Dagur - 16.06.1992, Síða 1

Dagur - 16.06.1992, Síða 1
75. árgangur Akureyri, þriðjudagur 16. maí 1992 111. tölublað r v. LACOSTE Peysur • Bolir HERRADEILD Gránutelagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599^ Háskólinn á Akureyri: 24 nemendur braut- skráðust sl. laugardag Háskólanum á Akureyri var slitið síðstliðinn laugardag. Að þessu sinni brautskráðust frá skólanum 16 rekstrarfræðingar úr rekstrardeild og 9 hjúkrun- arfræðingar með BS-próf í hjúkrunarfræði frá hjúkrunar- deild skólans. Við skólaslitin á laugardag voru nemendum úr báðum deildum veittar viðurkenningar. Páll Erland fékk viðurkenningu frá skólanum fyrir bestan náms- árangur í rekstrardeild en í heil- brigðisdeild fékk Hildigunnur Svavarsdóttir þessa viðurkenn- ingu frá Zontaklúbbnum Þórunni hyrnu en hún var ekki undir ein- kunninni 9 í neinni námsgrein. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri veitti henni einnig viðurkenningu fyrir besta námsárangur í hand- og lyflækningahjúkrun. Þá fékk hún verðlaun fyrir besta náms- árangur í heilsugæsluhjúkrun frá heilsugæslustöð Akureyrar og loks deildi Hildigunnur verðlaun- um frá barnadeild FSA fyrir námsárangur í barnahjúkrun með Hugrúnu Hjörleifsdóttur en þær fengu báðar 9,3 í einkunn. Þá voru Kerstin Roloff, nemanda á hjúkrunarfræðibraut, afhent verðlaun frá skólanum fyrir bestan árangur í rannsókn- um í hjúkrun. JÓH Haraldur Bessason, rektor Háskólans, flytur ávarp við skólaslitin sl. laugardag. Svört skýrsla um afleiðingar 40% skerðingar á þorskkvóta: Hrikalegt fyrir sveitarfélög Skerðing á þorskkvóta niður í 150 þúsund tonn kæmi mjög illa við rekstur margra sveitar- félaga í landinu. Höggið yrði þó mjög misjafnlega harkalegt eftir sveitarfélögum og er til dæmis gert ráð fyrir að tekju- tap Grímseyjarhrepps vegna lægra útsvars og aðstööugjalda yrði um 1,5 milljón króna, sem LottÓ: Rúmlega tólf og háJf miUjón til Sauðárkróks Fyrsti vinningur í Lottó um helgina, rúmlega tólf og hálf milljón króna, fór óskiptur til hjóna á Sauðárkróki. Vinn- ingsmiðinn var keyptur í bens- ínstöðinni Ábæ og er það í annað sinn á tæpum tveimur árum sem slíkur risavinningur kemur á miða úr kassanum þar. Potturinn í Lottó um helgina var þrefaldur og fór heildarupp- hæð vinninga yfir 20 milljónir en fyrsti vinningur var 12.757.027 kr. „Það voru hjón hérna á Sauð- árkróki sem fengu vinninginn og ég get fullyrt að hann fór á góðan stað. Þetta er mikill lukkukassi hjá okkur, fyrsti vinningur hefur oft komið hingað og fyrir tæpum tveimur árum kom annar svona risavinningur sem var rúmlega þrettán og hálf milljón," sagði Guðlaug Gunnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Ábæjar, í samtali við Dag. JHB samsvarar tæpum 13 þúsund krónum á hvern íbúa. Gangi eftir að leyft verði að veiða aðeins 150 þúsund tonn af þorski á næsta ári kemur það hvað harkalegast við Höfðahrepp (Skagaströnd) af sveitarfélögum á Norðurlandi vestra. Samkvæmt úttekt Sambands íslenskra sveit- arfélaga myndi 40% skerðing þorskveiðiheimilda þýða að sjáv- arútvegurinn þar tapaði um 300 milljónum króna, eða sem svarar 460 þúsund krónum á hvern íbúa. Að sama skapi yrði þessi skerðing þorskveiðiheimilda erfið fyrir sveitarsjóð Höfða- hrepps, sem myndi verða af um 5,5 milljóna króna tekjum af útsvörum og aðstöðugjöldum. Af öðrum sveitarfélögum á Norður- landi vestra sem skerðingin kæmi illa við má nefna Siglufjörð og Sauðárkrók. Grímsey er það sveitarfélag á Norðurlandi eystra sem myndi fara hlutfallslega verst út úr 40% skerðingu á þorskveiði, en í næstu sætum eru Grýtubakka- hreppur (Grenivík), Raufarhafn- arhreppur, Ólafsfjörður, Þórs- hafnarhreppur, Árskógshreppur og Dalvík. Ef hins vegar er einungis horft á tölulegar stærðir er tap Akur- eyrar mest. Þar myndi sjávarút- vegurinn tapa um 950 milljónum króna, í Ólafsfirði næmi tapið 420 milljónum, á Dalvík 333 mill- jónum, 290 milljónir