Dagur - 16.06.1992, Side 13
Þriðjudagur 16. júní 1992 - DAGUR - 13
Útvarpsráð:
Vonbrigði með skilningsleysi stjóm-
valda á fjárhagsstöðu Ríkisútvarpsins
Á 3136. fundi útvarpsráðs, föstu-
daginn 29. maí 1992, var eftirfar-
andi ályktun samþykkt með öll-
um greiddum atkvæðum:
„Utvarpsráð lýsir vonbrigðum
með ítrekað skilningsleysi stjórn-
valda á fjárhagsstöðu Ríkisút-
varpsins og þörfum.
Með fjárlögum fyrir árið 1992
var Ríkisútvarpið enn á ný svipt
lögbundnum tekjustofni sínum,
aðflutningsgjöldum af útvarps-
og sjónvarpstækjum. Sá tekju-
stofn var m.a. ætlaður til að
standa undir óhjákvæmilegum
fjárfestingum í dreifikerfi, ekki
sízt endurbyggingu langbylgju-
stöðvar. Varðandi hið síðast
greinda verður að átelja það tóm-
læti, sem stjórnvöld sýna með því
að tryggja ekki fjárframlög til
endurbyggingarinnar.
Á undanförnum árum hefur
þrengt að Ríkisútvarpinu fjár-
hagslega og stofnunin naumlega
náð endum saman. Til að sinna
því menningar- og þjónustuhlut-
verki, sem lög kveða á um og
stjórnvöld ætlast til að farið sé
eftir, hefur verið lögð áherzla á
að beina eins miklu fé til dag-
skrárgerðar og kostur hefur
verið.
Þetta hefur haft þær afleiðing-
ar, að fjármagn til viðhalds tækja
og búnaðar hefur verið langt inn-
an þeirra marka sem eðlilegt má
teljast. Öllu lengra verður ekki
gengið í þeim efnum. Ef svo fer
fram, sem horfir, verður ekki hjá
því komist, að fjárhagserfið-
leikarnir bitni enn frekar á dag-
skrárgerð og þjónustu Ríkisút-
varpsins.
Utvarpsráð gagnrýnir afstöðu,
sem fram kemur í bréfi mennta-
málaráðherra til útvarpsstjóra
dags. 18. maí 1992, en þar er birt
ákvörðun um að hafa að engu
ákvæði í gildandi fjárlögum um
4,5% hækkun afnotagjalds á
árinu.
Frá ársbyrjun 1990 til þessa
dags hafa afnotagjöld Ríkisút-
Bókaklúbbur Almenna bóka-
félagsins hefur sent frá sér veg-
lega útgáfu af Dagbók í Is-
landsferð 1810 eftir breska
lækninn Henry Holland.
Henry Holland var 22ja ára
nýbakaður læknir þegar hann fór
sína merkilegu Íslandsferð
sumarið 1810 ásamt tveimur
félögum sínum, þeim Sir G. S.
Mackenzie - sem þegar var orð-
inn víðfrægur náttúrufræðingur
fyrir að sanna að kolefni væri í
demöntum - og læknastúdentin-
um Richard Bright. Túlkur var
Ólafur Loftsson, læknastúdent.
Þeir félagar höfðu bækistöð í
Reykjavík og kynntust lífinu þar
vel, og fóru þaðan þrjár langar
ferðir - um Reykjanes, síðan
vestur um land um Borgarfjörð,
Snæfellsnes og Daii og loks um
Suðurland að Markarfljóti.
varpsins hækkað um 7%. Á sama
tíma nemur hækkun vísitölu
25,2%. Ljóst er, að sú stefna,
sem þessar tölur vitna um, þarfn-
ast endurskoðunar.
Útvarpsráð væntir þess, að við
fjárlagagerð fyrir árið 1993 verði
framangreind efni öll höfð í huga
og fjárhagsgrundvöllur Ríkisút-
varpsins tryggður þannig að það
geti uppfyllt þær kröfur sem bæði
stjórnvöld og almenningur rétti-
lega gera til stofnunarinnar.“
Sir Mackenzie ritaði glæsilega
bók um leiðangurinn með fjölda
mynda, bæði svart-hvítra og lit-
mynda, sem þeir félagar höfðu
teiknað í ferðinni. Bókin kom út
í Edinborg 1811 ogsíðan í nokkr-
um útgáfum. Hún hefur ekki ver-
ið þýdd á íslensku.
