Dagur - 06.06.1992, Blaðsíða 3

Dagur - 06.06.1992, Blaðsíða 3
Laugardagur 6. júní 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Kaupfélag Vestur-Húnvetninga: Samdráttur í sveitumim kemur niður á allri starfsemi okkar - ákveðinn hópur bænda er að komast á vonarvöl vegna fram- leiðsluskerðingar, segir Gunnar V. Sigurðsson, kaupfélagsstjóri „Við komum hvergi auga á annað en samdrátt og horfurn- ar eru því ekki góðar. Starf- semi okkar byggist að lang mestu leyti upp á þjónustu við sveitirnar og er því háð land- búnaðinum í einu og öilu,“ sagði Gunnar V. Sigurðsson, kaupfélagsstjóri á Hvamms- tanga. „Mjólkur- og kjötfram- Ieiðslan mun minnka á næst- unni til viðbótar þeim sam- drætti sem átt hefur sér stað á undanförnum árum. Gunnar sagði að samdráttur- inn í sveitunum kæmi einnig nið- ur á versluninni þótt hún hafi haldið sér að mestu í krónutölu - bæði í vöruhúsinu og í bygginga- vörunni. Mikill samdráttur hefði hins vegar átt sér stað í sölu á fóðurvöru og stafaði hann bæði af kjarnfóðurgjöldum og ekki síður af fækkun búfjár því með fækkuninni gætu bændur nýtt heyin betur til fóðrunar. Gunnar sagði að landbúnaðar- málin og staða bænda hefði verið aðalumræðuefni á aðaifundi kaupfélagsins þar sem bændur væru almennt kvíðnir fyrir því hvað framtíðin muni bera í skauti sínu. Hinn mikli niðurskurður í sauðfjárræktinni geti hæglega leitt til byggðaröskunar og muni að öllum líkindum gera það. Bændur gæfust upp þegar þeir gætu ekki lengur lifað af því sem þeir mættu framleiða janfvel þótt þeir hefðu að litlu eða engu að hverfa öðru en óvissunni. Nýtt sláturhús var byggt á Hvammstanga á árinu 1980 og þar er nú hægt að slátra 1700 kindum á dag. Á sama tíma var mjólkurbúið stækkað og er' afkastageta þess að sögn Gunn- ars V. Sigurðssonar nú langt umfram þá framleiðslu sem full- virðisrétturinn heimilar. Þrátt fyrir það hefur rekstur mjólkur- búsins gengið sæmilega. Um 50 manns starfa nú á vegum Kaup- félags Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga þar af 10 í mjólk- uriðnaðinum en í sláturtíðinni á haustin fjölgar starfsmönnum um nær helming þegar sveitafólkið kemur tímabundið til starfa við sauðfjárslátrunina. Gunnar V. Sigurðsson sagði að niðurskurðurinn í landbúnaðin- um kæmi við alla þætti starfsemi kaupfélagsins og engin leið væri að segja til um hvaða áhrif hann myndi hafa. Hann sagði að ákveðinn hópur bænda væri að komast á vonarvöl vegna fram- leiðsluskerðingar og engin leið væri fyrir þá að rétta sig af með þeim framleiðslumöguleikum sem þeir hefðu nú þegar - hvað þá þegar þeir væru sífellt dregnir saman. Vaxandi gjá virtist vera að myndast á milli þeirra og hinna er betur stæðu. ÞI Ferðakaupstefiia Vestur-Norðurlanda haldin á Akureyri í september Ferðakaupstefna Vestur-Norð- urlanda verður haldin á Akur- eyri dagana 23.-26. september nk. Island, Færeyjar og Græn- land kynna þar ferðaþjónustu í löndunum þremur. Gert er ráð fyrir að yfir 150 heildsalar víðs vegar úr heimin- um komi á kaupstefnuna og að Sumarskóli Arnar Inga á Akureyri er nú óðum að taka á sig mynd og stendur innritun nú yfir. Örn Ingi segir að þegar séu komnar umsóknir frá all- mörgum sveitarfélögum á Suðurlandi og Norðurlandi og útlitið sé gott og líkur á að fjöl- breyttur hópur nemenda stundi sumarnám í listum. Enn er hægt að skrá sig í skólann, en starfsemin hefst 20. júní næstkomandi og varir í hálfan mánuð. Gengið hefur verið frá ráðn- Sumarskóli í listum er nýjung sem reynd veröur á Akureyri í sumar. Aðalnámsgreinar eru fjórar; myndlist, dans, lciklist og inatar- gerðarlist. um 110 ferðaþjónustuaðilar frá íslandi, Færeyjum og Grænlandi verði með sýningarbása og kynni ferðamöguleika í hverju landi fyrir sig. Lögð verður áhersla á að kynna nýjungar og ferðir utan háannatímans. Erlendum ferðaheildsölum verður