Dagur - 03.06.1992, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 3. júní 1992 - DAGUR - 11
IÞRÓTTIR
Jón Haukur Brynjólfsson
Stend mig bara betur næst
- segir Guðmundur Benediktsson, knattspyrnumaður hjá Ekeren
Þórsarinn ungi, Guðmundur
Benediktsson, sem æfði og
spilaði knattspyrnu með Ekeren
í Belgíu, segist ekki sáttur við
eigin frammistöðu í vetur.
„Þetta er auðvitað búið að
vera ágætt en ég er staðráðinn
í því að standa mig betur á
næsta tímabili,“ sagði Guð-
mundur í viötali við blaða-
mann.
Eins og flestum lesendum
Dags ætti að vera kunnugt, fór
Landsleikur við
Ungverja í dag
íslendingar spila landsleik við
Ungverja í knattspyrnu í dag.
Leikurinn hefst klukkan 18, að
íslenskum tíma, og verður leikn-
um að öllum líkindum sjónvarp-
að beint frá Ungverjalandi. Ekki
var búið að tilkynna byrjunarlið
íslendinga þegar blaðið fór í
prentun. SV
Ósigur hjá
U-21 liðinu
íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu skipað leikmönnum 21
árs og yngri tapaði fyrir Ung-
verjum í fjörugum leik, 3-2.
íslendingarnir spiluðu mjög vel
framan af og höfðu yfir 0-1 í hálf-
leik. Ungverjar voru ekkert á því
að gefast upp og náðu að skora
þrjú mörk á skömmum tíma.
Stuttu fyrir leikslok hresstust
íslensku strákarnir aftur og
minnkuðu muninn. Mörk íslend-
inganna skoruðu tvíburabræðurnir
af Skaganum, Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir. Þórsarinn Lárus
Orri Sigurðsson spilað sinn fyrsta
U-21 árs leik. SV
„Ég var fjórum
sinnum vara-
maður og fékk
lítið að spila.
Mér tókst ekki
að skora en
stefnan er að
hrúga inn
mörkunum
strax og færi
gefst,“ segir
Guðmundur.
Guðmundur Benediktsson út til
Belgíu síðastliðið haust til þess
að reyna fyrir sér í atvinnuknatt-
spymunni hjá Ekeren. Guðmund-
ur spilaði með Þór á síðasta'
keppnistímabili en hélt svo utan í
vetur. Hann er nú staddur á
Akureyri og verður í leyfi út júní
Þegar Guðmundur var spurður
hvernig tímabilið hefði verið
sagðist hann ekki vera neitt sér-
lega ánægður en var staðráðinn í
því að gera betur næst. „Ég var
fjórum sinnum varamaður og
fékk lítið að spila. Mér tókst ekki
að skora fyrir liðið en stefnan er
að hrúga inn mörkunum strax og
færi gefst“, sagði Guðmundur.
„Baráttan um sætið í hópnum
er gríðarlega mikil og maður
verður að standa sig vel með
varaliðinu til þess að fá tækifæri.
Svo er spurningin bara um að
nýta það,“ sagði Guðmundur og
bætti því við að þarna úti væri líf-
ið bara fótbolti og aftur fótbolti.
„Við æfum tvisvar á dag tvo daga
í viku og einu sinni á dag þrisvar.
Um helgar er svo leikur og einn
frídagur“.
Eins og áður sagði fer Guð-
mundur út aftur um næstu mán-
aðamót en fram að því er bara að
hvíla sig og búa sig vel undir
átökin. SV
Rut Sverrisdóttir og Elvar Thorarensen taka þátt í leikunum í Barcelona.
Ólympíuleikar fatlaðra:
Fjórir Akureyringar fara
Ólympíunefnd hefur staðfest að
fjórir Akureyringar fara á
Ölympíuleika fatlaðra og
þroskaheftra í sumar. Rut
Sverrisdóttir og Elvar Thorar-
ensen, IFA, keppa á Ólympíu-
leikum fatlaðra í Barcelóna,
Rut í sundi og Elvar í borð-
tennis. Stefán Thorarensen,
Handboltalandsliðið á ÓL?:
Æfíngahópuriim valinn
Þorbergur Aðalsteinsson til-
kynnti í gær landsliðshópinn
sem tekur þátt í undirbúningn-
um fyrir Ólympíuleikana,
komist íslenska liðið þangað.
