Dagur - 25.06.1992, Page 2

Dagur - 25.06.1992, Page 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 25. júní 1992 Fréttir Ársskýrsla Akureyrarbæjar fyrir 1991: Heildarskuldir að upphæð 4,7 milljarðar - þar af eru skuldir hitaveitu 3,3 milljarðar Út er komin Ársskýrsla Akur- eyrarbæjar fyrir árið 1991. Skýrsla sem þessi var fyrst gef- in út fyrir árið 1987. Skýrslan í ár er hin veglegasta og hún er borin út í hvert hús og hverja íbúð á Akureyri. í ávarpi bæjarstjórans á Akur- eyri, Halldórs Jónssonar, segir: „Ársskýrslu Akureyrarbæjar fyr- ir árið 1991 er ætlað að gefa greinargott yfirlit um starfsemi sveitarfélagsins. Á það bæði við um fjölbreyttan rekstur og marg- víslegar framkvæmdir. Rekstur sveitarfélagsins var í jafnvægi á árinu. Sérstök áhersla er nú lögð á að stemma stigu við hækkandi rekstrargjöldum sem hlutfall af skatttekjum bæjarfélagsins. Jafn- framt er stefnt að því að almenn- ar langtímaskuldir lækki á næstu árum um allt að 5% á ári. Sérstök þriggja ára áætlun var samþykkt á árinu um rekstur, framkvæmdir og fjárhag og er þessari áætlun ætlað að vera stefnumarkandi til næstu ára. Er þetta í fyrsta skipti sem slík áætlun er gerð fyrir Akureyri. Slík áætlanagerð og sá rammi, sem hún skapar, mun Á fundi Bæjarstjórnar Húsa- víkur sl. þriðjudag var kosið til eins árs í embætti á vegum hæjarstjórnar. Þorvaldur Vestmann Magnús- son (D) var endurkjörinn forseti bæjarstjórnar. Fyrsti varaforseti var endurkjörinn Stefán Haralds- son (B) og annar varaforseti var endurkjörinn Þórður Haralds- son (D). Skrifarar bæjarstjórnar voru kjörnir Sveinbjörn Lund (B) og Jón Ásberg Salómonsson (A), til vara: Þórður Haraldsson (D) og Kristján Ásgeirsson (G). í bæjarráð voru endurkjörnir væntanlega auðvelda umfjöllun og ákvarðanatöku um starfsemi og framkvæmdir á næstu árum.“ Fram kemur í kaflanum um yfirstjórn bæjarins, að Bæjar- stjórn Akureyrar hélt 21 fund á árinu og bæjarráð hélt 62 fundi. Kostnaður við bæjarstjórn, bæjarráð o.fl. nam 24.400.000 kr. og við bæjarskrifstofu 77.300.000 kr., en endurgreiðslur frá bæjar- stofnunum voru 24.600.000 kr. Stjórnunar og skrifstofukostn- aður var þannig 77.100.000 kr. eða 5,7% af rekstrargjöldum bæjarsjóðs. Efnahagsreikningur sýnir heildarskuldir að upphæð u.þ.b. 4,7 milljarðar, en þar af eru skuldir hitaveitunnar 3,3 millj- arðar. Halldór Jónsson segir að rekstur hitaveitunnar gangi vel og samkvæmt áætlun þá verða þar greidd niður lán jafnt og þétt. „Meginforsendan þar er þessi til- tölulega háa gjaldskrá, sem er ólík því sem önnur sveitarfélög búa við. Hér borgum við þrefalt gjald á við notendur hitaveitu í Reykjavík.