. mánudag. Hvert
var förinni heitið?
4. Tindastóll fær ágætan liðsauka í körfuboltan-
um næsta vetur. Hvað heitir þessi knái bak-
vörður og með hvaða liði hefur hann leikið?
5. „Sumarskólinn er stærsta hugmynd af mörg-
um sem ég hef hrint í framkvæmd og ég hef
tröllatrú á henni. Ég legg öll spil á borðið.“
Hver mælti svo?
6. Hvar fór allt á flot í síðustu viku þegar heitt
vatn streymdi um húsið?
7. Hvað heitir júdómaðurinn úr KA sem hefur
tryggt sér rétt til að keppa á Ólympíuleiknum
í Barcelona í sumar?
8. Hvað heita plöturnar sem Bruce Springsteen
sendi frá sér nýverið?
9. Hvert var heildartap Kaupfélags Langnesinga
á síðasta ári og hvað heitir kaupfélagsstjór-
inn?
10. Hvað heitir nýráðinn skólastjóri Tónlistar-
skólans á Akureyri og hvað sóttu margir um
starfið?
11. Hver tók fyrstu skóflustunguna að tveim 35
íbúða fjölbýlishúsum fyrir aldraða við Linda-
síðu 2-4 á Akureyri?
12. Hvar vilja Úrbótarmenn reisa orlofsíbúðir?
SS
Útgjöld vegna stýó-
moksturs í minna lagi
Bakpoluunonn
aieins farair
að sjist á ferð
Nemendur gáfu 400 j)úsund krónur
til að greiða götu íþróttahúss
Veröur skrifstofan á llvammstanga?
t,jald|>MI riiivUtiinna iHftrutiv
Nálægt þúsund
annað árið í röð
Batnandi atvinnuástand
“ixrEÍrH
■pUn|BUiEf^ QIA uojsnt!
§0 UBQiOU ‘!§9>(SBUiBf^ J '£(
BiQE
-ip|B iEpupuiBSutSSÁq inQBtu
-iOJ ‘UOSSiB>|SQ UU!3}S(BQV 11
■IUIUUJ
uossiBuunQ !]Q inpunutQnrj -Q!
UOSSiOpilBH
iBQiBQ 'BUOi^ ijupflptu 9g 'g
UMOl
á>|Dnq So qnnox UBtunn '8
•uosspunuiSjs !inEQ í^oíj •/_
•>(!ABsnH b (uujKoqBpoicjj j -9
uSui uíq g
uossupqiONi (|bj v
•iBMasuiuo I!1 ■£
•Buoiq ijupfipui ooi uiq 'Z
•UOSSiBUI3p(By\ UJApiBQ
Reiðskóli Hestamannafélagsins Léttis og Æskulýðs-
ráðs Akureyrar fyrir börn á aldrinum 8-14 ára, hefst
9. júní að Hamraborgum. Lengd hvers námskeiðs
eru tvær vikur.
Þátttökugjald er kr. 4.000 og greiðist fyrirfram.
1. námskeið 9.-20. júní.
2. námskeið 29. júní-10.júlí.
3. námskeið 13.-24. júlí.
Námskeiðin skiptast í þrjá flokka. Framhaldsflokkar
verða kl. 9.00-11.00, byrjendaflokkar kl. 13.00-15.00
og kl. 15.30-17.30.
Kennari verður Haukur Sigfússon.
Innritun verður á skrifstofu Æskulýðsráðs,
Strandgötu 19 b, sími 22722 og hefst mánudag-
inn 25. maí kl. 08.00.
TRYGGINGASTOFNUN
Þátttaka tryggingastofnunar
í tannlæknakostnaði
barna og unglinga
Nýr samningur milli Tryggingastofnunar og Tann-
læknafélags íslands hefur tekið gildi.
Sjúkratryggingarnar greiða nú fyrirbyggjandi með-
ferð barna 15 ára og yngri að fullu. Fyrir aðrar tann-
lækningar þessa aldurshóps (þó ekki Reykjavíkur-
barna 6-15 ára) er 85% kostnaðar endurgreiddur
nema fyrir tannréttingar, gullfyllingar, krónu- og brú-
argerð.
í Reykjavík greiða börn, 6-15 ára, 15% kostnaðar
hjá skólatannlækni samkvæmt gjaldskrá hans, sem
er 20% iægri en einkatannlækna. Fari þau til einka-
tannlæknis endurgreiðir Tryggingastofnun 68%
kostnaðar.
Fyrir 16 ára unglinga endurgreiðist 50% kostnaðar.
Tryggingastofnun ríkisins.