Eins og kunnugt er gæti svo
farið að íslenska liðið taki sæti
þess júgóslavneska á leikun-
um. Allir leikmennirnir sem
spiluðu í B-Heimsmeistara-
keppninni í Austurríki í vetur
hafa gefið kost á sér nema
Ársþing Blaksambandsins:
Veigamiklar breytingar samþykktar
Ársþing Blaksambands íslands
var haldið helgina 22.-23. maí
á Höfn í Hornafirði. Nokkrar
athyglisverðar breytingar voru
samþykktar á þinginu, m.a. á
deildakeppni karla og einnig
var samþykkt tillaga frá KA
um að taka upp keppni í
strandblaki sem nýtur vinsælda
erlendis.
Sl. tvö ár hefur verið leikin
fjórföld umferð í 1. deild og efsta
liðið að henni lokinni hefur orðið
íslandsmeistari. Á næsta tímabili
verður leikin fjórföld umferð
með 6 liðum og efsta liðið verður
deildarmeistari. Síðan taka fjög-
ur efstu liðin þátt í úrslitakeppni
um íslandsmeistaratitilinn. Einnig
var samþykkt að reyna að efla 2.
Knattspyrna, 2. flokkur:
KA sigraði Þór
KA menn höfðu betur gegn
Þór í fyrri leik liðanna í
íslandsmótinu í knattspyrnu,
2. flokki, 1:2. Leikurinn var
illa leikinn og ekki mikið fyrir
augað. Liðin leika í 2. deild
þessa aldursflokks.
Fyrri leikur KA og Þórs í
íslandsmótinu í knattspyrnu, 2.
flokki, fór fram á mánudags-
kvöldið. KA menn sóttu meira
fyrstu 10-15 mínúturnar og náðu
að skora tvö mörk á þeim kafla.
Þeir Matthías Stefánsson og Sig-
þór Júlíusson skoruðu sitt markið
hvor. Þórsarar náðu að minnka
muninn þegar u.þ.b. 15 mínútur
voru til leiksloka, með marki
Steindórs Gíslasonar úr víti.
Eiríkur Eiríksson, þjálfari
Þórsara var að vonum óánægður
með gang mála. „Þeir voru sterk-
ari framan af en þegar upp var
staðið hefði leikurinn alveg eins
getað endað með jafntefli. Það
hafa orðið miklar breytingar á
liðinu frá því í fyrra en við stefn-
um auðvitað að því að komast
upp“ sagði Eiríkur.
Hinrik Þórhallsson, þjálfari
KA, var ekki sáttur við leik sinna
manna en var ánægður með
sigurinn. „Við byrjum vel og
skorum tvö mörk en eftir það
detta menn alveg niður á hælana.
Þetta var fyrsti leikurinn okkar á
grasi og það hefur sitt að segja.
Við ætlum okkur upp og eigum
sömu möguleika og aðrir,“ sagði
Hinrik. SV
deild karla.
Þær breytingar verða á stiga-
gjöf í íslandsmótinu að í stað
tveggja stiga fyrir sigur fá lið nú
eitt stig fyrir hverja hrinu sem
þau vinna. Það þýðir að liðið sem
vinnur fær alltaf þrjú stig en tap-
liðið á möguleika á að fá tvö stig
þrátt fyrir ósigurinn.
Önnur breyting var samþykkt
varðandi stigagjöf og það snertir
leikmenn. Nú á að fara að taka
saman hvað leikmenn skora
mörg stig í leik, líkt og í öðrum
boltagreinum.
Víða erlendis nýtur svokallað
strandblak vinsælda, stundað á
sandvöllum með tveggja manna
liðum. Samþykkt var tillaga frá
KA um að reyna þetta í sumar en
nokkuð víst er að það verður
ekki á ströndinni.
Sú breyting varð á stjórninni
að Sigurður Harðarson frá KA
dró sig í hlé en hann var varafor-
maður sambandsins. KA-menn
eiga þó áfram stjórnarmenn því
Stefán Jóhannsson varð með-
stjórnandi og Bjarni Þórhallsson
á sæti í varastjórn.
Þetta er í fyrsta sinn sem þing-
ið er haldið utan Stór-Reykjavík-
ursvæðisins. Segja má að um
afmælisþing hafi verið að ræða
þar sem Blaksambandið verður
20 ára í haust.
