Dagur - 25.06.1992, Qupperneq 13
Fimmtudaqur 25. iúní 1992 - DAGUR - 13
Efnt til sumartónleika á Norður-
landi sjötta sumarið í röð
- fyrstu tónleikarnir verða fyrstu helgina í júlí
Forsvarsmcnn Sumartónlcika á NorAurlandi. Frá vinstri: Margrét Bóasdótt-
ir, söngkona á Grcnjaðarstað, Hrefna Harðardóttir, framkvæmdastjóri
Suinartónleika og Björn Steinar Sólbcrgsson, organisti Akureyrarkirkju.
Eins og undanfarin sumur
verður efnt til tónleika í kirkj-
um á Norðurlandi undir heit-
inu Sumartónleikar á Norður-
Iandi. Þetta er sjötta sumarið
sem haldnir eru sumartónleik-
ar, en þeim var hrundið af stað
árið 1987 fyrir tilstilli Björns
Steinars Sólbergssonar, organ-
ista Akureyrarkirkju og Mar-
grétar Bóasdóttur, söngkonu á
Grenjaðarstað.
Til þessa hafa tónleikarnir ver-
ið bundnir við þrjár kirkjur,
Akureyrarkirkju, Húsavíkur-
kirkju og Reykjahlíðarkirkju, en
í sunrar verða tónleikarnir fleiri
en áður og hafa fjórar kirkjur
bæst í hópinn, Dalvíkurkirkja,
Hóladómkirkja í Hjaltadal,
Lundarbrekka í Bárðardal og
Raufarhafnarkirkja.
Venjulega hafa tónleikarnir
verið 15 en í sumar verða þeir 18.
Þeir fyrstu verða 2. júlí nk. og
þeir síðustu 30. júlí.
Tónlistarhópur Akureyrar-
kirkju, skipaður Margréti Bóas-
dóttur, sópran, Bimi Steinari Sól-
bergssyni, orgel, Dagbjörtu Ing-
ólfsdóttur, fagott, Hólmfríði Þór-
oddsdóttur, óbó og Lilju Hjalta-
dóttur, fiðlu, ríður á vaðið og
heldur fyrstu tónleikana í Dal-
víkurkirkju 2. júlí kl. 20.30. Dag-
inn eftir á sama tíma verður þetta
listafólk með tónleika í Raufar-
hafnarkirkju, þann 4. júlí í
Reykjahlíðarkirkju kl. 20.30 og
kl. 17 sunnudaginn 5. júlí verða
síðustu tónleikar Tónlistarhóps-
ins í Akureyrarkirkju.
Föstudaginn 10. júlí verða
Inga Rós Ingólfsdóttir, selló,
Hörður Áskelsson, orgel, og
Hollendingarnir Judith Janin van
Eck, selló, og Sebastian van Eck,
selló, með tónleika í Húsavík-
urkirkju kl. 20.30. Laugardaginn
11. júlí kl. 17 verða þau í Hóla-
dómkirkju í Hjaltadal og á sama
tíma sunnudaginn 12. júlí í
Akureyrarkirkju.
Dönsku sópransöngkonurnar
Bodil Kvaran og Birgitte Everlöf
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Bárugata 2, efri hæð, Dalvík, þingl.
eigandi Þorsteinn J. Haraldsson og
Jónína A. Júlíusdóttir, fer fram á
eigninni sjálfri þriðjudaginn 30. júní
1992, kl. 10.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl. og Ólafur Birgir
Árnason hrl.
Keilusíða 10 d, Akureyri, þingl. eig-
andi Sverrir Skjaldarson og Anna
Hreiðarsdóttir, fer fram á eigninni
sjálfri þriðjudaginn 30. júní 1992, kl.
13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar og Hús-
næðisstofnun ríkisins.
Sandskeið 26, Dalvík, þingl. eigandi
þrb. Pólstjörnunar hf. fer fram á
eigninni sjálfri þriðjudaginn 30. júní
1992, kl. 10.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Byggðastofnun, Ólafur Birgir Árna-
son hrl og Gunnar Sólnes.
