Dagur - 25.06.1992, Blaðsíða 8

Dagur - 25.06.1992, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 25. júní 1992 Spurning VIKUNNAR Hvernig líkar þér vetrarveðrið _______á miðju sumri?________ Sigurður Aðalsteinsson: „Þetta er bara góð áminning fyrir okkur og lífsreynsla fyrir ferðamennina. Á meðan svona veður veldur ekki skaða þá er þetta allt í lagi. Ég man vel eftir 17. júní 1959 þegar snjóaði hér á Akureyri en þetta er minna áhlaup en þá.“ Ragnar Baldursson: „Mór finnst þetta öðruvísi. Mað- ur er ýmsu vanur og kippti sér ekkert upp við þetta en auðvit- að minnir þetta okkur á hve gott við eigum þegar veöurblíðan er sem mest.“ Páll Jónsson: „Mér leiðist að fá svona veður. Annars man ég eftir 17. júní 1959 þegar var hnédjúpur snjór en þá flúði ég úr bænum. Þetta er vægara núna og kannski allt í lagi svona einu sinni." Helga Jóhannsdóttir: „Ég var bara hneyksluö. Þetta passar ekki á þessum árstíma." Hanna Brynjólfsdóttir: „Mér líst hreint ekkert á þetta. Ég bý í Reykjavík en á sumar- bústað hér fyrir norðan og síð- ustu 10 árin hefur aldrei verið svona kalt. Við hlæjum bara að þessu, það þýðir ekkert annað en taka þessu vel.“ í lok maímánaðar kom út fyrri áfangi sameiginlegrar sýslu- námsskrár skólanna í Vestur- Húnavatnssýslu og á Borðeyri. Námsskráin er nánari útfærsla á aðalnámsskrá grunnskóla og mun verða sameiginlegur grunnur að skólanámsskrá Barnaskóla Staðarhrepps, Grunnskólans á Borðeyri, Grunnskólans á Hvamms- tanga, Laugarbakkaskóla og Vesturhópsskóla. Verkið er unnið af kennurum skólanna fyrir styrk úr Verkefna- og námsstyrkjasjóði Kennara- sambands íslands. Ritstjórar verksins voru: Kristinn Breið- fjörð Guðmundsson, skóla- stjóri Barnaskóla Staðar- hrepps, Sigrún Einarsdóttir, kennari í Laugabakkaskóla, og Sýslunámsskrá skólanna í Vestur-Húnavatnssýslu og á Borðeyri: „Megmáhersla í samstarfi skólaima er á faglega samvinnu starfsfólks og félagsleg samskipti nemenda“ - segir Kristinn Breiðíjörð Guðmundsson, skólastjóri prentunar. Að öðru leyti hafa kennarar allra skólanna unnið að sýslunáfnsskránni í hópvinnu, að mestu skipt eftir námsgreinum. Þá komu fulltrúar foreldra á tvo sameiginlega fundi með kennur- um og stjórnendum skólanna þar sem meginákvarðanir voru tekn- ar um skipulag og framvindu verksins,1' segir Kristinn Breið- fjörð. Samstarfsverkefni skólanna hefur hlotið heitið Samverk. Samkvæmt skilgreiningu verksins er um að ræða,,...setningu sam- eiginlegra markmiða í skólastarf- inu, lýsingu á megininntaki og leiðum, með sýn á samfélagsgerð og náttúru héraðsins, menningu þess og sögu.“ Sýslunámsskráin er hugsuð sem nánari útfærsla á aðalnáms- skrá grunnskóla; staðfærsla á þeim áhersluatriðum sem skól- arnir vilja útfæra sérstaklega með tilliti til aðstæðna í héraðinu. „Verkinu er síðan ætlað að verða grunnur að skólanámsskrá hvers skóla þegar fram líða stundir. Þannig tekur sýslunámsskráin til fjölda þátta sem eru skólunum sameiginlegir. Því má ætla að betri samfella verði í skipulagi skólastarfsins í héraðinu en ella um leið og myndast hefur trú- verðugur grunnur til faglegrar samvinnu skólanna í framtíðinni. - í fyrsta áfanga verksins, sem nú kemur út, eru sett fram héraðs- markmið og megininntak náms- efnisins í þeim greinum sem það á