Dagur - 03.06.1992, Blaðsíða 10

Dagur - 03.06.1992, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 3. júní 1992 Dagskrá fjölmiðla i þættinum um Nýjustu tækni og vísindi í Sjónvarpinu í kvöld verður sýnd ný íslensk mynd um kortagerð. Sjónvarpið Miðvikudagur 3. maí 16.30 Töfraglugginn. 17.30 Landsleikur í knatt- spyrnu. Ungverjaland-ísland. Bein útsending frá Nep-leik- vanginum í Búdapest þar sem Ungverjar og íslanding- ar eigast við í undanriðli heimsmeistarakeppninnar í knattspymu. 18.15 Táknmálsfréttir. 19.30 Staupasteinn (24). (Cheers.) 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Nýjasta tækni og vís- indi. Ný mynd um kortagerð á íslandi á fyrri öldum og til okkar tíma. í myndinni er sagt frá hefðbundnum kort- um og þemakortum, loft- myndatöku úr flugvélum og gervitunglum og loks er hugað að framtíðinni en menn eru í æ ríkari mæli farnir að nota tölvur við kortagerð. 20.50 Ferð án enda. Dagsbrún mannkyns. (Infinite Voyage - Dawn of the Humankind) Bandarísk heimildamynd um uppruna mannkyns. 21.50 Saga úr þorpi. Kinversk bíómynd frá 1987 byggð á sögu eftir Gu Hua. Myndin gerist á tímum menningarbyltingarinnar og í henni er sögð átakasaga um baráttu einstaklinga við óviðráðanlegt kerfi. Ungum hjónum tekst með elju og sparsemi að koma sér upp húsi. Yfirvöld fordæma þau og varpa manninum í fangelsi og þar má hann dúsa þangað til Maó formað- ur er allur. Myndin var til- nefnd til óskarsverðlauna á sínum tíma og hlaut fyrstu verðlaun á kvikmyndahátíð- inni í Karlovy Vary í Tékkóslóvakíu. Aðalhlutverk: Liu Xiacqing, Jiang Wen og Zheng Zaishi. 23.00 Ellefufréttir. 23.10 Saga úr þorpi - framhald. 00.15 Dagskrárlok. Stöð 2 Miðvikudagur 3. júní 16.45 Nágrannar. 17.30 Trúðurinn Bósó. 17.35 Bibliusögur. 18.00 Umhverfis jörðina. (Around the World with Willy Fog.) 18.30 Nýmeti. 19.19 19:19. 20.10 Bílasport. 20.40 Skólalíf í Ölpunum. (Alphine Academy.) Hér er á ferðinni alveg nýr myndaflokkur í tólf þáttum sem framleiddur er í sam- vinnu evrópskra sjónvarps- stöðva. Hér segir frá hópi unglinga sem eru saman í heimavist- arskóla. Við fylgjumst með ævintýrum þeirra, ástum og sorgum í þessum skemmti- legu þáttum fýrir alla fjöl- skylduna. 21.35 Ógnir um óttubil. (Midnight Caller.) 22.25 Tíska. 22.50 í ljósaskiptunum. (Twilight Zone.) 23.15 Frumsýningarkvöld. (Opening Night.) Spennandi bresk sakamála- mynd gerð eftir sögu Ngaio Marsh. Myndin er bönnuð börnum. 00.50 Dagskrárlok. Rás 1 Miðvikudagur 3. júní MORGUNÚTVARP KL. 06.45-09.00 06.45 Veðurfregnir - Bæn. 07.00 Fréttir. 07.03 Morgunþáttur Rásar 1. Hanna G. Sigurðardóttir og Trausti Þór Sverrisson. 7.30 Fréttayfirlit. 7.31 Fréttir á ensku. 7.34 Heimsbyggð. Jón Ormur Halldórsson. 7.45 Bókmenntapistill Jóns Stefánssonar. 08.00 Fréttir. 08.10 Að utan. 08.15 Veðurfregnir. 8.30 Fréttayfirlit. 8.40 Heimshorn. ÁRDEGISÚTVARP KL. 09.00-12.00 09.00 Fréttir. 09.03 Laufskálinn. Umsjón: Gestur Einar Jón- asson. (Frá Akureyri.) 09.45 Segðu mér sögu, „Það sem mór þykir allra best" eftir Heiðdísi Norðfjörð. Höfundur les (9). 10.00 Fróttir. 10.03 Morgunleikfimi með Halldóru Bjömsdóttur. 10.10 Veðurfregnir. 10.20 Árdegistónar. 11.00 Fréttir. 11.03 Samfélagið í nærmynd. 11.53 Dagbókin. HÁDEGISÚTVARP KL. 12.00-13.05 12.00 Fróttayfirlit á hádegi. 12.01 Að utan. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. 12.48 Auðlindin. 12.55 Dánarfregnir • Auglýs- ingar. MIÐDEGISÚTVARP KL. 13.05-16.00 13.00 Hádegisleikrit Útvarps- leikhússins, „Næturvakt" eftir Rodney Wingfield. Spennuleikrit í fimm þáttum, þriðji þáttur. 13.15 Út í loftið. 14.00 Fréttir. 