Dagur - 06.06.1992, Blaðsíða 10

Dagur - 06.06.1992, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 6. júní 1992 Á Miklabæ í Blönduhlíð búa hjónin séra Dalla Þórðardóttir og Agnar Gunnarsson. Dalla er fyrsti kvenpresturinn sem gegnir starfi á Miklabæ og raunar fyrsti kvanpresturinn í Skagafirði. Miklibær er vel þekktur meðal annars fyrir þjóðsöguna um hvarf séra Odds og drauginn Miklabæjar Solveigu. í dag eru fáir draugar á sveimi og dreif því blm. Dags sig í heimsókn til þeirra hjóna og spjallaði við séra DöIIu um stefnur og strauma í trúmálum, trú- rækni íslendinga og fleira. Dalla er borin og barnfædd í Reykjavík og rekur þangað bæði móður- og föðurætt sína. Móðir hennar er séra Auður Eir Vil- hjálmsdóttir prestur í Þykkvabæ í Rangár- vallasýslu og faðir hennar er Þórður Orn Gunnarsson fyrrverandi latínukennari við Menntaskólann í Reykjavík en starfar nú sem deildarstjóri hjá Flugmálastjórn. Eiginmaður Döllu er Agnar Halldór Gunnarsson og eiga þau synina Trostam tíu ára og Vilhjálm sjö ára. lengi og húsið ekki vel íbúðarhæft. Þó fannst okkur mjög gott að búa í Sauð- lauksdal. Þar bjuggum við meðan verið var að standsetja prestsbústaðinn á Bíldudal og keyrði ég á milli Bíldudals og Patreksfjarðar þangað til að við fluttum.“ - Hvernig lagðist í borgarbarnið að búa og starfa úti á landi? „Á Bíldudal var í alla staði mjög gott að vera. Ég fann ekki svo mikið fyrir breyting- unni vegna þess að áhuginn á starfinu var mjög mikill enda var þetta mitt fyrsta nánast þvert um geð að fara að vestan hefur mig aldrei iðrað þess.“ Kvenprestar litnir öðrum augum? í Miklabæjarprestakalli eru fjórar kirkjur; Silfrastaðir, Miklibær, Flugumýri og Hof- staðir og þjónar Dalla þeim öllum. Hún er fyrsti kvenpresturinn sem gegnir prestsstarfi í þessum kirkjum. Einn gamall kven- skörungur í Akrahreppi mun hafa sagt að ef hún yrði jörðuð af kvenpresti mundi hún ganga aftur. Fann Dalla fyrir því að sóknar- börnin áttu ekki að venjast kvenprestum? „Ég hef oft verið spurð að þessu,“ segir Dalla og hlær. „Ég get ekki sagt að ég hafi orðið vör við að sóknarbörnin litu mig öðr- um augum en hins vegar býst ég við að þau hafi gert það til að byrja með þó þau hafi ekki látið það uppi. Mér finnst það líka eðli- legt að fólk líti kvenpresta öðrum augum fyrst því þetta er hlutur sem það á ekki að venjast. Fólk er vanafast og vant því að presturinn sé karlmaður. Þegar síðan kven- prestur kemur vill fólk eðlilega bíða og sjá Trúrækni á undanhaldi? Sú skoðun þekkist að trúariðkun íslendinga sé á miklu undanhaldi og raunar séu þeir ekki mjög trúræknir yfirleitt. Hætt sé að kenna börnum bænir og kirkjusókn fari minnkandi. Eru íslendingar ekki mjög trú- aðir? „Trúariðkun er íslendingum mikið einkamál. Menn láta ekki mikið bera á sinni trúariðkun og ég held að það sé einkenn- andi fyrir hvað þeir eru lokaðir yfirleitt. Hvað barnatrúna varðar þá er flestum börn- unum sem eru í kirkjuskóla hjá mér kennd- ar bænir og þær lesnar fyrir þau. Ég ræði um mikilvægi þess við alla skírnarforeldra. Hvað ferminguna varðar held ég að flest- um börnum sé alvara með staðfestingu skírnarinnar og ræður þá mestu afstaða heima fyrir, hvað fyrir þeim er haft af for- eldrum og öðrum. í upphafi vetrar