Dagur - 06.06.1992, Blaðsíða 9
Laugardagur 6. júní 1992 - DAGUR - 9
„Já, ég skal gefa þér samband“ Ingibjörg Einarsdóttir á símanum í íslandsbanka.
Gréta afgreiöir viðskiptavini ÁTVR í suniar.
Flestir framhaldsskólanemendur fá sumarstarf
- jafnvel við sitt hæfi
Sigurjón þjálfari í hópi upprennandi knattspyrnumanna.
Nokkurt atvinnuleysi hefur
verið viðloðandi hér á Akur-
eyri og í nágrannabyggða-
lögunum sl. ár og því miður
virðast ekki miklar breytingar
vera í sjónmáli á því ástandi. Á
sumrin bjóðast þó ýmis árstíð-
arbundin störf og eins leyfa nú
ilestir launþegar sér þann
munað að fara í sumarfrí, mis-
munandi langt þó og í stað
þeirra er oft ráðið afleysinga-
fólk. Húsbyggjendur hverfa
jafnvel “aðeins“ niður í hús-
grunninn eða inn í hálfkaraða
íbúðina, en það flnnst mörgum
líka frí rétt eins og innisetu-
fólki flnnst gott að breyta til á
sumrin ef það á þess kost og
fara í ýmiss konar útivinnu.
Kennarar fara t.d. margir
hverjir í garðyrkjustörf,
smíðar, múrverk, malbikunar-
vinnu, o.fl. og fínnst mörgum
þeirra það hin besta upplyfting
eftir strangan vetur í skóla-
stofunni. Svo virðist sem flestir
nemendur eldri en 16 ára hafí
fengið einhverja sumarvinnu
hafl þeir sóst eftir því en þeir
yngri verða margir hverjir að
láta sér nægja 4 til 5 vikna
vinnu í unglingavinnunni. En
einhver vinna er betri en engin
og ætti að gefa einhvern vasa-
pening í aðra hönd áður en sest
er að nýju á skólabekk að
hausti. En við hvaða störf er
fólk að fást? Sýnishorn af því
má berja augum hér á eftir.
Áfengisafgreiðsla
Gréta Júlíusdóttir er nemandi í
Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri á uppeldissviði félagsfræði-
brautar og vinnur í Áfengisversl-
uninni í Hólabraut. Hvernig
tókst henni að fá vinnu við að
afgreiða áfengi?
„Ég fékk vinnu hér um jólin og
sótti þá strax um vinnu hér á
komandi sumri og fékk jákvætt
svar fljótlega. Ég er mjög ánægð
með það því að þegar við skóla-
félagarnir vorum að tala um
sumarvinnu í vetur þá virtist vera
mjög erfitt að fá sumarvinnu en
það hefur heldur ræst úr því eftir
sem lengra leið á vorið. Mér
finnst bæði skemmtilegt og
spennandi að vinna hér og ansi
fróðlegt að sjá hvað keypt er og
eins það að ég læri að þekkja
ýmsar víntegundir sem ég vissi
hreinlega ekki að væru til.“
Guðrún bókasafnsstarfsmaður.
Bókavarsla
Guðrún Þorsteinsdóttir er ættuð
úr Grýtubakkahreppi en er nem-
andi í bókasafnsfræðum við
Háskóla íslands og lýkur þaðan
prófi vorið 1993. Hún starfar á
Amtsbókasafninu og gerði það
reyndar einnig sumarið 1991 og
stundar því sumarvinnu sem er
nátengd hennar námi.
- Er það ekki mjög heppilegt
að fá sumarvinnu sem tengist
náminu?
„Jú, vissulega og ég er mjög
ánægð með það.“
- Hyggstu jafnvel fá vinnu hér
þegar námi lýkur?
„Ég veit nú ekki hvort ég fæ
vinnu hér á Amtsbókasafninu en
í öllu falli mun ég sækja um vinnu
hér á Akureyri eða við Eyjafjörð
og vera þannig nærri minni heima-
byggð.“
Sundlaugarvörður
Petrína Berta er uppalin í Reykja-
vík en hefur verið búsett á Akur-
eyri sl. tvö ár. Hún stundaði nám
á viðskiptabraut Verkmennta-
skólans sl. vetur en starfar í sum-
ar í Sundlaug Akureyrar og fékk
reyndar sumarvinnu þar einnig á
sl. sumri. Hvernig gekk henni að
fá sumarvinnu?