myndu tap- ast á Húsavík og 205 milljónir króna á Grenivík. óþh Áætlunarílug Flugleiða á Sauðárkrók: Engar breytingar á sumaráætlun Þeir Kolbeinn Arinbjarnarson yfirmaður innanlandsflugs Flugleiða og Gísli Jónsson umdæmisstjóri félagsins á Norðurlandi voru nýlega á Sauðárkróki til skrafs og ráða- gerða vegna óánægju með sumaráætlun Flugleiða til Sauðárkróks en flogið er sex sinnum í viku á Alexandersflug- völl. Einnig hafa heyrst óánægjuraddir vegna milli- lendinga á flugleiðinni. Bæjarstjórn Sauðárkróks hafði einnig samþykkt að leita eftir því við Flugleiðir að sumaráætlunin yrði endurskoðuð og var gert ráð Kæra Ölmu E. Hansen til jafnréttisráðs: Enn beðið gagna frá Akureyrarbæ Kærunefnd Jafnréttisráðs hef- ur enn ekki tekið fyrir kæru Ölmu Elísabetar Hansen, sem var ein fímm umsækjenda um stöðu skólastjóra Tónlistar- skólans á Akureyri, sökum þess að nefndin hefur enn ekki fengið umbeðnar upplýsingar frá Akureyrarbæ. Eins og fram hefur komið kærði Alma Elísabet til Jafnrétt- isráðs þá ákvörðun skólayfir- valda Tónlistarskólans á Akur- eyri að ráða Guðmund Óla Gunnarsson í stöðu skólastjóra skólans. Birna Helgadóttir, fram- kvæmdastjóri Jafnréttisráðs, seg- ist vonast til þess að gögn frá Akureyrarbæ um þetta mál berist næstu daga þannig að kærunefnd geti tekið það fyrir á næsta fundi sínum, sem verður 24. júní nk. í kærunefnd sitja eingöngu lög- lærðir menn. Formaður hennar er Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri á Biskupsstofu, og aðrir nefndarmenn eru Sigurður H. Guðjónsson, hæsta- réttarlögmaður og Margrét Hein- reksdóttir, settur héraðsdómari. Varamenn eru Hjördís Hákonar- dóttin, borgardómari, Sigurður Tómas Magnússon, aðstoðar- maður í Hæstarétti og Þorsteinn Eggertsson, héraðsdómslögmað- ur. óþh fyrir svari fyrir 17. júní en að sögn Kolbeins er ljóst að sumar- áætlun félagsins verður ekki breytt en umræður eru í gangi um ákveðnar breytingar eða hag- ræðingar vegna vetraráætlunar Flugleiða til Sauðárkróks en ekki er hægt að skýra frá því í hverju þær eru fólgnar þar sem þær eru ennþá innanhússmál. 9% aukning var frá þeim far- þegafjölda sem gert var ráð fyrir í maímánuði og vill Kolbeinn Arinbjarnarson fyrst og fremst þakka því að félagið er komið með nýjar Fokker F50 vélar í innanlandsflugið. Einnig hafi augu flugfarþega verið að opnast fyrir möguleikum á að nota APEX- fargjöld sem eru allt að helmingi ódýrari en þá farmiða þarf að kaupa með nokkrum fyrirvara og gista í 3 nætur. „Svo erum við að selja sólarferð- ir norður í land úr rigningunni fyrir sunnan sem er gott mál því ekki seldust skíðaferðirnar til Akur- eyrar í vetur“ sagði yfirmaður innanlandsflugs Flugleiða. GG Annir hjá fógetum: Frestur til pmámsbeiðni runninnút Miklar annir hafa verið hjá fógetaembættum víða um land undanfarið vegna fjárnámsgerða. í gær rann út frestur til að skila inn nýjum beiðnum um fó- getagerðir sem koma til með að nefnast aðfarargerðir eft- ir 1. júlí nk. Vegna ákvæðis í nýjum aðfararlögum frá 1989 hafa lögmenn og fulltrúar þeirra undanfarið mætt hjá bæjarfó- getanum á Akureyri með beiðni um fjárnámsgerðir þar sern fjárnám veröur ekki fram- kvæmt næstu tvær vikur nema brýnir hagsmunir gerðarbeið- anda krefjist þess. Eftir 1. júlf nk. verða aðfararbeiðnir aftur tcknar fyrir - en þá hjá sýslu- manninum þar sem engir fó- getar verða til lengur. GT Mývatnssveit: Alvarlegt uinferðarslys Eldri maður siasaðist alvar- lega er fólksbíll valt við brú skammt frá Arnarvatni í Mývatnssveit rétt fyrir hádegi í gær. Þar sem talið var að maðurinn hefði háls- brotnað var hann fluttur með sjúkraflugvél til Reykjavíkur. Ökumaður missti stjórn á bílnum í lausamöl og lenti hann utan vegar. Fernt var í bílnum. Maðurinn sem slasað- ist var farþegi í bflnum en aðr- ir sluppu ómeiddir. Talið var að bíllinn væri ekki mikið skemmdur. IM

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.