fer ég lieim á hvert heimili og spyr viðkomandi barn hvort það vilji fermast. Ég legg áherslu á að fermingin er ekki eitthvað sem gengur yfir eins og bólusetning heldur ákvörðun Séra Dalla Þórðardóttir prestur á Mildabæ í helgarspjalli: Prestsstarfið hlýtur að vera prestinum köllun Latínu- og grískunám í Menntaskólanum „Ég bjó um nokkurn tíma í Frakklandi og lauk þar prófi sem svaraði til landsprófs hér. Síðan lá leiðin í Menntaskólann í Reykjavík þar sem ég stundaði nám við fornmálabraut. Á þeirri braut var lögð megináhersla á grísku og latínu. Þessi braut hafði lengi ver- ið óskabarn Guðna rektors og mig minnir að ég hafi byrjað nám annað árið eftir stofn- un hennar. Þá voru fáir á þessari braut eða um tíu nemendur í bekknum.“ Dalla hóf nám í guðfræði við Háskóla íslands haustið 1976 og stundaði hún þar nám næstu fimm árin og lauk síðan guð- fræðiprófi vorið 1981. Prestskapur á Bfldudal „Eftir að hafa lokið námi vígðist ég til Bíidudals í Arnarfirði. í guðfræðideildinni hafði ég kynnst Agnari manninum mínum en hann hafði lokið guðfræðiprófi og flutt- umst við til Sauðlauksdals í Patreksfirði til að byrja með. Þar hafði ekki verið prestur brauð. Einangrunin var að vísu mikil og margt sem vantaði fyrir þá sem höfðu alist upp við að hafa allt. Við vorum staðráðin í því að láta okkur líða vel á Bíldudal og það var ekki erfitt því þar var yndislegt að vera.“ Eiginmaðurínn mikill sveitamaður Dalla sótti um Miklabæjarprestakall vorið 1986. Þar hafði gegnt prestsstarfi Þórsteinn Ragnarsson og að höfðu samráði við hann ákvað Dalla að sækja um brauðið og fékk. „Agnar hafði alltaf átt sér þann draum að búa í sveit. Ég held að hann hafi upphaflega farið í guðfræðina til að geta fengið brauð úti í sveit og má segja að honum hafi tekist það eftir krókaleiðum reyndar. Hins vegar lagðist ekki vel í mig að koma í sveitina. Ég hafði ekki verið svo mikið sem einn dag í sveit sem barn og ekki kunnað vel við skepnur eða haft áhuga á búskap. Nágrannarnir voru mjög góðir og eru kunn- ingjar okkar hins vegar leið mér vel með að vera komin hingað strax á fyrsta degi og sú tilfinning hefur ekki breyst og þó mér væri áður en það fer að setja traust sitt á þá manneskju. Raunar þurfa allir prestar að lúta þessu lögmáli." Nýöldin og adrar stefnur „Mikið hefur verið rætt og ritað um nýja strauma í trúmálum síðustu misseri og sýn- ist sitt hverjum og hafa kirkjunnar menn varað fólk við í ræðu og riti. Hvað sýnist Döllu um nýjar trúarhreyfingar? „Ég kynnti mér þessi mál nokkuð í vetur. Síðan hef ég rætt um nýöldina í örfáurn predikunum Þá fannst mér að nokkru leyti að fólk hér í mínu prestakalli hefði ekki hugsað mikið út í þessi mál og að ég væri að búa til vandamál sem ekki væri til. Ég var heldur að vara fólk við en ég held að nýöld- in hafi ekki hafið innreið sína meðal fólks hér. Almennt held ég að fólk sé að Ieita að einhverju nýju og mín skoðun er sú að fólk getur fundið það sem það leitar að innan þjóðkirkjunnar og ef það gerir það ekki hef- ur einstaklingurinn ekki leitað nóg.“ sem skiptir einstaklinginn máli allt hans líf.