-I *» S*
Petrína gætir sundlaugargesta í
sumar.
„Bara vel, ég þekki Þorstein
sundlaugarstjóra allvel og því var
þetta allt auðveldara. En ég er nú
reyndar ekki mikið úti við í þess-
ari vinnu því ég er mikið við
afgreiðsluna frammi og verð því
að láta mér nægja oft á tíðum að
horfa á góða veðrið þegar það
skartar sínu fegursta. En hér er
gott að vinna á sumrin.“
Þjálfari
Sigurjón Magnússon er kennari
við Glerárskóla og hefur unda-
farin sumur þjálfað yngstu flokk-
ana hjá Þór og tekur því ekki
mikið sumarfrí. En er þjálfara-
starfið draumastarfið á sumrin?
„Já, þetta fer mjög vel saman
við kennsluna því launin fyrir
Birgir nemur stærðfræði í Kansas en
er í mælingum í sumar.
kennsluna eru ekki svo „geðsleg“
að það sé hreinlega hægt að leyfa
sér að taka sumarfrí. Auk þess er
ég einnig lærður íþróttakennari
svo það hjálpar til. Ég gæti hrein-
lega ekki lifað öðruvisi en hafa
þessar tekjur á sumrin.“
- Eru flestir „kollegar" þínir í
einhverri sumarvinnu?
„Að minnsta kosti eru flestir
kennarar sem ég þekki til og eru
aðalfyrirvinna heimilisins í ein-
hverju aukastarfi á sumrin,
kannski oftar af nauðsyn en
ánægju, því miður.“
Mælingamaður
Birgir Árnason er Akureyringur
en var á sl. vetri vestur í henni
stóru Ameríku, nánar tiltekið við
stærðfræðinám í Kansasháskóla
og sagðist aðspurður eiga eftir
„fullt“ af árum í námi.
En blm. hitti Birgi á götuhorni
rétt við Slippstöðina horfandi
haukfránum augum á götuna
ásamt tveimur félögum sínum.
- í liverju er starf þitt fólgið?
„Ég er við mælingar hjá Akur-
eyrarbæ, sem felst m.a. í því að
setja út nýjar lóðir og hús, mæla
hæðir fyrir nýja vegi og fleira sem
tengist þessu starfi.“
- Hvernig gekk þér að fá þessa
vinnu?
„Ég einfaldlega sótti snemma
um vinnu hjá Akureyrarbæ og
fékk jákvætt svar. Flestum sem
ég þekki hefur gengið ágætlega
að fá vinnu í sumar en margir
þeirra eru reyndar í sama starfinu
sumar eftir sumar og líkar bara
vel. í fyrra vann ég í Kirkjugörð-
um Akureyrar en mér sýnist að
eftir stúdentspróf eða hliðstæða
menntun sé talsvert auðveldara
að fá sumarvinnu.“
Bankamaður
„íslandsbanki, góðan daginn."
Þegar hringt er í símanúmer
íslandsbanka þessa dagana svar-
ar ung stúlka í símann með þessu
ávarpi og verður fljótt og örugg-
lega við öllum óskum viðskipta-
manna bankans. En hver á þessa
rödd?
„Ég heiti Ingibjörg Einarsdótt-
ir, er Akureyringur og hef lokið
einum vetri í hjúkrunarnámi við
Háskólann á Akureyri. Ég sótti
um sumarstarf við bankann í
fyrra en gerði ekki ráð fyrir að fá
jákvætt svar en þegar ég fór að
athuga málið í byrjun júní æxluð-
ust málin svo að ég var ráðin. Ég
sótti svo aftur um starf í sumar
því mér líkaði mjög vel hér í
fyrra og svo virðist um fleiri því
hér er nánast sama sumarafleys-
ingar fólk í sumar og var í fyrra-
sumar. í fyrra var ég aðallega í
póstinum en nú er ég að leysa af
á símanum en fer svo í einhver
tilfallandi störf þegar sú sem ég
er að leysa af kemur úr sumar-
fríi.“
- Ætlarðu að sækja um starf
hér aftur næsta sumar?
„Ég þarf að skila þremur mán-
uðum utan skólatíma í verklegu
svo ég býst við að ég reyni að fá
starf á Fjórðungssjúkrahúsinu
næsta sumar. Það eru ekki margir
skólafélagar mínir þar í sumar,
þær hafa aðallega fengið vinnu á
elliheimilinu við aðhlynningu.
GG