“ Bjarni Aðalgeirsson (B), Þor- valdur Vestmann Magnússon (D) og Kristján Ásgeirsson (G). Varamenn í bæjarráð voru kjörin: Lilja Skarphéðinsdóttir (B), Þórður Haraldsson (D) og Valgerður Gunnarsdóttir (G). Skoðunarmenn bæjarreikninga voru kjörnir: Páll Þór Jónsson og Þráinn Gunnarsson, og til vara: Sigurgeir Aðalgeirsson og Þor- kell Björnsson. I þjóðhátíðarnefd voru kjörin: Pálmi Þorsteinsson, Kristín Hall- dórsdóttir, Ævar Ákason, Guð- rún Kr. Jóhannsdóttir og Bjarni Ásmundsson. IM bæjar færðir í efnahagsreikning eru bókaðir upp á 7,2 milljarða, sem er mikil eign. „Staða Akur- eyrarbæjar er traust þrátt fyrir háa skuld Hitaveitunnar og fjöl- margar eignir Akureyrarbæjar eru utan efnahagsreiknings. Þar má t.d. nefna fasteignamat lóða er nam í árslok um 3.019 millj. kr.“ Rekstur málaflokka hjá Akur- Akureyrarmaraþon 1992 fer* fram 25. júlí nk. og verður rás- og endamark á Akureyri. Ein- göngu verður hlaupið á mal- biki, bæði innan Akureyrar- bæjar og utan. Þetta verður í fyrsta skipti sem slíkt hlaup er haldið hér en hugmyndin er að þeíta verði árlegur íþróttavið- burður. Keppnisgreinar eru hálfmara- þon sem er 21,1 km og skemmti- skokk sem er 7 km. Keppnis- flokkar í hálfmaraþoni eru í karla- flokki 15-20 ára, 20-34 ára, 35-44 ára og 45 ára og eldri og í kvenna- flokki 17-34 ára, 34-44 ára og 45 ára og eldri. í skemmtiskokki verður einn flokkur, 12 ára og eldri. Sigurvegarar í hverjum flokki fá viðurkenningar og stefnt er að því að allir þátttakendur fái viður- kenningar. Styrktaraðili Akur- eyrarmaraþons 1992 er Búnaðar- banki íslands en þátttöku þarf að tilkynna til UFA, pósthólf 722 á Akureyri fyrir 20. júlí nk. en mótshaldarar eru UFA og Þrí- þraut Akureyrar. Þátttökugjald er kr. 1.000,-. Ekki er keppt að þessu sinni í maraþonhlaupi sem er 42,2 km en stefnt er að því að í framtíðinni eyrarbæ er 75% af skatttekjum og unnið er að því að koma hlut- fallinu í 71%. Raunvextir hjá Akureyrarbæ eru 5%. Skuldir á hvern íbúa eru 323 þúsund og hefur í reynd lækkað um eitt þús- und milli ára. Þar af eru skuldir vegna hitaveitu 229 þúsund kr. Peningaleg staða Akureyrar- bæjar batnaði um 280 milljónir milli ára og íbúum fjölgaði. Ibúar verði það ein af keppnisgreinum Akureyrarmaraþons þegar mótið hefur fest sig í sessi sem árlegur Akureyrar voru 14.437 hinn 1. desember 1991 og hafði fjölgað um 263 frá 1. desember 1990. Karlar voru 7.082 en konur 7.355. Á árinu fæddust 273 en 96 létust. Aðfluttir voru 844 en brottfluttir 758. Á næstu dögum verður nánar fjallað um Ársskýrslu Akureyrar- bæjar. ój atburður líkt og Reykjavíkur- maraþon sem fram fer í Rcykja- vík í lok ágústmánaðar. GG Veiðidagur flölskyldunnar er á sunnudaginn Fástir fjarmunir Akureyrar- Bæjarstjórn Húsavíkur: Þorvaldur Vestmann endurkjörinn formaður Akureyrarmaraþon 1992: Keppt í hálfmaraþoni og skemmtiskokki Þó ekki sé keppt í maraþoni í Akureyrarmaraþoni í ár er stefnt að því að gera það í framtíðinni. Fiskmiðlun Norðurlands hf.: Bliki fær viðurkenningu fyrir gæði - aðfmnslur kaupenda óþekktar í viðskiptum með afurðir Blika EA Sigurður Kristjánsson skipstjóri með viðurkenningarskjalið, Dana Jóna Sveinsdóttir kona hans með blómin og