Kristján Arason, sem er
meiddur. Dagur Sigurösson,
Val, var valinn en gefur ekki
kost á sér vegna vinnu erlend-
is. Eftirtaldir leikmenn skipa
hóp íslenska liðsins:
Markveröir: Guðmundur
Hrafnkelsson, Val, Bergsveinn
Bergsveinsson, FH, Sigmar
Þröstur Óskarsson, ÍBV, Gísli
Felix Bjarnason, Selfossi.
Aðrir leikmenn: Jakob Sig-
urðsson, Valdimar Grímsson og
Jón Kristjánsson, Val. Gústaf
Bjarnason, Sigurður Sveinsson
og Einar Gunnar Sigurðsson,
Selfossi. Birgir Sigurðsson,
Bjarki Sigurðsson og Gunnar
Gunnarsson, Víkingi. Patrekur
Jóhannesson og Magnús Sigurðs-
son, Stjörnunni. Gunnar Andrés-
son, Fram, Konráð Olavson,
Dortmund, Geir Sveinsson,
Granollers, Júlíus Jónason,
Bidasoa, Héðinn Gilsson, Dússel-
dorf og Sigurður Bjarnason,
Grosswallstadt. SV
Akri, og Aðalsteinn Friðjóns-
son, Eik, keppa í frjálsum
íþróttum á Olympíuleikum
þroskaheftra í Madrid.
Dagur greindi frá því fyrr í vor
að búið væri að tilnefna þau Rut,
Elvar og Stefán, til að keppa á
ÓL, og það hefur nú fengist
staðfest. Að auki hefur Aðalsteinn
Friðjónsson bæst í hóp Akureyr-
inganna. Hann fer, ásamt Stefáni
Thorarensen, til Madridar í haust
og keppir í frjálsum íþróttum á
ÓL þroskaheftra.
Þeir sem valdir hafa verið til
keppni á leikunum í Barcelóna
eru eftirtaldir:
í sundi keppa:
Ólafur Eiríksson ÍFR
Birkir Gunnarsson ÍFR
Halldór Guðbergsson ÍFR
Svanur Ingvarsson Suðra
Geir Sverrisson UMFN
Lilja M. Snorradóttir SH
Kristín R. Hákonardóttir ÍFR
Rut Sverrisdóttir ÍFA
í frjálsum íþróttum keppa:
Geir Sverrisson UMFN
Haukur Gunnarsson IFR
í borðtennis keppa:
Jón H. Jónsson ÍFR
Elvar Thorarensen ÍFA
Á ÓL þroskaheftra í Madrid
fara:
I sundi:
Bára B. Erlingsdóttir Ösp
Sigrún Huld Hrafnsdóttir Ösp
Guðrún Ólafsdóttir Ösp
Magnfreð I. Jensson Ösp
Katrín Sigurðardóttir Suðra
Gunnar Þ. Gunnarsson Suðra
í frjálsum íþróttum:
Stefán Thorarensen Akri
Aðalsteinnn.Friðjónsson Eik
SV
Unglingalandsmótið í Eyjafirði:
Gert er ráð fyrir
1500-2000 ungmeraium
Undirbúningur fyrir Unglinga-
landsmót Ungmcnnafélaganna
stcndur nú sem hæst. Gert er
ráð fyrir að um 1500-2000 ung-
menni mæti til leiks og áhersla
er lögð á að foreldrar mæti og
hvetji unga fólkið. Mótið hefst
10. júlí og stendur í þrjá daga.
Það verður væntanlega líf og
fjör í Eyjafirði dagana 10.-12.
júlí þegar fram fer Unglinga-
landsmót Ungmennafélaganna.
Keppnisstaðir eru Dalvík,
Árskógssandur, Hrísey, Þela-
mörk og Svarfaðardalur. Gert er
ráð fyrir að 1500-2000 manns taki
þátt í mótinu og því er ljóst að
íbúum keppnisstaðanna mun
fjölga mikið þessa daga.
Forskráningu fyrir mótið lýkur
föstudaginn 5. júní þannig að
börn og unglingar sem ekki hafa
látið skrá sig, en ætla sér að taka
þátt, skulu snúa sér til síns félags
eða héraðssambands fyrir föstu-
dag. Allar nánari upplýsingar fást
í síma 96-63133 frá kl. 8-17.
Leiðrétting
í frétt í laugardagsblaðinu var
sagt frá leik KS og Dalvíkur í 2.
deild kvenna. Þar var sagt að
Jóna Ragnarsdóttir hefði skorað
sigurmark Dalvíkinga en hið
rétta er að það gerði Rakel Frið-
riksdóttir. Beðist er velvirðingar
á mistökunum.