Dagur - 06.06.1992, Blaðsíða 7

Dagur - 06.06.1992, Blaðsíða 7
Laugardagur 6. júní 1992 - DAGUR - 7 Siðbót lokið með réttarbót - almennir dómstólar nú einn og átta í síðasta þætti var fjallað um sögulegar forsendur fyrra skipulags og aðdraganda að breytingum á dómstólaskipan og réttarfari hér á landi. I dag verða skýrðar helstu bréyting- ar sem leiðir af lögum um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði einkum hvað dómstóla varðar. Hæstiréttur er áfrýjunardóm- stóll og hefur haft æðsta dóms- vald í öllum málum sem undir almenna dómstóla heyra síðan hann var stofnaður árið 1920. Hann fer eingöngu með dómstörf ef frá eru talin nokkur störf í þágu framkvæmdarvalds s.s. til- nefning í aðra dómstóla og umsögn um veitingu áfrýjunar- leyfis. Undir þessu æðra dómstigi er fyrra dómstig - dómstólar í hér- aði. Þá hafa skipað sömu menn og gegna stjórnsýslu og löggæslu í umboði framkvæmdarvaldsins en með gildistöku sk. aðskilnað- arlaga 1. júlí nk. missa sýslu- menn og bæjarfógetar dómsvald- ið úr höndum sínum. Hugtakið bæjarfógeti hverfur reyndar alveg en sýslumenn munu þeir kallast sem fara með stjórnsýslu og löggæslu. Nánar verður sagt frá því í næsta þætti. Forsaga Dómsvaldið sem sýslumenn fengu í kjölfar einveldis hefur smám saman flust á hendur ann- arra en þeirra sjálfra. í Reykja- vík hafa dómstólar aðallega feng- ist við dómstörf; Sakadómur dæmdi í opinberum málum og Borgardómaraembættið í einka- málum. Árið 1972 voru skipaðir héraðsdómarar við embætti bæjarfógeta í fimm stærstu bæj- um á landinu, þ. á m. á Akureyri, en seinna fékk Selfoss einnig einn slíkan. Þeir dæmdu - ásamt sýslu- mönnum, bæjarfógetum og full- trúum - í opinberum málum jafnt og einkamálum. Meirihluti landsmanna bjó því þegar við sæmilega sjálfstæða og óháða dómendur í héraði en það fór eftir atvikum hvort þeir hér- aðsdómarar eða hinir fyrri dómendur dæmdu mál. Á minni þéttbýlisstöðum og í sveitum voru það hins vegar sýslumenn og bæjarfógetar einir (ásamt full- trúum) sem dæmdu bæði í einka- málum og opinberum málum þangað til 9. janúar 1990 rann upp. Yanhæfísdómurinn Sá dagur var á margan hátt merk- isdagur hvað varðar íslenska lög- fræði. Þá dæmdi Hæstiréttur í annars mjög ómerkilegu saka- máli manns sem dæmdur hafði verið sekur af Þorgeiri Þorgeirs- syni, fulltrúa sýslumannsins í Árnessýslu. Þennan dag skipti Hæstiréttur um skoðun. Sams- konar málsmeðferð og sú, sem Jón Kristinsson hafði hlotið og Hæstiréttur taldi óaðfinnanlega árið 1985, var nú ekki í samræmi við lög. Nánar tiltekið var um að ræða ákvæði sk. einkamálalaga frá 1936 um að dómari skuli víkja úr dómarasæti „ef... annars er hætta á því, að hann fái ekki litið óhlutdrægt á málavöxtu.“ Þetta. fyllingarákvæði skýrði Hæstirétt- ur nú í ljósi niðurstöðu mannrétt- indanefndar Evrópuráðsins sem sagt var frá í síðasta þætti. Auk þess sagði Hæstiréttur að breytt- ar aðstæður og nýsett lög um aðskilnað dómsvalds og umboðs- valds í héraði frá 1989 - sem taka gildi 1. júlí nk. -leiddu til þeirrar niðurstöðu að sýkna bæri ákærða. Niðurstaðan var þver- öfug miðað við dóminn í máli Jóns enda þótt dómarafulltrúinn í Árnessýslu hefði alls ekki verið hlutdrægur. Hins vegar var hann talinn „almennt“ hlutdrægur - vanhæfur til að dæma - þar sem hann auk þess starfaði við lög- gæslu og rannsókn sakamála. Um leið urðu allir sýslumenn, bæjar- fógetar og fulltrúar þeirra við 19 embætti víða um