“ Hættir aö þakka guði velgengnina Breyttir samfélagshætti íslendinga síðustu áratugi hafa að margra áliti dregið úr trúar- iðkun og að allt sem heitir trúariðkun á heimilum sé dottið upp fyrir. Guðstrú virð- ist í fljótu bragði ekki skipa veglegan sess í huga nútíma mannsins. „Nú hefur heil kynslóð íslendinga lifað við allsnægtir og þekkir ekkert annað. Og fólk er farið að hafa það nógu gott til að þakka sjálfu sér velgengnina. Fólk leitar gjarnan til Guðs þegar það býr við örbirgð en hættir til að gleyma honum þegar betur gengur. En mitt í velgengninni finna menn tóma- rúm og að andlegu hliðina vantar . Þeir leita hennar með ýmsu móti, reyna að finna sjálfa sig rækta andann og líkamann stunda hugleiðsu og fleira. Litríkir prestar Til eru margar sögur af prestum sem hafa þótt litríkir persónuleikar. Þekktar eru Laugardagur 6. júní 1992 - DAGUR - 11 Texti og mynd: Kári Gunnarsson sagnir um að prestar séu gjarnan kvensamir eða drykkfelldir og jafnvel hvorttveggja. Einn af forverum Döllu á Miklabæ var þekktur fyrir að byrja sínar ræður með miklum krafti til að ná athygli kirkjugesta. „Kirkja sem leggur jafn mikla áherslu á orðið eins og okkar kirkja hlýtur að gera kröfur um að prestar séu góðir ræðumenn og komi boðskap Jesú frá sér á sem bestan hátt. Því verður prestur að spyrja sjálfan sig, sem ég vel, flyt ég vel? Því að vel samin ræða kemst ekki til skila nema hún sé vel flutt. Auðvitað er það slæmt þegar sá sem er að boða æðstu markmið mannsins og mennsk- unnar lifir ekki eftir því sjálfur; auðvitað er það slæmt.“ Prestsstarfiö er köllun Guðfræði er kannski það fag sem fólk veit hvað minnst um af því sem kennt er í Háskóla íslands. Hefur einnig það orð á sér að þangað fari ekki nema einstaklingar sem eru öðruvísi en annað fólk. Hvað rak Döllu til náms í guðfræði á sínum tíma? „Guð kallar ennþá fólk til starfa eins og hann gerði á dögum frumkristninnar. Það er ekki víst að einstaklingurinn geri sér grein fyrir köllun sinni á meðan á námi stendur. Þegar út í prestsskap er komið gerir hann sér grein fyrir köllun sinni því ef starfið er honum ekki köllun verður það honum sífelld áþján og hann getur ekki sinnt því. Þó að við förum þessa jarðnesku leið í gegnum fimm ár í guðfræðinni og ljúkum síðan guðfræðiprófi, þá held ég, að prests- starfið geti aldrei verið annað en köllun en ekki bara vinna að loknu fimm ára námi.“ Mætti endurvekja skriftir Skriftir eru kirkjuleg athöfn sem íslendingar þekkja nánast aðeins að afspurn og hafa menn ýmsar skoðanir á ágæti þeirra. Dalla hefur mjög ákveðnar skoðanir á þeim sið. „Við höfum nánast gleymt skriftunum í okkar kirkjudeild og finnst mér það mjög miður og hafa þær mjög lítið verið notaðar. Mín skoðun er sú að það sé mikið tap fyrir okkur að hafa misst sjónar á þeim. Éinka- skriftir tíðkuðust lengi hér á Islandi og má að nokkru leyti líkja þeim við að ganga til sálfræðings. Þær lögðust af vegna þess að einkaskriftir voru nánast óframkvæmanleg- ar vegna þess tíma sem þær tóku en þeir sem hugðust ganga til altaris urðu að skrifta fyrst. Hins vegar er hverjum sem er heimilt að koma til síns prests og skrifta en það er ekki mikið notað. Pegar fólk kemur til prestsins að tala um sín vandamál er það vissulega ígildi skrifta þó því fylgi ekki syndaaflausn né kirkjuleg athöfn.