Dagur - 16.06.1992, Page 7

Dagur - 16.06.1992, Page 7
Þriðjudagur 16. júní 1992 - DAGUR - 7 Þórsarar gefa ekkert eftir í toppbaráttu 1. deildar: Glæsimark Dóra dugði á Eyjamenn - og Þór hefur tveggja stiga forystu á Skagamenn Þórsarar gerðu sé lítið fyrir og lögðu ÍBV í Eyjum í gær- kvöldi, 0:1, og tróna nú á toppi deildarinnar með 10 stig. Gest- irnir voru sterkari framan af en leikurinn jafnaðist nokkuð í síðari hálfleik. Staðan í leikhléi var 0:0 en heimamenn Staðan 4. umferft: Víkingur-FH 1:2 ÞóþÍBV 1:0 KA-KR 1:1 UBK-ÍA Valur-Fram 0:0 Þór 4 3-1-0 5:2 10 ÍA 4 2-2-0 6:3 8 FH 4 2-1-18:7 7 KA 41-34)8:6 6 Víkingur 4 2-0-2 5:6 6 KR 4 1-2-15:6 5 Valur 31-1-14:4 4 Fram 31-0-2 3:4 3 ÍBV 41-0-3 4:6 3 UBK 3 0-0-3 1:4 0 Markahæstir: Ormarr Öriygsson, KA 4 Gunnar Már Másson KA 3 Grétar Einarsson, FH 3 brenndu af vítaspyrnu í lok hálfleiksins. Halldór Áskels- son skoraði sigurmark Þórs á 26. mín. úr glæsilegu skoti af 25 metra færi. Þórsarar voru sterkari aðiiinn í fyrri hálfleik, þrátt fyrir að þurfa að spila á móti strekkings vindi. Mikill kraftur var í liðinu og strax á áttundu mínútu var hætta við mark ÍBV en Friðrik bjargaði vel. Eyjamenn áttu líka sín færi og eitt slíkt kom eftir hornspyrnu á 13. mínútu. Boltinn barst inn í teig þar sem Elías Friðriksson var staðsettur en gott skot hans fór hárfínt yfir markið. Á 18. mínútu var röðin komin að Þór að sækja. Þeir voru þá rétt við það að sleppa í gegn en Friðrik mark- vörður hafði betur í kapphlaupi við Þórsara og náði að hreinsa. Besta færi hálfleiksins var heima- manna en þeir fengu dæmda víta- spyrnu eftir að boltinn hafði farið í hönd eins Þórsarans. Leifur Geir Hafsteinsson skaut framhjá. Staðan í leikhléi því 0:0. Síðari hálfleikur var keimlíkur þeim fyrri, færi á báða bóga en aðeins öðru liðinu tókst að skora. Það gerði Halldór Áskelsson eftir að hafa leikið með knöttinn upp kantinn, tveir Eyjamenn ruku út Knattspyrna: Þorvaldur áfram hjá Forest Margt bendir til þess aö knatt- spyrnumaðurinn Þorvaldur Þorvaldur Örlygsson reiknar með að vera áfram hjá Nottingham Forest. Orlygsson leiki eitt ár enn með enska knattspyrnuliðinu Nott- ingham Forest. Þorvaldur Örlygsson sagði í samtali við Dag að hann reiknaði allt eins með því að hann myndi semja við Forest til eins árs enn. „Það er það eina sem ég get sagt eins og er,“ sagði Þorvaldur. „Málin eru í biðstöðu í augna- blikinu, en ég fer út á næstu dög- um og þá ættu málin að komast á hreint.“ Eins og kunnugt er fór Þor- valdur til Nottingham Forest haustið 1989 og hefur verið þar síðan, ef undan er skilið sumarið 1991 þegar hann lék með Fram. SV Bikarkeppni KSÍ: Þórsarar Dregið var í bikarkeppni KSÍ fyrir helgi. Þórsarar komust áfram í öðrum flokki karla og meistaraflokki kvenna. Liðin sem drógust saman voru: Meistaraflokkur kvenna: Þór-Stjarnan KS-UBK Haukar-ÍA eru með KR-Þróttur N. 2. flokkur karla: Huginn S.-FH Fjölnir-IA Fylkir-Fram KR-Víkingur Stjarnan-UBK ÍBV-ÍBK Haukar-Þór Selfoss-HK á móti honum en tókst ekki að koma í veg fyrir að Halldór næði að skjóta. Þrumuskot reið af á 25 metra færi og það hafnaði efst uppi í markhorninu, stöngin inn. Stórglæsilegt mark hjá Halldóri og verður líklega lengi í minnum haft. Eftir markið pressuðu heima- menn talsvert á Þórsara og eftir að Sindri Þór Grétarsson Eyja- maður kom inná sem varamaður hressist sóknarleikur þeirra til mikilla muna. Undir lok leiksins áttu Eyjamenn þrumskot, langt utan af velli, sem endaði í mark- stöng þeirra Þórsara. Segja má að þar hafi síðasta færi þeirra far- ið í súginn og þrátt fyrir mikla baráttu náðu þeir ekki að jafna leikinn. Þórsarar vörðust gríðar- lega vel og ætluðu sér heim með öll stigin. Það tókst, Þór vann sanngjarnan sigur á baráttuglöð- um Eyjamönnum, og sitja enn einir á toppi 1. deildar. Bestir í liði Þórs voru þeir Sveinbjörn Hákonarson, Hlynur Birgisson og Lárus Orri Sigurðsson. Lið Þórs: Lárus Sigurðsson, Hlynur Birg- isson, Júlíus Tryggvason, Birgir Þór Karlsson, Lárus Orri Sigurðsson (gull spjald), Sveinbjörn Hákonarson, Hall- dór Áskelsson, Árni Þór Árnason, Sveinn Pálsson, Ásmundur Arnarson (Kristján Kristjánsson 85. mín.), Bjarni Sveinbjörnsson. Lið IBV:Friðrik Friðriksson, Heimir Hallgrímsson, Jón Bragi Arnarson, Boj- an Bevc, Nökkvi Sveinsson, Elías Frið- riksson. Ingi Sigurðsson (gult spjald), Sigurður Ingason, (Rútur Snorrason 74. mín.), Huginn Helgason (Sindri Þór Grétarson 72. mín.), Tómas Ingi Tómas- son, Leifur Geir Hafsteinsson. Lárus Orri Sigurftsson lék mjög vel í Eyjum. Halldór Áskelsson skoraði cina mark leiksins með þrumuskoti af 25m færi. Mynd: Golli.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.