Hilmar Daníelsson framkvæmda- stjóri Fiskmiðlunar Norðurlands. Myndir: HK/Bæjarpóslurinn Um tveggja ára skeið hefur Fiskmiðlun Norðurlands selt allan afla úr Blika EA frá Dal- vík til sama kaupanda, enska fiskkaupmannsins Wright & Eddie Ltd. Gæði afurðanna hafa verið stöðug og mikil all- an þennan tíma og af því tilefni kallaði Hilmar Daníelsson framkvæmdastjóri Fiskmiðl- unar Norðurlands áhöfn skips- ins ásamt mökum á sinn fund og afhenti þeim viðurkenning- arskjal. í skjalinu segir m.a. að kaup- endur geti með ánægju staðfest „að framleiðsla ykkar hefur verið þannig að aðfinnslur kaupenda eru óþekktar í þessum viðskipt- um.“ Við athöfnina sem fram fór í Ráðhúsi Dalvíkur á sjómanna- daginn sagði Hilmar að í þessu skjali væri ekkert ofsagt. Hann talaði einnig til eiginkvenna skip- verja og afhenti skipstjórafrúnni blóm. Skipstjórinn á Blika, Sigurður Kristjánsson, og framkvæmda- stjóri útgerðarinnar, Ottó Jakobsson, kvöddu sér einnig hljóðs, þökkuðu viðurkenning- una og lýstu ánægju með við- skiptin við Fiskmiðlun Norður- lands og Wright & Eddie Ltd,- ÞH Veiðidagur fjölskyldunnar er á sunnudaginn kemur en þá bjóða Ferðaþjónusta bænda og Landssamband stangaveiði- félaga allri fjölskyldunni í ókeypis veiði á yfir 20 stöðum á iandinu. Að baki þessum degi býr sú hugmynd að öll fjölskyldan drífi sig af stað í veiðitúr, njóti þess eina dag- stund að renna fyrir gómsætan vatnafisk í hinni stórbrotnu íslensku náttúru og kynnist um leið þessari skemmtilegu tóm- stundaiðju. Stangaveiði er fyrir alla. Gamla veiðistöngin er fyllilega gjaldgeng og ekki er þörf á að ofbjóða buddunni með því að fara út í miklar fjárfestingar í dýrum búnaði, eins og segir í fréttatilkynningu frá Upplýsinga- þjónustu landbúnaðarins, sem einnig stendur fyrir þessum degi. Það er líka hægt að veiða ann- ars staðar en í dýrum laxveiðiám, t.d. í minna auglýstum lax- og sil- ungsám auk þess sem hægt er að veiða í sæg stöðuvatna um allt land. Á sjötta tug stangaveiðifé- laga eru starfandi í landinu og mikill fjöldi þeirra rúmlega 125 ferðaþjónustubæja sem eru starf- andi hafa á boðstólum veiði í vötnum eða ám og sumir bjóða jafnvel upp á sjóstangaveiði. Meðal þeirra vatna sem í boði verða á sunnudag eru; Úlfljóts- vatn í Grafningi, Botnsvatn við Húsavík og Haukadalsvatn í Haukadal. Allar nánari upplýs- ingar um veiðidag fjölskyldunnar er að fá í ókeypis bækling á öllum bensínstöðvum um allt land. -KK Kvennalistinn: Kristm foraiaður þingflokksins Kristín Ástgeirsdóttir, 18. þingmaður Reykjavíkur, hefur tekið við formennsku í þing- flokki Kvennalistans af Onnu Olafsdóttur Björnsson. Varaformaður þingflokksins er Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, 6. þingmaður Vestfjarða. Sú regla hefur gilt í þingflokki Kvennalistans frá upphafi (1983) að þingkonur skiptast á um að gegna formennsku eitt ár í senn.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.