“ Syndaaflausnin íslendingum torskilin Friðþægingardauði Krists er eitt þeirra trú- aratriða sem mögrum gengur illa að skilja og Dalla verður alvarleg á svip þegar það atriði berst í tal. „íslendingar eiga erfitt með að skilja að með dauða sínum á krossinum hafi Jesús unnið okkur líf og tekið frá okkur það að þurfa að bera syndirnar. Þetta er höfuð- boðskapur okkar kirkju og boðskapurinn um náðina. Þetta gengur það langt að við eigum erfitt með að trúa því. Einstaklings- hyggja er mjög rík í íslendingum og það að menn eigi að vinna fyrir því sem þeir njóta af eigin rammleik. Þetta er háleit siðfræði íslendinga og þeir eiga erfitt með að með- taka friðþægingu Krists því hún kemur þvert á þessa siðfræði þeirra.“ Guðfræði áhugamál númer eitt Eins og annað fólk hljóta prestar að eiga önnur áhugamál en trúmál. Hvernig eyðir Dalla sínum frítíma? „Ég hef gaman af að sinna félagsmálum og er í nokkrum félögum, og syng með Rökkurkórnum. Mitt áhugamál er samt guðfræðin. Ég held að góður prestur verji miklum tíma til að kynna sér guðfræði og hugsa um hana öllum stundum. Ég reyni að fylgjast vel með fréttum og því sem er að gerast úti í heimi hverju sinni. Ég held að það sé guðfræðingnum nauðsyn- legt að fylgjast vel með þó að það tengist ekki guðfræði í fljótu bragði. Ég hef alls engan áhuga á hrossum ég læt Agnar sjá um það,“ segir Dalla og brosir. Kvenfyrirlitning og trúarbrögö Úbreiðsla íslams um hinn vestræna heim og öfgahópar bókstafstrúarmanna í Austur- löndum hljóta að veka okkur til umhugsun- ar. Að margra áliti birtist kvenfyrirlitning með ýmsu móti í þessum trúarbrögðum. Hvaða augum lítur kvenpresturinn þetta? „Við þurfum ekki að fara til íslams til að finna þessa stefnur. Við getum fundið trúar- hópa á íslandi sem boða það að konan sé óæðri karlinum og reglur um hvernig henni beri að klæða sig og svo framvegis. Ég held að þetta sé að nokkru leyti afleiðing þess mikla frelsis sem við höfum fengið. Tak- markalaust frelsi getur leitt til ófrelsis og fólk er hreinlega fegið að því séu settar viss- ar skorður. Að konan þurfi ekki að vinna sér sína þjóðfélagsstöðu heldur sé bundin í visst hlutverk, fyrir einhverjar kann að fylgja þessu öryggi. Þó eigum við erfitt með að skilja að einstaklingur sem er alinn upp við frjálsræði afsali rétti sínum með þessum hætti.“ Hatar krístin kirkja konur? Til eru þær konur sem gengið hafa úr krist- inni kirkju vegna þess að á nokkrum stöðum í Biblíunni segir að konan eigi að vera manninum undirgefin. Meðal annarra ritar Páll postuli þau orð. „Páll postuli var ekki guð hann var maður. Hann skrifar á ákveðnum tíma í ákveðnu samfélagi þar sem þessar hefðir voru viðteknar. Konur taka ekki mark á þessu ferkar en sérstökum reglum um fæðu- val sem birtist í Gamla testamenntinu sem hæfði því samfélagi. Kirkjan sein slík tekur sér það vald að framfylgja ekki þessum reglum og fleirum t.d. um höfuðbúnað við bænahald svo eitt- hvað sé nefnt. Þó Biblían sé okkur heilög ritning verður kirkjan að leggja mat á vægi þeirra orða sem greinilega eru rituð vegna annarra samfélagsaðstæðna. Páll postuli segir einnig þegar hann talar um skírnina: „Hér er ekki Gyðingur eða Grískur hér er ekki karl eða kona“ og kemur það fram að allir eru jafnir fyrir Guði.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.