14.03 Útvarpssagan, Endur- minningar Kristínar Dalsted. Ásdís Kvaran Þorvaldsdóttir les (8). 14.30 Miðdegistónlist eftir Johannes Brahms. 15.00 Fréttir. 15.03 í fáum dráttum. SÍÐDEGISÚTVARP KL. 16.00-19.00 16.00 Fróttir. 16.05 Sumargaman. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Hljóðmynd. 16.30 í dagsins önn - íslend- ingar í „au pair“ störfum erlendis. 17.00 Fréttir. 17.03 Sólstafir. 17.40 Hér og nú. Fréttaskýringaþáttur Frétta- stofu. 18.00 Fréttir. 18.03 Þjóðarþel. Guðrún S. Gísladóttir les Laxdælu (3). Anna Margrét Sigurðardótt- ir rýnir í textann og veltir fyrir sér forvitnilegum atrið- um. 18.30 Auglýsingar • Dánar- fregnir. 18.45 Veðurfregnir • Auglýs- ingar. K V ÖLDÚTVARP KL. 19.00-01.00 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Kviksjá. 20.00 Hljóðfærasafnið. 20.30 Mótorhjól í umferðinni. Umsjón: Gestur Einar Jón- asson. 21.00 Frá tónskáldaþinginu í París í maí í vor. 22.00 Fróttir. Heimsbyggð, endurtekin úr Morgunþætti. 22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins • Dagskrá morg- undagsins. 22.30 Uglan hennar Mínervu. Lokaþáttur. Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason. 23.10 Eftilvill... Umsjón: Þorsteinn J. Vil- hjálmsson. 24.00 Fréttir. 00.10 Sólstafir. 01.00 Veðurfregnir. 01.10 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Rás 2 Miðvikudagur 3. júní 07.03 Morgunútvarpið - Vaknað til lífsins. Leifur Hauksson og Eiríkur Hjálmarsson hefja daginn með hlustendum. 08.00 Morgunfréttir. - Morgunútvarpið heldur áfram. 09.03 9-fjögur. Umsjón: Þorgeir Ástvalds- son, Magnús R. Einarsson, Margrét Blöndal og Snorri Sturluson. Sagan á bak við lagið. Furðufregnir utan úr hinum stóra heimi. - Ferðalagið, ferðagetraun, ferðaráðgjöf. Sigmar B. Hauksson. Limra dagsins. Afmæliskveðjur. Síminn er 91-687123. 12.00 Fréttayfirlit og veður. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 9-fjögur. - heldur áfram. 12.45 Fréttahaukur dagsins spurður út úr. 16.00 Fróttir. 16.03 Dagskrá: Dægurmála- útvarp og fréttir. Starfsmenn dægurmála- útvarpsins og fréttaritarar heima og erlendis rekja stór og smá mál dagsins. 17.00 Fréttir. - Dagskrá heldur áfram. 17.30 Undankeppni heims- meistaramótsins í knatt- spyrnu: Ungverjaland- ísland. Ingólfur Hannesson lýsir leiknum frá Nep leikvangin- um í Búdapest. 19.30 Ekki fréttir. 19.32 Út um allt! Kvölddagskrá Rásar 2 fyrir ferðamenn og útiverufólk sem vill fylgjast með. Fjörug tónlist, íþróttalýsingar og spjall. Umsjón: Andrea Jónsdóttir, Gyða Dröfn Tryggvadóttir og Darri Ólason. 22.10 Landið og miðin. 00.10 í háttinn. Gyða Dröfn Tryggvadóttir leikur ljúfa kvöldtónlist. 01.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Fréttir kl. 7,7.30,8,8.30,9,10, 11,12,12.20,14,15,16,17,18, 19, 22 og 24. Næturútvarpið 01.00 Tengja. 02.00 Fróttir. 02.05 Tengja. 03.00 í dagsins önn. 03.30 Glefsur. 04.00 Næturlög. 04.30 Veðurfregnir. - Næturlögin halda áfram. 05.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 05.05 Landið og miðin. 06.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 06.01 Morguntónar. Ríkisútvarpið á Akureyri Miðvikudagur 3. júní 08.10-08.30 Útvarp Norður- lands. 18.03-19.00 Útvarp Norður- lands. Bylgjan Miðvikudagur 3. júní 07.00 Morgunþáttur Bylgjunnar. Eiríkur Jónsson og Guðrún Þóra með skemmtilegan morgunþátt. Það er fátt sem þau láta sig ekki máli skipta og svo hafa þau fengið Steinunni ráðagóðu til liðs við sig en hún gefur ykkur skemmtilegar og hagnýtar ráðleggingar varðandi heimilishaldið. Fréttir kl. 7, 8 og 9. Fréttayfirlit klukkan 7.30 og 8.30. 