við auk fjölda tillagna um útfærslur og viðfangsefni. Seinni hluti verksins, sem hefur hlotið styrk úr Þróunarsjóði grunn- skóla, mun taka til samskipta skólanna innbyrðis og við ýmsar stofnanir samfélagsins, félags- og íþróttamála, samskipta foreldra og skóla o. fl. þátta. Það er skoð- un þeirra sem að þessu verki standa, að þótt hér sé komið út á prenti rit sem kallast sýslunáms- skrá, verði aldrei um fullkomna og endanlega útgáfu að ræða heldur á verkið að vera stöðugt í umræðu og endurskoðun. Skoð- anaskiptin eru aflvaki og undan- fari raunverulegrar skólaþróunar þar sem starfsfólk skólanna í samvinnu við íbúa héraðsins vinna stöðugt að því marki að gera góða skóla betri,“ segir Kristinn Breiðfjörð Guðmunds- son, skólastjóri Barnaskóla Stað- arhrepps. ój Valgerður Jakobsdóttir, kenn- ari í Grunnskólanum á Hvammstanga. „Um nokkurt árabil hafa grunnskólarnir í Vestur-Húna- vatnssýslu og á Borðeyri haft með sér samstarf sem farið hefur vaxandi ár frá ári. í fyrstu voru ýmsar íþróttakeppnir uppistaðan í þessu samstarfi en á síðustu árum hefur átt sér stað eðlis- breyting á samskiptum skólanna. Smám saman er mönnum að verða ljós nauðsyn þess að íbúar dreifbýlisins starfi saman og líti á sig sem samherja og héraðið allt sem eina starfsheild. Gott sam- starf hefur náðst með skólunum sem getið hefur af sér víðtækari samvinnu en áður var,“ segir í fréttatilkynningu frá grunn- skólunum í Vestur-Húnavatns- sýslu og á Borðeyri. Fram kemur í fréttatilkynn- ingu að megin markmið í sam- vinnu skólanna eru: - Að bæta og styrkja mannlíf í héraðinu. - Að gera skólastarfið mark- vissara og sníða það sem mest og best að þörfum nemenda, for- eldra og samfélagsins alls. - Að auka faglegt og félagslegt samstarf meðal starfsfólks skól- anna. - Að skapa jákvæða afstöðu hjá nemendum, foreldrum og kennurum gagnvart íbúum alls héraðsins, hvort sem þeir búa í bæ eða sveit, með auknum kynn- um og samstarfi þeirra í millum. Laugabakkaskóli. - Að rækta samhug, félags- lyndi og víðsýni með nemendum skólanna, meðal annars til að auðvelda þeim að flytjast rnilli skóla. - Að brjóta upp hefðbundna kennslu og auka þannig á fjöl- breytni í viðfangsefnum og vinnubrögðum. Kristinn Breiðfjörð Guð- mundsson, skólastjóri, segir að árið 1989 hafi tekið gildi hér á landi ný aðalnámsskrá grunn- skóla og í tengslum við hugmynd- ir um skólanámsskrár, sem þar koma fram, hafi stjórnendur skólanna ákveðið að freista þess að þróa samstarfið enn frekar með því að standa fyrir gerð sýslunámsskrár. Á sameiginleg- um starfsdegi skólanna í byrjun árs 1990 voru fyrstu skrefin stigin. Verkið komst síðan á góð- an rekspöl er styrkur fékkst úr Verkefna- og námsstyrkjasjóði Kennarasambands íslands, skóla- árið 1991 - 1992. Jafnframt fékkst heimild fræðsluyfirvalda til að ráða þrjá aðila sem fagstjóra (rit- stjóra) til verksins. „Fyrri áfangi þessa samstarfs- verkefnis skólanna var skipulagð- ur með þeim hætti að fagstjórarn- ir söfnuðu upplýsingum og mót- uðu tillögur um skipulag og fram- vindu verksins. Einnig fengu þeir það hlutverk að vera e.k. verk- stjórar og tengiliðir á milli skól- anna meðan á vinnunni stæði auk þess sem þeir hafa búið verkið til Frá Hvammstanga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.