Dagur - 25.06.1992, Blaðsíða 14

Dagur - 25.06.1992, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 25. júní 1992 IÞRÓTTIR íslandsmótið í knattspyrnu, Samskipadeild: KA fær Fram í heimsókn Þór sækir FI1 heim kemst KA upp fyrir Fram og fer Þór upp fyrir ÍA? iftin. KA no Þnr. V(l KA hpfnr pllii iinniA Ipik T-íoiiUnt* A r\ cönn honc Ar Akureyrarliðin, KA og Þór, spila bæði í kvöld í 6. umferð, Islandsmótsins í knattspyrnu. Velgengni Þórsara hefur verið ákaflega mikil, það sem af er, og verður spennandi að sjá hvað þeir gera í kvöld þegar þeir mæta FH í Krikanum. KA- menn fá Fram í heimsókn og er óhætt að fullyrða að þeir mega hafa sig alla við ætli þeir sér að fara með sigur af hólmi. Fram- arar hafa komið mjög sterkir út úr síðustu tveimur leikjum, unnu Val 4:1 og Breiðablik 3:0. KA hefur ekki unnið leik síðan í fyrstu umferð þegar þeir lögðu Víkinga að velli. „Þetta er leikur sem við verð- um að vinna,“ sagði Haukur Bragason, markvörður KA- liðsins, þegar hann var spurður að því hvernig honum litist á leik- inn. „Framararnir verða vafa- laust erfiðir en við ættum að geta tekið þá. Menn verða bara að mæta rétt stemmdir í þetta og þá þurfum við engu að kvíða, þetta er ekki óvinnandi lið,“ sagði Lárus Sigurðsson hefur aðeins fengið á sig tvö mörk í markinu hjá Þór í sumar. Glæsilegt úrval gluggatjaldaefna Ótrúlegt verð frá kr. 280,- Sendi í póstkröfu. Svampur og Bólstrun, Austursíða 2 (Sjafnarhúsinu), sími 25137. Ji Takið eftir Kaffisala verður í Kjarnalundi sunnudaginn 28. júní frá kl. 14.30-17.00. Einnig kökubasar og flóamarkaður. NLFA Haukur. Að sögn hans er stefnan sett á að halda hreinu í þessum leik. „Það er orðið tímabært," sagði Haukur. Eins og menn eflaust muna spiluðu KA-menn við KR-inga í síðasta heimaleik og skildu liðin jöfn. Báðum liðum tókst að skora einu sinni. Deildin er mjög jöfn um miðjuna og geta KA- menn komist einu stigi upp fyrir Fram ef þeir hirða öll stigin í leiknum. Ef ekki, þá breikkar bilið nokkuð á milli liðanna í efstu sætunum og þeirra sem neð- ar eru. Það er því ljóst að þeir þurfa á sigri að halda, ætli þeir sér að vera með í toppbaráttunni í sumar. Þórsarar þurfa að fara suður yfir heiðar og keppa við FH-inga í Hafnarfirði. Liðið hefur enn ekki tapað leik og aðeins gert eitt jafntefli í sumar, svo stuðnings- menn liðsins ættu að geta verið bjartsýnir fyrir kvöldið. FH-ingar eru þó frægir fyrir að bíta frá sér svo Þórsarar verða að gefa sig alla í leikinn. „Ef við förum með sama hugarfari í þennan leik og hina sem við höfum verið að vinna, kvíði ég ekki leiknum,“ Haukur Bragason ætlar sér að halda markinu hreinu í leiknum á móti Fram. sagði Lárus Sigurðsson, mark- vörður Þórs. Aðspurður hvort ekki væri mikil pressa á leikmönn- um vegna þessa góða gengis í sumar, sagði hann svo ekki vera. „Við erum ekki efstir þessa stundina, ÍA skaust upp fyrir okkur með sigri á Eyjamönnum, svo við getum ekki gert annað en að setja stefnuna á toppinn aftur. Þar er best að vera og menn vita hvað gera þarf til þess að halda sér þar. Þetta eru einfaldir hlutir, ekkert vinnst nema haráttan sé í lagi og ég sé enga ástæðu til að ætla ann- að en að menn mæti með rétta hugarfarið með sér," sagði Lárus Sigurðsson. SV Dregið í Mjólkurbikarnum: Bikarrimma á Akureyri KA og Þór mætast Dregið var í Mjólkurbikar- keppni KSI í gær og voru KA og Þór dregin saman. Völsung- ar fá 1. deildarlið KR í heim- sókn til Húsavíkur og það lið sem vinnur í leik Kormáks og Leifturs fær Fylki í heimsókn. Þjáfarar Akureyrarliðanna voru báðir mjög ánægðir með niðurstöðuna, fannst gott að þurfa