Dagur - 03.06.1992, Blaðsíða 1

Dagur - 03.06.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur Akureyri, miðvikudagur 3. júní 1992 103. tölublað Vel í fö 1 klæddur itum frá bernhardt lerrobudin 1 || HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI • SÍMI96-26708 ■ BOX 397 Folda hf. á Akureyri: Sölusairmingur við Rússa undirritaður - ullarvörur fyrir 250 milljónir og líkur á viðbótarsamningi Folda hf. á Akureyri og ullar- bandsfyrirtækið ístex í Mos- fellsbæ hafa náð samningum við fyrirtæki í Rússlandi um sölu á ullarvörum fyrir um 250 Bæjarstjórn Akureyrar: Sigríður í stað Sigurðar Á fundi bæjarstjórnar Akur- eyrar í gær var kosið í embætti og bæjarráð til eins árs. Sigurður J. Sigurðsson lét af embætti forseta bæjarstjórnar og Sigríður Stefánsdóttir var kjörin forseti í hans stað. Björn Jósef Arnviðarson var kjörinn fyrsti varaforseti og tók hann við stjórn fundarins í fjar- veru Sigríðar. Úlfhildur Rögn- valdsdóttir var kjörin annar vara- forseti. Ritarar: Birna Sigurbjörns- dóttir og Kolbrún Pormóðsdótt- ir. Til vara: Heimir Ingimarsson og Gísli Bragi Hjartarson. Bæjarráð: Sigurður J., Björn Jósef, Sigríður, Úlfhildur og Jakob Björnsson. Varamenn: Birna, Jón Kr. Sólnes, Heimir, Þórarinn E. Sveinsson og Kolbrún. SS milljónir króna á þessu ári. Samningurinn hefur verið undirritaður með fyrirvara af hálfu Rússa um leyfi á útflutn- ingsvörum sem er forsenda þess að þeir geti greitt fyrir ullarvörurnar. „Pessi samningur er búinn að vera í vinnslu síðustu mánuði og þetta er mjög jákvætt skref. Það er of snemmt að segja til um hvaða breytingar hann hefur í för með sér hjá fyrirtækinu því samningurinn var undirritaður með fyrirvara. Þetta er vissulega spor í rétta átt og það eru einnig líkur á því að við náum viðbótar- samningi um sölu á ullarteppum, en það er ekki endanlega frá- gengið,“ sagði Baldvin Valde- marsson, framkvæmdastjóri Foldu, í samtali við Dag í gær. Fyrirtækin Folda og ístex standa sameiginlega að þessum sölusamningi við Rússa. Allt ullarband - kemur frá ístex og unnar verða blandaðar ullarvörur upp í samninginn sem undirritað- ur hefur verið. Baldvin sagði að samningurinn kæmi allur til framkvæmda á þessu ári, ef af honum yrði vegna fyrirvara sem áður var getið, og undirritun hans væri jákvæð fyrir rekstur Foldu. SS Frá slysstað í gær. Bílarnir sem rákust saman eru mikið skemmdir. Á inn- felldu myndinni er bíllinn sem ók á sjúkrabílinn. Mynd: Goiii Umferðarslys á Akureyri: Sjúkrabíll lenti í árekstri með slasaðan mann innanborðs í gærmorgun lenti sjúkraflutn- ingabifreið í árekstri á leiðinni upp á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri með slasaðan mann. Að sögn Gísla Kr. Lórenzson- ar, slökkviliðsstjóra, er atburður sem þessi fátíður á Akureyri. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni barst tilkynning um Tillögur um 40% niðurskurð á þorskkvóta: Yrði reiðarslag fyrir byggðir á Norðurlandi árekstur á mótum Gránufélags- götu og Laufásgötu um kl. 10.10 í gærmorgun. Þar höfðu fólks- bifreið og Subaru bitabox skollið harkalega saman. Sjúkrabíll og lögregla komu fljótt á staðinn og þótti sýnt að ökumaður sendibíls- ins þyrfti á læknisaðstoð að halda og var hann því borinn inn í sjúkrabílinn. Meiðsl hans voru ekki talin alvarleg en hann hafði skorist eitthvað á höfði. að 15 milljarða samdrátt í útflutningstekjum þjóðarinnar - gæti þýtt allt Fiskveiðiráðgjafanefnd al- þjóðahafrannsóknaráðsins hefur lagt til að sókn í íslenska þorskstofninn verði minnkuð um 40% á næsta ári. Það þýðir að þorskafli yrði 150 þúsund tonn á árinu 1993, eða 175 þús- und tonn á næsta fiskveiðiári en á yfirstandandi fískveiðiári, sem lýkur 31. ágúst, er þorsk- kvótinn 265 þúsund tonn. Ef farið yrði að tillögum nefndar- innar myndi það þýða allt að 15 milljarða króna samdrátt í útflutningstekjum íslensku þjóðarinnar. Þessi tíðindi hafa vakið mikinn ugg hjá hags- munaaðilum í sjávarútvegi og öðrum, ekki síst á Norðurlandi þar sem slík skerðing myndi koma verr niður en á flestum öðrum svæðum. Fiskveiðiráðgjafanefndin fjall- aði um íslenska fiskistofna að beiðni íslenskra stjórnvalda og kynnti niðurstöðurnar í fyrradag. Þar