Henry Holland hélt nákvæma
dagbók í ferðinni, gaf hana ekki
út en geymdi handritið og síðan
afkomendur hans. Árið 1957 gaf
sonar-sonar-sonur hans, David
Holland, handritið Landsbóka-
safni íslands og þýddi Steindór
Steindórsson frá Hlöðum það
strax á íslensku og gaf Almcnna
bókafélagið bókina út 1960. Þessi
nýja útgáfa er því önnur í röðinni
og miklu veglegri en sú fyrri.
Dagbók í íslandsferð er 216
bls. að stærð auk 8 bls. með lit-
myndum.
Dagbók í íslandsferð 1810
- eftir Henry Holland
KVIKMYNDARÝNl___________Jón Hjaltason
Faðir brúðarinnar
Borgarbíó sýnir:
Föður brúðarinnar
(F'ather ofthe Bride).
Leikstjóri: Charles Slyer.
Aðalhlutverk: Steve Martin, Diane
Keaton og Martin Short.
Steve Martin er vafalaust einn af
þreniur ríkustu grínleikurum
heimsins í dag: ástæða þessa er
eflaust margþætt. sú þó helst að
hann ber höfuð og herðar yfir þá
tlesta. Sem faðir brúðarinnar í
samnefndri mynd sannar hann
þessa staðreynd enn einu sinni.
Honum hefur að undanförnu orðið
tíðsótt yrkisefni í hina venjulegu
fjölskyldu; svipað og Willy
Breinholst varð frægur fyrir á
Sr. Bragi Skúlason verður með
fyrirlestur í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju fimmtudag-
inn 18. júnl kl. 20.30 á vegum
Samtaka um sorg og sorgarvið-
brögð og fjallar hann um missi
á ýmsum tímum ævinnar.
Missir er skilgreindur út frá
ýmsum áföllum eða breytingum
sem fólk verður fyrir á lífsleið-
inni. Inn í þetta fléttast t.d.
reynsla fjölskyldunnar, breyting á
högum hennar, skerðing á lík-
amsímynd, missir vináttusam-
banda, skilnaður, missir ástvina,
heilsumissir, missir á meðgöngu
og þjóðfélagsleg viðbrögð gagn-
sínum tíma. Hér er Martin enn á
þessum sömu slóðum. Eins og
nafn myndarinnar ber með sér á
hann dóttur sem hann er í þann
veginn að gifta frá sér. Það eru þó
ýrnis Ijón í veginum, faöirinn á
erfitt með að viðurkenna fyrir
sjálfum sér að dóttir hans er orðin
gjafvaxta stúlka. Foreldrar
brúðgumans eru vellauðugir og
gera miklar kröfur um viðhöfn og
glæsilegheit. Martin þykist á hinn
bóginn ekki vera nema mátulega
tjáður og hvergi nærri hafa efni á
því að borga 250 dollara fyrir
hvern haus er mætir í brúðkaupið
- en þeir voru á einhverju skeiði
taldir myndu verða um 500
talsins. Eiginkonan, Diane
vart missi.
Sr. Bragi gaf út bók í síðasta
mánuði sem nefnist Von - við-
brögð við missi og mun hann gera
henni skil í fyrirlestrinum.
Keaton, á í miklum brösum með
mann sinn en það er þetta samspil
innan hinnar venjulegu fjölskyldu
(svo ég noti nú þá vafasömu lýs-
ingu aftur) sem er hér í brenni-
punkti.