land vanhæfir til að dæma í sakamálum sem rann- sökuð höfðu verið við embættin. í kjölfar dóms Hæstaréttar fylgdu fjölmargir sams konar dómar þar sem málsmeðferð var talin ófull- nægjandi og héraðsdómur því ómerktur. Bráðabirgðaskipan Dómurinn varð til þess að Forseti íslands setti samdægurs bráða- birgðalög um úrbætur hvað varð- ar sjálfstæði dómara og fulltrúa þeirra. Þau voru staðfest af Alþingi með samhljóða lögum (nr. 27/1990). Þar var kveðið á um að fimm héraðsdómarar yrðu tafarlaúst skipaðir til að dæma í lögsagnarumdæmum þessara 19 embætta. Þeim var aðallega ætl- að að dæma í sakamálum þar sem sýslumenn og fulltrúar þeirra hefðu ella verið vanhæfir sam- kvæmt nýjum skilningi Hæsta- réttar. Einn og átta Lög þessi kveða einungis á um bráðabirgðaskipan dómsvalds í héraði því þegar aðskilnaðarlög- in taka gildi þann 1. júlí nk. falla þessi úr gildi. Þá missa sýslumenn allt dómsvald úr höndum sér og almennir dómstólar verða átta auk Hæstaréttar. Þeir verða stað- settir í Reykjavík, í Borgarnesi, á ísafirði, á Sauðárkróki, á Akur- eyri, á Selfossi og í Hafnarfirði. Hver þeirra hefur lögákveðið lögsagnarumdæmi og fylgja þau nokkurn vegin kjördæmaskipan landsins og er dómstóllinn kenndur við þau umdæmi. Byggðapólitík Bent hefur verið á að með því að fækka dómstólum fækkar dómur- um ekki endilega heldur munu dómstólarnir stækka. Um leið eykst kunnátta dómara og sér- fræðiþekking þeirra. Líklegt er að þetta hafi jákvæð byggða- pólitísk áhrif þar sem e.t.v. verð- ur snúið við þróun undanfarinna ára í þá átt að málsaðilar í öllum meiriháttar dómsmálum semji um að þau séu dæmd fyrir Bæjar- þingi Reykjavíkur. Siðbót lokið með réttarbót Almennir dómstólar verða því einn Hæstiréttur - og átta héraðs- dómstólar. Auk þeirra haldast sérdómstólarnir Félagsdómur sem dæmir í vinnudeilum, Lands- dómur sem dæmir um embættis- rekstur ráðherra og Siglingadóm- ur sem dæmir í sjóslysamálum. Þann 1. júlf nk. verða liins vegar lagðir niður Kirkjudómur og Synódalréttur sem ætlað var að dæma í ótilteknum refsimálum gegn prestum m.a. samkvæmt kirkjulögum þótt aldrei diafi til þess komið. Því má segja að með réttarfarsbót þann I. júlí nk. Ijúki ekki einungis einveldis- skipulagi heldur sé með því rek- inn endahnúturinn á samruna ríkis og kirkju þar sem dómsvald- ið er endanlega tekið af þjóð- kirkjumönnum. Þar með er sið- bótin fullkomnuð á íslandi en hún hófst 1517 í Þýskalandi. í vikunni lauk námskeiði uni aðskilnaðarlögin og hvlstu breytingar á réttarfari sem taka gildi þann 1. júlí nk. Námskeiðið sóttu flestir lögmenn á Akureyri og fulltrúar þeirra en samskonar námskeið hafa verið haldin fyrir dóm- ara annars vegar og löglærða löggæsluinenn hins vegar. Fyrirlcsari var Markús Sigurbjörnsson, prófessor við laga- deild Háskóla Islands, en með honuin á myndinni cru frá vinstri: Björn Jósef Arnviðarson, Arnar Sigfússon, Árni Pálsson, Gunnar Sólnes, Ásmundur S. Jóhannsson og Hreinn Pálsson. Mynd: Goiii SJALUNN Veiðileyfi í Hörgá Sala veiðileyfa í Hörgá er Eyfjörð, sími 22275. Stjórnin. í versluninni BYGGINGAVORUR LÓNSBAKKA Tilboð óskast Byggingavöruverslun KEA við Lónsbakka óskar eftir tilboði í uppsetningu girðinga og fl. á athafnasvæði fyrirtækisins. Þeir sem áhuga hafa að bjóða í verkið hafi samband við undirritaðan fyrir 15. júní. 601 Akurevri • -23r 96-30321 & 96-30326 • Fa* 96-27813

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.