09.00 Anna Björk Birgisdóttir. Ýmislegt skemmtilegt verð- ur á boðstólum, eins og við er að búast, og hlustenda- línan er 671111. Mannamál kl. 10.00 og 11.00. 12.00 Hádegisfréttir frá frétta- stofu Bylgjunnar og Stöðvar 2. 12.10 Anna Björk Birgisdóttir. 13.00 íþróttafróttir. 13.05 Sigurður Ragnarsson. Rokk og rólegheit á Bylgj- unni í bland við létt spjall um daginn og veginn. Mannamál kl. 14 og 16. 16.00 Reykjavík síðdegis. Hallgrímur Thorsteinsson og Steingrímur Ólafsson fjalla um málefni líðandi stundar og hjá þeim eru engar kýr heilagar. 17.00 Fréttaþáttur frá frétta- stofu Bylgjunnar og Stöðvar 2. 17.30 Reykjavík síðdegis heldur áfram. 18.00 Fréttaþáttur frá frétta- stofu Bylgjunnar og Stöðvar 2. 18.05 Landssíminn. Bjarni Dagur Jónsson tekur púlsinn á mannlífinu og ræð- ir við hlustendur um það sem er þeim efst í huga. Sím- inn er 671111. 19.30 Fréttir frá fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar. 20.00 Kristófer Helgason. Léttir og ljúfir tónar í bland við óskalög. Síminn er 671111. 23.00 Kvöldsögur. Þorhallur Guðmundsson tekur púlsinn á mannlífs- sögunum í kvöld. 00.00 Næturvaktin. Hljóðbylgjan Miðvikudagur 3. júní 17.00-19.00 Pálmi Guðmunds- son leikur gæðatónlist fyrir alla. Fréttir frá fréttastofu Bylgjunnar/Stöð 2 kl. 18.00. Tími tækifæranna kl. 18.30. Þú hringir í síma 27711 og nefnir það sem þú vilt selja eða óskar eftir. Þetta er ókeypis þjónusta fyrir hlust- endur Hljóðbylgjunnar. / # Gamlar hefðir Þá er skólastarfseminni lokið þennan vetur hjá flestum skól- um og nemendum hefur verið hleypt út á vinnumarkaðinn eða út í atvinnuleysið. Aðeins Menntaskólinn á Akureyri þrjóskast við og heldur vænt- anlegum stúdentaefnum innan- dyra í blíðunni vegna eld- gamalla hefða sem ríghaldið er í af ástæðum sem eru að verða ansi þokukenndar. Af líkum ástæðum hefst kennsla í MA ekki fyrr en í októberbyrjun, sennilega vegna þess að áður fyrr gátu nemendur ekki mætt fyrr í skóla vegna haustanna, þ.e. göngur og réttir voru þá ríkari hefð og jafnvel skylda. En nú er hún Snorrabúð stekk- ur eins og allir vita og því gustukaverk að leyfa krakka- greyjunum að útskrifast í maí- mánuði og mæta svo afslöpp- uðum með hvítu kollana i allt 17. júní húllumhæið. # Lán út á hvað? Umræðan um Lánasjóð íslenskra námsmanna hefur nú staðið um hríð og hefur oftar en ekki tekið á sig hinar ein- kennilegustu myndir. Forvíg- ismönnum námsmanna finnst það hið mesta svínarí að krefj- ast þess að til þess að fá hámarks námslán þurfi á móti að sýna það að þessir pening- ar séu notaðir til að læra og þar með skila 100% námsárangri. Þegar þetta fólk kemur svo seint og síðar meir út á vinnu- markaðinn krefst það að sjálf- sögðu góðra launa en á móti krefst vinnuveitandinn hámarks afkasta. Enginn mótmælir því en er nám nokkuð annað en vinna sem skila verður afköst- um í rétt eins og víðast hvar á vinnumarkaðnum? Nýlega birtist viðtal í sjónvarpi við unga tveggja barna móður sem fórnaði nánast höndum yfir því hvernig hún og hennar fjölskylda ætti að lifa af náms- láni sem er um 200 þúsund krónur á mánuði. Gott og vel, það eru ekki nema tvöföld verkamannalaun en það sló hins vegar fleiri áhorfendur þegar í Ijós kom að stúlkan var í íslenskunámi því öll hennar tilsvör í viðtalínu voru hlaðin ambögum og jafnvel hreinum málleysum. í lýðfrjálsu landi eiga allir rétt á að sækja sér menntun enda sækja allflestir nemendur sem útskrifast úr grunnskólum landsins um skólavist í fram- haldsskólunum. En er ekki orð- ið tímabært að hafa vit fyrir þeim sem hafa ekki getu til að stunda framhaldsnám og setja inntökuskilyrði í formi lág- markseinkunnar?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.