Tryggvabraut 22 efsta hæð, Akur-
eyri, þingl. eigandi Helga A.
Jóhannsdóttir og Haraldur Pálsson,
fer fram á eigninni sjálfri þriðjudag-
inn 30. júní 1992, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar, Ásgeir
Thoroddsen hrl., Gunnar Sólnes
hrl., Ólafur Gústafsson hrl., Ólafur
Birgir Árnason hrl. og Benedikt
Ólafsson hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu
ásamt orgelleikaranum Lasse
Everlöf verða með tónleika í
Húsavíkurkirkju föstudaginn 17.
júlí kl. 20.30. Laugardaginn 18.
júlí verða þau með tónleika í
Reykjahlíðarkirkju kl. 20.30 og
kl. 17 sunnudaginn 19. júlí í
Akureyrarkirkju.
Hópur listamanna, sem kallar
sig Capella Media og saman-
stendur af Rannveigu Sigurðar-
dóttur, sópran, Sverri Guðjóns-
syni, kontratenór, Christine
Heinrich, viola da gamba, Klaus
Hölzle, lúta og blokkflauta og
Stefan Klar, lúta, (þrjú þau síð-
astnefndu eru frá Þýskalandi)
heldur tónleika í Húsavíkurkirkju
föstudaginn 24. júlí kl. 20.30.
Capella Media verður einnig með
tónleika í Reykjahlíðarkirkju
laugardaginn 25. júlí kl. 20.30, í
Lundarbrekku í Bárðardal
sunnudaginn 26. júlí kl. 14 og
Borgarbíó svnir: Kolstakk
(Black Robe).
Leikstjóri: Bruce Beresford.
Aðalhlutverk: Lothaire Bluteau
Mikinn sálarstyrk hafa trúaðir
menn. jafnvel svo jaðrar við að
vera yfimáttúrulegt. Kolstakkur er
kvikmynd um þennan sálarstyrk
og ósérhlífni þess er býr yfir
sannleika guðsorðs og Biblíunnar.
Það er árið 1634. Jésúítapresturinn
Laforgue (Lothaire Bluteau) býðst
til að fara um óbyggðir Kanada á
fund Huron indíána en þar hefur
reglan reist trúboðsstöð. Yfirmenn
hans eru hikandi en ákveða síðan
að senda hann af stað. Engar frétt-
ir hafa borist frá trúboðsstöðinni í
langan tíma og þeir eru áhyggju-
fullir.
Kolstakkur er kvikmynd um
þetta ferðalag. I erlendum
kvikmyndatímaritum hefur henni
verið lfkt við Dances With
Wolves og sögð standa henni
fyllilega jafnfætis. Að þessu sinni
get ég þó engan veginn veriS sam-
mála starfsbræðrum mínum.
Kolstakkur er ekki nándar nærri
jafn góð kvikmynd og úlfamynd
Kevin Costners. Hún er að vísu
vel gerð og skilar sjálfsagt
ágætlega því sem á að koma fram,
svo fremi það hafi ekki verið neitt
annað en ósérhlífni trúboðans.
Hængurinn er bara sá að hinn
manneskjulegi þáttur verður með
einhverjum hætti út undan.
Bíófaranum er aldrei boðið inn
Mynd: GT
sama dag kl. 17 í Akureyrar-
kirkju.
Síðastir í röð sumartónleika að
þessu sinni verða tónleikar þýsku
listamannanna Egbert Lewark,
trompet, og Wolfgang Portugall,
orgel. Fyrstu tónleikar þeirra
verða í Dalvíkurkirkju fimmtu-
daginn 30. júlí kl. 20.30. Þeir
hálda síðan tónleika í Reykja-
hlíðarkirkju föstudaginn 31. júlí
kl. 20.30, laugardaginn 1. ágúst
kl. 17 og í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 2. ágúst kl. 17.