kemur fram að hrygningar- stofn þorsksins hefur minnkað úr rúmlega milljón tonnum milli áranna 1955 og 1960 í rúmlega 200 þúsund tonn árið 1992. Þá kemur fram að allir árgangar frá 1985 eru undir meðallagi og árgangurinn 1986 sá lélegasti frá 1955. Meðalstærð árganga frá 1952 til 1991 er rúmlega 200 milljónir en meðalnýliðun síðan 1985 er undir 140 milljónum. Telur ráð- gjafanefndin ástæðu til að hafa verulegar áhyggjur af stærð hrygningarstofnsins því annars séu talsverðar líkur á að hin lélega nýliðun undanfarinna ára verði viðvarandi og góðir árgang- ar sjaldgæfir og langt á milli þeirra. Til að stofninn stækki telur nefndin nauðsynlegt að takmarka sókn í hann við 150 þúsund tonn á næsta ári sem er um 40% sam- dráttur miðað við árið í ár. Ráð- gjöf Hafrannsóknastofnunar til íslenskra stjórnvalda verður birt um miðjan júní og ljóst þykir að þar verður lagður til verulegur niðurskurður. Gunnar Ragnars, forstjóri Útgerðarfélags Akureyringa hf., segir að vissulega komi þessi niðurstaða á óvart þótt búast hafi mátt við að ástandið væri ekki gott. „Þetta er mikið áfall, ekki bara fyrir útgerðina heldur alla íslensku þjóðina," sagði Gunnar. Hann sagði skerðingar síðustu missera hafa komið misjafnlega niður á landshlutum og einna verst niður á Norðurlandi þar sem skornar hafi verið niður heimildir til veiða á þeim tegund- um sem mest sé veitt af þar. Frekari skerðing hljóti að kalla á almennar aðgerðir til að jafna áfallinu niður á alla í greininni. Hann sagði að þorskur væri u.þ.b. 35% af afla ÚA þannig að verið væri að tala um miklar upp- hæðir ef kvótinn yrði skorinn nið- ur um 40%. Ásgeir Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Kaldbaks hf. á Grenivík, segir að þorskur sé mjög afgerandi í þeim afla sem kemur á land á Grenivík, trúlega um 70%. „Ef þessum tillögum verður fylgt eftir verður það mjög þungt högg, bæði fyrir fyrir- tækið og Grenivík í heild. En það mátti búast við einhverju þessu líku þar sem fiskifræðingar hafa í mörg ár lagt til að við veiddum minna en við höfum gert,“ sagði Ásgeir. Björn Snæbjörnsson, formað- ur Verkalýðsfélagsins Einingar, sagði að u.þ.b. 40% af félags- mönnum Einingar störfuðu við fiskvinnslu þannig að skerðing á aflaheimildum myndi hafa mikil áhrif á félagssvæðinu. „Staðir eins og Grenivík, Hrísey, Dalvík og Ólafsfjörður byggja að lang- mestu leyti á fiskvinnslu og slík skerðing yrði auðvitað reiðarslag fyrir þessa staði. Atvinnuleysi hefur. verið mikið hérna við fjörðinn, sérstaklega á Akureyri, og það er hætt við að stórfelld skerðing myndi hafa mjög alvar- legar afleiðingar, ekki hvað síst fyrir þessa smærri staði. Síðasti niðurskurður upp á 10% var erfiður en maður gerir sér ekki grein fyrir hvað holskefla af þessu tagi myndi raunverulega þýða,“ sagði Björn. JHB Bæjarráð hefur vísað tillögum sem skólafulltrúa og bæjar- verkfræðingi var falið að gera um Iþróttaskemmuna og íþróttaaðstöðu við Oddeyrar- skóla á Akureyri til endur- skoðunar á þriggja ára áætlun bæjarins í haust. Niðurstöð- urnar eru á þá lund að íþrótta- kennsla verði ekki Iögð niður í Skemmunni að sinni. Ingólfur Ármannsson, skóla- fulltrúi, sagði í samtali við Dag að niðurstaðan hefði verið sú að Á leiðinni lenti sjúkrabíllinn í árekstri á mótum Hjalteyrargötu og Gránufélagsgötu. Bílar sem voru á undan viku fyrir sjúkra- bílnum en einn ökumaðurinn virtist ekki alveg átta sig og sveigði fyrir bílinn á gatnamótun- um og rakst utan í hægri hlið sjúkrabílsins. Höggið var ekki þungt og engin meiðsl á fólki og hélt ökumaður sjúkrabílsins áfram með hinn slasaða upp á slysadeild FSA. SS það væri framkvæmanlegt að taka Skemmuna undir áhaldahús en margt mælti með því að það gerðist ekki fyrr en eftir 2-3 ár. „Við teljum eðlilegt að hafa þennan aðlögunartíma og auk þess tengist þetta fyrirhugaðri byggingu íþróttahúss við Odd- eyrarskóla,“ sagði Ingólfur. Heimir Ingimarsson gat um þessa niðurstöðu á bæjarstjórn- arfundi í gær og hann sagði ljóst að Skemman yrði enn um sinn notuð fyrir íþróttakennslu við skólann. SS íþróttaskemman á Akureyri: Ekki breytt í áhalda- hús að svo stöddu

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.