ekki að fara úr bænum til þess að spila þennan leik. „Við förum að sjálfsögðu í þennan leik til þess að vinna, annað er ekki hægt í bikarnum," sagði Sigurður Lárusson, þjálfari Þórs. „Mér er alveg sama hvaða lið ég spila við en þetta verður gaman fyrir fólkið í bænum. Nú verða viðureignir liðanna þrjár í stað tveggja og við verðum bara að vona að áhorfendur fjölmenni á þennan leik til þess að fá réttu stemmninguna,“ bætti hann við. Gunnar Gíslason, þjálfari KA, sagðist ánægður með þetta. „Blessaður vertu, þetta er bara mjög gott. Gott að þurfa ekki að fara úr bænum til þess að spila þennan leik. Við ætlum okkur auðvitað að vinna þá, eins og við ætlum með hvert annað lið. Bæjarbúar ættu að kætast,“ sagði Gunnar. KA og Þór mættust í 16 liða úrslitum í bikarkeppninni 1987 og þá hafði Þór betur eftir fram- lengingu og vítaspyrnukeppni. Á Húsavík mætast Völsungar og KR og það er næsta víst að Völsungar eiga eftir að verða KR-ingum erfiðir. „Þeir eru örugglega með mjög sterkt lið en við erum hvergi bangnir," sagði Sveinn Freysson, fyrirliði Völs- unga. „Það verður gaman að tak- ast á við 1. deildarlið og ég er viss um að það er mikil stemmning i bænum fyrir þessu. Við ætlum okkur að sjálfsögðu sigur,“ sagði Sveinn. Aðrir leikir í bikarnum eru: UBK-Valur ÍBK-FH Valur Reyðarf.-Í A Víkingur-ÍBV Kormákur/Leiftur-Fylkir BÍ-Fram Víðavangshlaup H.S.Þ. 1992 Þrjú víðavangshlaup hafa ver- ið haldin á vegum H.S.Þ, í Aðaldal, á Tjörnesi og á Grenivík. AIIs tóku 186 manns þátt í hlaupunum og er það metþátttaka. Bikarhafi 1992 er Reykhverfingur. í Aðaldal voru keppendur 89 og 110 tóku þátt í fjölskyldu- trimmi. Alls hlupu 120 manns þar. Á Tjörnesi voru keppendur 81 og í fjölskyldutrimmi voru 76 þátttakendur. Þar voru hlaupa- garparnir 106 alls. Á Grenivík voru 93 keppendur og 89 trimm- arar. Þar hlupu 118 manns. Úrslit úr hlaupunum eru eftirfarandi: 10 ára og yngri: 1. Andri Rúnarsson, Reykhverfingi 25 stig 2. Vilhjálmur P. Pálmason, Eilífi 21 stig 3. Höröur Sigurgeirsson, Völsungi 18 stig 1. Eyrún G. Káradóttir, Völsungi 30 stig 2. Hulda Sigmarsdóttir, Völsungi 23 stig 3. Anna K. Karlsdóttir, Völsungi 19 stig 11-12 ára: 1. Stefán Jakobsson, Eilífi 30 stig 2. Gunnþór Sigurgeirsson, Völsungi 27 stig 3. Ólafur H: Kristjánsson, Mývetningi 19 1. Vala Dröfn Björnsdóttir, Magna 30 stig 2. Heiður Vigfúsdóttir, Völsungi, 27 stig 3. Guðrún Helgadóttir, Völsungi 23 stig 13-14 ára: 1. Orri Freyr Oddsson, Völsungi 27 stig 2. Skafti S. Stefánsson, Geisla 26 stig 3. Eýþór Rúnarsson, Reykhverfingi 22 stig 1. Erna D. Þorvaldsdóttir, Völsungi 30 stig 2. Ólöf B. Þórðardóttir, Völsungi 26 stig 3. Erla J. Einarsdóttir, Völsungi 23 stig 15-18 ára: 1. Hákon Sigurðsson. Völsungi 30 stig 2. Porvaldur Guðm.son. Völsungi 27 stig 3. Unnsteinn Tryggvason, Reykhv. 23 stig 19-30 ára: 1. Sigurbj. Arngrímsson, Mývetningi 10 stig 2. Sigmar Stefánsson, Reykhverf. 10 stig 3. Birgir Hauksson, Eilífi 9 stig 1. Laufey Hreiðarsdóttir, Magna 30 stig 2. Hólmfríður Jóhannsdóttir, Eflingu 16 stig 3. -4. Huida Stefánsd. Reykhverf. 9 stig 3.-4. Guðný Sveinbjörnsd., Völsungi 9 stig 31 árs og eldri: 1. Jóhann Gestsson, Mývetningi 28 stig 2. Jón Hermannsson, Mývetningi 25 stig 3. -4, Unnar Vilhjálmsson, Eflingu 20 stig 3,-4. Rúnar Óskarsson, Reykhverf. 20 stig 1. Lovísa Gestsdóttir, Mývetningi 28 stig 2. Kristjana Skúladóttir, Völsungi 20 stig 3. Helga Helgadóttir, Magna 9 stig Úrslit úr víðavangshlaupunum þremur: 1. Reykhverfingur, 14,3% Bikarhafar 1992. 2. Eilífur, 13,3% 3. Magni, 12,2% SV

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.