Sumartónleikar á Norðurlandi
eru styrktir af fjölmörgum aðil-
um, kirkjuyfirvöldum heima í
héraði, fyrirtækjum og hótelum
og ríkinu að ógleymdum frjálsum
framlögum við kirkjudyr.
Ókeypis er inn á alla tónleikana.
óþh
undir skinn persónanna og indf-
ánarnir verða nánast eins og nátt-
úruöllin, blindir, hugsunarlausir
og vægðarlausir þegar því er að
skipta. Örlítil tilraun er þó gerð til
að gægjast inn í sálarlíf indíána-
höfðingjans, fylgdarmanns
Laforgue, (og hann gefur
upplýsingar um eðli Iroquisa) - að
öðru leyti eru frumbyggjamir
meðhöndlaðir á kaldranalegan
hátt. Við fáum að sjá þá með
augum 17. aldar Evrópumannsins
sem er svo sem gott og blessað en
það fer í verra þegar ferðalangarn-
ir sjálfir verða eins og verur, ekki
menn, í augum bíófarans.
Kolstakkur er kuldaleg mynd.
Hún hefur á sér drungalegt yfir-
bragð og er endaslepp. Það er
langur vegur frá því að hún vermi
um hjartarætur eins og Dances
With Wolves gerði. Að þessu
leytinu stendur hún mun nær
Mission þar sem Jeremy Irons og
Robert De Niro fóru með aðal-
hlutverkin. Báðar draga upp von-
leysislega mynd af manninum, þar
sem öll ráð eru tekin af honum og
hann verður eins og hlutur sem
dæmdur er til að ánetjast örla-
gavef ofnum af öðrum, jafnvel
náttúrunni sjálfri. Ég geri ráð fyrir
að engin heimsmynd önnur fari
álíka mikið í skapið á
skynsemistrúarmanni ofanverðrar
20. aldar og einmitt þessi um
viljalausa rekaldið- við trúum því
svo gjarnan að það séum við sjálf
sem kippum í örlagaþræði okkar.
Kvikmyndarýni
Jón Hiallason
Að ganga
erinda Guðs
Dans-
leikur
verður í Bláhvammi, Skipagötu 14 laug-
ardaginn 27. júní kl. 22.00 — 03.00.
Allir velkomnir.
Harmonikuunnendur.
>v
AKUREYRARB/ER
Tilboð
Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í breytingu
á húseigninni Brekkugötu 34, þar sem reka á
dagvist.
Gögn ásamt öllum upplýsingum veröa afhent á
Byggingadeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 4.
hæð frá birtingu þessarar auglýsingar.
Húsiö verður til sýnis föstudaginn 26.06 n.k. frá
kl. 10.00-12.00.
Tilboð verða opnuð á Byggingadeild 1. júlí kl.
11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess
óska.
Byggingadeild Akureyrarbæjar.
Skólasel Eyjafjarðarsveit
Vantar reyndan yngri barnakennara í Skólasel í
Sólgarði, (15 nemendur í 2 bekkjar deildum).
Ódýrt húsnæði á staðnum.
Umsóknarfrestur til 7. júlí nk.
Upplýsingar hjá Sigurði Aðalgeirssyni skólastjóra í
síma 96-31230 og Onnu Guðmundsdóttur aðstoðar-
skólastjóra í síma 96-31127.
hótelOðal
Hótel Óðal auglýsir eftir fólki til eftirtalinna
starfa:
• Gestamóttöku
• Næturvörslu
• Herbergisþernu
Umsóknum sem tilgreini aldur, starfsreynslu og
tungumálakunnáttu skal skila til Hótels Óðals.
Upplýsingar veitir hótelstjóri (ekki í síma).
Litli drengurinn okkar,
DAGUR ÁSGEIRSSON,
sem lést aðfaranótt
22. júní verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn
29. júní kl. 13.30.
Hildur Óladóttir, Ásgeir Yngvason.