einnig boðið að taka þátt í ingu kennara. Örn Ingi annast sjálfur kennslu í myndlist, Anna Richards kennir dans, væntan- lega bæði í sundlaug og á þurru landi og Ásta Arnardóttir sér um leiklistarþáttinn, en hún hefur m.a. unnið í Kramhúsinu í Reykjavík. Nokkrir kennarar skipta með sér verkum í matar- gerðarlist. Örn Ingi sagði að nemendur veldu sér eitt aðalfag en þeir fengju innsýn í allar greinarnar. Unnið verður bæði úti og inni og er stefnt að því að njóta náttúr- unnar og veðurblíðunnar. Sumarskóli í listum er nýjung og vonast Örn Ingi til að hann verði bæjarfélaginu lyftistöng. Þeir nemendur sem þess óska verða í heimavist í Glerárskóla, þar verður gist og snætt. í skólan- um fer einnig fram kennsla í myndlist við mjög góðar aðstæð- ur. f íþróttaskemmunni verður sett upp svið og leikhúslýsing og þar verður nám í leiklist og dansi stundað. Lokasýning verður í Skemmunni og ætti að verða aðstaða fyrir um 200 áhorfendur. Nemendur í Sumarskólanum eru á aldrinum 10-14 ára og stendur námið yfir í hálfan mánuð. Þetta eru því nokkurs konar sumarbúðir með list- og leikrænu ívafi. í júlí gerir Örn Ingi síðan ráð fyrir að vera með námskeið í einstökum fögurn. SS fjölbreytilegum ferðum um Island á undan og eftir kaup- stefnunni, sem ferðmálafulltrúar hafa skipulagt í samvinnu við heimamenn á viðkomandi svæðum. Þetta er í fyrsta sinn sem kaup- stefnan er haldin á Akureyri en fyrri ferðakaupstefnur hafa verið haldnar til skiptis í löndunum þremur; í Reykjavík 1986 og 1989, í Nuuk á Grænlandi 1987 og 1990 og í Þórshöfn í Færeyjum 1988 og 1991. Ásamt ferðamálanefnd Vest- ur-Norðurlanda og Ferðamála- ráði vinna að undirbúningi kaup- stefnunnar í samvinnu við heima- menn á Akureyri, Ferðaskrif- stofa íslands, Ráðstefnur og fundir, Samvinnuferðir-Landsýn og Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn. Skráning þátttakenda stendur nú yfir og lýkur 1. júlí nk. -KK Útfhitningsráð íslands: Opinn fundur um útflutningsmál á Hótel KEA Útflutningsráð íslands boðar til opins fundar um útflutn- ingsmál á Hótel KEA, mið- vikudaginn 10. júní nk. kl. 16.00. Þar fer m.a. fram kynning á starfsemi Útflutningsráðs og flytja erindi þau Gunnar Rafn Birgisson, María E. Ingvadóttir og Vilhjálmur Guðmundsson. Einnig mun Ingjaldur Hannibals- son ræða um stöðu gjaldeyris- öflunar íslendinga og framtíðar- horfur í þeim efnum og loks verða umræður. Fundarstjóri verður Ásgeir Magnússon, framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar. -KK Akureyri: Sumarskólinn fullmótaður - enn hægt að bæta við nemendum I 10 DAGA Fjöregg hf. umboðsaðili finnskrar húsaverksmiðju: „Hús frá Voukatti er ódýr og góður kostur“ - segir Jónas Jónasson í Sveinbjarnargerði „Voukatti timburhúsaverk- smiðjan í Finnlandi er ein af stærstu verksmiðjum sinnar tegundar í heiminum. Húsin eru seld til allra heimshluta, en stærstu viðskiptalöndin eru Japan, Frakkland, Svíþjóð og Noregur. Fjöregg hf. er um- boðsaðili húsanna á íslandi,“ segir Jónas Jónasson í Svein- bjarnargerði á Svalbarðs- strönd. Jónas segir að til að byrja með verði sumarhúsin og gestakofarn- ir sérstaklega kynntir, en er frá Iíður verða einbýlishúsin kynnt. „Boðið er upp á 250 gerðir húsa og kofa, og einnig smíðar verk- smiðjan eftir teikningum hvers og eins ef óskað er. Á næstu vik- um verður sumarhús reist í landi Veigastaða, sem mun gefa glögga mynd af því sem boðið er upp á í smærri sumarhúsunum. - Einbýl- ishúsin eru góður valkostur sé lit- ið bæði til kostnaðar og gæða. Handlagin fjölskylda, sem getur unnið mikið að byggingu 100 fer- metra húss, ætti að geta reist hús- ið fyrir fjórar milljónir," segir Jónas Jónasson. ój flfSLflTTUH fl^BRfl Ufl OSTI I kílóapokkningum ► Áðuí-8lTlTr. ► Nú 690 kr. Þú sparar 122 kr.á kíló!

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.