Samleikur þeirra Martins og
Keatons er með miklum ágætum
og raunar aliur sá vefur sem er
ofinn í kringum þau. Þetta eru
manneskjuleg hjón, á miðjum
aldri, í ágætum efnum og ham-
ingjusöm - einmitt sú ímynd sem
við bíófarar viljum sjá. Ofgar hús-
bóndans eru nokkuð miklar, það
skal játað, en verða þó aldrei
þannig að sögupersónan rati ekki
aftur inn á sinn rétta bás. Raunir
hinna verðandi brúðhjóna fá aldrei
neina verulega umfjöllun enda er
myndin alls ekki um þau.
Til hliðar við sjálfa söguna af
erfiðleikum eiginmannsins við sitt
innra sjálf og þrælneglda veröld
hans er önnur minni þar sem
Martin Short fær að leika lausum
hala í hlutverki veislustjórans. Þið
sem sáuð Pure Lucke um daginn
munið etlaust eftir Short en þar
lék hann hrakfallabálkinn. Hér
sýnir hann á sér allt aðra hlið og
er hreint út sagt frábær sem hinn
vemmilegi skipuleggjandi
brúðkaupsins.
Verslunarhúsnæði
tíl leigu!
30-50 m2 af verslunarplássi til leigu að Ráðhús-
torgi.
Upplýsingar í síma 11855.
Akureyri:
Sr. Bragi Skúlason með
fyrirlestur um missi
LETTIH
b
Léttishagar
á Kaupvangs
bökkum
verða opnir miðvikudaginn 17. júní kl. 20-21.30.
Laugardaginn 20. júní frá kl. 18-20.
Hagagjöld borgist á staðnum, gjald kr. 2.000 pr.
hross innanfélagsmanna, kr. 4000 pr. hross utanfé-
lagsmanna.
Öll hross í högum Léttis og unglingahólfinu verða
skilyrðislaust að vera merkt með haganúmeri félags-
manna í vinstri síðu. Annars verða hrossin fjarlægð úr
hólfi félagsins.
Viröingarfyllst;
Haganefnd — Unglingaráð.
AKUREYRARBÆR WÍ/
-------------------------—
Kennara vantar
íbúðir til leigu
Kennara sem ráðnir hafa verið til starfa á
Akureyri, vantar íbúðir til leigu.
Um er að ræða bæði blokkaríbúðir og/eða í rað-
húsi eða einbýlishúsi.
Þeir sem hafa íbúðir til leigu eru vinsamlega
beðnir að hafa samband við skólaskrifstofu Akur-
eyrar, Strandgötu 19b, sími 27245.
Skólafulltrúi.
Forstöðumaður
framkvæmdadeildar
Innkaupastofnunar
ríkisins
Fjármálaráðuneytið hefur falið skrifstofu okkar að
auglýsa og taka á móti umsóknum í ofangreint starf.
Starfið er laust samkvæmt nánara samkomulagi.
Leitað er að einstaklingi með menntun og
reynslu í stjórnun, undirbúningi og
umsjón verklegra framkvæmda.
Verksvið framkvæmdadeildar er markað í lögum
nr. 63/1970, um skipan opinberra framkvæmda og
stýrir forstöðumaður starfi deildarinnar.
Nánari upplýsingar um starfið fást á skrifstofu
Guðna Jónssonar, Tjarnargötu 14, Reykjavík.
Umsóknir er tilgreini aldur og menntun
ásamt starfsreynslu sendist Guðna Jónssyni,
ráðgjöf og ráðningarþjónustu,
Tjarnargötu 14, Reykjavík.
Umsóknarfrestur um starfið er til 30. júní nk.
Guðni Tónsson
RÁÐCJÓF & RÁÐN I NCARÞjÓN LISTA
TIARNARGÖTU 14. 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Innilegar þakkir sendum við þeim er sýndu okkur vináttu og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
HERBERTS SVEINBJÖRNSSONAR,
málara, Víðilundi 20.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar og til lækna og
hjúkrunarfólks Lyfjadeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Friðrika Hallgrímsdóttir,
Hjörleifur Hallgríms,
Örn Herbertsson, Nanna Kristín Jósefsdóttir,
Rafn Herbertsson, Svala Tómasdóttir,
Hjörtur Herbertsson, Hanna Björg Jóhannesdóttir,
Sveinbjörn S. Herbertsson, Hansína Sigurgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.